Alþýðublaðið - 09.07.1993, Qupperneq 6
Bílheimar flytja á Fosshálsinn:
6
J _L
Föstudagur 9. júlí 1993
Kynna nýjan
Isuzu Trooper
Fyrirtækið Bílheimar er nú að komast
á fullt skrið, en það var stofnað af Ing-
vari Helgasyni hf. til að taka við þeim
bílaumboðum sem Sambandið hafði
áður. Bílheimar hefur flutt starfsemi
umboðanna að Fosshálsi 1 þar sem
Bílaborg var áður til húsa meðan það
fyrirtæki var og hét. Þar er nú verið
að kynna nýja gerð af Isuzu Trooper
jeppa og splunkuný gerð af Opel
Corsa er væntanleg með haustinu.
Það var gott hljóð í forráðamönnum Bílheima í stuttu
spjalli við Alþýðublaðið. Góð aðstaða er í nýja húsinu til
að veita sem best þjónustu. A jarðhæðinni er stór og bjart-
ur sýningarsalur þar sem sjá má nýjustu modelin og á
þeirri hæð er einnig rúmgóð varahlutverslun. Verkstæðið
er svo á neðstu hæðinni en þar við hliðina er smurstöð Ol-
ís. Að undanfömu hefur verið unnið kappsamlega við að
koma varahlutamálum í gott lag og fylla upp í eyður á lag-
eraum. Ætlunin er að efna til útsölu á eldri birgðum vara-
hluta sem lítil hreyfing er á.
Isuzu Trooper og Opel
Bflheimamenn hafa nú fengið nýja gerð af Isuzu Troo-
per jeppum sem verið er að kynna um þessar mundir í til-
efni af flutningi í nýja húsið á Fosshálsi. Um er að ræða
stærri, vandaðri og kraftmeiri gerð en áður var á markaði.
Að sögn forráðamanna Bflheima hefur jeppinn fallið vel í
kramið hjá þeim sem hafa skoðað hann og standa vonir til
að nýi Trooperinn fangi hug og hjörtu jeppamanna.
Opel er velþekkt bflategund hér á landi til fjölda ára, en
verðið hefur þótt í hærra kantinum að undanfömu og það
komið niður á sölunni. Bflheimar hafa nú náð mjög hag-
stæðum samningi við kaup á Opelbflum sem bætir sam-
keppnisstöðuna til muna. í haust kemur ný útgáfa að Opel
Corsa á markaðinn og þeir hjá Bflheimum segja að þama
sé um að ræða afskaplega fallegan og eigulegan bfl. Von er
á 1994 árgerðinni til landsins með haustinu og þá stendur
líka til að setja á markað nýjan jeppa frá Opel.
Þá má ekki gleyma því að Bflheimar hafa umboð fyrir
Genaral Motors í Bandaríkjunum. Þaðan koma góðkunn-
ingjar okkar úr bflaheiminum svo sem Chevrolet, Buick,
Pontiac að ógleymdum Cadillac. Það er ekki hægt að segja
að sá síðastnefndi sé algengur fjölskyldubfll hérlendis
enda kostar hann sitt. En það er eins og maðurinn sagði:
Kádiljákurinn er ekki dýr miðað við það sem dýrt er.
Isuzu Trooper jeppinn fæst nú breyttur og endurbættur eins
og allir þeir sem heimsækja Bilheima geta sannfærst um.
þá virðingu
sem hún verðskuldar.
Umhverfisráðuneytið
Brimborgarmenn kvarta ekki:
Jöfn og góð sala í
Volvo og Charade
Ýmsum þykir sem Volvo-
eigendur séu svolítið sér á
parti þar sem þeir eru að
jafnaði ekki til viðræðu um
aðrar tegundir bíla. Einu
sinni Volvo - alltaf Volvo.
Þeir hjá Volvo hafa farið
varlega í breytingar á bíl-
unum fram til þessa, en nú
hefur orðið kúvending með
nýjum línum og framhjóla-
drifi.
„Já, nú eru spennandi tímar íyrir nýja
kaupendur Volvo og þá ekki síður íyrir þá
sem hafa átt Volvo og ætla sér að yngja
upp. Það eru komnir nýir straumar í Vol-
voinn sem sýnir að lengi má gera gott
betra. Útlitið er breytt, ötyggisbúnaður
bættur enn ffekar og svo er það framdrif-
ið. Við erum hér með Volvo 460 og 850
fólksbfla og í þeim er alltaf jöfn og góð
sala. Enda var það svo þegar Brimborg
tók við umboðinu af Gunnar Ásgeirssyni,
að við stefndum að því að ná í tryggan
kaupendahóp. Það hefur gengið eftir,“
sagði Hilmir Elíasson sölustjóri Brim-
borgar.
Hann sagði að samdráttur í sölu hjá
þeim væri minni en víða annars staðar.
Volvoeigendur væru þekktir fyrir að
halda sig við þessa bflategund jþá einu
sinni þeir hefðu eignast Volvo. Á því væri
engin breyting og það segði meira um bfl-
inn en mörg orð. Auk nýrra bfla seldust
notaðir Volvoar mjög vel og þeir hjá
Brimborg hefðu því ekki ástæðu til að
kvarta.
Það er fleira matur en feitt kjöt var ein-
hvem tímann sagt. Og Brimborg er með
aðra bfla í boði en Volvo. Daihatsu Chara-
de selst jaíht og þétt sem fyrr og Hilmir
sagði að þar færi hinn klassiski fólksbfll
landans. Sá bfll væri ekki síst vinsæll hjá
kvenþjóðinni og taldi Hilmir ekki ólfldegt
að 90% akandi kvenna færi um á Chara-
de. Það má því kanski segja að á ýmsum
heimilium aki bóndinn á Volvo en ífúin á
Charade. Hvað sem því líður þá eiga þess-
ir bflar þó það sameiginlegt að koma úr
umboði Brimborgar.
Það er alltaf jöfn og góð sala í Volvo sem hefúr tryggan kaupendahóp.