Alþýðublaðið - 09.07.1993, Page 13
Föstudagur 9. júlí 1993
13
Þýskir fjárhundar eru til margra hluta nýtilegir
HUNDALIF1RUSSNESKA HERNUM
ÞÝSKU FJÁRHUNDARNIR hér á
meðfylgjandi myndum eru herhund-
ar í Rússneska hernum. Þá er verið
að þjálfa til að glíma við mörg ban-
vænustu verkefni vígvallarins. Um
tíu mánaða skeið ganga þeir í
gegnum strangt nám í Þjálfunar-
skóla Rússneska hersins í Moskvu.
Hlutverk þeirra spannar vítt svið.
Hermenn eiga eftir að njóta þess að
geta látið hundana til dæmis
sprengja upp vopnabúr óvinarins
eða flytja særða af vígvellinum.
Þjálfunarskóli Rússneska hersins í
Moskvu var stofnaður árið 1924 og
hefur séð um þjálfun á þúsundum
hunda. í seinni heimsstyrjöldinni
tóku hinir fjórfættu stúdentar þátt í
ekki ómerkari orrustum en um
Moskvu, Stalíngrað og Kursk.
Á dögum kalda stríðsins voru þessir
þýsku fjárhundar þjálfaðir til að mæta ógn-
um kjamorkuvopnaárása. I dag er liklegra
að hundamir komi mest að notum í um-
hverfisslysum af ýmsum gerðum. Sumir
hundanna hafa til að mynda verið þjálfaðir
til mæla efnamengun með hávísindalegum
tækjum sem staðsett em í búningum þeirra.
í sérstökum vemdarbúningum er þeim
kennt að fara í könnunarleiðangra um svæði
sem menguð em af eiturefnum. Gasgrímur
hundanna em búnar talstöðvarmóttöku-
tækjum sem gera leiðbeinendum þeirra
kleift að gefa hundunum skipanir. Öðmm
hundum em kenndar hinar og þessar að-
ferðir við sjálfsmorðsárásir á óvinaskrið-
dreka, sjálfsmorð því þeir em með sex kíló
af öflugu sprengiefni á bakinu. Enn aðra
hunda er svo verið að þjálfa til að bera
særða hermenn út úr bardaga eða leita að
banvænum jarðsprengjum.
Þýskur fjárhundur í Rússneska hemum
íklæddur búningi scm kæmi að góðum notum
ef stríð mcð cfnavopnum brytist út. í gasgrím-
unni er talstöðvarmóttökutæki og í búningn-
um cm hávísindaleg tæki til að mæla efna-
mengun.
Blindandi réttstaða æfð með kennaranum. Þessum hundum ætti aginn að vera í blóð borinn því
hundar af þessu þýska fjárhundakyni hafa tekið þátt í hernaði allt frá árinu 1924. Þeir hafa unn-
ið ýmis afrek í til dæmis orrustunum um Moskvu og Stalíngrað í scinni heimsstyrjöldinni.
Herhundur með sex kíló af sprengiefni á bakinu æfir sig fyrir sjálfsmorðsárásir á skriðdreka
óvinaríns. Einhverjir gætu haldið þetta vera skynlausar skepnur en það er nú öðm nær, hug-
rekki þcirra virðast engin takmörk sett.
Hinum særðu hermönnum snarlega bjargað af vígvelli. Þcssir hundar em einhverjir þeir sterk-
ustu og árciðanlcgust u i heimi, það gætu íslenskir björgunarsvcitamcnn áreiðanlega staðfest. Með
réttri þjálfun virðast þeir geta framkvæmt hvað sem er.
Pennavinir
TVÆR UNGAR dömur og
einn strákur frá Gana í Afr-
íku, auk ungs íþrótta-
manns í Englandi, hafa
skrifað blaðinu og óskað
eftir að komast í samband
við pennavini á íslandi,
konur og karla á öllum
aldri. Hér koma nöfnin,
heimilisföng og áhugamál-
in:
Justina Mensah, P.O. box 749, Cape
Coast, Oguaa, Ghana, West Africa, 25
ára, áhugakona um körfubolta, bóklestur,
kvikmyndir - og hjónaband.
Charlotte Love Buckman, P.O.Box
749 Cape City, Oguaa, Ghana, West Afr-
ica, 24 ára, hún segist hafa gaman af
lestri, borðtennis, tónlist og ástarævintýr-
um.
Mark Baidoo, Box 749, Cape City,
Oguaa, Ghana, West Africa, 23 ára karl-
maður, sem hefur áhuga á fótbolta, hnefa-
leik, borðtennis, lestri og tónlist.
Danny James Lavender, 30 ára
íþróttamaður og sjentilmaður, óskar eftir
að skrifast á við stúlku á aldrinum 25-32
ára. Hann segist leita að ást og vináttu.
Skrifið og sendið mynd til: Danny James
Lavender, 45 Broomhill Road, Orping-
ton, Kent, BR6 OEN, England.
Peir hafa það fyrir satt gárungamir á norðanverðu landinu að
þetta verði að öllum líkindum frekar snjóþungt sumar.
Kuldamir sem enn herja á veiðimenn ríða ekki við einteyming
og t.d. fréttist af veiðimönnum á norðaustur hominu sem
vöknuðu upp einn morguninn í vikunni og utandyra beið þeirra
tveggja stiga hiti.
Pessir miklu kuldar hafa þó ekki komið í veg fyrir að veiði er
víða með góðu móti og eins og greint var ffá s.l. föstudag era
menn heldur en ekki kátir í Vopnafirði og nú þegar famir að
spá metsumri. Laxinn er vel á sig kominn, tveggja ára laxar (í
sjó) allt upp í 18 pund og því mörg hörð glíman háð þessa
dagana. Maðkurinn hefur verið skæðastur en spónninn gefur
líka eins og hans er vani þegar kalt er.
Hörkugöngur hafa verið víða á suðvestur horninu og þar
hefur kuldinn ekki hrjáð veiðimenn með neitt svipuðu móti og
fyrir norðan. Norðurá er efst með á fimmta hundraðið og Þverá
rétt á eftir en ef fram fer sem horfir í Vopnafírði munu þær fá
hörkusamkeppni þaðan áður en langt um líður. Á
miðvikudagsmorgninum s.l. vora teknir 50 laxar í Norðuránni
og að sögn "áin blá af laxi". Aðaldalurinn hafði um miðja
vikuna gefið ramlega 300 laxa og þar er trúlega eini 20
pundarinn veiddur af konu á þessari vertíð kominn á land, úr
Hólmataglinu.
Arnar hafa verið að opna hver af annarri og eins og við er að
búast misjöfn aðkoman. Þannig opnaði Sandá í Þistilfírði rétt
fyrir mánaðarmótin og fékk fyrsti hópurinn engan fisk, enda
skilyrði afleit. Þeir sem komu næstir fengu hins vegar á fyrsta
seinnipartinum fimm 15 punda hænga!
Sá sem var að fara norður til að leysa þá menn af fékk þessar
fréttir í farsíma á leiðinni. Sá sem færði honum fréttirnar
fullyrðir að hvinurinn frá bílvélinni í gegn um símann hafi
aukist mjög skindilega og nánast ekki heyrst mannsins mál eftir
það.
Stórlaxar hafa víða sést og nokkrir veiðst í 20 punda
klassanum. Sá stærsti var tekinn s.l. sunnudag á maðk í
Langholtinu í Hvíta, 22,5 pund, en hinn s.l. laugardag á flugu
norður á Staðartorfu í Laxá í Áðaldal og var hann 22 pund.
Flugan sem sá fiskur gein við var Dodda rauð, en höfundur
hennar Þórður Pétursson á Húsavík hefur smíðað fjöldan allan
af "stórlaxabönum" í flugna líki.
Doddi, eins og Þórður er helst kallaður, hefur löngum veitt
veiðileiðsögn við Laxá og farist það vel úr hendi. Sú saga er
sögð að eitt sinn hafi tveir óreyndir Laxármenn verið að gera
sig klára til að veiða á Óseyrinni, en allir sem Laxá hafa
heimsótt kannast við þann stórkostlega veiðistað. Doddi kom
rétt í því aðvífandi og mennimir spurðu kappann hvemig best
væri að veiða staðinn. "Jú", sagði Doddi, "þið skulið vaða út
frá efri ósnum örlítið á ská upp og horfa vel í botninn. Þegar
þið svo sjáið gúmmískó í botninum skulið þið standa við
hliðina á honum og kasta bara stutt og vel niður fyrir ykkur".
Með þetta í veganesti héldu mennimir af stað en Doddi hvarf
á braut. Gúmmískóinn fundu þeir og köstuðu eins og fyrir þá
var lagt. í öðru eða þriðja kasti var fiskur á flugunni og hann
hvorki meira né minna en 20 pund!
Það er því vel við hæfi að gera fluguna Dodda rauð að flugu
vikunnar. Þetta er fymasterk fluga og ómissandi í öll alvöru
fluguveski. Best hefur hún gefið í stærðinni 6 á tvíkrækju.
DODDA RAUÐ