Alþýðublaðið - 22.10.1993, Blaðsíða 3
Föstudagur 22. október 1993
SKAGAFJORÐUR
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
SAMEINAÐUR SKAGAFJÖRDUR
- er framtíðarsýn Björns Sigurbjörnssonar bœjarfulltrúa Alþýðuflokksins á Sauðárkróki
og formanns umdœmisnefndar um sameiningu sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Það hefur verið góður stöðugleiki í bæjarmálapólit-
íkinni á Sauðárkróki undanfarin ár, en sami meiri-
hluti hefur verið þar starfandi síðustu tvö kjörtíma-
bil. Það er samstarf Sjálfstæðisflokksins, Alþýðu-
flokksins og K-listans, sem eru óháðir
frambjóðendur. Björn Sigurbjörnsson, skólastjóri
gagnfræðaskólans á Sauðárkróki, er bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins á staðnum, en hann hefur einnig
gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir samtök
sveitarfélaga á svæðinu. Hann var formaður Fjórð-
ungssambands Norðurlands í nokkur ár og hefur
verið formaður Sambands sveitarfélaga á Norður-
landi vestra frá upphafi. Þá er hann formaður um-
dæmisnefndar um sameiningu sveitarfélaga í kjör-
dæminu. Alþýðublaðið heimsótti Björn og ræddi
meðal annars við hann um atvinnumálin, bæjarmál-
in og sameiningu sveitarfélaga. En umræðan barst
fyrst að atvinnumálunum, sem heitast brenna á
bæjarbúum.
Bjöm Sigurbjörnsson bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins á Sauðárkróki.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
„Það má eiginlega segja að vam-
arbarátta í atvinnumálum sé það
sem við höfum þurft að glxma við
hér á Sauðárkróki á því kjörtímabili
sem brátt fer að ljúka. Þetta hefur
gengið erfiðlega, en við höfum
svona getað haldið sjó í þeim efn-
um. Við höfum verið heppin að því
leyti að við höfum nánast alveg ver-
ið laus við atvinnuleysisdrauginn,
Atvinnuleysið hefur að sjálfsögðu
stungið niður fæti hér eins og ann-
arsstaðar, en það hefur ekki verið
neitt teljandi. Enda hefur það verið
okkar megin verk að halda uppi at-
vinnustiginu í bænum.“
Fjölbreytt atvinnulíf
- Með hvaða hœtti hafa bæjar-
yfirvöld gripið inn í atvinnulífið
með það að markmiði að halda
uppi atvinnu?
„Þetta hefur gerst meðal annars
með markvissri þátttöku okkar í at-
vinnurekstrinum, við höfum komið
inni í fyrirtæki eins og Loðskinn og
saumastofuna Vöku. Þetta eru
vinnustaðir sem em nokkuð fjöl-
mennir og því yrði það afar slæmt
fyrir bæjaifélagið ef reksturinn
stöðvaðist. Nú síðan höfum við hér
mörg sterk og stöndug fyrirtæki
sem hafa sannað ágæti sitt með því
að standa af sér þessa erfiðu tíma.
Það sem hefur í raun bjargað
okkur hér á Sauðárkróki er marg-
breytileiki atvinnulífsins. Við erum
ekki bundin einni atvinnugrein eins
og víða gerist. Við emm því ekki
bara háð sjávarútvegi eða bara
landbúnaði. Við höfurn hér mjög
sterkt bakland sem em sveitir
Skagafjarðar. Þær skapa mörgum
vinnu, eins og til dæmis hjá Mjólk-
ursamlaginu. Nú, við emm með tvö
sláturhús sem skapa einnig mjög
mikla atvinnu meðan það er. Þó má
geta þess að núorðið em þau starf-
andi í einhverri mynd allan ársins
hring. Það gerir stórgripaslátrunin.
Það er semsagt margbreytileik-
inn sem gildir í atvinnulífinu og svo
verður auðvitað einnig að geta þess
að tilkoma Fjölbrautaskólans uppúr
1980 heíúr haft mikil áhrif á fólks-
fjölgun, atvinnulífið og samsetn-
ingu bæjarfélagsins. Hér hefur orð-
ið umtalsverð fólksfjölgun á hveiju
ári í mjög langan tíma og í því sam-
bandi er nauðsynlegt að benda á þá
staðreynd að á þessum samdráttar-
tímum sem nú ríkja, þá em margar
íbúðabyggingar f gangi hér í bæn-
um á vegum einstaklinga. Þetta er
til viðbótar þeim íbúðum sem ríki
og sveitarfélag hafa verið að byggja
í félagslega- og kaupleigukerfínu."
Erfið skuldastaða
- Hefur þetta haft áhrif á
skuldastöðuna, eða hefur ykkur
tekistað bœta stöðu bœjarsjóðs?
„Það var yfirlýst stefna allra lista
sem buðu fram fyrir síðustu sveitar-
stjómarkosningar að reyna minnka
skuldir bæjarins. Menn komu síðan
til starfa með það að markmiði að
standa við þessar yfirlýsingar, en
hin ytri skilyrði í þjóðfélaginu hafa
því miður ekki orðið til þess að við
höfum náð að borga okkar skuldir.
Við höfum því stefnt að því að auka
ekki við skuldimar, en þrátt fyrir
aðhald á mörgum sviðum þá höfúm
við þurft að taka enn meiri þátt í
uppbyggingu atvinnulífsins en áð-
ur, eins og ég nefndi fyrr. Þetta hef-
ur orðið til þess að ijárhagsstaða
bæjarins hefur ekki lagast en hún
hefur heldur ekki versnað mikið.
En það er alveg ljóst að það verður
ekki lengi við unað að þurfa reka
sveitarfélag með þessa skulda-
stöðu.
Það þarf að taka á þessu, en það
er spuming hvemig það er gert á
sama tíma og sífellt er krafist meiri
þjónustu af sveitarfélaginu. Við
getum til dæmis bent á það að á
þessu kjörtímabili þá höfum við
tekið við þjónustu fyrir fatlaðra inni
í Grunnskólunum, sem kostar sveit-
arfélagið 4-6 milljónir á ári. Þetta
skapar sex ný störf innan skólans.
Þetta er allt saman jákvætt en engu
að síður verður bærinn að leggja
fram töluvert af peningum. Við er-
um að fara af stað með aukna þjón-
ustu í félagsmálageiranum, stefnum
að því að ráða annað hvort sálffæð-
ing eða félagsráðgjafa til að vinna
að þessum málefnum í bænum. Allt
kallar þetta á aukið Ijármagn úr
bæjarsjóði."
Styrkur sameiningar
- Umrœðan um verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga er nátengd
sameiningu sveitarfélaga. Nú ert
þú formaður umdœmisnefndar
hér í kjördœminu, ertu bjartsýnn á
að þessar sameiningartillögur nái
fram að ganga?
„Ég tel að þessar tillögur séu
mjög raunhæfar og komi til með að
skila okkur miklu ef þær verða
samþykktar. Það er hins vegar stór
spuming hvort þær verða sam-
þykktar í öllum sveitarfélögum og
hreppum á svæðinu. Eg hef
ákveðnar efasemdir um að svo
verði, því sumir sveitarstjómar-
menn hafa hreinlega lýst því yfir að
þeir muni leggjast gegn öllum til-
lögum um sameiningu sveitarfé-
laga. „Við viljum fá að vera í friði,“
segja þeir.
En ég er hins vegar sannfærður
um það að stækkun sveitarfélaga er
af hinu góða. Þetta gefur aukna
möguleika á ýmsum sviðum, til
dæmis hvað varðar uppbyggingu
atvinnulífsins. Þetta getur eflt þjón-
ustu á svæðinu og síðast en ekki síst
getur þetta styrkt sveitarstjómar-
stigið sjálft, sem gerir það að verk-
um að við verðum með betri stöðu
við að koma fram sem samnings-
aðili við ríkisvaldið. Það gefur okk-
ur tækifæri á að yfirtaka verkefni
frá ríkinu. Það er mín bjargfasta trú
að mörg verkefni sem nú em hjá
ríkinu væru betur komin hjá sveit-
arfélögunum, sem em nær vett-
vangi þeirra sem eiga að njóta þjón-
ustunnar sem verið er að veita.“
Löng þróun
- Kannanir sýna að almenning-
ur er fremur hlynntur samein-
ingu, en andstaðan virðist mest
vera hjá sveitarstjórnarmönnun-
um sjálfum, þeir virðast til dœmis
vera hrœddir um að tekjustofnanir
verði eftir hjá ríkinu. Hvað seg-
irðuum þessar raddir?
„Eg held að þetta sé nú ekki rétt
athugað. Menn em hins vegar mjög
varkárir og það er bara eðlilegt því
þetta era náttúmlega stórkostlegar
breytingar á stjómsýslu landsins.
Það er því ekkert óvenjulegt við
það að menn sem hafa lifað og
hrærst í þessari umræðu vilji velta
málinu fyrir sér og séu kannski ekki
tilbúnir að samþykkja hlutina án
þess að fá að skoða þá svolítið. Það
er þó aiveg á hreinu að umræðan
ein út af fyrir sig hefur haft jákvæð
áhrif. Þannig geta ýmsir sveitar-
stjómarmenn verið hlynntir sam-
einingu þó þeir vilji ekki sameinast
í dag.
Ég vil hins vegar benda á það að
þessi umræða um sameiningu
sveitarfélaga er ekkert ný til komin.
Það em mörg ár sfðan þetta var tek-
ið upp og þetta hefur til dæmis lengi
verið á stefnuskrá okkar alþýðu-
flokksmanna. Þetta hefur verið á
verkefnalista margra félagsmála-
ráðherra og sameiginlegar ályktanir
samtaka sveitarfélaga um þetta mál
skipta tugum. Þróunin hefur verið
löng en það var ekki fyrr en á
sfðasta þingi að félagsmála-
ráðherra fékk sitt frumvarp
samþykkt um það hvemig
standa skuli að sameiningu
20. nóvember.
Hvað varðar verkefnatil-
færsluna þá hef ég enga
ástæðu til að efast um heil-
indi ríkisins í því máli, því
það er í raun jafn mikið
kappsmál fyrir sveitarfélögin
að taka til sín aukin verkefni
eins og fyrir ríkið að losna
við þau.“
Lýðræðið í hættu?
- Nú hefur verið ákveðið
að fœkka bœjarfulltrúum á
Sauðárkróki úr níu í sjö.
Hver var ástœðan fyrir
þessu?
„Megin hugsunin á bak
við þetta var að gera stjóm-
sýsluna skilvirkari og einnig
var það hugmyndin að þeir
sjö fúlltrúar sem verða í bæj-
arstjóm fái greitt eitthvað
hærri laun fyrir meiri vinnu.
Þeir gætu því sinnt sveitar-
stjómarmálunum meira. Það
em aftur á móti aðrir aðilar
sem telja þetta skerðingu á
lýðræði vegna þess að færri
hópar komist að til þess að -
láta sín sjónarmið í íjós og
hafa áhrif á bæjarmálin. Það
er til dæmis líklegt að einn
eða tveir af þeim listum sem
nú eiga fulltrúa í bæjarstjóm
koma til með að detta út. Það
var fyrst og fremst á þessum
lýðræðislegu ástæðum sem
ég sat hjá við afgreiðslu á
þessu máli.“
Kratar öflugir
- Nú hefur þú gengt mörgum
trúnaðarstöðum fyrir bæjarfélagið
og samtók sveitarfélaga á Norður-
landi. Mega menn eiga von á að
þín njóti við áfram og hverja telur
þú vera rnöguleika Alþýðuflokks-
ins íþessu nýja fyrirkomulagi?
„Það verða auðvitað aðrir að
dæma um mín störf í bæjarstjóm og
fyrir landshlutasamtök sveitarfé-
laga hér á Norðurlandi. En ég get
hins vegar sagt það að miðað við
það sem gert hefur verið í bæjar-
stjóm á undanfömum ámm þá tel
ég að rödd Alþýðuflokksins hafi
heyrst mjög greinilega inni í bæjar-
stjóminni og ég teldi það miður ef
niðurstöður sveitarstjómarkosninga
1994 yrðu á þá leið að rödd jafnað-
armanna þagnaði í bæjarstjóm
Sauðárkróks.
Ég hef hins vegar ekki gert það
upp við sjálfan mig hvort ég muni
gefa kost á mér í næstu kosningum
og það er náttúrulega Alþýðu-
flokksfélagið hér á staðnum sem
tekur endanlega ákvörðun um það
hvemig staðið verður að framboðs-
málum. En þú bentir réttilega á það
að ég hef gengt fjölmörgum trúnað-
arstörfum fyrir bæjarfélagið og
Norðurland í heild sinni og meðal
annars leitt sameiningarmálin hér á
Norðurlandi vestra. Eg hef því mik-
inn áliuga á að fylgja þessum sam-
einingarmálum vel eftir.“
Sameinuð framtíð
- Hvernig sérð þú framtíðina
Jyrir þér á þessu svæði og hvaða
verkefni eru framundan á nœsta
kjörtímabili?
„Já, burtséð frá því hvort ég verð
áfram í bæjarstjóm eða ekki þá er
mín framtíðarsýn sameinað sveitar-
félag í Skagafirði. Ef það tekst þá
em framundan mörg vemlega
spennandi verkefni sem þyrfli að
sinna og þar myndi ég telja að Hér-
aðsnefnd Skagfirðinga hafi sýnt
mjög gott fordæmi um það að þessi
stóm verkefhi hafa verið vel leyst
sameiginlega. Ég legg því alla
áherslu á sameiningu Skagafjarðar.
Það myndi efla stjómsýsluna og
styrkja byggðina á svæðinu til móts
við suðvesturhom landsins þangað
sem fjöldinn hefúr leitað undanfar-
in ár. Sameining er öflugasta vopn-
ið til þess að tryggja búsetu á þessu
svæði og landsbyggðina í heild
sinni.
Það má svo líka geta þess að þrátt
fyrir mikla erfiðleika í okkar þjóð-
félagi og efnahagsmálum, þá sér
maður töluverða uppbyggingu og
nýbreytni hér í kjördæminu. Ég hef
áður nefnt þessa þróun hér á Sauð-
árkróki sem meðal annars hefur
gert staðinn að einskonar byggða-
og þjónustukjama á svæðinu. En
mér finnst líka athyglisvert að sjá
hversu mikil umskipti hafa orðið á
stað eins og Siglufirði á síðustu ár-
um. Með auknum afla til dæmis í
loðnu og rækju þá hefur fjölbreytn-
in í atvinnulífinu aukist og yfir-
bragð bæjarins gjörbreyst. Ég hef
því trú á að þar fari aftur að verða
fólksfjölgun í stað fækkunar eins og
verið hefur allt of lengi. Það er því
margt jákvætt að gerast hér hjá okk-
ur á Norðurlandi vestra."
BÆNDASKOLINN
Á HVANNEYRI
ENDURMENNTUN
VAKIN ER ATHYGLI Á EFTIRTÖLDUM
NÁMSKEIÐUM Á HAUSTÖNN
Bútækni Rafgirðingar 28. - 29. okt.
Málmsuða 1.-3. nóv.
Búfjárrækt Nautgriparækt - mjólkurgæði og
júgurheilbrigði 11.-12. nóv.
Sauðfjárrækt - rúningur 15.-17. nóv.
Hrossarækt - meðferð, fóðrun og
hirðing 22. -24. nóv.
Kanínurækt - fóðrun og hirðing -
klipping og úrvinnsla 27. - 29. jan.
Handverk Tóvinna I. 3. - 5. nóv.
Spjaldvefnaður I. 17.-19. nóv.
Flókagerð 24. - 26. nóv.
Tóvinnall. 12. -14. jan.
Spjaldvefnaður II. 19.-21.jan.
Loðdýrarækt
Stig Anderson, danskur sérfræðingur í lífdýra-
flokkun og skinnaverkun, leiðbeinir bændum og
ráðunautum vikuna 1.-5. nóv.
Námskeið fyrir ráðunauta 1.-2. nóv.
Lífdýraflokkun á mink 3., 4. og 5. nóv.
Lífdýraflokkun á ref 16. nóv.
Upplýsingar og skráning í síma 93-70000
á skrifstofutíma.
Geymið auglýsinguna.