Alþýðublaðið - 22.10.1993, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 22.10.1993, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Innflutningur BRETIAND REYKJAVÍK Aðeins 3 dagar! Áætlanaskip Eimskips sem lesta vörum í Immingham á föstudegi eru komin til Reykjavíkur á mánudegi - gott dæmi um hraða og örugga þjónustu! Nánari upplýsingar um innflutning er að íá á skrifstofum og hjá umboðsmönnum Eimskips. < a Innflutningsdeild Eimskips Sími: 91-69 72 40 Símbréf: 91-62 26 53 M.G.H. Ltd. í Bretlandi Sími: 90-44-469-571-880 Símbréf: 90-44-469-571-878 EIMSKIP VIÐ GREIÐUM RÉR LEIÐ SAUÐARKROKUR___________________________ Föstudagur 22. október 1993 Steinullarverksmiðjan veitir 40 manns atvinnu „AUKIN SALA ÞRÁTT FYRIR YTRI AFOLL77 - segir Einar Einarsson framkvœmdastjóri - Heildarútflutningur hefur aukist um 10% á árinu þrátt fyrir hrun á Fœreyjamarkaði „Salan á innanlandsmarkaði hefur ekki dregist saman hjá okkur þrátt fyrir samdrátt í ný- byggingum sem hefur meðal annars valdið mun minni sölu á sementi. Það hjálpar okkur að menn eru mikið að endurein- angra eldri hús og sinna við- haldi sem kallar á viðskipti við okkur. Heildarútflutningur hef- ur aukist um 10% það sem af er árinu en við seljum mest til Eng- lands. Færeyjamarkaðurinn hefur hins vegar nánast hrunið og þarf ekki að koma á óvart,“ sagði Einar Einarsson fram- kvæmdastjóri Steinullarverk- smiðjunnar á Sauðárkróki. Steinullarverksmiðjan er sú eina sinnar tegundar á landinu. Hún hóf framleiðslu í september 1985 og hefur verið rekin óslitið síðan. Ríkið á um 30% hlutaijár, finnska fyrirtækið Partek 29%, Sauðárkrókskaupstaður 24% og síðan er fjöldi smærri hluthafa. Einar sagði að fjárfesting í verk- Einar Einarsson framkvæmda- stjóri Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki. Alþýðublaðsmynd / Elnar Ólason smiðjunni væri mikil og alfarið fjármögnuð með lánum. Þó hefði tekist hingað til að standa við skuldbindingar fyrirtækisins. Sposkur á svip við netaviðgerðir niðri við Sauðárkrókshöfn. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Óhagstæð gengisþróun „Það má segja að þetta gangi þokkalega miðað við allar aðstæð- ur þótt nokkur óvissa ríki þegar litið er framá við. Það sem af er þessu ári höfum við selt 3.930 tonn miðað við 3.570 miðað við sama tíma í fyrra. Þetta hefur tek- ist þrátt fyrir að í ár hafa Færey- ingar aðeins keypt af okkur 180 tonn en við seldum þangað um 550 tonn á ári þegar mest var. Að- almarkaður okkur erlendis er á Englandi. Það hefur hins vegar valdið okkur nokkrum vandræð- um hvað pundið er veikt. Þrátt fyr- ir tvær gengisfellingar hérlendis erum við að selja núna á nánast sama gengi og fyrir 15 mánuðum. Samkeppnin hefur líka harðnað og þar má nefna að Svfar og Finn- ar hafa stórlækkað gengi sinna gjaldmiðla sem hefur treyst þeirra framleiðslu í sessi. Þá hafa gengis- fellingar hér á landi ekki bætt stöðu okkar gagnvart erlendum lánum. Það er því margt sem hef- ur áhrif á þennan rekstur,“ sagði Einar. Hjá Steinullarverksmiðjunni starfa 40 manns og sem fyrr segir er þetta eina. steinullarverksmiðja landsins. Öflugt mjólkursamlag á Sauðárkróki FRAMLEIÐIR SEX TEGUNDIR AF OSTUM Nú standa yfir tilraunir með framleiðslu á Cheddar- osti sem mikið er spurt um „Innvegið magn mjólkur sem við fengum í fyrra nam átta milljónum lítra sem var 1% samdráttur frá árinu áður. Um 15% af þessu fer beint í sölu en hitt í vinnslu svo sem osta, smjör, smjörva og ávaxtasúr- mjólk. Gott jafnvægi er nú á milli framleiðslu og sölu,“ sagði Snorri Evertsson mjólkursam- lagsstjóri KS á Sauðárkróki í samtali við Alþýðublaðið. Ostar frá Sauðárkróki eru vel- þekktir meðai ostaunnenda. Auk hefðbundinna brauðosta má nefna nýja ostinn Gretti sem hefur hlot- ið góðar viðtökur, en mjólkur- samlagið framleiðir sex tegundir af ostum. „Eg get líka nefnt Maribo-kú- menost sem þykir ákaflega góður þótt salan mætti vera meiri. Núna erum við að gera tilraunir með framleiðslu á Cheddar-osti sem lofa góðu. Þá má nefna að við hálfvinnum Mozarella-ost sem við sendum svo lil Hornafjarðar þar sem hann er fullunninn," sagði Snorri. Þess má geta varðandi Cheddar-ostinn að veitingastað- urinn McDonalds hefur fengið leyfí til að flytja slíka osta til landsins frá Englandi og nota á hamborgara sína. Í kjölfarið hefur Hagkaup sótt um leyfi til inn- flutnings á þessum osti þar sem mikil eftirspum sé fyrir hendi á þessari tegund osta. Bciðni Hag- kaups hefur ekki hlotið endanlega afgreiðslu í kerfinu en Osta- og smjörsalan hefur einkaleyfi á dreifingu osta og innflutningi. Minni mjólkurdrykkja „Neysla á osti er vaxandi sem og á öðrum unnum mjólkurvör- um. Þessar vinnsluvörur vega upp á móti minni mjólkurdrykkju og því þarf ekki að draga úr fram- leiðslu. Sala á nýmjólk hefur dregist saman en meira selt af létt- mjólk og undanrennu. Arleg mjólkurframleiðsla á landsvísu mun vera um 100 milljónir lftra. Snorri mjólkursamlagsstjóri í ríki sínu. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Þetta er eflaust í hærri kantinum miðað við fólksfjölda ef við ber- um okkur saman við aðrar þjóðir. En við íslendingar erum stórtækir á þessu sviði sem öðrum,“ sagði Snorri Evertsson mjólkursam- lagsstjóri að lokum. Starfsmenn mjólkursamlags Kaupfélags Skagfirðinga eru um 20 auk þriggja bílstjóra. Starfsf- mönnum hefur heldur fækkað á undanfömum árum f kjölfar hag- ræðingar. Þessir kampukátu piltar voru að vinna við dýpkun hafnarinnar þcg- ar Ijósmyndarann bar að. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Stjórnsýsluhús á Sauðárkróki FJÖLBREYTT ÞJÓNUSTA - segir Snorri Björn Sigurðsson bœjarstjóri. Húsið var tekið formlega í notkun fyrir viku og er miðstöð fyrir margháttaða þjónustustarfsemi „Stjórnsýsluhúsið hýsir bæði stofnanir scm ekki voru áður til hér og einnig aðrar sem voru á hrakhólum víðs vegar um bæinn. Við lögðum talsvert upp úr því að stjómsýslan fengi inni í þessu húsi sem hafði staðið autt en er á mjög góðum stað, beint á móti skrifstofum bæjar- ins,“ sagði Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri í spjalli við blaðið. Stjómsýsluhúsið var fonnlega tekið í notkun á fösludaginn í síðustu viku. Bæjarstjóri sagði að í húsinu væru meðal annars skrifstofur íþróttafull- trúa og félagsmála.stofnunarbæjarin.s. Þar væri líka gert ráð fyrir aðsetri sálfræðings og félagsráðgjafa sem ætlunin væri að ráða til starfa. „Síðan get ég nefnt að í húsinu er skrifstofa heil- brigðisfulltrúar og einnig byggingafulltrúa og vinnueftiriits. Þetta hús var byggt um 1960 og þar voru lengi verslanir og kjötvinnsla á vegum kaup- félagsins sem átti húsið. Bærinn á nú 35% f húsinu og Byggðastofnun á einnig 35%. Síðan á Héraðs- nefnd Skagfirðinga 35% en raunar á bærinn 50% í Snorri Iíjörn Sigurðsson bæjarstjóri við stjórnsvslu- húsið á Sauðárkróki. Alþýðublaðsmynd / Einar Ótason þeirri stofnun svo það má segja að bærinn eigi helminginn í húsinu. Eg held að það sé almenn ánægja meðal bæjarbúa að fá þetta stjómsýsluhús og það er mikill akkur í að geta veitt víðtæka þjón- ustu undir sama þaki,“ sagði Snorri Bjöm Sigurðs- son bæjarstjóri.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.