Alþýðublaðið - 17.11.1993, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 17.11.1993, Blaðsíða 1
GATT-tilboð til Genf JÓK BALDVIN OG HALLDÓR NÁÐU LOKS SAMKOMULAGI Verði nýr GATT-samningur staðfestur verður heimilt að flytja inn allar landbúnaðarvörur nema hrátt kjöt, hrá egg og hráa mjólk Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra hafa náð samkomulagi um þá þætti sem ágreiningur var um varðandi tilboð íslands til GATT- samninganna. Tilboðið var sent út til Genfar í gær eftir að það var kynnt á ríkisstjórnar- fundi. Gert er ráð fyrir að nýr GATT-samningur taki gildi 1. janúar 1995 með aðlögunartíma til ársins 2001 ef það tekst að ljúka viðræðunum fyrir 15. des- ember næst komandi eins og stefnt er að. Verði samningurinn að veruleika verður heimilt að flytja hingað inn allar erlendar landbúnaðarvörur nema hrátt kjöt, hrá egg og hráa mjólk. Öllum ríkjum sem eiga aðild að GATT-viðræðunum ber að leggja fram töflur yfir það hvemig þau hyggjast framkvæma skuldbind- ingar sínar samkvæmt landbúnað- arhluta samningsdraganna. Þessar skuldbindingar varða markaðsað- gang, innanlandsstuðning, útflutn- ingsstuðning og hertar reglur um JÓN BALDVIN innflutningshömlur á grundvelli heilbrigðis- og sjúkdómavama. Meginniðurstaðan varðandi markaðsaðgang er að tollar skuli leysa af hólmi magntakmarkanir og aðrar innflutningshindranir. Jafn- framt skal leyfa tiltekinn lágmarks- aðgang á lægri tollum auk þess að tryggja þann markaðsaðgang áfram sem fyrir hendi var á viðmiðunar- tímanum 1986 til 1988. Þá er gert ráð fyrir að dregið verði úr toll- HALLDÓR BLÖNDAL vemd í áföngum á ámnum 1995 til 2001 að meðaltali um 36%, þó þannig að fyrir enga vöru verði lækkunin minni en 15%. Lág- marksaðgangur á lægri tollurn á að vera 3% af innanlandsneyslu við gildistöku samningsins og aukast í 5% á sex ámm. IIiíii' hér GATT-samningurinn tekur til allra sviða alþjóðaviðskipta og tryggir okkur bestu kjör á mörkuð- um 108 viðskiptaþjóða. Þannig hef- ur núverandi GATT-samningur tryggt okkur greiðari aðgang að Bandaríkjamarkaði, Japansmarkaði og víðar fyrir sjávarafurðir. Nái nýr samningur fram að ganga vekur innflutningur landbúnaðarvara hvað mestan áhuga hér á landi. Innflutningur verður óheftur hingað með þeim undantekningum sem áður em nefndar. Þegar nýi samningurinn tekur gildi getum við flutt inn 3% af þeim landbúnaðarvömm sem hér em á lægri tollum en afgangurinn verður hátollaður sem fer síðan lækkandi. Tollamir eiga að jafna þann mun sem er á heildsöluverði innanlands og heimsmarkaðsverði. Sem dæmi má nefna að leggja má 216% toll á 3% lágmarksmarkaðsaðgang á smjöri en allt að 674% toll á það sem flutt er inn umfram þessi 3%. Segir þetta sína sögu um muninn á smjörverði hér og á heimsmarkaði sem og á öðmm lar.dbúnaðarvör- um. Skattrannsóknastjóri fœr aukinn mannafla til rannsóknastarfa 11 MILUARÐA SVÖRT ATVINNUSTARFSEMI SKATTRANNSÓKNASTJÓRl og starfsfólk hans vinnur aö því að herja á 11 milljarða króna neðan- jarðarhagkerfi. Hann hefur fengið fimm nýjar stöður við embættið samþykktar af fjármálaráðherra. Þessu lofaði Friðrik Sóphusson á blaðamannafundi í haust, og hefur staðið við það loforð. Skúli Eggert Þórðarson, skattrannsóknastjóri, sagði í viðtali við Alþýðublaðið í gær að stöðugildum við embættið hefði þá fjölgað á þessum síðustu og erfiðustu tímum samdráttar úr 12 í 17, eða nærfcllt um 50%. Skúli Eggert sagði að rannsókna- menn einbeittu sér ekki hvað síst að svokallaðri „svartri atvinnustarf- VINNUVEITENDA- SAMBAND ÍSLANDS semi“, undanskoti frá greiðslu á virð- isaukaskatti. Hann sagðist hafa lagt fram við ráðuneytið einskonar sókn- aráætlun, en í sókn gegn undanbrögð- um frá greiðslu virðisaukaskattsins þyrfti að kalla eftir samráði og sam- vinnu við ýmsa aðila í þjóðfélaginu. 1 gær greindi Alþýðublaðið frá blygðunarlausri tilraun til að stela undan virðisaukaskatti, sem blaða- ntaður varð vitni að um helgina. Skúli Eggert Þórðarson sagðist þekkja dæmi sem þessi. Því miður virtust þeir margir sem ekki skammast sín hið minnsta fyrir að svíkja undan skatti. „Ráðherra hefur tekið fast á þessu máli og ég á von á að góður árangur þegar umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að þrír fulltrúar í nýskipuðu samkcppnis- ráðs uppfylltu ekki skilyrði sam- keppnislaganna. I framhaldi af því sögðu fulltrúarnir sig frá störfum og aðrir skipaðir í þeirra stað. Nú hefur Sighvatur Björgvinsson við- skiptaráðhcrra ákveðið að leggja fram stjórnarfrumvarp til laga um breytingu á samkeppnislögum og er frumvarpið til nteðferðar hjá þingflokkum stjórnarfiokkanna. Þar er lagt til að hið stranga hæfis- skilyrði 1. málsgreinar 6. grcinar laganna „að vera óháður fyrir- tækjum og samtökum þeirra“ falli niður. Jafnframt er bráðabirgða- ákvæði þar sent gert ráð fyrir að skipunartími núverandi sam- keppnisráðs til fjögurra ára falli niður. Auk þess er ákvæði þess efn- is að samkeppnisráð setji starfs- reglur. A grundvelli þessarar málsgreinar komst umboðsmaður Alþingis að þeirri niðurstöðu að Ingibjörg Rafnar, Magnús K. Geirsson og Þórarinn V. Þórarinsson uppfylltu ekki þetta al- menna skilyrði laganna. Brynjólfur Sigurðsson prófessor formaður samkeppnisráðs og Atli Freyr Guðmundsson skrifstofustjóri varaformaður ráðsins töldust hins náist í kjölfarið", sagði Skúli Eggert Þórðarson. Hann sagði að margir hringdu í embættið til að tilkynna meint skattsvik. Ekki væri þó neitt á mörgum slíkum viðtölum að græða. Hinsvegar væri mikilvægt að embætt- ið hefði samband og samvinnu við allan almenning. Nauðsynlegt væri að hræða þá menn til hlýðni, sem stunduðu svöit viðskipti. M----------------------------------- SKÚLIEGGERT ÞÓRÐARSON - skattrannsóknastjóri herjar á 11 milljarða neðanjarðarhagkerfi og hefur nú fengið fimni manna liðs- auka scm kemur sér vel í baráttunni. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason vegar hæftr að mati umboðsmanns. í framhaldi af þessu voru Snorri Jóns- son, Þórhallur Asgeirsson og Ólafur Isleifsson skipaðir í samkeppnisráð í stað þremenninganna. í áliti umboðsmanns Alþingis er því beint til viðskiptaráðherra að hann taki til athugunar hvort leggja beri til við Alþingi að endurskoða orðalag áðumefndrar hæfisreglu. Viðskiptaráðherra hefur ákveðið að fella ákvæðið niður sem fyrr segir og jafnframt fella niður skipunartíma þess ráðs sem nú situr. Verði þetta samþykkt hefur ráð- herra því frjálsar hendur um að skipa nýtt ráð. Breyting á lögum um samkeppnisráð UMDEILT HÆFISSKILYRÐI FELLT NIÐUR — og skipunartími núverandi samkeppnisráðs sem var til fjögurra ára ÞAÐ VAKTI MIKLA athygli Kostnaður við lyf og lœknishjálp Endurgreiðsla tekur mið af árstekjum Þeir sem hafa undir milljón í árstekjur fá endur- greitt 90% af kostnaði umfram 36 þúsund á ári TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS hefur ákveðið að endur- greiða 122 einstaklingum og fjölskyldum hluta af útgjöldum sínum vegna læknishjálpar og lyfja fyrri hluta ársins. Af þeim sem fá end- urgreitt voru 17 með yfir 50 þúsund í þennan kostnað og tveir þeirra með yfir 100 þúsund krónur. Heilbrigðisráðuneytið hefur ákvcðið viðmiðunarmörk vegna endurgreiðslna á læknis- og lyfja- kostnaði. Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið gekk frá reglugerð 10. júní um endurgreiðslu á umtalsverðum útgjöldum sjúkratryggða vegna læknis- hjálpar og lyfja, en reglumar vom settar með heimild í nýju ákvæði í lög- um frá Alþingi. Þar er gert ráð fyrir að Tryggingastofnun sé heimilt að endurgreiða kostnað við lyf og læknishjálp hjá fólki sem hefur mikinn kostnað af þeim sökum og ber í því sambandi að taka mið af tekjum og greiðslugetu viðkomandi. Um 500 n iTisækjentl u r Auglýst var eftir umsóknum samkvæmt reglugerðinni og bámst um 500 umsóknir. Meðalútgjöld umsækjenda vom tæpar 22 þúsund krónur fyrstu sex mánuði ársins vegna læknis og lyfjakpstnaðar, en útgjöld 98 umsækjenda vom innan við 10 þúsund krónur. Útgjöld 17 umsækjenda voru yftr 50 þúsund krónur og af þeim vom tveir með yfir 100 þúsund krónur í lyfja- og lækniskostnað. Alls höfðu 40 umsækjendur tekjur yfir þrjár milljónir króna á árinu 1992 og vom meðalútgjöld þeirra á fyrra helming þessa árs vegna lyfja- og lækniskostnaðar 25 þúsund krónur. Samkvæmt reglum sem settar hafa verið fá 122 einstaklingar/fjölskyldur hluta af útgjöldum sínum endurgreidd og em þar með sá hluti umsækjenda sem em yfir viðmiðun- armörkum. A næstunni mun Tryggingastofnun svara öllum umsækjend- um skriflega og láta vita um niðurstöður vegna hverrar einstakrar um- sóknar. Tekj uviðmiðun Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið hver skulu vera viðmiðunarmörk vegna endurgreiðslna á læknis- og lyfjakostnaði. Þeir sem em með árs- tekjur undir eina milljón fá endurgreitt 90% útgjalda umfram gmnn- kostnað sem er 18 þúsund krónum í hálft ár og 36 þúsund í heilt ár. Þeir sem em með tekjur á bilinu ein til tvær milljónir bera gmnnkostnað upp á 30 þúsund í hálft ár og 60 þúsund í eitt ár en Tryggingastofnun endur- greiðir 75% af umframkostnaði. Þeir sem hafa tekjur á bilinu tvær til þtjár milljónir bera gmnnkostnað sem nemur 42 þúsundum á sex mán- uðum og 84 þúsund á einu ári. Eftir það endurgreiðir Tryggingastofnun 60% kostnaðar. Þeir sem hafa yfir þtjár milljónir fá enga endurgreiðslu. Tekjur miðast við árstekjur árið á undan en gmnnkostnaður miðast við hálft almanaksár í senn. Ekki verður greidd út lægri upphæð en 500 krónur. Grunnkostnaður skal fylgja breytingum á bótum almannatrygg- inga.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.