Alþýðublaðið - 17.11.1993, Blaðsíða 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HPWIÍIMIIII
Miðvikudagur 17. nóvember 1993
Skip frá Jyrrverandi
Júgóslavíu
Gerð upp-
tækleiti
þau hafnar
hérlendis
SKIP í EIGU lýðvetda fyrr-
verandi Júgóslavíu eru ekki vel-
komin í íslenskar hafnir, þau ber
að gera upptæk, samkvæmt
ályktun Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna frá 1991.
Hannes Valdimarsson, hafnar-
stjórinn í Reykjavík, sagði að
væntanlega þyrfti aldrei til slíkra
aðgerða að koma. Júgóslavnesk
skip leggi leið sína nánast aldrei til
íslenskra hafna og hafa ekki lengi
gert.
Hafnarstjómir um allt land hafa
hinsvegar fengið bréf samgöngu-
ráðuneytisins varðandi skip þessi,
ásamt lista yfir nöfn þeirra, og hafa
verið beðnar um að láta listann
liggja frammi hjá hafnarverði.
Ráðstöfun þessi mun aðallega
tilkomin vegna óvissu um trygg-
ingar og ábyrgðir vegna skipa frá
ríki sem á í stríði.
Samtök herstöðvar-
andstœðinga
LANDSRÁÐ-
STEFNA
-OPIÐ
MÁLÞING
LANDSRAðSTEFNA Sam-
taka herstöðvarandstæðinga
(SHA) verður hatdinn næstkom-
andi laugardag, 20. nóvember, í
Félagsheimili heyrnarlausra að
Klapparstíg 28, II. hæð, og hefst
kiukkan 10 árdegis.
Fyrir hádegi er á dagskrá skýrsla
formanns SHA, Sigþrúðar Gunn-
arsdóttur, og skýrsla gjaldkera,
einnig aðalfundarstörf og almennar
umræður ásamt kjöri ályktunar-,
verkefna- og uppstillinganefndar.
Klukkan 12.30 verður gert hádeg-
ishlé.
Eftir hádegi, klukkan 13, verður
opið málþing um „Heirnsmálin,
herstöðvar og umhverfi“. Frum-
mælendur verða Albert Jónsson,
deildarstjóri utanríkismála í forsæt-
isráðuneytinu, Sveinn Rúnar
Hauksson læknir og Einar Valur
Ingimundarson umhverfisverk-
fræðingur.
Að loknum framsöguerindum
verða pallborðsumræður. Þar sitja
fyrir svörum: Össur Skarphéðins-
son umhverfisráðherra, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir alþingiskona,
Agnes Bragadóttir blaðamaður
og það er Arnþór Helgason deild-
arstjóri sem stjómar umræðunum.
Klukkan 16 lýkur málþinginu og
við tekur lokaumræða, afgreiðsla
ályktana og kjör miðnefndar SHA.
Kodak-framköllunarþjónustan sendir spilliefni til viðurkenndrar eyðingar
Of margir hella eitrinu í niðurföll
EITUREFNI frá framköllunarfyrir-
tækjum eru talin hafa skilað sér treglega
til þeirra ábyrgu aðila sem ganga eiga frá
þeim endanlega. Nú hefur Kodak Ex-
press gæðaframköllunarhópurinn, fyrir-
tæki sem bjóða þjónustu allt kring um
landið í umboði Hans Petersens hf., tekið
sig saman um skil á spilliefnum þessum.
Umræðan um umhverfisvemd verður sí-
fellt fyrirferðarmeiri og fólk gerir sér sífellt
betri grein fyrir því að forðast ber á allan
hátt að skaða umhverfi sitt með óæskilegum
úrgangi.
Fyrirtæki í framköllunariðnaði sem og
dagblöð, tímarit og aðrir sem stunda fram-
köllun á myndum, hafa til þessa bmgðist
við þessari umræðu með mismunandi hætti.
Vitað er að efni frá mörgum hveijum renn-
ur eftir niðurfallinu til sjávar og veldur þar
án efa umhverfisspjöllum. I framköllunar-
vökva er meðal annars að finna eitrað efni,
hýdrókínon, sem er hvítt kristallað efni,
sem getur valdið tjóni á augum og húð.
Kodak Express hópurinn hefur um skeið
sýnt þá ábyrgð að skila notuðum framköll-
unarvökvum til viðurkenndra aðila, sem
annast um að ganga tryggilega frá þeim.
Þetta hefur talsverðan kostnað og óþægindi
í för með sér, ekki síst fyrir framköllunar-
iyrirtæki úti á landsbyggðinni. Verslanir
Hans Petersen hafa skilað vökvunum síðan
í febrúar.
Kringlan, Sími689955
Vörur fyrir alía
Faxafeni v/Suöuriandsbraut, Sími 6840 20