Alþýðublaðið - 26.11.1993, Page 7
Föstudagur 26. nóvember 1993
PALLBORÐIÐ, KYRRÐ & SKILABOÐ
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
PffLLBORÐIÐ
Er plásturinn
nógu stór,
herra Sægreifi?
Óræð stærð ojg
duttlungafull
-Njáll Harðarson skrifar
Á hverju ári skapar neysla og þensla þjóðfé-
lagsins sífellt meiri þörf fyrir auknar þjóðar-
tekjur. Þeirri þörf hefur hingað til verið mætt
með því að veiða aðeins meiri fisk. En nú er
svo komið að ekki er lengur hægt að veiða
meiri fisk og reka menn sig á þá staðreynd að
fiskistofnarnir hafa bæði stærðar- og endumýj-
unartakmörk. Þetta kom stjómvöldum að sjálf-
sögðu mjög á óvart, enda er ekki hægt sam-
kvæmt hagfræðikenningum sægreifanna að
gera ráð fyrir slíku.
Plástrar duga
ekki lengur
Hvað er þá til ráða ef plástrar duga ekki leng-
ur? Er hugsanlegt að menn hefðu átt að huga að
fyrirbyggjandi aðgerðum fyrr, til dæmis í formi
aðhlynningar, markaðssetningar og eflingar á
almennum iðnaði í landinu? Undanfarin ár hef-
ur þessari fiskeklu verið mætt með því að gefa
út svokallaðan kvóta fyrir þá sem eiga skip,
sama hvar þeir búa. Þannig að þeir sem höfðu
íjármagn gátu komist yfir kvóta og tryggt sér
þannig aðgang og eignarhlut í þjóðarauðlind-
inni. Þetta leysti að hluta til vanda þeirra sem
áður gátu ekki komist í nægan fisk, en ekki
þeirra sem búsettir em við sjávarsíðuna þar
sem hægt er að fara með lífsbjörg þeirra í burtu
og selja hana hæstbjóðanda.
Lífsbl (ii'ÞÍn
Ijarlægö
Megnið af byggð íslands er við sjóinn og er
það ekki alveg að ástæðulausu. Það er allavega
ekki bara vegna þess að mönnum finnist svo
gaman að horfa út yfir hafið, heldur vegna þess
að þaðan sækja menn björg í bú. Það er sagt að
tímamir breytist og mennimir með, en þessum
byggðarlögum hefur ekki verið breytt í sam-
ræmi við það. Heldur hafa ýmsir sægreifar og
önnur stjómvöld séð ástæðu til þess að taka
lífsbjörg þessara sjávarþorpa og fara með út úr
byggðarlaginu í skjóli laga sem sægreifamir og
handbendi jteirra hafa sjálfir útbúið sér til
handa.
Fjárlagagatið er óræð stærð og duttlungafúll,
en nýlega var sægreifum eignaður aðgangurinn
að öllum veiðiheimildum landsmanna sam-
kvæmt dómsorði og gert þar af leiðandi að
greiða skatt af sem eign væri. Þessi dómur er
að sjálfsögðu staðfesting á því hverjir í raun
eiga þjóðartekjumar þótt að almennt sé viður-
kennt að við hinir eigum stofninn sem tekjum-
ar myndast af. En með því að þurfa að afskrifa
eign sína á fimm ámm minnst, þá skapast veru-
legur skattstofn sem ekki var fyrir hendi áður.
Hingað til hafa greifamir gjaldfært kvótann á
sama ári og þeir keyptu hann, en núna eftir
dóminn geta þeir aðeins gjaldfært 20% á ári að
hámarki. Það skapar aftur skatttekjustofn sem
svarar til 80% af allri kvótaeign sægreifanna.
Það væri verðugt verkefni að reikna það út
hvort sá plástur dugi á gatið. Ekki að mér detti
það eitt augnablik í hug að venjulegar skattpró-
sentur verði notaðar til útreikninga skatttekna á
kvótaeign. Slíkt er bara fyrir mig og aðra jafn-
aðarmenn.
Nú er mál
að liiiní
En nú er mál að linni og að núverandi kerfi
verði lagt niður hið bráðasta áður en við (ég
meina þið greifamir) leggjum í eyði öll sjávar-
þorp á landinu. Þvf að eins og ástandið er núna,
þá kemur kvótinn til sjávarplássanna og fer aft-
ur þegar herra greifa passar það. Það gefur af
sér óöryggi í íjárfestingum og óstöðugleika í
búsetu plássanna. Enda eru sjómenn og þeir
greifar sem ekki hafa beðið lægri hlut í kvóta-
braskinu famir að mótmæla kvótakerfinu há-
stöfúm og virðist blessuðum Sjálfstæðis-
flokknum ætla að verða æði hált á þessu svelli
hagsmunapots sem er eins og flestir vita eina
stefna þess flokks. Þetta skrifar að sjálfsögðu
fyrrverandi sjálfstæðismaður, sem var það þeg-
ar hann var ungur og óreyndur og hélt að sjálf-
stæði væri það sama fyrir alla menn.
Kveðja.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Millifyrirsagnir: Alþýðublaðið.
KYRRÐARDAGAR
í Skálholti með
helaihaldi og
ÍHUGUN
Nokkrum sinnum á ári er boðað til kyrrð-
ardaga í Skálholti. Fastir og hefðbundnir
tímar eru á aðventu og í dymbilviku. Næstu
kyrrðardagar eru á komandi aðventu og
standa frá föstudegi 10. desember til sunnu-
dagsins 12. desember.
Einkenni kyrrðardaga er þögn og íhugun,
helgihald og ffæðsla. Þann tíma sem þögnin
varir, sem er yfirleitt frá því að lokinni fyrstu
fræðslustund og þar til á undan síðustu sameig-
inlegu máltíð, mæla þátttakendur ekki orð af
munni nema í helgihaldinu, eða í persónuleg-
um sálgæsluviðtölum.
Guðrún Edda Gunnarsdóttir guðfræðing-
ur, hefur umsjón með kyrrðardögunum nú og
annast íhuganir og fræðslu. Auk hcnnar hafa
einnig aðrir guðfræðingar og prestar borið
ábyrgð á kyrrðardögunum.
Um mörg undanfarin ár hefúr doktor
Sigurbjörn Einarsson biskup annast íhuganir
og sálgæsluviðtöl á kyrrðardögum í dymbil-
viku.
Fjórum sinnum á dag er bænargjörð og
messað er að morgni dags. Helgihaldið annast
sóknarpresturinn séra Guðmundur Óli Ólafs-
son og Kristján Valur Ingólfsson, rektor
skólans. í gistirými skólans geta mest dvalið
tuttugu manns í tfu tveggja manna herbergjum.
Auk eiginlegra kyrrðardaga er einnig boðið
upp á samverur með líku sniði og yfirbragði en
minni dagskrá. Ein slík er helgina 26. til 28.
nóvember. Ennfremur er nú öðru sinni boðið til
jóla og áramótasamveru í Skálholti frá 28. des-
ember til 1. janúar.
FFJ Félag frjálslyndra
jafnaðarmanna
HVERNÝTUR
- Fundur Félags frjálslyndra jafnaðarmanna
á Kornhlöðuloftinu við Bankastrœti íReykjavík
þriðjudagskvöldið 30. nóvember klukkan 20.30.
Eflitig sjávarútvegs alla þessa öld breytti íslensku þjóðfélagi úr einhœfu landbúnaðar-
skipulagi fyrri tíma í niítímalegt samfélag með einhverju bestu lífskjörum sem þekkjast.
Nu eru þáttaskil
Ofveiði, umdeilt stjórnkeifi og ósœtti meðal landsmanna um sjávarútvegsmál hafa ein-
kennt umrœðuna síðustu ár. Hvað er til ráða og hvað gera aðrar þjóðir? Er hœgt að ná
þjóðarsátt um sjávarútvegsstefnuna?
Deilur eru meðal annars innan allra stjómmálaflokka, milli þéttbýlis og dreifbýlis, milli
trillukarla og togaraeigenda, milli jrystiskipa og ísfiskskipa, mUti Vestfirðinga og Vest-
mannaeyinga, milli sjávarútvegs og iðnaðar og milli Morgunblaðsritstjóra og talsmanna
sjávarútvegs.
Hafa útgerðarmenn fengið ómœld verðmœti afhent tíl eigitar um aldur og œvi til eigin
nota eða hafa þeir afnotarétt af auðlindinni meðþeirri kvöð að skila sem mestum verðmœt-
um og velmegun til allra íþjóðfélaginu?
Allir hafa skoðun á stjórnkerfi fiskveiða en vita allir um hvað málið snýst?
TU að rœða þessi mál efnir Félag frjálslyndra jafnaðarmanna til:
Fundar um sjávarútvegsmál
Frummœlendur verða fjórir:
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON, umhverjisráðherra, fjallar um pólitíska mákuniðlunfisk-
veiðistjómunar, sérstöðu triUukarla, hlutdeild annarra þjóðfélagsþegna í auðlindum sjávar
og hvortfrjálstframsal kvóta sé nauðsyn í keifinu eða kvótabrask.
ÞRÖSTUR ÓLAFSSON, aðstoðarmaður utanríkisráðherra og annar formaður Tví-
höfðanefndarfjallar um fiskveiðistjómun erlendis oggerirgreinfyrirtiUögum nefndarinn-
ar, frumvörpum sjávarútvegsráðherra og áhrifum nýs dóms Hœstaréttar um skattalega
meðferð kvóta.
BRYNJÓLFUR BJARNASON, framkvœmdastjóri, fjallar um reynslu af aflamarkskerfi í
samanburði við önnur stjórnkerfi, röksemdir gegn veiðtieyfagjaldi, nauðsynlegar úrbœtur á
núverandi kerfi og œsktieg og óœsktieg áhrif útlendinga í sjávarútvegi hér á landL
GUNNAR SVAVARSSON, iðnrekandL jjallar um áhrif fiskveiðistjórnunar á starfsskti-
yrði iðnaðar, áhrif aflamarkskerfis á samþjöppun kvóta á hendurfárra aðtia, röksemdirJyr-
ir veiðileyfagjaldi og áhrif kvótakerfis á byggðamál og markaðsmál.
Fundurinn á að upplýsa, kynna mismunandi rök og vera vettvangur Jyrir skoðanaskipti.
Fundarstjóri verður AGUST EINARSSON. Fundurinn verður sem fyrr segir háldinn
þriðjudagskvöldið 30. nóvember á Komhlöðulojtinu við Bankastrœti í Reykjavúc og er öll-
um opinn. Hann hefst klukkan 20.30 og áœtluð fundarlok em klukkan 23.00.
ÖSSUR ÞRÖSTUR BRYNJÓLFUR GUNNAR ÁGÚST
Allt áhugafólk um íslensk stjórnmál velkomið.
Kaffigjald er 500 krónur.