Alþýðublaðið - 02.12.1993, Síða 1
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk
Vandamál blaðakosts Alþýðubandalagsins og Framsóknarflokksins - Gífur-
legar skuldir í Landsbankanum - Ný og ný fyrirtœki taka við útgáfustarfsem-
inni - Tímasprengja við Hverfisgötuna - Nú vill Alþýðubandalagið gera
VIKUBLAÐIÐ DAGBLAÐ
VIKUBLAÐIÐ vill að Al-
þýðubandalagið reiði fram 5 til
10 milljónir króna til að styðja
við rekstur blaðsins. Þetta kom
fram á landsfundi Alþýðu-
bandalagsins um síðustu helgi.
Svo virðist sem nokkurt tap
hafi orðið á rekstri Vikublaðs-
ins. Til að bjarga málum er
hugmyndin að auka útgáfu-
tíðnina, gcfa blaðið út 3-4 sinn-
um í viku, það verði dagblað.
Sérstök nefnd, svokölluð
flokksstarfsnefnd sem starfaði á
aðalfundi Alþýðubandalagsins
telur að stefna skuli að áfram-
haldandi útgáfu Vikublaðsins og
felur framkvæmdanefnd llokks-
ins jafnframt að íhuga möguleika
á að gefa blaðið út oftar í viku
hverri.
Nefndin telur að efla þurfi
tjárhagsstöðu Vikublaðsins.
Einnig er bent á að aðeins helm-
ingur flokksmanna kaupi blaðið.
Fráfarandi gjaldkeri sagði á
landsfundi að blaðið „stæði í
raun undir sér“ en hinsvegar að
bæta þyríti fjárhagsstöðuna um
5-10 milljónir króna.
Þetta mun þýða að Vikublaðið
hefur verið rekið með nokkm
tapi. Vandséð er hinsvegar að
ntargra mati hvemig staðan lag-
ast með þvf að fjölfalda vanda-
málið með þremur eða fjómm út-
komum í viku.
Tímanum og Mótvægi hf. var
gefið langt nef á landsfundi Al-
þýðubandalagsins. Að dómi
flokksstarfsnefndar er ekki talinn
gmndvöllur til þátttöku flokksins
í því fyrirtæki eins og í pottinn er
búið. Alþýðubandalagið sé enn-
þá jákvætt í garð þeirrar tilraun-
ar. Aðstandendur félagsins verði
hinsvegar að sýna fram á að þar
geti starfað traustur og starfshæf-
ur meirihluti. En eins og kunnugt
er virðast þeir félagar Olafur
Ragnar og Svavar Gestsson vera
að tapa persónulegum fjármun-
um á þátttöku í þeirri útgáfu.
Útgáfumál Alþýðubandalags-
ins og Framsóknarflokksins em
því í hinu mesta klúðri. Eitt fyrir-
tækið tekur við af öðm. Gamli
Þjóðviljinn er allur, Vikublaðið á
í erfiðleikum, og allir vita um til-
raun Tímans, sem tifar nú eins og
tendmð tímasprengja við eina
aðalumferðargötu borgarinnar.
Heimildir Alþýðublaðsins
segja að hjá Landsbanka Islands
sé pottar fullir af skuldasúpu
þessara tveggja aðila, trúlega
samanlagt á þriðja hundrað millj-
ónir. Þetta eru afleiðingar ævin-
týra Þjóðviljamanna í hinum
ýmsu útgáfufyrirtækjum, - og
Tímans og Nútímans, einnig
undir hinum ýmsu nöfnum og
nafnnúmerum.
Viðskiptavinir Landsbankans
undrast margir að ekki skuli
gengið fastar eftir greiðslum hjá
stjómmálaflokkum þessum, sem
alfarið bera ábyrgð á skuldunum,
enda venja bankans að ganga
hart fram í slíku við venjulegt
fólk. Bankamenn bera því hins-
vegar fyrir sig að þeir hafi „-
ábyrgð“ í höndum, þar sem er
ríkisstyrkur sem merktur er dag-
blöðunum. Mat kunnugra er að
það verði að teljast afar ótrygg
ábyrgð.
Málamiðlun um
kvóta á Alþingi
— sagði Össur Skarphéðinsson á
fundi FFJ á Kornhlöðuloftinu
Ýmislegt bendir til þess að hægt sé
að ná sæmilegri sátt um stjórnun fisk-
veiða á Alþingi, þannig að kvótakerfið
verði áfram að minnsta kosti næsta
fiskveiðiár og veiðiheimildir króka-
leyfisbáta verði auknar. Þetta kom
meðal annars fram í máli Össurar
Skarphéðinssonar umhverfísráðherra
á afar fjölmennum fundi Félags frjáls-
lyndra jafnaðarmanna á Kornhlöðu-
loftinu í fyrrakvöld.
Össur og Þröstur Ólafsson gagnrýndu
mikið kvótabraskið sem átt hefur sér stað í núverandi kvótakerfi, og
sagði Þröstur það dæmi um mikið siðleysi þegar kvóti væri seldur inn-
an sörnu útgerðar þannig að það kæmi niður á hlut sjómanna. Þeir töl-
uðu báðir með veiðileyfagjaldi. Stuðningur við það kom einnig úr
óvæntri átt þegar Brynjólfur Bjamason framkvæmdastjóri Granda hf.
lýsti því yfir að veiðileyfagjald kæmi til greina.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
mmmm.mmm.mmmm
% r
HANSKAR I GJAFAUMBUÐUM
HERRAHANSKAR: meö prjónafóðri
HERRAHANSKAR: meö prjónafóöri (svínaskinn)
HERRAHANSKAR: meökanínufóöri
HERRAHANSKAR: meö lambaskinnsfóöri
HERRAHANSKAR: meö akryl loöfóöri (kínverskir)
HERRAHANSKAR: meö prjónafóöri (kinverskir)
HERRAHANSKAR: meö kanínufóðri (kínverskir)
HERRAHANSKAR: meölambaskinnsfóöri (kínverskir)
HANSKAR I GJAFAUMBUÐUM
DÖMUHANSKAR: meö prjónafóöri randsaumaöir
DÖMUHANSKAR: meö prjónafóöri (svlnaskinn)
DÖMUHANSKAR; meö prjónafóöri
DÖMUHANSKAR: með silkifóðri
DÖMUHANSKAR: meðkaninufóðri
DÖMUHANSKAR: meö lambaskinnsfóöri
DÖMUHANSKAR: meðprjónafóðri(kínverskir)
DÖMUHANSKAR: með lambaskinnsfóðri (kínverskir)
f'ýflúlávötðuitujl,
IOIýfbjlfaiÁ, ffimi 15814
immmmmmmmmm
mmmmmmmmmtm.