Alþýðublaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 8
10 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
BOKABLAÐIÐ
Föstudagur 3. desember 1993
BÓKfKIMSfK5NIR fiLPÝÐCJBLfiÐSINS
Sá kuldi sem kallaður er þjóðfélag
Einar Már Guðmundsson
Englar alhcimsins
Aimenna bókafélagið 1993
í nýrri skáldsögu, sem áreiðan-
lega mun vekja mikla athygli, ferð-
ast Einar Már Guðmundsson um
dimma dali geðveikinnar; sýnir les-
endum veröld sem flestum þykir
trúlega framandi og ógnvekjandi.
Sögumaðurinn heitir Páll og les-
endur fá snemma að vita að hann er
kominn yfir móðuna miklu þegar
sagan er sögð. Þetta er hinsvegar
engin draugabók; og þá eru draug-
amir af þessum heimi en ekki öðr-
um.
Uppvexti og umhverfi Páls er
lýst, og því hvemig hann sekkur æ
dýpra í fen geðveikinnar, uns svo er
komið að hann situr með félögum
sínum á Kleppi. Lýsingar Einars
Más á meðhöndlun geðsjúklinga
em oft og tíðum einsog hrollvekja.
Mestur hryllingur er þó fólginn í
þeirri óþægilegu tilfínningu að Ein-
ar Már sé einfaldlega að segja frá
hlutunum einsog þeir vom í raun -
og em kannski enn.
Að þessu leyti er skáldsaga Ein-
ars Más einhver sterkasta ádeila
sem íslenskur rithöfundur hefur
sent frá sér í háa herrans tíð. Hún er
áfellisdómur yfir mannfélagi sem
sýnir skepnum meiri ræktarsemi og
alúð en sínum minnstu bræðmm og
systmm. I raun er bókin ákæra á
hendur þeim sjálfumglaða meiri-
hluta sem telur sig normal og út-
skúfar þeim sem em á einhvem hátt
„öðmvísi“; lokar þá inni og drepur í
þeim allt tilfinningalíf og vitsmuni
vg ran
Pelskapur í
miklu úrvali.
Verð fyrir alla
Pelsfóðurs-
kápur
Pelsjakkar og húfur Fatnaður frá
í miklu úrvali /
PEISINN
raðgreiðslur
Greiðslukjör við allra hæfi.
Kirkjuhvoli • simi 20160 I—JL.HJ
Þar sem vandlátir versla
með læknadópi.
Deyfð samfélagsins þarf að vera
orðin æði mikil til þess að bókin
veki ekki umræðu um ömurlegt
hlutskipti engla alheimsins,
„klepparanna", - þeirra sem grimm
þögnin umlykur.
En Englar alheimsins er ekki kol-
svört hrollvekja mestanpart. Fyrst
og fremst er þetta sallafínn skáld-
skapur; saga um mannleg örlög,
vissulega nöturleg á köflum og
miskunnarlaus, en við fáurn líka að
kynnast sannri elskusemi og sam-
stöðu þeirra sem kallaðir
eru minnimáttar.
Margt í frásögn Einars
er leiftrandi af gamansemi
og óborganlegum húmor.
Þannig er stöðunni lýst hjá
Páli og félögum hans á
Kleppi:
Oli bítill er í hugskeyta-
sambandi við Bítlana, Pét-
ur er að bíða eftir doktors-
najhbót frá Kína og ég er í
sambandi við ýmsa afstór-
meisturum fortíðarinnar:
aðallega Vincent van
Gogh og Paul Gauguin, á
meðan Viktor, sem ekki
hefur mikið álit á Bítlun-
um, talar fjálglega um
gríska harmleiki og son-
„Englar alheimsins er einhver sterkasta ádeiia sem íslenskur höfundur hefur
sent frá sér í háa herrans tíð... besta skáldsaga Einars Más,“ segir í umsögn Al-
þýðublaðsins.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
nettur Shakespeares, auk þess sem
liann er lyfjafrœðingurinn í okkar
hópi og veit allt um AdolfHitler og
bregður sér stundum í gervi hans.
Þessir strákar þrífast allsekki úti í
þeim „kulda sem kallaður er þjóð-
félag“.
Þeir eru huldumenn nútímans.
„Venjulegt" fólk sér þeim bregða
fyrir en þekkir ekki heiminn þar-
sem þeir lifa og deyja; þeir tilheyra
annarri vídd sem fæstir vilja vita af.
Englar alheimsins er óumdeilan-
lega besta skáldsaga Einars Más
Guðmundssonar, og sú skáldsaga
ársins sem mest tíðindi hefur að
flytja.
Hrafn Jökulsson
Heilræði og rúmfræði
Gottskúlks læknis
Óttar Guðmundsson og
Erna Einarsdóttir:
Það sem máli skiptir
og
Orðabók ástarinnar
Forlagið 1993
Til þess að fyrirbyggja
hugsanlegan misskilning:
Þetta er ekki „rúmfræði", ekki
kennslubók í stellingum eða
bólfimi. Hér er meira skrifað
um tilfinningar og tilfmninga-
líf, vandamál og uppgötvanir
unglingsáranna. Reyndar á
bókin ekki bara erindi til lög-
giltra unglinga, fólk .á öllum
aldri getur haft af henni bæði
gagn og gaman.
Dr. Ottar hefur áður sýnt að
hann er yfirburðamaður þegar
kemur að því að skrifa á
mannamáli um vandmeðfarið
efni, og í þessari bók hefur
honum sýnilega bæst góður
liðsauki. Þekking, innsæi og
óborganleg kímni skapa
skemmtilega blöndu; stíllinn
er einatt skáldlegri en flest
skáld geta státað sig af.
í bókinni er sögð saga Evu
og Adda sem eru að reyna að
fóta sig á hálum ís unglingsár-
anna. Þau leita bæði til furðu-
fuglsins Gottskálks læknis
sem sér lengra en nef hans
nær. Hann á að baki langt
ferðalag gegnum aldimar og
getur því óspart miðlað af
reynslu sinni: hann hefur víða
komið við á spjöldum sögunn-
ar, allt reynt og gert. Persóna
Gottskálks ætti sem best
heima í góðri skáldsögu en
hann er ekkert síður í sveit
settur í þessu góða fræðiriti.
Milli þess sem höfundar
segja okkur af Evu og Adda
og uppgötvunum þeirra er
íjallað um óteljandi hliðar
kynlífs og tilfinningalegra
samskipta. Mikil áhersla er
lögð á gagnkvæma virðingu
Úr bók Ottars Guömundssonar og Ernu Einarsdóttur. „Reyndar á
bókin ekki bara erindi til löggiltra unglinga, fólk á öllum aldri getur
haft af henni bæði gagn og gaman,“ segir Hrafn Jökulsson í ritdómi
sínum.
einstaklinga sem undirstöðu
góðs kynlífs; fjallað um ýmis
tabú af stöku hispursleysi og
leitað svara við erfiðum spum-
ingum unglingsáranna.
Áreiðanlega er þetta kær-
komin bók fyrir ungt fólk:
þessi lesandi hér hefði gjaman
viljað njóta ráða Gottskálks
læknis á unglingsárunum. En
bókin á erindi langt út fyrir
einn aldursflokk, einsog fyrr
sagði.
Orðabók ástarinnar er annar
helmingur ritsins; fróðlegt
uppflettirit þarsem fjölmörg
hugtök eru útskýrð, orð og
orðatiltæki sem tengjast ást og
kynlífi, sagt af frægum ástar-
sjúklingum og fleiru og fleiru.
Niðurstaða: Ein athyglis-
verðasta bók ársins. Unnin af
metnaði og innsæi, afar vel
skrifuð og prýdd aragrúa
skemmtilegra mynda.
Hrafn Jökulsson