Alþýðublaðið - 24.12.1993, Síða 4

Alþýðublaðið - 24.12.1993, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÓLAFUR GUNNARSSON SKRIFAR Fðstudagur 24. desember 1993 REIMAR: SÍÐUSTU imm Vinningstölur miðvikudaginn: 22. des. 1993 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING U 6af6 1 34.839.000 5 af 6 LaS+bónus 0 436.566 pÍl 5 af 6 4 85.754 gl 4 af 6 292 1.868 Pl 3 af 6 tfl+bónus 1.094 214 Aðaltöiur: 2^(T)fÍ2: 31J(38J(40 BÓNUSTÖLUR 29) (39) (44 Heiidarupphaeð þessa viku: 36.398.154 á Isl.: 1.559.154 M UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI 91- 68 t5 11 LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEÐ FVRI8VARA UM RHENTVILLVR Vinningur DaftmGTkLir ; um við frændumir komnir eins og sagði frá síðast. Þeg- ar ég vaknaði undir kvöld var það mitt fyrsta verk að líta út um gluggann. Pontiac 1959, svarta skruggukerr- an hans Reimars stóð virðuleg á hlaðinu. Við snæddum karbúnaði og baunir og rauðkál og fínt fínt í matsalnum um kvöldið og borguðum með beinhörðum peningum. Eftir matinn tendraði Reimar í rettu. - Hér er nóg að reykja en nú vantar okkur tvennt. - Að drekka og ....? - Einmitt vinur, sagði Reimar. II. kapítuli A Hótel Tryggvaskála var heljarsumbl enda Hvíta- sunnan komin. Augljóst var að pöpullinn var að kynda fyrir Þjórsárdalinn. Ur Reykjavík var stöðugur straum- I. kapítuli Kannski muna fáir eftir Reimari Eiríkssyni frá Isa- firði. En það gerir ekkert. Ég hafði steingleymt honum sjálfur þar til síminn hringdi í gær. - Svo þú ert farin að skrifa í Alþýðublaðið, sagði frekjuleg rödd. - Nei, sæll frændi. - Ég er að hugsa um að segja blaðinu upp. - Hvað gengur á? sagði ég. Hefurðu ekki tekið eftir því að ég hef verið með fasta þætti að undanfömu og sala blaðsins hefur stóraukist í kjölfarið? - Mér er skítsama um það, gjammaði Reimar. Ég hef ekkert áframhald séð á ævintýmm mínum. - Ef þú heldur Reimar, svaraði ég. Að ég sé einhver fastur hirðskiifari hjá þér. Þá hefurðu illilega misskilið hlutina drengurinn minn. - Mér fannst helvíti hart að hætta í Pressunni án þess að fólk fengi að vita hver framdi morðið. Þannig hafði viljað til að Reimar var rétt í þann mund að upplýsa morð þegar við vorum reknir af Pressunni. - Reimar! sagði ég. Við hættum ekki á Pressunni. Þú hlýtur að muna að við vorum reknir. - Og hver stóð fyrir því? - Nú ritstjórinn maður. Hann Gunnar Smári. - Ég get sagt þér eitt góði, hvæsti Reimar. Það rekur mig enginn. Pressan er skítasnepill, bætti hann við beisklega. - Heyrðu vinur, sagði ég. Ég hef ekki tíma til að sitja hér og hlusta á þig brúka ljótt orðbragð í símann. Rit- stjórinn minn var að hringja. Ég þarf að skila pistli í Al- þýðublaðið. Ég lagði á. Sfminn hringdi aftur. - Það slitnaði hjá okkur, sagði Reimar. - Nei, félagi ég skellti á þig. Hann byrjaði að æpa og veina svo ég lagði aftur á. Ég hafði rétt dýft fjöðurstaf mínum í blek þegar Reimar hringdi í þriðja sinn. Ég lagði á og tók símann úr sam- bandi. Ég fór að hugsa um allt sem á daga Reimars hafði drifið eftir að ég sleppti hendi af honum f Pressunni í sextugasta og fyrsta kapítula og vorum við þó ekki komnir lengra en fram til ársins 1963. Mér gafst aldrei tækifæri til þess að skýra frá því þegar Reimar gifti sig. Hvað þá þegar hann gerðist róttækur og stóð fyrir sendi- ráðstökunni í Svíþjóð. Aldrei komst ég til þess að segja frá því þegar vinurinn bruddi LSD eins og hvítasykur í Christianíu. Og svo mætti lengri telja. Nei, af nógu var að taka og ekki ástæða til að sitja örvinglaður af því að einhver íjárans pistill vildi ekki fæðast. Ég held því áfram að færa í letur ævintýri Reimars eins og þau voru lesin mér fyrir af bemskuvini hans og frænda af amerísku faðemi Jónasi Johnes. Skrásetjari minn Ólafur Gunnarsson, veit að ég fer ekki með neitt fleipur frekar en Pétur Hoffmann þegar hann las Stefáni Jónssyni fféttamanni fyrir æviminning- ar sínar. Allt er hér sannleik- anum samkvæmt. Við Reimar vomm staddir á Selfossi. Ég hafði sofnaði eins og steinn um hábjartan dag á Hótel Tryggvaskála en þangað vor- raoum Koma... Pelsfóðurs- jakkar og kápur. raðgreiðslur Greiðslukjör við allra hæfi. Loðskinnshúfur, Fatnaðurfrá ennisbönd og vrvrvm/N treflar í miklu JVX UuU úrvali. PElSINNrWl Kirkjuhvoli - sími 20160 L-JJHU Þar sem vandlátir versla ur af bílum. Reimar var ekki lengi að fiska Selfyssing að borðinu og pumpaði hann um sprúttsöluna í plássinu. Heppnin var með okkur eins og alltaf. Við skmppum þrír á kerr- unni. Reimar hvarf inn í hús og kom aftur með tvær Ba- cardi-romm innan klæða. Ég nenni ekki að rekja þetta fyllerí lið fyrir lið. í sem stystu máli: Það vildi teygjast úr drykkjunni upp á her- bergi, allt í einu var komin niðdimm nótt á glugga og vonlaust að rata í Þjórsárdalinn enda við allir orðnir moldfullir. - Andskotinn hafi það strákar, sagði Reimar. - Öll okkar plön em hmnin í rúst. Ég sem ætlaði að komast yfir kvenmann f kvöld. - Ég veit um bijálað vændi, sagði Selfyssingurinn. - Hjúkkumar á heilsuhælinu í Hveragerði em með sér- skála. Við skutlumst bara þangað og dumpum á glugga. Reimar settist undir stýri og reyndi að stramma sig af. Hann horfði ýsuaugum fram á veginn. Þegar til Hvera- gerðis kom læddumst við að stúlknaskálanum, húsi gleðinnar. Selfyssingurinn beið í bílnum. Ég sá vændið fyrir mér í töluverðum hillingum. Mér þótti ein bíða mín, hún tyllti fögmm fæti á stól og var að greiða sítt hárið með augað á glugganum til að gá hvort hugrakkur sveinn úr Reykjavík væri að kíkja. Vindur fór um trén. Hver taug í mér söng: ástin mín ég er að koma. Reimar var vitaskuld fyrstur á gluggann. Svo gægðist ég. Þarna var ekki bijóstastór og velvaxin þokkadís að laga sitt sokkaband. Nei! Tvær níræðar skmkkur sátu á sitt hvom rúminu. Þær virtust ekki til stórræðanna í hvílubrögðum. Önnur leit upp, kom auga á okkur og gaf ífá sér skerandi ang- istarvein sem nísti merg og bein. - Annað hvort höfum við verið dobblaðir Nasi, sagði Reimar. - Eða þú hefur rambað með okkur á skakkt hús helvítis júllebúkkerinn þinn. Þetta em sjúklingar maður. Nú veinuðu vesalíngs konumar í dúett. Ljós kviknuðu hér og hvar. Við frændumir settum Hveragerðismet á hlaupunum til hliðsins. Nú reið á að komast sem íyrst af staðnum. Ég gleymdi að segja frá því áðan að þegar við læddumst inn á lóðina fann ég fyrir svokallaðri „hestagrind“ undir sólunum á striga- skónum. Svona grindur þekkja flestir. Þær em til þess gerðar að kvikfénaður þvælist ekki inn á afgirt svæði og oftast nær er gryfja undir. Ég hafði grindina í huga þegar ég stökk yfir hliðið en Reimar var búinn að gleyma henni og fataðist illilega. Hann kom niður af fullum þunga með annan fótinn á milli rimla, löppin stakkst á bóla kaf og hnéð skrapp niður fyrir rörin svo frændi minn sat gikkfastur. Hann greip undir lærið og rykkti í veinandi en fékk ekki bifað löppinni. Ljós vom kveikt í gluggum. - Kondu maður, kallaði ég. - Æ,æ,æ, sagði Reimar og togaði. En fóturinn sat fastur sem í hörðnuðum múr. Þarna var girðingarstaur og ég reyndi að spenna í sundur rörin en ekkert gekk. Reimar leit í kringum sig og hló. - Það verður gaman að segja frá þessu síðar- meir, sagði hann. Svo gerðist hann grafalvarlegur. - Nasi á ég að segja þér einn hlut sem ég hef þagað yfir ámm saman. Hann pabbi þinn var myrtur. Mér var litið til Heilsuhælisins. Tveir vaktmenn vom á leiðinni og þótt þeir ættu eina hundrað metra ófama sá ég í ljósinu yfir tröppunum að þetta vom vörpulegir menn. - Flýtið ykkur strákar, kallaði Selfyssingurinn. - Þetta er Jói kjálkabijótur og Beggi bróðir hans. Þeir vita ekkert betra grín en berja utanbæjarmenn. Þjónustusamband Islands Sendum öllum félögum okkar, verkafólki til lands og sjávar, bestu óskir um gleðileg jól ogfarsœld á komandi ári. VERKALÝÐSFÉLAGEÐ BALDUR VERKAIVL4NNAFÉLAGIÐ FRAM VERKALÝÐSFÉLAG ÍSAFIRÐI SEYÐISFIRÐI STYKKISHÓLMS BAKARASVEINAFÉLAG FÉLAG FÉLAG STARFSPÓLKS FÉLAG ÍSLENSKRA FÉLAG FÉLAG HÁRGREIÐSLL- ÍSLANDS FRAMREIÐSLUMANNA í VEITINGAHÚSUM KJÖTIÐNAÐARMANNA M ATR EIÐSLUMANN A OG HÁRSKERASVEINA

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.