Alþýðublaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 6
6 ALÞYÐUBLAÐIÐ
FLOKKSSTARFIÐ & SKILABOÐ
Miðvikudagur 12. janúar 1994
FCINDCIR FCILLTRCJflRRÐS
filþýðaflokksfclaganna í Reykjavík
f^carador vorrður haldínn ■ iscjill«:rcjicar«áiOi C^ll^Vdcaf'lcalclca&f'œlcacica
■ Rcylcjavík. Icacjiscarcfci4g|iran 15. jcanúcar klukkcan 10.
Fcincflurinn verður ticalcflinn ■ Leílclicískjcill
(gofmlci PjóOl«rilctanaclcjcallcarcancam> viO Hv<
t:il
F^ca I Ittrdca rcá€f
Finlcicat 8>i n<gg i
FSfcfacacjicí::
vorci lcjörnir
Fcalltrcjicar <á síöosto
Islonds, fpyvir FSIi^ýöcaFlcylclcsifcýidcjiri ■ RcryJcjcavflc.
— Stjórnin.
RAÐAUGLYSINGAR
H ádeg isverða rfci ndar
Kvenfélag filþýðuflokksins í Hafnarfirði heldar hádegisverðarfund
í veitingahúsinu Tilverunni laugardaginn 15. janúar nazstkomandi klukkan 12.00.
fl fundinn koma þazr Sigríður Th. Erlendsdóttir sagnfrazðingur höfundur bókar KRFÍ.
Veröld sam ág vil. og Valgarður Guðmundsdóttir bazjarfulltrúi.
Láttur hádagisvarður er á boðstólum. Varð krónur 740,-
flllir valkomnir.
Takið mað ykkur gasti.
Þátttaka tilkynnist til Dúnu í síma 50742.
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Lausar eru til umsóknar stöður fóstra við nýjan leikskóla
Rauðaborg vA/iðarás.
Nánari uppiýsingar gefur Ásta Birna Stefánsdóttir leik-
skólastjóri í síma 672185.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
FELAGSMALARAÐUNEYTIÐ
UTANKJÖRFUNDAR-
ATKVÆÐAGREIÐSLA
Hinn 5. febrúar 1994 fer fram atkvæðagreiðsla um tillögu
umdæmanefndar Suðurnesja um sameiningu Keflavíkur,
Njarðvíkur og Hafnahrepps. Utankjörfundaratkvæða-
greiðsla hófst í dag og fer hún fram hjá sýslumönnum um
land allt.
Félagsmálaráðuneytið,
10. janúar 1994.
UTANRIKISRAÐUNEYTIÐ
Auglýsing
Nefnd á vegum ríkisstjórnarinnar sem gera á tillögur um
ráðstöfun fjármuna til uppbyggingar á sjálfsstjórnarsvæði
Palestínumanna á Gaza og í Jerikó auglýsir eftir tillögum
um uppbyggingarverkefni eða umsóknum um fjárframlög
til verkefna á fyrrgreindum svæðum.
Verkefnin þurfa að vera vel skilgreind og kostnaðaráætlun
þarf að fylgja með.
Tillögur og umsóknir ber að senda til Sigríðar Jónsdóttur,
utanríkisráðuneytinu, Hverfisgötu 115, 150 Reykjavík, fyr-
ir 1. febrúar nk.
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Lausar eru til umsóknar stöður fóstra við nýjan leikskóla
Engjaborg v/Reyrengi.
Nánari upplýsingar gefur Sigríður Sverrisdóttir leikskóla-
stjóri í síma 671573.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, v/Tryggvagötu, sími 27277.
Hvítir englar!
Fyrsti fundcir ársins
verður í Litlu Brekku
( Lcskjarbrekkci)
fimmtudaginn
13. janúar
klukkan 19 — 21.
— Stjórnin.
ORÐSENDING TIL SAUÐFJÁRBÆNDA
Utflutningur á vistvænu
dilkakjöti 1994
Embætti yfirdýralæknis og Kaupsýslan hf. hafa leitað
eftir viðurkenningu bandarískra heilbrigðisyfirvalda
um sérmerkingu á ákveðnum íslenskum sláturafurð-
um, sem „laus við aðskotaefni". Fáist þessi viðurkenn-
ing, munu opnast leiðir inn á hinn svokallaða „vist-
væna markað“. Þess er vænst að slíkt leyfi fáist fyrir
haustið 1994. Til að uppfylla skilyrði fyrir slíkri viður-
kenningu um efnainnihald og meðferð sláturafurða,
þarf að vinna eftir ákveðnu vottunarkerfi. Því auglýsa
ofangreindir aðilar eftir samstarfi við sauðfjárbændur,
sem hafa áhuga á að framleiða dilkakjöt samkvæmt
þessum kröfum. Útflutningur sláturafurða á Banda-
ríkjamarkað er bundinn við ákveðin sláturhús og því er
útflutningur afurða takmarkaður við þau svæði, sem
eftirtalin sláturhús þjónusta:
Sláturhús Kaupfélags V-Húnvetninga,
Hvammstanga,
Sláturhús Kaupfélags Þingeyinga, Húsavík,
Sláturhús KASK, Höfn.
Nauðsynlegt er að miðla upplýsingum um framleiðslu-
feril og eftirlitsþætti til þeirra bænda, er áhuga hafa á
að taka þátt í þessu samstarfi sem fyrst, þar sem und-
irbúningi þarf að vera lokið fyrir 15. apríl nk. ef til út-
flutnings kemur.
Eingöngu sauðfjárbændur, sem eru þátttakendur í
skýrsluhaldi B.Í., koma til greina.
Lysthafendur hafi samband við Erlend Á. Garðarsson
í síma 91- 611812 varðandi nánari upplýsingar og
skráningu.