Alþýðublaðið - 20.01.1994, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
LEIÐARI & PALLBORÐIÐ
Fimmtudagur 20. janúar 1994
niPYinmnnim
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Borgarstjóri í vanda
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík er í meiri vanda en nokkru
sinni fyrr. Andspænis sameinuðum lista minnihlutaflokkanna
virðist ekkert annað en hrun blasa við í kosningunum til borgar-
stjómar í vor. Auðvitað er Ijóst, að á þetta mikla forskot hins nýja
lista mun saxast þegar kemur í sjálfa kosningabaráttuna, en eigi
að síður hafa nú tvennar skoðanakannanir í röð sýnt, að samein-
aður listi á mikla möguleika til að fella Sjálfstæðisflokkinn.
Þessi tíðindi virðast alveg hafa svipt sjálfstæðismenn í borginni
sjálfstraustinu. Dvínandi gengi flokksins kemur ekki síst fram í
því algera áhugaleysi sem rikir í borginni um prófkjör sjálfstæð-
ismanna. Að vísu má vera að litleysi frambjóðenda skipti þar
miklu; en fyrir utan gamla borgarfulltrúa, sem forystan hafði áð-
ur sett út í kuldann, er þar fátt um fína drætti. Engin tíðindi em
úr prófkjörinu nema þau, að forystan kaus að lýsa sérstöku van-
trausti á konumar, sem buðu sig fram, með því að senda sérstak-
an fulltrúa sinn, Ingu Jónu Þórðardóttur, inn í kjörið, eftir að
framboðsfrestur rann út. Slík yfirlýsing um vangetu hinna
kvennanna er ekki líkleg til að skapa traust á listanum að kjörinu
loknu.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins hafa jafnan verið góður upptaktur
fyrir sigursælar kosningar til borgarstjómar. Svo verður greini-
lega ekki að þessu sinni; ljóst er að út úr því kemur einkar dauf-
legur og lítt áhugaverður listi. Það þarf ekki annað en skoða
frambjóðendur í kjörinu til að skilja það. Eina spennan sem teng-
ist prófkjörinu er útkoma borgarstjórans sjálfs, - hversu hátt eða
lágt hlutfall atkvæða hann fær í fyrsta sætið. Davíð Oddsson
fékk við síðasta prófkjör yfir 90 prósent atkvæða, og fái Markús
Öm minna en 75 prósent verður tæpast hægt að túlka það öðm
vísi en vantraust stórs hluta flokksmanna á getu hans til að leiða
listann.
Nú er það svo, að í röðum sjálfstæðismanna ríkir mikill efi um
forystu Markúsar. Frambjóðendur sjálfir liggja ekki á þeirri
skoðun, að farsælla hefði verið að einhver annar en hann hefði á
sínum tíma valist til- að taka við embætti borgarstjóra. Þeir - og
raunar borgarbúar - hafa fremur styrkst í þeirri skoðun en hitt,
þegar leið á kjörtímabilið. A sínum tíma bitust sterkir borgarfull-
trúar um hnossið; þau Ámi Sigfússon, Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son og Katrín Fjeldsted. Stuðningsmenn allra telja að það hafi
reynslan sýnt, að valið á Markúsi hafi verið rangt. Ferli Katrínar
lyktaði raunar þannig, að hún áformaði að bjóða sig fram gegn
Markúsi, en forystan lagðist gegn því af slíkum ofurþunga að
Katrín fór í fússi; og kvaddi með kjaftshöggi, sem var fyrst og
ífemst beint gegn Markúsi.
Innan Sjálfstæðisflokksins er hátt og í hljóði talað um að sam-
einast um að kjósa annan en Markús í efsta sætið. Það verður þó
að teljast ólíklegt að stuðningsmenn Ama Sigfússonar og Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar sameinist um annan hvom. En þetta
getur hins vegar leitt til þess, að báðir fái talsvert magn atkvæða
í efsta sæti listans, og kjör Markúsar verði að sama skapi lélegt.
Þetta skapar mikla hættu fyrir bæði borgarstjórann og listann.
Rýrt fylgi við Markús opinberar þá vantrú og óánægju sem er
innan raða Sjálfstæðisflokksins með borgarstjórann, og kjósend-
ur munu þá væntanlega spyrja; hvers vegna að kjósa lista sem er
undir forystu manns, sem stór hluti flokksins treystir ekki?
Sjálfstæðismenn óttuðust að vonum niðurstöðumar úr saman-
burði Reykvíkinga á Markúsi Emi annars vegar, og Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur hins vegar. Engum sem fylgst hefur með
stjómmálum dylst, hver niðurstaðan verður í honum. Ingibjörg
Sólrún mun vinna þá keppni með annarri hendi. Flokknum er
því nauðsynlegt að styrkja Markús eins og kostur er, áður en
kemur í stóra slaginn. Vaxandi óánægja með Markús hefur hins
vegar leitt til þess, að forystan óttast mjög, að útkoma hans í
prófkjörinu verði léleg. Þessi taugaveiklun hefur nú leitt til þess,
að hver borgarfulltrúinn á öðmm er dreginn á síður blaðanna til
að sverja hollustueiða við borgarstjórann. í fyrradag var það
Anna K. Jónsdóttir, og í gær var það Páll Gíslason. En dugar það
Markúsi?
Reykvfldngar bíða spenntir eftir því að Árni Sigfússon og Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson verði líka látnir vitna á síðum Morgun-
blaðsins.
PALLBORÐIÐ: Ingvar Sverrisson skrifar
DRAUMURINN
HEFUR RÆST!
Árið 1994 er gengið í
garð og hefur nú þegar
sett mark sitt á íslenska
stjómmálasögu. þessa
árs verður seinna minnst
sem upphafsárs breyt-
inga til hins betra fyrir
íbúa þessarar litlu stór-
borgar, Reykjavðcur.
Allt síðan borgarstjóm
tók til starfa hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn setið
að völdum í borginni, ut-
an eitt kjörtímabil þegar
minnihlutaflokkarnir
náðu á ótrúlegan hátt að
sigra í kosningum og
mynda sín á milli meiri-
hluta sem stjómaði í 4 ár.
Ekki hefur
náðst að nýta
atkvæðin
Ein helsta ástæða þess
að ekki hefur náðst að
sigra oftar er sú, að at-
kvæði minnihlutaflokk-
ana hafa ekki náð að nýt-
ast sem skyldi, utan það
eina skipti sem áður var
nefnt. Þannig hafa sjálf-
stæðismenn fengið
hreinan meirihluta þrátt
fyrir að hafa aðeins feng-
ið um 46% atkvæða.
Þetta stafar af því að
því fleiri sem framboðin
em, því fleiri atkvæði
fara til spillis. Á allt þetta
hefur verið bent í ýms-
um blaðaskrifúm og á
mörgum fundum undir
lok síðasta árs.
Raunhæfur
möguleiki á
nýjum meirihluta
Sýnt hefur verið fram
á að eina leiðin til að
nýta atkvæði þeirra sem
virðast að langflestu
leyti sammála um mál-
efni borgarinnar og
krefjast breytinga, það er
kjósendur Alþýðu-
flokks, Framsóknar-
flokks, Kvennalista og
Alþýðubandalags, sé sú
að sameina fyrmefnda
flokka í eitt framboð og
nýta þannig atkvæðin og
eiga loks raunhæfan
möguleika til þess að ná
meirihluta í kosningum.
Ungt fólk
tókaf
skarið
Þetta hefur verið rætt
mikið á undanfömum ár-
INGVAR
SVERRISSON:
„Möguleikar á
sameiginlegu framboði
félagshyggjuaflanna
voru svo rœddir áfram
en segja má að ekki
hafi komist skrið á fyrr
en síðastliðið haust
þegar ungtfólk úr
öllum ungliðahreyfing-
um þessara flokka,
ásamt fulltrúum frá
Nýjum Vettvangi,
Grœnu framboði og
Flokki mannsins, hófu
þessa umrœðu upp,
kröfðust aðgerða og
sýndu þannigfram á
eindreginn vilja ungs
fólks í borginni til þess
að láta drauminn
rœtast. “
um og var fyrsta tilraun-
in gerð þegar Nýr Vett-
vangur bauð frarn í
fyrsta skipti. Á þeirri
stundu gengu málin ekki
upp. Jafnmargir flokkar
vom í framboði og
venjulega svo að tilraun-
in mistókst og sömu
stjómhafar sátu við völd
enn um sinn.
Möguleikar á sameig-
inlegu framboði félags-
hyggjuaflanna vom svo
ræddir áffam en segja
má að ekki hafi komist
skriður á málið fyrr en
síðastliðið haust þegar
ungt fólk úr ungliða-
hreyfmgum félags-
hyggjuflokkanna, ásamt
fulltrúum frá Nýjum
Vettvangi, Grænu fram-
boði og Flokki manns-
ins, hófu þessa umræðu
upp, kröfðust aðgerða og
sýndu fram á eindreginn
vilja ungs fólks í borg-
inni til þess að láta
drauminn rætast.
Loksins tóku
flokkarnir
við sér
Undirskriftarlistar,
fundir og greinaskrif
sannfærðu æ fleiri um
ágæti þess að sameinast
en það var ekki fyrr en
Félagsvísindastofnun og
síðar DV gerðu skoðana-
kannanir sem sýndu að
sameiginlegur listi
myndi sigra að fulltrúar
flokkana tóku við sér.
Það var svo á nýju ári
að þetta fólk settist niður
og hóf viðræður sem nú
hafa leitt til þess að
sögulegur atburður hefur
átt sér stað: Minnihluta-
flokkamir, félags-
hyggjuöflin í borginni,
hafa sameinast um einn
lista.
Aðgeta
skipt um
skoðun
Það sýnir mikinn styrk
í stjómmálum þegar
menn geta skipt um
skoðun um leið og nýjar
upplýsingar hafa komið
fram sem sýna ótvírætt
að viðkomandi hafi haft
rangt fyrir sér.
Sjá má á öllum fram-
gangi Sjálfstæðismanna
að þeir em hræddir, log-
andi hræddir, og nota
klisjur eins og „sósíalísk
samsuða“og „tískufyrir-
brigði“.
Þetta er hinsvegar til
einskis, allir vita að þetta
er bara merki um þá
hræðslu sem hefur náð
yfirhöndinni í herbúðum
íhaldsins. Þetta er
hræðslan um að missa
sitt helsta vígi þar sem
raunverulega kommún-
ískir stjómarhættir sjálf-
stæðismanna hafa verið
við lýði í allt of langan
tíma.
Sundurlaus
framboðslisti
íhaldsins
Borgarbúar hafa nú
loks val um tvo kosti en
ekki aðeins einn sterkan
og marga veika sem
aldrei hefðu getað náð
meirihlutanum fyrr en
nú með sterkum sameig-
inlegum lista, sem vinna
mun í þágu borgarbúa en
ekki að hagsmunum eig-
in félaga og flokks eins
og tíðkast hefur í valda-
tíð sjálfstæðismanna.
I skoðanakönnun DV
á dögunum var sýnt fram
á að borgarbúar vilja
breytingar og er sameig-
inlegt framboð miklum
mun líklegra til að verða
við þeirri ósk heldur en
sundurlaus framboðslisti
íhaldsins.
íbúar í
Reykjavík:
Til hamingju!
Ég vil óska borgarbú-
um til hamingju með hið
nýja framboð því nú hef-
ur draumurinn ræst og
raunverulegt mótvægi
verið myndað við meiri-
hlutann. Að sjálfsögðu
verður að taka allar
skoðanakannanir með
fyrirvara og halda ótrauð
áfram í baráttunni gegn
spillingarsinnum íhalds-
ins.
Sýnum fólki fram á að
alvara er á ferð og breyt-
ingar eru í vændum
borgarbúum til hags-
bóta.
Höfundur er starfandi í
stjómum Félags ungra
jafnaðarmanna í Reykjavík
og Sambands ungra jafn-
aðarmanna.