Alþýðublaðið - 27.01.1994, Síða 7

Alþýðublaðið - 27.01.1994, Síða 7
Fimmtudagur 27. janúar 1994 PALLBORÐIÐ: Bjarni Finnsson skrifar ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Með lögum númer 2 frá 13. janúar 1993 var veitt heimild til þess að fullgilda hér á landi samning um Evrópska efiia- hagssvæðið og ÉES-samn- inginn. Á íslandi gilda þær reglur að þjóðréttarsamningar sem gerðir eru milli Islands og annarra landa, fá ekki laga- gildi nema með setningu sér- stakra laga á Alþingi. Þar af leiðandi þurfi að setja ótal ný lög og reglugerðir til þess að samningurinn öðlaðist gildi. En eins og kunnugt er nær þessi samning í megin atrið- um til þriggja þátta. f fyrsta lagi vöruviðskipta, í öðru lagi frjálsra flutninga ijármagns og í þriðja lagi frjálsra flutn- inga vinnuafls milli aðildar- landanna. Þar sem EES-samningur- inn tjallar fyrst og ffernst um viðskipti þá hlýtur hann að snerta alla landsmenn og ekki síst þá sem stunda þessa at- vinnu. Með samningnum er mtt úr vegi hindrunum í við- skiptum svo að ekki verði hægt að mismuna þjóðum eða einstaklingum. Til þess að tryggja slíkt hafa samkeppnisreglur innan landanna sem eru í EB og þeirra sem undirrituðu EES- samninginn verið samræmd- ar. Gæðastaðlar eru sam- ræmdir og bann lagt við hvers konar ríkisstyrkjum eða nið- urgreiðslum framleiðsluþátta annarra en í landbúnaði. Margir hafa að sjálfsögðu spurt, hvemig hægt sé að tryggja að öll ákvæði samn- ingsins gangi eftir, sérstak- lega í samskiptum lítillar þjóðar eins og Islendinga við stórþjóðir. Þau atriði sem talin em hér á undan munu meðal annars tryggja það, en auk þess verð- ur haft strangt eftirlit með framkvæmd samningsins. EFTA-ríkin hafa komið sér upp eftirlitsstofnun EES sem annast eftirlitshlutverkið. Þess skal gengið að nú starfa við þá stofnun um 90 manns og eru að minnsta kosti 10% þeirra íslendingar og á vænt- anlega eftir að fjölga. Má það teljast góður árangur lítillar þjóðar sem sýnir að við búum yfir menntun og þekkingu, auðsjáanlega til jafns við stærri þjóðir. Má vera að þetta gefi nokkra vísbendingu um stöðu okkar í framtíðinni meðal þeirra þjóða sem við höfum gert samninginn við. Sé litið til smásöluverslun- arinnar, þar sem ég starfa, má reikna með því að hún geti átt von á aukinni samkeppni í framtíðinni og er það ein af afleiðingum samningsins. Hugsanlegt er að erlendir aðilar innan þessarar atvinnu- greinar telji sér hag í því að setja á stofn hér eigin fyrir- tæki eða f samstarfi við ís- lendinga. í sjálfu sér er ekkert við það að athuga annað en að BJARNIFINNSSON: „Það er alls ekki fráleitt að hugsa sér að íslensk smásöluverslun flytji út hugvit og þekkingu og nái fótfestu í löndum innan EB, Sem kunnugt er byggist verslunin mikið á því að öll fjármagns- þjónusta sé sem ódýrust og eðUlegust Hugsan- legt er að erlendir bankar og fjármagnsstofnanir bjóði fram þjónustu sína hér á landi og það leiði til þess að samkeppni aukist innan þessarar at- vinnugreinar og fjármagnskostnaður lækki fyrir íslensk fyrirtæki. SUkt mun bæta samkeppnis- stöðu íslenskrar verslunar.“ búa sig undir þá samkeppni. Við höfum orðið vör við ýms- ar breytingar á undanfömum mánuðum, þar sem íslenskar verslanir hafa með auknu er- lendu samstarfi boðið vörur á sambærilegu verði hér á landi og á meginlandinu. Við höfum einnig horft upp á það að íslensk smásölu- verslun hefur haslað sér völl utan íslenskra landsteina og segir mér hugur að framhald verði á því. Það er alls ekki lfáleitt að hugsa sér að íslensk smásölu- verslun flytji út hugvit og þekkingu og nái fótfestu í löndum innan EB. Sem kunn- ugt er byggist verslunin mikið á því að öll fjármagnsþjónusta sé sem ódýmst og eðlilegust. Hugsanlegt er að erlendir bankar og ljármagnsstofnanir bjóði fram þjónustu sína hér á landi og það leiði til þess að samkeppni aukist innan þess- arar atvinnugreinar og ljár- magnskostnaður lækki fyrir íslensk fyrirtæki. Slíkt mun bæta samkeppnisstöðu ís- lenskrar verslunar. I umræðunni um EES- samninginn er það áberandi hvað efasemdarmenn hræðast mjög fijálsa flutninga vinnu- afls hingað til lands. Margir hafa í því sambandi óttast að hingað streymi fólk sunnan úr álfunni sem bjóði fram vinnu sína á mun lægri launum en greitt er fyrir nú. Samkvæmt athugunum sem gerðar hafa verið á þessum þætti til dæm- is í Danmörku, kom í ljós að fleiri Danir fluttu til landa suður í Evrópu heldur en þeir sem fluttust frá löndum í Suð- ur-Evrópu til Danmerkur. Fjöldi eldri Dana búa hluta ársins í heitari löndum Suður- Evrópu og mikill, straumur ferðamanna frá norðri til suð- urs. Hvað okkur varðar hér á landi njótum við mikillar fj;ir- lægðarvemdar í þessu tilliti auk þess sem veðrátta hér á landi fellur þeim ekki í geð sem sunnar búa. Þar að auki eigum við erfitt tungumál sem er óskylt þeim tungum sem talaðar eru víða í Evrópu og setja menn það fyrir sig. Varðandi frjálsan flutning fjármagns milli landa getur það komið Islendingum til góða. Oft hefur það háð ís- lensku atvinnulífi hversu strangar reglur hafa gilt um eignaraðild erlendra fyrir- tækja að íslenskum fyrirtækj- um. Með þessu ákvæði megum við vænta góðs fyrir atvinnu- lífið hér á landi. Háværustu raddir gegn EES-samningnum, sérstak- lega eftir að hann var sam- þykktur, hafa heyrst ífá for- svarsmönnum bændasamtak- anna. Otti þeirra við afleið- ingar samningsins er eðlileg- ur í ljósi þess hve lengi ís- lenskur landbúnaður hefur haft um sig alls kyns vemdar- múra. Ég held að íslenskir bænd- ur muni fljótt aðlagast breytt- um aðstæðum, og em nú þeg- ar famir að skoða nýja mögu- leika í framleiðslu vistvænn- ar/umhverfisvænnar vöm til útflutnings. Reyndar tel ég stórkostlega möguleika felast í „lífrænum landbúnaði" og vísa til ráðstefnu sem fjallaði um það efni á vegum bænda- samtakanna fyrir stuttur. Við sem störfum innan verslunarinnar stöndum ffammi fyrir miklum breyt- ingum á næstu ámnt. Við höf- um gert EES-samninginn og með því móti fengið aðgang að markaði þar sem búa um 380 milljón manns. Það eitt hlýtur að gefa versluninni betra tækifæri til öflunar við- skiptasambanda sem mun koma okkur landsmönnum til góða í betri og ódýrari vöru og þjónustu. Höfundur er formaður Kaupmannasamtaka islands. Grein þessi birtist i EES-blaði' Alþýðublaðsins síðastliðinn föstudag og er birt bér aftur vegna hnökra sem urðu á vinnslu greinarinnar þá. PALLBORÐIÐ: Arnar Sigurmundsson skrifar EES og fí skvinnslaii Evrópska efnahagssvæðið er loksins orðið að veruleika. Breytingamar sem það hefur í för með sér fyrir íslenska fisk- vinnslu em ekki famar að koma í ljós ennþá, enda gerðu menn varla ráð fyrir að um mikla stökkbreytingu yrði að ræða. Breytingamar munu þó væntanlega verða nokkrar á næstu mánuðum, og það sem flestir vilja sjá em áhrif tolla- lækkana á verð þeirra afurða sem tollamir lækka mest á. Þessar afurðir em saltfiskur, söltuð flök og fersk flök. Þótt við væntum jress að tolla- lækkanir verði til þess að hækka skilaverð á þessum af- urðum megum við ekki gleyma því að þegar tollar hérlendis lækka á innflutningi er það ævinlega neytendum hér á landi í hag. Væntanlega verður það sama upp á ten- ingnum í viðskiptalöndum okkar, að neytendur í þessum löndum koma til með að njóta tollalækkanna á íslenskum fiski, að minnsta kosti að hluta. Það verður því ekki fiskvinnslan á íslandi ein, sem mun njóta tollalækkanna á þessum afurðum. Staða frystingarinnar mun ekki breytast við tilkomu EES þar sem við höfum húið við toll- ffelsi á frystum afurðum sam- kvæmt bókun sex í samningi okkar við EB. Norðmenn hafa hins vegar þurft að búa við tolla á sínum frystu afurð- um sem falla nú niður og má því segja að frystihúsin á ís- landi muni lenda í harðari samkeppni um Evrópumark- aðinn við kollega sína í Nor- egi með tilkomu EES. Tollalækkanir á ferskum flökum munu væntanlega leiða til mestra breytinga í fiskvinnslu hér á landi á næst- unni. Ef tilraunir með útflutn- ing á ferskum flökum í gám- um með skipum til Evrópu gefast vel getur það leitt til þess að útflutningur á óunn- um fiski dregst enn meira saman en orðið er og jafn- framt veitt sjófrystum fiski nýja samkeppni. Þá mun út- flutningur á flökum í loft- tæmdum eða loftskiptum um- búðum einnig geta orðið væn- legur kostur, en nokkur fisk- vinnslufyrirtæki hafa þegar fest kaup á tækjum í þeim til- gangi að hefja og hafa jafnvel hafið slíka framleiðslu. Þess ber þó að geta að markaður fyrir fersk flök er lítt þekkt stærð og það á eftir að koma í ljós hversu mikið magn tekst að selja af þessum afurðum. Ekki er enn ljóst hvort aðild okkar að EES verður til þess að erlendir kaupendur leiti í ARNAR SIGURMUNDSSON: „Aðild okkar að EES gerir meiri kröfur til sam- keppnishæfni íslensks sjávarútvegs, en veitir okkur í staðinn víðtækari möguleika til að markaðssetja afurðir okkar. Öllum má vera ljóst að staða sjávar- útvegs á Islandi er bágborin eftir skuldasöfnun verðbólguáranna og samdrátt þorskveiðanna, en þorskurinn hefur verið okkur verðmætasta afurð og gefið sjávarútveginum mestan arð. Sjávarútveg- urinn býr hins vegar yfir dugmiklu fólki sem ávallt hefur verið reiðubúið að takast á við ný verkefni af einurð og árvekni.” auknum mæli á fiskmarkað- ina hér á landi til að verða sér úti um fisk til að flytja óunn- inn úr landi. Ef þetta verður reyndin er nauðsynlegt að setja um þau viðskipti sér- stakar reglur þar sem ekki getur talist eðlilegt að skerða kvóta þeirra skipa sem selja á mörkuðunum, en samkvæmt núgildandi reglum ætti að gera það eins og um útflutn- ing skipanna sjálfra væri að ræða. Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva 1992 álykt- aði um þetta mál og reyndar síðasta Fiskiþing einnig. Ályktanir eru báðar í þá veru að setja verði jöfnunargjald á slíkan útflutning til að vega upp á móti þeim styrkjum sem fiskvinnsla EB nýtur. Ekki dugar að heimila þess- um aðilum, og reyndar kaup- endum frá fleiri þjóðum, að koma hingað með fullar hendur styrkjafjár og taka hráefni frá innlendri vinnslu og störf ffá íslensku fisk- vinnslufólki. í þessu sam- bandi sakar ekki að rifja upp að styrkir EB og einstakra landa innan þess til sjávarút- vegsins eru samtals um 80-100 milljarðar íslenskra króna á ári og styrkir Norð- manna em um 1,5 milljarður á þessu ári. Með tilkomu EES opnast okkur fslendingum einnig möguleikar á að leita fjár- magns til rannsókna- og þró- unarverkefna fyrir sjávarút- veg ífá sjóðum EES. Fyrir nokkm var stofnaður svo- nefndur Samstarfsvettvangur sjávarútvegs og iðnaðar í þeim tilgangi að auka vinnsluvirði og tækniþróun fyrir fiskvinnslu og útgerð. Vettvangurinn nýtur fjár- stuðnings frá opinbemm aðil- um, frá samtökum sjávarút- vegs og iðnaðar og Rann- sóknaráði, en jafnframt mun hann sækja fjármagn í erlenda sjóði sem við eigum nú að- gang að. Með inngöngu okkar í EES emm við að stíga afdrifaríkl skerf inn í frjálsara og jafn- framt harðara samkeppni- sumhverfi í öllum fyrirtækja- rekstri. Þessu hafa fylgt ýmis konar lagasetningar sem ekki síst snúa að framleiðslu sjáv- arafurða. Flestir em sammála þvf að þetta hafi verið óum- flýjanlegt því að öðmm kosti hefðu fiskvinnslufyrirtæki orðið að sæta leyfisveitingum framkvæmdastjómar EB og eftirlitsmanna þeirra til að fá að framleiða fyrir Evrópu- markað. Ákvarðanir um vinnsluleyfi fyrir EB-markað hefðu verið í þeirra höndum. Nú er það hins vegar Fiski- stofa sem fer með það vald. Aðild okkar að EES gerir meiri kröfur til samkeppnis- hæfni íslensks sjávarútvegs, en veitir okkur í staðinn víð- tækari möguleika til að mark- aðssetja afurðir okkar. Ollum má vera ljóst að staða sjávar- útvegs á Islandi er bágborin eftir skuldasöfnun verðbólgu- áranna og samdrátt þorsk- veiðanna, en þorskurinn hefur verið okkur verðmætasta af- urð og gefið sjávarútveginum mestan arð. Sjávarútvegurinn býr hins vegar yfir dugmiklu fólki sem ávallt hefur verið reiðubúið að takast á við ný verkefni af einurð og árvekni og því horfum við með hóf- legri bjartsýni til framu'ðar og þeirra nýju tækifæra sem bjóðast okkur með aðild að Evrópska efnahagssvæðinu. Höfundur er formaður Samtaka fiskvinnslustöðva. Grein þessi birtist t EES-blaði Alþýðublaðsins siðastliðinn löstudag og er birl hér aftur vegna hnökra sem uröu á vinnslu greinarinnar þá.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.