Alþýðublaðið - 11.02.1994, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
UMRÆÐA
Föstudagur 11. febrúar 1994
minnnim
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Lætur verkin tala
Hinar skörpu áherslur nýs iðnaðar- og viðskiptaráðherra í
málefnum vaxta og íslensks iðnaðar hafa vakið verðskuldaða
athygli meðal þjóðarinnar. Á skömmum tíma hefur Sighvatur
Björgvinsson náð þeim árangri, að landsmönnum hefur skil-
ist, að þar fer maður sem notar ekki orðin tóm, heldur lætur
verkin tala.
Sjö íslensk sjávarútvegsfyrirtæki með sjötta hluta
kvótans ítarlega könnuð af Handsali hf.
Þormóður rammi spjarar sig best þeirra:
FJÖGUR REKIiN
MEÐ HAGNAÐI
- þrátt fyrir aflasamdrátt, háa vexti og lægri
afurðaverð, en afkoman er þó talin óviðunandi
Undir forystu viðskiptaráðherra hefur ríkisstjóminni tekist
að lækka vexti hratt og örugglega, og markmiði ríkisstjómar-
innar um fímm prósent raunvexti af skuldabréfum sínum hef-
ur þegar verið náð. Auðvitað er það ekki verk hans eins, held-
ur allrar ríkisstjómarinnar, - ekki síst forsætisráðherra. En
sem viðskiptaráðherra, og yfírmaður Seðlabankans, þá hefur
Sighvatur veitt þá forystu, sem nauðsynleg var til að mark-
miðið næðist.
Með vaxtalækkuninni rann í fyllingu þrautseigt starf að fjár-
málum ríkisins, sem stjómin hefur unnið á kjörtímabilinu.
Viðskiptahalli við útlönd hefur hjaðnað ótrúlega, og í fyrsta
skipti í áratugi em íslendingar nú byrjaðir að greiða niður lán
erlendis. Áhlaupið á inrilenda fjármagnsmarkaðinn gekk upp,
enda lá fyrir skorinorð yfirlýsing ríkisstjómarinnar um að hún
myndi ekki skirrast við að leita á erlenda lánamarkaði, ef inn-
lendi markaðurinn hlýddi ekki forystu ríkisins í vaxtamálum.
Af óskiljanlegum ástæðum streittust lífeyrissjóðimir gegn
vaxtastefnu ríkisins um sinn, og reyndu um stund að brjóta
hana á bak aftur, þrátt fyrir að það kæmi engum eins vel og
umbjóðendum þeirra að vextir lækkuðu duglega. Andspyma
þeirra kom hins vegar fyrir lítið andspænis einbeittri ríkis-
stjóm. Sighvatur Björgvinsson gerði þeim ljóst með skímm
hætti, að mótþrói þeirra yrði ekki liðinn, og að lokum hlýddu
þeir. Sömuleiðis vom ríkisbankamir teknir á teppi viðskipta-
ráðuneytisins með þeim afleiðingum að nafnvextir lækkuðu,
eftir nokkra mótspymu bankanna. Fyrir fyrirtækin og heimil-
in í landinu þýðir þetta lækkaða greiðslubyrði sem nemur
mörgum milljörðum á ári.
Sighvatur Björgvinsson hefur sömuleiðis látið til sín taka í
málefnum iðnaðarins. Skemmst er að minnast þeirrar yfirlýs-
ingar hans í kjölfar heimsóknar í Slippstöðina Odda á Akur-
eyri, að núverandi iðnaðarráðherra hyggðist ekki standa yfir
rústum íslensks skipasmíðaiðnaðar. Ráðherrann hefur sýnt í
verki að við þau orð hyggst hann standa. Hann beitti sér með-
al annars fyrir því, að ríkisstjómin greiddi niður viðhaldsverk-
efni á íslenskum skipum sem næmi undirboðum erlendra
skipasmíðastöðva. Með því er tryggt, að verkefni upp á hálf-
an milljarð verða eftir í landinu á þessu ári, sem ella hefðu
verið unnin erlendis.
Hann hefur sömuleiðis boðað, að refsitollar verði lagðir á ný
skip sem keypt verða erlendis frá, ef sýnt þykir að þar sé um
undirboð að ræða. Þar er um mikilsverða vöm að ræða fyrir
innlendan skipaiðnað; tímabæra - og fullkomlega sjálfsagða.
Ennfremur er ljóst, að ráðherrann telur rangt miðað við núver-
andi aðstæður í innlendum iðnaði, að hið opinbera veiti fyrir-
greiðslu vegna kaupa á skipum erlendis frá. Þar er hann á
réttri leið. Auðvitað er ekki hægt að banna innlendum aðilum
að kaupa skip í útlöndum, svo fremi þeir afli sjálfir tilskilinna
lána á erlendum mörkuðum. En þegar skipasmíðar innan-
lands ramba á bjargbrúninni er það einfaldlega heimska, að
opinberir aðilar skuli stuðla að slíkum kaupum með lánum úr
sjóðum fólksins í landinu.
Það er skynsamlegt að breyta stefnu, þegar innri aðstæður í
landinu em breyttar. Andspænis vaxandi atvinnuleysi verður
að gera allt sem hægt er til að skapa atvinnu, - ekki síst að
halda störfum í landinu, sem áður hafa flust út. Afstaða iðnað-
arráðherra speglar því í senn kjark, og framsýni. Hann er á
réttri leið, og þjóðin kann að meta verk hans.
„Ef aflaheimildir verða aukn-
ar mun afkoma ailra fyrirtækj-
anna að öllum líkindum batna
verulega. Einnig mun lækkun
vaxta í Evrópumyntum og lækk-
un olíuverðs væntanlega hafa já-
kvæð áhrif á afkomu þeirra“,
segir Edda Helgason, forstjóri
Handsals hf. í úttekt fyrirtækis-
ins á sjö stórum, íslenskum fyrir-
tækjum í sjávarútvegi, sem gefin
hefur verið út. Edda segir að af-
koman í sjávarútvegi sfðustu tvö
ár sé óviðunandi, það eigi einnig
við um viðmiðunarfyrirtækin
sjö.
Sjö íslensk sjávarútvegsfyrirtæki
sem skráð eru á Verðbréfaþingi ís-
lands og Opna tilboðsmarkaðnum
eru þau könnuð ítarlega í úttektinni.
Þau eru handhafar um það bil eins
sjötta hluta útgefinna veiðiheimilda
auk þess sem þau fá úthlutað úr
hagræðingasjóði. Þrátt fyrir ýmsa
óáran á síðasta ári, hafa fjögur þess-
Edda Helgason.
ara fyrirtækja skilað hagnaði.
Fyrirtækin sem hér um ræðir eru
Ámes hf., Haraldur Böðvarsson hf.,
Grandi hf., Síldarvinnslan hf.,
Skagstrendingur hf., Útgerðarfélag
Akureyringa hf., og Þormóður
rammi hf.
I fyrra voru þrjú þessara sjö fyrir-
tækja rekin með tapi á meðan hin
ljögur skiluðu hagnaði á bilinu 1,7
til 13,6% af eigin fé. Þar var Þor-
móður rammi á Siglufirði með
besta afkomu og talinn skila 70
milljón króna hagnaði. Bent er á til
viðmiðunar að árin 1990 og 1991
skiluðu fyrirtækin sjö hagnaði sam-
tals að upphæð 358 milljónum
króna og árið 1990 758 milljónum.
Heildartap fimm fyrirtækjanna
1992 nam 550 milljónum. Það ár
voru tvö fyrirtækjanna í raun ekki
til, Ámes hf. og Haraldur Böðvars-
son, en þar hefur átt sér stað sam-
mni fyrirtækja.
Handsal vinnur sitt verk af mik-
illi vandvirkni og skyggnist aftur í
tímann til að hægt sé að átta sig bet-
ur á afkomunni í dag. Fyrirtækin sjö
hafa öll aukið hlutafé sitt á síðustu
3-4 ámm, samtals um 1.672 millj-
ónir króna miðað við verðlag í des-
ember síðastliðnum. Innborganir
nýs hlutafjár á tímabilinu
1991-1993 var samtals 982 millj-
ónir króna.
„Þrátt fyrir þessar innborganir til
styrktar eiginíjárstöðu, hefur heild-
ar eigið fé þessara fyrirtækja á tíma-
bilinu 1991 til 1993, miðað við
milliuppgjör, minnkað um 93 millj-
ónir króna, eða sem jafngildir
1,8%“, segir Edda Helgason.
Bent er á að afkoma greinarinnar
sé slæm. Niðurskurður á aflaheim-
ildum ásamt háum vöxtum, gengis-
fellingunt og ofljárfestingum hafi
skapað erfiðan rekstrargrundvöll
fyrir mörg fyrirtæki í sjávarútvegi.
En ekki öll. Dæmi séu um „sérlega
vel rekin fyrirtæki í greininni, þrátt
fyrir erfið skilyrði", segir í úttekt-
inni. „Endanlega ráða stjómendur
fyrirtækjanna ferðinni og afdrifa-
ríkar ákvarðanir eru teknar af ein-
staklingum", segir Edda Helga-
son hjá Handsali hf.
I FOSTUDAGSSKAPI!
Alþýöublaðsmynd / Einar Ólason