Alþýðublaðið - 09.03.1994, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 9. mars 1994
38.TÖLUBLAÐ - 75. ÁRGANGUR
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk
ÞREFALDUR 1. vinningur
Búvörumálið:
Aldrastaðiðtilaðveita
landbúnaðarráðherra hdmild
- til að leggja gj öld á aDar landbúnaðarvömr,
segir í séráliti Gísla S. Ejnaræonar, tiiDtrúa
Alþvðullokksins í landbúnaðamdnd Alþingis
FRUMVARP ríkis-
stjórnarinnar í búvörumál-
inu þrengdi ekki heimildir
landbúnaðarráðherra til
álagningar verðjöfnunar-
gjalda frá því sem var
ákveðið með búvörulaga-
breytingunni í desember.
Þvert á móti voru þær
heldur auknar. Það hcfur
aldrei staðið til að vcita
landbúnaðarráðherra
hcimild til að leggja gjöld á
allar landbúnaðarvörur.
Breytingar sem Egill Jóns-
son formaður landbúnað-
arnefndar Alþingis lagði til
í nefndinni gengu þvcrt á
samkomulag stjórnar-
tlokkanna um að tryggja
óbreytt ástand í innflutn-
ingi landbúnaðarvara til
bráðabirgða fram til gildis-
töku nýs GATT-samnings.
Gísli S. Einarsson alþing-
ismaður og fulltrúi Alþýðu-
flokksins í landbúnaðamefnd
skrifaði ekki undir nefndar-
álit Egils Jónssonar og félaga
hans um búvörufrumvarpið
og nefndin margklofnaði
raunar.
Gísli mun leggja fram sér-
álit þar sem fram koma þau
atriði sem ekki verður á fall-
ist í áliti Egils Jónssonar.
Meginatriði sérálits Gísla
S. Einarssonar em þessi:
Fmmvaip ríkisstjómarinn-
ar þrengdi ekki heimildir
landbúnaðarráðherra til
álagningar verðjöfnunar-
gjalda frá því sem var ákveð-
ið með búvörulagabreyting-
unni í desember. Þvert á móti
voru þær heldur auknar.
Aldrei hefur staðið til að
veita landbúnaðarráðherra
heimild til að leggja gjöld á
allar landbúnaðarvömr og
vömr unnar úr þeim.
Ekki er rétt að breytingar-
tillögur rikisstjómaiflokk-
anna feli ekki í sér efnislega
breytingu á því forræði land-
búnaðaiTáðherra á verðjöfn-
unargjöldum á innfluttum
landbúnaðarvömm sem var
byggt á við breytingu á bú-
vömlögunum síðast liðinn
desember. Þær em nokkuð
útvfkkaðar miðað við þau
lög, en þrengdar miðað við
skilning formanns landbún-
aðarnefndar.
Það er á misskilningi
byggt að núgildandi GATT-
samningur heimili innflutn-
ingstakmarkanir á öðmm
vömm en hrámjólk og kinda-
kjöti.
Rangt er að í fmmvarpi
ríkisstjómarinnar hafi ekki
falist hámark á verðjöfnunar-
gjaldaheimildum landbúnað-
arráðherra.
Alit formannsins er vill-
andi að svo miklu leyti sem
gefið er í skyn að með fmm-
varpinu sé veitt heimild lil að
leggja gjöld á landbúnaðar-
vömr eða landbúnaðarhrá-
efni sem ekki er framleitt hér
á landi.
Það er rangt að frumvarpið
heimili að miða verðjöfnun-
argjöld við inntlutningsverð,
sem em undir skráðu heims-
markaðsverði, áður en þrír
mánuðir em liðnir frá því að
slíkur innflutningur fyrst átti
sér stað.
Það er með öllu óvíst hvori
verðjöfnunargjaldaheimildir
frumvarpsins standist nýja
GATT- samninginn.
Vmnuvdtendasámbandið:
StyðurSighvatíaftiámi
flutuin^jfifnunar á olíu
FRAMKVÆMDA-
STJÓRN Vinnuveitenda-
sambands íslands lýsir ein-
dregnum stuðningi við fyr-
irhugað frumvarp SighvaLs
Björgvinssonar viðskipta-
ráðherra um að afnema lög
um flutningsjöfnun á olíu
og allar lögbundnar tálm-
anir við samkcppni olíufé-
laga um viðskipti. Stjórnin
telur ótvírætt að lög um
flutningsjöfnunarsjóði og
innkaupajöfnun olíu valdi
miklu um hærra verðlag á
olíuvörum hér á landi en
erlendis þar sem lögin
girða fyrir samkeppni milli
olíufélaga og útrýma allri
hvatningu til hagræðingar
á olíudreifíngu.
í ályktun framkvæmda-
stjórnar VSI segir að verð á
olíu og bensíni sé til jafnaðar
mun hærra hér á landi en í
nálægum löndum og munur-
inn hvað mestur í stórkaup-
unt til skipa. Forsenda fyrir
auknum umsvifum í þjón-
ustu við skip á Norður- Atl-
antshafi sé samkeppnishæft
olíuverð en opinber afskipti
haldi verðinu uppi svo mikil
viðskipti fari forgörðum.
Síðan segir í ályktuninni:
„Vinnuveitendasamband-
ið telur ótvírætt, að lög um
flutningsjöfnunarsjóð og
innkaupajöfnun olíu og
bensíns númer 81 frá 1985
valdi miklu um hærra verð-
lag olíuvara hér á landi, þar
sem lögin girða fyrir sam-
keppni milli olíufélaga og út-
rýma allri hvatningu til hag-
ræðingar í olfudreifingu. Þar
sem félögin þurfa hvort sem
er að greiða nær 1 krónu af
hverjum lítra gasolíu til að
jafna flutningskostnað og er
skylt að bjóða sama verð um
allt land, án tillits til flutn-
ingskostnaðar, sölumagns
eða annarra aðstæðna, þá eru
hagsmunir hvers einstaks fé-
lags af því, að leita hag-
kvæmra lausna ekki fyrir
hendi.
Umrædd ákvæði um opin-
bera verðstýringu og
greiðslumiðlun flutnings-
kostnaðar eiga sér ekki hlið-
stæðu í nálægum löndum. A
hinn bóginn er verðlag þar til
jafnaðar mun lægra, þannig
að sá tilgangur laganna að
tryggja íbúum í dreifðum
byggðum olíuvörur á lægra
verði en ella, tryggir einung-
is óhagræði í olíudreifingu
og öllum hærra verð en eðli-
leg samkeppni myndi leiða
til.“