Alþýðublaðið - 09.03.1994, Page 5
Miðvikudagur 9. mars 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
FRAMBJÓÐENDUR á Akranesi
Hér til hliðar má sjá fram-
bjóðendur í opnu prófkjöri
ALÞÝÐUFLOKKSINS Á
AKRANESI sem haldið
verður föstudaginn 18. og
laugardaginn 19. mars í
RÖST, félagsheimili jafn-
aðarmanna á Akranesi:
EFSTA RÖÐ: Sigutjóii Hannesson, Friðrik
Alfreðsson, Haukur Armannsson og Guð-
mundur Vésteinsson.
NÆSTEFSTA RÖÐ: Hafsteinn Baldursson,
Kristján Sveinsson, Sveinn Rafn lngason,
Björn Guðmundsson og Hervar Gunnarsson.
NÆSTNEÐSTA RÖÐ: Steindóra Steinsdótt-
ir, Steinunn Jónsdóttir, Sigríður Óladótlir,
Elín Hamta Kjartansdóttir, Ástríður Andrés-
dóttir ogRannveig Edda Hálfdánardóttir.
NEÐSTA RÖÐ: íngvar Ingvarsson, Björg-
heiður VaUiimarsdóttir, Sigurður Hauksson,
Sigrún Ríkharðsdóttir og Júlíus Már Þórar-
insson.
Regnboginn sýnir FAR VEL. FRILLA MÍN eftir kínverska leikstjórann CHEN KAIGE
Samtíð í
Stórmynd þessi ber á köflum sjúklegur á stundum, og ósjálfrátt
hatidbrugð meistara, þótt í hana sé verður áhoriánda á að draga mynd-
ofinn melódramatískur þáttur, nær ina ífin de stec/c’-dálk.
^bmttdeifavUm' Að/ulMm
Hún ÁSHILDUR HARALDSDÓTTIR er 28 ára gömut og margverðlaunuð
fyrir gUesilegan flautuleik sinn. Ásliildur verður einleikari með Sinfóníu-
hljómsveitinni annað kvöld í verki JACQUESIBERT, konsertfyrirflautu og
hljómsveit. Hún hefur nokkrum sinnum áður leikið eittleik með hljómsveit-
inni. Áshildur er nú búsett íParís. Tónleikunum stjórnar OLIVER GILMO-
UR. Á tónleikunum verðurfrumflutt verk eftir RÍKHARÐ ÖRN PÁLSSON,
sem alþjóð þekkir frá vasklegri framgöngu í Kontrapunkts-þáttunum í sjón-
varpinu. Verkið nefnist ARK, er samið 1989 og tileinkað rómantískri œsku.
sviðssýn
Myndin gerist í Kína á árunum
1924 til 1977, spannar þannig skeið
herstjóranna, sigur Kuomintang,
innrás Japana, borgarastytjöldina,
sigur kommúnista, menningarbylt-
inguna, (en hvert þessara skeiða er
sagnfræðingum bitbein). Samtíðin
er litin af leiksviði, í bókstaflegum
skilningi, því söguhetjurnar tvær
eru leikarar í óperu, lengstum Pek-
ing- ópemnni.
í upphafi myndarinnar eru sögu-
hetjumar tvær umkomulausir
drengir í skóla eða uppeldisstofu
leikflokks. Annar þeirra er búinn,
og barinn, undir kvenhlutverk, og
mótar það hann og síðar viðhorf
vinar hans til hans, jafnvel svo að
fyrir honum vefst sambúð við
stúlku úr „Húsi blómanna'1.
I Newsweek 18. febrúar síðastlið-
inn er viðtal við leikstjórann, Chen
Kaige, sem segir meðal annars:
„Þegar ég var í Cannes fyrir sex ár-
um, hitti ég framleiðandann, Xu
Feng, sem keypt hafði réttinn til að
kvikmynda skáldsöguna. Hún
sýndi mér bókina til að sjá, hvort
mér litist á hana. Mér féll hún ekki,
alls ekki. Höfundur sögunnar
þekkti ekki Peking-óperuna og
þekkti ekki yel til menningarbylt-
ingarinnar. Ég sagði henni að við
þörfnuðumst annars höfundar og í
nær ár vorum við að breyta handrit-
inu að kvikmyndinni. Varð mér
Ijóst, að eftir því mætti gera stór-
mynd...Ég sagði handritshöfund-
um að ég þarfnaðist raunvemlegs
kvenhlutverks".
Chen Kaige er í dag þekktastur
kvikmyndagerðarmanna Kína.
Þessi mynd hans hefur fengið mik-
ið lof víða, - ekki þó meðal ráða-
manna í landi hans. Flokksmál-
gagnið Sannleikans leitað hefur
jafnvel fordæmt þetta verk Kaige
fyrir að „mæla opinberlega með
kynvillu" og „syngja aðalsættunum
lofsöng", eins og þlaðið segir.
„Ég er að reyna að segja sögu
sérstæðrar persónu, sem er Cheng
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
BLOÐBANKINN
Staða forstöðumanns Blóðbankans er laus
til umsóknar. Umsækjandi þarf að vera lækn-
ir og sérfræðingur í einhverri grein eða grein-
um læknisfræði, sem blóðbankastarfsemi
tengist. Með umsókn skal skilað ítarlegum
upplýsingum um nám, starfsferil og stjórnun-
arreynslu, ásamt skrá um fræðiritgerðir
umsækjanda. Ennfremur greinargerð um
rannsóknaviðfangsefni, sem umsækjandi
hyggst vinna að.
Umsóknin sendist stjórnarnefnd Ríkisspítala,
Rauðarárstíg 31, 105 Reykjavík, fyrir
30. apríl 1994.
Laun samkvæmt kjarasamningi sjúkrahús-
lækna.
Nánari upplýsingar um stöðuna veitir for-
stjóri Ríkisspítala og forstöðulæknir
Blóðbankans.
LYFLÆKNINGADEILD
Deildarlæknar
Stöður deildarlækna (reyndra aðstoðar-
lækna) eru lausar til umsóknar við lyflækn-
ingadeild Landspítalans frá 1. júlr eða eftir
samkomulagi.
Umsóknir berist til Þórðar Harðarsonar, pró-
fessors, lyflækningadeild Landspítalans, fyrir
1. apríl nk.
Nánari upplýsingar veita Þórður Harðarson,
prófessor, sími 601000, Erna Milunka Kojic
og Gerður Gröndal, deildarlæknar,
sími 601000 (kalltæki).
RÍKISSPÍTALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meöferð sjúkra, fræöslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferö allra þeirra, sem við störfum fyrir og með,
og leggjum megináherslu á þekkingu og viröingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni aö leiöarljósi.
CHEN KAIGE, leikstjóri
Far vel, frilla mín.
Dieyi. Óperan var ekki þungamiðj-
an í myndinni. Ég vildi segja sögu
listafólks, og frá ástum þeirna og
ástríðum. Sem leikstjóri vildi ég
skoða söguna frá ýmsurn sjónar-
homum. Ég sagði handritshöfund-
ununi að ég þarfnaðist raunverulegs
kvenhlutverks. Ef þú sérð myndina
frá vissu sjónarhomi, sérðu tvo
karlmenn. Annar þeina er raun-
verulegur karlmaður, en hinn kann
að vera blekking", segir Chen Ka-
ige leiksljóri. Hann segist ekki líta á
Cheng Dieyi í myndinni sem karl-
ntann, ekki heldur konu, heldur eitt-
hvað mitt á milli.
^Myndin mun öðm fremur hafa
verið gerð með útlenda áhorfendur
fyrir augum. Þeir tóku henni vel en
óbreytt var hún ekki sýnd í Kína.
Myndin hefur hlotið margar við-
urkenningar: Besta myndin á Can-
nes-kvikmyndahátíðinni 1993,
ásamt Píanó, besta erlenda myndin
á Golden Globe 1994, svo að
tveggja hinna helstu sé geúð, og
hefur nú hlotið útnefningu til Ósk-
ars-verðlauna í ár sem besta erlenda
myndin.