Alþýðublaðið - 10.03.1994, Side 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
UMRÆÐA
-Fjmmtudagur 10. mars 1994
himbihiiihiib
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Alprent hf.
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Hjálp til þeirra sem
höllustum fæti standa
s
Olafur Ólafsson landlæknir bendir á ýmsa heilsufarslega
kvilla sem fylgja atvinnuleysi í grein sem hann skrifar í Al-
þýðublaðið í gær. Þar kemur fram að í stórum dráttum virðist
mega skipta atvinnulausu fólki í tvo hópa. Annar hópurinn
missir ekki kjarkinn þó á móti blási en heldur áfram barátt-
unni og lætur seint bugast. Hinn hópurinn virðist ekki hafa
sama þol. Eftir að hafa ítrekað sótt um starf án árangurs missa
sumir kjarkinn, sjálfsöryggið og sjálfsbjargarneistann sem
allflestum er gefínn og draga sig smám saman í hlé. Ýmsar
breytingar koma fram í fari manna, menn hætta jafnvel að
heimsækja vini og vandamenn, fara ekki á mannamót, ganga
síður um fjölfamar götu og kaupa inn í matinn þegar fáir eru
á ferli. Nokkur hluti þessa fólks hættir að sækja um vinnu og
þiggur jafnvel ekki þau störf sem því eru boðin.
Þessar upplýsingar landlæknis sýna enn eina hlið á því alvar-
lega vandamáli sem víðtækt atvinnuleysi er. Það er ekki nóg
með að fólk missi það öryggi sem atvinna og fastar tekjur
skapa heldur á það einnig á hættu að verða fyrir heilsutjóni.
Mikið og viðvarandi atvinnuleysi hefur lengi verið við lýði
hjá ýmsum nágrannaþjóðum okkar. Sums staðar hefur fólk á
miðjum aldrei fengið að stunda vinnu eftir að skólagöngu
lauk. Atvinnuleysinu hafa fylgt mikil þjóðfélagsleg vandamál
sem erfítt hefur reynst að ráða bót á. Síðustu áratugi hefur vart
verið hægt að tala um atvinnuleysi hérlendis og við höfum
meira að segja flutt inn vinnuafl. Nú er atvinnuleysi hins veg-
ar mikið á mælikvarða okkar fslendinga og opinberar spár
benda ekki til að mikil breyting verði til batnaðar í náinni
framtíð.
Það er afar áríðandi að við bregðumst við þessu ástandi á rétt-
an hátt. Auðvitað skiptir mestu að reyna með öllum ráðum að
draga sem mestu úr atvinnuleysinu. Hins vegar er ekki hægt
að sjá fram á neina slíka uppsveiflu á næstu misserum þannig
að atvinnuleysið hverfi. Fjöldi fólks býr við mikið ijárhags-
legt óöryggi eftir að hafa misst vinnu. Atvinnuleysisbætur
duga skammt þegar fólk er án atvinnu mánuðum saman. í
mörgum tilvikum hafa Ijölskyldur orðið að selja ofan af sér
húsnæði og í sumum tilvikum hefur fólk átt fullt í fangi með
að afla sér matar. Það er mikilsvert að samfélagið láti sér annt
um málefni atvinnulausra og veiti þeim tiltækan stuðning.
Hið mikla atvinnuleysi sem nú heijar hefur komið okkur í
opna skjöldu. Menn vonuðu að hér yrði aðeins um tímabund-
ið ástand að ræða. Svo hefur ekki orðið.
Ríkisstjómin hefur nú samþykkt tillögu Jóhönnu Sigurðar-
dóttur félagsmálaráðherra um skipan starfshóps sem ætlað er
að fara yfir þjónustu- og öryggiskerfi atvinnulausra og þá
einkanlega atvinnulausra með böm á framfæri. Starfshópur-
inn á að kanpa sérstaklega réttindi atvinnulausra með tilliti til
bótakerfis almannatrygginga, íjárhagsaðstoðar sveitarfélaga,
starfsmenntunar og námsframboðs. Þá er starfshópum ætlað
að samræma og leggja fram tillögur til úrbóta er tryggi betur
framfærslumöguleika þeirra sem búið hafa við langvarandi
atvinnuleysi. Athuga ber sérstaklega hvort unnt sé að nýta
bótakerfi hins opinbera þannig að það nýtist betur þeim sem
höllustum fæti standa. Ennfremur á starfshópurinn að huga að
hvemig beita megi frekari vinnumarkaðsaðgerðum fyrir at-
vinnulausa einkum ófaglærða og unga fólki og þá sem hafa
búið við Iangvarandi atvinnuleysi.
Félagsmálaráðherra hefur þegar gengið frá skipan starfs-
hópsins og er ætlast til að hann skili tillögum eigi síðar en l.
maí næst komandi. Jóhanna Sigurðardóttir hefur með þessum
hætti gengið fram fyrir skjöldu til að ná fram úrbótum á hög-
um atvinnulausra. Þetta er í samræmi við þá stefnu sem Al-
þýðuflokkurinn hefur jafnan haft að leiðarljósi og miðar að
hjálp til þeirra sem standa höllustum fæti í samfélaginu.
Bjöm Bjamason al-
þingismaður er farinn að
kenna sagnfræði.
Sagnfræðikennslan fer
fram á síðum Morgun-
blaðsins og helstu nem-
endur hans em jafnaðar-
menn.
Kennsluel'nið sem
Bjöm hefur valið sér er
ekki af verri endanum:
Fortíð Alþýðuflokksins.
Það hefur lengi verið
vitað, að Bjöm er mikill
áhugamaður um fortíð
og fortíðarhyggju.
Það þurfti því ekki að
koma nokkmm manni á
óvart þegar Bjöm skrif-
aði sína fyrstu sagn-
fræðiritgerð í Morgun-
blaðið fyrir nokkm um
Alþýðuflokkinn, flokk
sem hafi stutt landbún-
aðarstefnu Framsóknar-
flokksins - að vísu fyrir
sextíu ámm, en engu að
síður stutt stefnuna sem
flokkurinn nú berst
gegn.
I huga Bjöms er þetta
stefnuleysi og þversagn-
ir í pólitískri stefnu Al-
þýðuflokksins.
Gott og vel.
Hver var
í skóla
hjá hverjum?
Birgi Hermannssyni,
aðstoðarmanni umhverf-
isráðherra, varð það á að
skrifa grein í Morgun-
blaðið og mótmæla því
að stefna Alþýðuflokks-
ins í landbúnaðarmálum
væri ekki stefnuföst og
bent á það að flokkurinn
hafí barist gegn landbún-
aðarkerfmu undanfarin
þijátíu ár.
Þetta hefði aðstoðar-
maðurinn ekki átt að
gera.
Bjöm kom nefnilega
með nýja sagnfræðiskýr-
ingu í Morgunblaðinu í
gær.
Og nú sagði sagn-
fræðiprófessorinn í mál-
efnum Alþýðuflokksins
sem svo, að Alþýðu-
flokkurinn hafl ekki að-
eins verið landbúnaðar-
flokkur, heldur einnig
haftaflokkur.
Hins vegar hafi flokk-
urinn verið þeirrar gæfu
aðnjótandi að ganga í
Stjómmálaskóla Sjálf-
stæðisflokksins á Við-
reisnarárunum og rataði
þá úr villu og þoku for-
tíðarstefnu sinnar.
RÖKSTÓLAR:
„Og nú sagði sagnfræði-
prófessorinn í málefnum
Alþýðuflokksins sem svo,
að Alþýðuflokkurinn hafí
ekki aðeins verið
landbúnaðarflokkur,
heldur einnig haftaflokkur.
Hins vegar hafi flokkurinn
verið þeirrar gæfu
aðnjótandi að ganga í
Stjórnmálaskóla
Sjálfstæðisflokksins á
Viðreisnarárunum og
rataði þá úr villu og þoku
fortíðarstefnu sinnar.
Eflaust lásu Gylfí Þ.
Gíslason og fleiri þessa
sagnfræðiskýringu Björns
með mikilli athygli.46
Eflaust lásu Gylfi Þ.
Gíslason og fleiri þessa
sagnfræðiskýringu
Bjöms með mikilli at-
hygli.
Það hefur nefnilega
alltaf verið álit krata, að
jafnaðarstefnan hafi tek-
ið miklum breytingum í
lok sjötta áratugarins
ekki síst vegna hinna
miklu breytinga sem áttu
sér stað á jafnaðarstefn-
unni í Þýskalandi og víð-
ar.
Gylfi Þ. var helsti boð-
beri þessarar stefnu á Is-
landi og helsti arkitekt-
inn að stefnu Viðreisnar-
stjómarinnar.
Þannig hafa menn tal-
ið að Sjálfstæðisflokkur-
inn hafi gengið í Stjóm-
málaskóla Alþýðu-
flokksins en ekki öfugt.
Kennarinn
gerist ódæll
nemandi
Hafi Bjöm rétt fyrir
sér, og Alþýðuflokkur-
inn hafi gengið í Stjóm-
málaskóla Sjálfstæðis-
flokksins, er ljóst að
nemandinn hefur tekið
kennaranum langt fram
og haldið í æðra nám
meðan að kennarinn hélt
áfram í staðnaðri gmnn-
skólakennslu.
Hafi hins vegar Bjöm
rangt fyrir sér, en alþjóð
rétt fyrir sér, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi
farið í stjómmálakennslu
hjá Alþýðuflokknum, er
Ijóst að Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur verið slæmur
nemandi og í raun enn
með falleinkunn í ýms-
um fögum eins og til
dæmis búvörufræðum,
neytendamálum og
frjálsri samkeppni.
En gefum okkur að
Bjöm hafi rétt fyrir sér.
Stjómmálaskóli Sjálf-
stæðisflokksins hefur þá
menntað Alþýðuflokk-
inn og ýmsa aðra vænt-
anlega.
Er þar með sagt að
Stjómmálaskóli Sjálf-
stæðisflokksins hafi ver-
ið góður skóli?
Hver er skýringin á
því að nemendum fækk-
ar jafnt og þétt í Stjóm-
málaskóla Sjálfstæðis-
flokksins?
Hvers vegna hafa
flestir Reykvíkingar snú-
ið baki við kennslunni
og aðhyllst stjómmála-
skóla R-listans?
Ekki skyldi það vera
vegna þess að nemend-
um í Reykjavík er farið
að leiðast kennslugögnin
í neytendafræðum og
burðarþolsfræði Ráð-
hússins?
Eða þá ofriki kennar-
anna, svo ekki sé talað
um skólastjórans?
Horfum yfir landið
allt.
Er það nokkur furða
að nemendurnir gefist
upp á skóla sem kennir
bara uppáhaldsnemend-
um kennarans en lætur
hina éta það sem úti frýs.
Hver tekur mark á
skóla sem boðar sam-
keppni meðal nemend-
anna en er í raun búinn
að ákveða hverjir hljóta
öll verðlaunin við af-
hendingu námsskírtein-
anna?
Það er því ljóst að ef
Stjómmálaskóli Sjálf-
stæðisflokksins á ekki að
missa síðustu nemend-
uma úr skólanum, verð-
ur hann að breyta náms-
stefnu sinni og vera í takt
við tímann.
Það er gamli nemand-
inn, Alþýðuflokkurinn,
búinn að skilja fyrir
löngu.
Eða fyrir svona þijátíu
ámm.
Og nú er nemandinn
að reyna að kenna gamla
kennara sínum landbún-
aðarfræðin.
Það hefur gengið brös-
uglega.
Kennarinn vill alls
ekki vera í nemendahlut-
verkinu, er uppstökkur
og ódæll í tímum, skróp-
ar í skólanum og svindl-
ar á prófum.
Að sjálfsögðu á að
gefa slíkum nemanda
falleinkunn.
Eða bara reka hann úr
skólanum.
En af því að gamli
kennarinn neitar að vera
nemandi og neitar að
læra er sennilega best
ráðið að bfða og sjá
hvort hann taki ekki út
þroska með tímanum.
SagnfræðiprófesSor
Sjálfstæðisflokksins er
altént kominn frá Hriflu-
Jónasi fyrir sextíu ámm
að Viðreisninni fyrir
þrjátíu ámm.
Það em strax bata-
merki.