Alþýðublaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 4. maí 1994
66.TÖLUBLAÐ - 75. ÁRGANGUR
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk
ÞREFALDUR 1. vinningur
MMDIimiBIII
Formaður BSRB sakar Stöð 2 og DV um pðUMain
klíkuskapíráðniugumjlinnaniiíiogtréttafluöiiiigi:
, jónarhom einnar
klíku, einnar fjolskyldu4 4
ElíiiIIirst,íÍTéttastjóriStöð\ar2,fliugarmáls('>knáhciKliu-
Ogmundi Jómis'ivni, formanni liSRB. GuðmundurMagnússon,
fréttastjóri DV:, ,Þetta eru einhverjir órar í manninum4 ‘
ÖGMUNDUR JÓNASSON: Ummceli hans um ráðningu
fréttastjóra á Stöð 2 og DV hafa vakið hörð viðbrögð Elínar
Hirst, fréttastjóra Stöðvar 2, og Guðmundur Magnússon,
fréttastjóri D V, segist ekki vita h vert Ögmundur sé að fara með
þessum ummœlum sínum. Morgunblaðsritstjórarnir fengu
einnig á baukinn hjá Ögmundi í l.maí-rœðu hans.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
„FJÖLMIÐLAHEIM-
URINN á íslandi er ekki að
stækka eða verða víðsýnni.
Hann er að minnka. Ög ég
fullyrði að meginstoðir lýð-
ræðisins eru í hættu vegna
skoðanaeinokunar. Frétta-
flutningur og skoðanaskipti
þrengjast sífellt og ég vara
við því þröngsýna pólitíska
sjónarhorni sem allir
stærstu fjölmiðlar landsins
skoða umhverflð frá.“ Þessi
orð lét Ögmundur Jónas-
son, formaður BSRB, falla í
1. maí-ræðu sinni er hann
veittist harkalega að ís-
lenskum fjölmiðlum, eink-
um DV og Stöð 2 fyrir pólit-
ískan kfíkuskap við ráðn-
ingu yfirmanna og frétta-
flutning sem Ögmundur
nefndi „sama gamla sjónar-
hornið, sjónarhorn eins
flokks, einnar klíku, einnar
fjölskyldu.“ Fréttastjóri
Stöðvar 2 mun fara fram á
opinbera afsökunarbeiðni
frá formanni BSRB og
íhugar málsókn ef Ög-
mundur Jónasson biðst
ekki afsökunar á ummæl-
um sínum í garð Stöðvar 2.
Ritstjórar Morgunblaðsins
fengu einnig sinn skammt frá
Ögmundi sem hann sakaði
um að senda atvinnulausu
fólki hrokafullu kveðju í for-
ystugrein á baráttudegi verka-
lýðsins:
„Við vitum líka hvar tals-
menn mismunar og misréttis
er að finna. Þeir sitja til dæm-
is á ritstjórastóli Morgun-
blaðsins og skrifa leiðara ein-
sog þann sem birtist í dag á
degi verkalýðsins," sagði Ög-
mundur í ræðu sinni.
Hann vitnaði í leiðara
Morgunblaðsins þar sem því
var haldið fram að búast megi
við að meirihluti þjóðarinnar
vilji fremur sætta sig við eitt-
hvert atvinnuleysi heldur en
að kalla yfir sig nýtt óðaverð-
bólgutímabil.
„Svona tala Thatcher, Hay-
ek, Hólmsteinn og Friedman
og hvað þeir nú allir heita og
svona skrifar Morgunblaðið á
degi verkalýðsins. En vitið
þið að mánaðarlaun þess
ntanns sem sendir þessa
hrokafullu kveðju til atvinnu-
lauss fólks á Islandi eru á við
15 verkamannalaun?"
í ádrepu sinni á Stöð 2 og
DV sagði Ögmundur meðal
annars:
„Og þegar þeir ráða frétta-
stjóra og aðra stjóra á fjöl-
miðlana, nú síðast á Stöð 2 og
DV þá er dyggilega haldið við
prinsippið um ár fjölskyld-
unnar, ár klíkunnar, ár einka-
vinanna. Sama gamla sjónar-
homið, sjónarhom eins
flokks, einnar klíku, einnar
fjölskyldu."
Guðmundur Magnússon,
nýráðinn fréttastjóri, DV
sagði í samtali við Alþýðu-
blaðið að hann vildi ekki ann-
að um þetta mál segja en að
hann vissi ekki hvert Ög-
mundur væri að fara með
þessum ummælum sínum. „-
Þetta em einhverjir órar í
manninum," sagði Guðmund-
ur.
Elín Hirst fféttastjóri
Stöðvar 2 sagði í samtali við
Alþýðublaðið að hún hefði
tjáð formanni BSRB óánægju
sína með ummæli hans í ræð-
unni:
„Þettaeru dylcjur og ekkert
annað. Eg bað Ógmund um
að rökstyðja ummæli sín en
lítið fór fyrir þeim rökstuðn-
ingi. Ég hef haft samband við
lögfræðing íslenska útvarps-
félagsins þar sem ég tel að
vegið sé að mannorði mínu
sem fréttamanns. í fyrstu mun
ég fara fram á opinberri af-
sökunarbeiðni frá fonnanni
BSRB. Verði hann ekki við
þeirri beiðni mun ég íhuga
málsókn á hendur Ögmundi
Jónassyni fyrir meiðyrði,“
sagði Elín Hirst fréttastjóri
Stöðvar 2 í samtali við AI-
þýðublaðið.
Aðstoð við skipaiðnaðinn:
TÓriLflMlP
0UL flSKPlfT1TRPÖÐ
tlflSlkÓLflbf Ól
fimmtudaginn 5.maí, kl. 20.00
Hljómsveitarstjóri: Valery Wyanskíj
c
! f nISSKR
Wolfgang Amadeus Mozart: A\
Sinfónía nr. 40 í g rab
Johannes Brahrrís:
Sinfónía nr. 2 í D dúr
11
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS sí™
Hljómsveit allra íslendinga 622255
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
og iðnaðarráðherra hafa náð fram
aðgerðum til að örva skipaiðnað
innanlands. Fiskveiðisjóður mun
veita hærri lán til meiriháttar við-
gerða og endurbóta á fískiskipum
ef verkið er framkvæmt hér innan-
lands og lánstími verður lengdur.
Iðnlánasjóður mun bjóða lán til
endurbóta og viðhaldsverkefna í
skipaiðnaði sem getur numið allt að
20% af samningsupphæð.
Á fundi ríkisstjómarinnar 1. febrú-
ar var ákveðið að ráðuneyti iðnaðar-
og sjávarútvegs hæfu sameiginlegar
viðræður við Fiskveiðisjóð og Iðn-
lánasjóð í því skyni að finna leiðir til
þess að örva skipaviðgerðir innan-
lands.
I framhaldi af viðræðunt sent sjáv-
arútvegsráðherra og iðnaðarráðherra
áttu með fulltrúum sjóðanna um lána-
fyrirgreiðslu til skipaviðgerða innan-
lands fékkst niðurstaða frá sjóðunum.
Stjóm Fiskveiðisjóðs hefur sam-
þykkt að gera eftirfarandi breytingar á
reglum sínum um lán til meiriháttar
viðgerða og endurbóta á fiskiskipum:
Áður en lán er veitt til slíkra verk-
efna erlendis skal gengið úr skugga
um að leitað hafi verið innlendra til-
boða í verkið.
Lánshlutfall til slíkra verkefna inn-
anlands skal hækkað úr 65% í 70%.
Vegna verkefna erlendis verður láns-
hlutfall áfram 65%.
Þegar um er að ræða lán til inn-
lendra verkefna af þessu tagi lengist
p!
Sjávarútvegsráðherra og iðnadarráð-
lierra liafa náð fram aðgerðum til að
örva skipaiðnað innanlands.
Alþýðublaðsmyndir/Einar Ólason
lánstími um tvö ár og lánin verða af-
borgunarlaus fyrstu tvö árin.
Sjávarútvegsráðherra hefur gefið
nauðsynlega reglugerðarbreytingu
vegna lánshlutfallsins.
Iðnlánasjóður hefur ákveðið að
bjóða lán vegna innlendra endurbóta-
og viðhaldsverkefna í skipaiðnaði úr
útflutningslánasjóði sem geti numið
allt að 20% af samningsupphæð gegn
viðhlítandi tryggingum.
Milljónasektir vegna
tafa á bílastæðum?
í BYGGINGARNEFND Reykjavíkur hefur kom-
ið fram tillaga um að nefndin samþykki að láta sekta
eigendur bflastæðakjallara að Hafnarstræti 7 um
þrjár og hálfa milljón króna. Flutningsmaður tillög-
unnar er Gunnar H. Gunnarsson og hann segir að
enn sé ekki búið að klára kjallnrann rúmum áratug-
um eftir að húsið var tekið í notkun.
Gunnar leggur jafnframt til að eigendur bflastæða-
kjallarans verði beittir dagsektum ef kjallarinn verði
ekki kominn í rétta notkun 1. júlí næst komandi. Dags-
ektimar skuli nema fintm þúsund krónum á dag. Gunn-
ar H. Gunnarsson segir að meirihluti byggingamefndar
hafi verið áhugalaus um að fylgst væri með því að bfla-
geymslur sem sýndar væm á samþykktum teikningum
væm ekki teknar til annarra nota.
-Sjáblaðsíðu3.
fslensku hluthafamir í fslenskít saltfélagjmi hf.:
Björgunaraðgerðir
ekki ftillreyndar
„SKOÐUN okkar er sú, að ekki hafi verið full-
reynt hvort bjarga mætti fyrirtækinu á greiðslu-
stöðvunartímabilinu. Þess vegna viljum við leggja
áherslu á að þessi ákvörðun um gjaldþrot sé á
ábyrgð fulltrúa AKZO í stjórn fyrirtækisins og
áskiljum okkur allan rétt til að gera þá ábyrga fyrir
öllu tjóni sem þetta kann að valda."
Þannig hljóðar niðurlag bókunar fulltrúa íslensku
hluthafanna í Islenska saltfélaginu hf. við stjómarsam-
þykkt félagsins að setja félagið í gjaldþrot. Fram-
kvæmdastjóri Islenska saltfélagsins og fúlltrúar minni-
hlutaeigenda telja það hafa verið ranga ákvörðun að
knýja fram gjaldþrot félagsins.
- Sjá blaðsíðu 4.