Alþýðublaðið - 05.05.1994, Qupperneq 2
2 (a) ALÞÝÐUBLAÐIÐ
flhlllllllflllll
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Alprent hf.
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Jepparónar og
vélsleðavillimenn
Alþýðublaðið greinir frá því í frétt í dag að helstu náttúru-
perlur landsins eins og Landmannalaugar, Þórsmörk og Snæ-
fellsskáli séu að breytast í svínastíur og heimkynni ofurölvi
ökuþóra á jeppum og vélsleðum. Það er einkum á helgum
sem svonefndir villimenn heimsækja unaðsreiti á hálendinu
og breyta þeim í vígvöll svallveislna. Þetta ástand hefur við-
gengist furðulengi án íhlutunar löggæslumanna.
Afskiptaleysi löggæslunnar og vegalengdir frá byggðum er
einmitt ein meginástæða þess að dauðadrukknir ökuþórar
hafa litið á hálendið sem svæði utan réttar og laga. Hið villta
vestur hálendisins er orðið athvarf vélsleðavillimanna og
jepparóna sem njóta þess að fá útrás fyrir lægstu eðlishvatir
sínar í skjóli óbyggðanna.
Því miður eru þessir menn og konur ekki ein um að gista há-
lendið. Innlendir ferðalangar jafnt sem erlendir sækja hálend-
ið heim og verða illilega fyrir barðinu á hálendishyskinu sem
eirir engu og veður ofurölvi yfir holt og hæðir á drynjandi tor-
færutröllum og vélsleðum eða heldur nætursvall með tilheyr-
andi barsmíðum og öskrum fram á morgun.
Jepparónamir og vélsleðavillimennimir em ekki sú land-
kynning sem ísland þarfnast. Þeir em heldur ekki sá félags-
skapur sem heiðvirða ferðalanga fýsir í. Hálendishyskið telur
sig utan við lagaramma þegar það er komið í óbyggðir. Að
það sé sjálfsagt að þeysa dauðadmkkinn um á snjóbreiðum
hálendisins, oftast í villtum kappakstri. Hálendishyskið telur
sig hafið yfir almenna mannasiði og umgengisreglur. Að það
sé ekkert sjálfsagðara en að skilja eftir umbúðir, saur, matar-
leifar og viðlegubúnað líkt og hráviðri.
Forráðamenn ferðafélaga hafa talið ástæðu til þess að fara í
sérstakar hreinsunarferðir á hálendið í sumarbyijun til að taka
til eftir jeppaskrílinn og vélsleðapakkið áður en heiðvirðir
ferðalangar leggja land undir fót og gista náttúruperlur lands-
ins.
Það er löngu tímabært að einhver löggæsla fylgist með hinu
villta vestri hálendisins. Gilda ekki almenn lög á hálendi ís-
lands? Er ekki jafn refsivert að aka um dauðadmkkinn utan
vega sem á vegum? Og njóta venjulegir ferðalangar engrar
lagavemdunar í sæluhúsum eða öðmm mannabústöðum á há-
lendinu fyrir ofstopalýð sem heldur fyrir fólki vöku um nætur
og jafnvel ógnar ferðalöngum með ofbeldi og misþyrming-
um?
Eins og fram kemur í frétt Alþýðublaðsins hefur aukin gæsla
við ákveðin svæði leitt af sér mun betri umgengni. Hálendis-
hyskið forðast þá staði sem gæsla er á eins og heitan eldinn.
Hyskið er nefnilega ekki að sækjast eftir náttúmfegurð eða
heilbrigðri útivem heldur því einu að gæla við lægstu frum-
hvatir sínar.
Löggæslan, björgunarsveitimar og félagasamtök jeppaeig-
enda og vélsleðamanna eiga hér mikið verkefni fyrir höndum.
Ekki verður öðm trúað en að það sé sameiginlegt kappsmál
þessara aðila og allra ferðalanga að stórminnka slys og
mannsdráp á hálendinu vegna ofurölvunar og gáleysislegs
aksturs. Það hlýtur einnig að vera markmið allra ferðafélaga
og ferðalanga að tryggja mannlegt og heilbrigt samneyti
ferðamanna á hálendinu jafnt sem annars staðar.
Við viljum sækja ísland heim í friði og spekt og með mann-
legri reisn. Þess vegna er það aðkallandi að útrýma ofstopa,
frekju og fylleríi jepparónanna og vélsleðavillimannanna.
KOSNINGAR
Fimmtudagur 5. maí 1994
ROKSTOLAR
Hitastígíð hækkar í borgarstjómarkosnir^unum:
NaMeynd með lögum
Við teljum sigurlíkur aukast ef mótframboðin
verða gerð nafinlaus með öllu, segir talsmaður
Sjálfstieðisllokksins í höfuðstaðnum
Meirihluti sjálfstæðis-
manna í Reykjavík náði
miklum áfangasigri er
þeim tókst að sannfæra
yfirkjörstjóm í Reykja-
vík um það væri bannað
að nota nafn Reykja-
víkurlistans á kjörseðl-
inum. Nú beijast sjálf-
stæðismenn fyrir því að
öll mótframboð verði
gerð nafnlaus með lög-
um.
Tíðindamaður Rök-
stóla tók einn af tals-
mönnum Sjálfstæðis-
flokksins tali vegna
þessarar óvæntu at-
burðarásar.
Aróður og
hefð
- Lítið þið á dóm yfir-
kjörstjómar sem sigur?
- Já, óneitanlega mik-
inn sigur. Það hefði ver-
ið skelfilegt ef nafn
Reykjavíkurlistans hefði
staðið efst á kjörseðlin-
um?
- Hvers vegna?
- Það hefði verið
áróður á kjörstað. Það
verður að fylgja lögun-
um.
- En stendur ekki
nafn Sjálfstæðisflokks-
ins efst á kjörseðlinum?
- Það er allt annað.
Það er hefð, svaraði tals-
maður Sjálfstæðis-
flokksins.
Reykja-
víkurlisti á
kjörseðli og í
auglýsingum
- En mér skilst að R-
Iistinn megi kalla sig
Reykjavíkurlista á aug-
lýsingum?
- Já, það var eins og
okkar maður í yfirkjör-
stjórn.. .fyrirgefðu, for-
maður yfirkjörstjómar
sagði strax: Að yfirkjör-
stjóm hefði ekki vald til
að íjalla um heimild R-
listamanna að nota
Reykjavíkurlistanafnið
opinberlega.
- Þannig að þeir mega
nota nafnið opinber-
lega?
- Já, því miður. Það
hefði verið best að út-
rýma nafninu alveg. Þá
hefðu framboðsflokkar
R-listans þurft að nota
flokkanöfnin sín.
- Og hvað hefði gerst
þá?
- Þá hefðu allir haldið
að hver flokkur hefði
boðið fram fyrir sig og
borgarbúar mglast alveg
í ríminu og kosið D-list-
ann, sagði talsmaður
sjálfstæðismanna glott-
andi.
Lög-
fræðinga-
þing Sjálf-
stæðis-
flokksins
- Hvað gerist næst?
- Næst gerist það að
við munum einbeita
okkur að fá nafnið
Reykjavíkurlistinn gert
útlægt úr öllum auglýs-
ingum og opinberri um-
ræðu, sagði talsmaður
Sjálfstæðisflokksins
ákafur.
- Og hvemig ætlið
þið að haga þeirri bar-
áttu?
- Fyrst og fremst með
því að kalla saman sér-
stakt lögfræðingaþing
Sjálfstæðisflokksins til
að finna lagalegan flöt á
því að banna nafn
Reykjavíkurlistans.
- Hvað eru margir
lögfræðingar í Sjálf-
stæðisflokknum?
- Mér skilst að það
séu á bilinu 20 til 25
þúsund lögfræðingar í
flokknum ef handmkk-
aramir em taldir með.
- Það ætti því ekki að
vera erfitt að kalla sam-
an sérstakt löggjafarþing
flokksins?
- Nei, nei, ég vona
bara að Alþingi hafi lok-
ið störfum svo aðallög-
fræðingamir nái að taka
þátt í þessum ráðagerð-
um okkar.
- En telurðu að það sé
lagalegur flötur á því að
banna nafn Reykja-
víkurlistans?
- Hvað heldur þú að
löggjöf sé eiginlega?
Löggjöfin almennt er
lagalegur rammi sem
ákveður hvað má og
hvað má ekki. Ramminn
er síðan beygður og
teygður í túlkun af sér-
staklega háskólamennt-
uðum mönnum og kon-
um svo hann passi
hverju sinni fyrir þá
túlkun sem við á, svar-
aði talsmaðurinn
hneykslaður.
Réttingar-
menn lög-
gjafans
Þar sem við vorum nú
komnir út í hálærðar júr-
ídískar umræður, var
auðvitað engin leið að
hætta.
- Sjáðu til, sagði tals-
maðurinn. Lögfræðingar
eru ekki annað en rétt-
ingarmenn. Eins og bíla-
réttingarmenn rétta stell-
ið eftir árekstur, rétta
lögfræðingar Iögin eftir
túlkun. Maður fær alltaf
straumlínulagaðan bíl
eftir réttingu. Eins fær
maður alltaf straumlínu-
löguð lög eftir túlkun
lögfræðinga. Þeir einir
skilja lögin sem beygja
þau. Þess vegna er
nauðsynlegt að allir
þingmenn séu lögfræð-
ingar. Það er afleitt að
hafa menn og konur á
þingi sem ekki eru lög-
fræðimenntuð. Þau
kunna ekki að setja lög
þannig að auðveldlega
megi beygja þau, rétta
þau af og túlka. Þetta er
eins og að framleiða leir
sem ekki er hægt að
hnoða og forma. Slíkur
leir myndi ekki seljast
lengi.
- Nema sem sement,
sagði undirritaður til að
segja eitthvað gáfulegt.
Sollusveitin
Talið barst aftur að
Reykjavíkurlistanum.
- Af hverju fer nafnið
Reykjavíkurlistinn
svona í taugamar á ykk-
ur?
- Nafnið fer ekkert í
taugamar á okkur. Það
er fyrst og fremst fram-
boðið sem fer í fínu
taugamar á okkur.
Hvemig heldur þú að
það sé að liggja undir í
skoðanakönnunum í
hvert einasta sinn frá
degi til dags?
- Hvað keinur það
nafninu við?
- Jú, það er auðveld-
ast að útrýma bara nafn-
inu. Þegar maður er laus
við nafnið er maður laus
við framboðið. Ef þeir
neyðast til að skipta um
nafn tveimur dögum
fyrir kosningar og verða
að kalla sig Sameining-
arframboðið eða Sollu-
sveitin, þá kýs þá eng-
inn.
-Nú?
- Vegna þess að þá
halda allir að þetta sé
eitthvað nýtt framboð
og enginn nennir að
gefa því gaum. Allir
setja x við D! sagði tals-
maðurinn glaðhlakka-
legur.
Dæmið gæti
snúist við
- En hvað ef spilið
snýst nú í höndunum á
ykkur? spurði ég.
- Hvað áttu við?
spurði talsmaðurinn og
það brá fyrir ótta í aug-
um hans.
- Til dæmis ef Reykj-
avíkurlistinn kærir nafn
Sjálfstæðisflokksins og
segir það ekki vera al-
vöm stjómmálaflokk
heldur mismunandi
hagsmunasamtök undir
einni stjórnmálaregnhlíf.
Segjum svo að sú túlkun
verði viðurkennd og
Reykjavíkurlistinn fari
fram á að nafn Sjálf-
stæðisflokksins verði
strikað út af öllum kjör-
seðlum og öllum aug-
lýsingum og bara alls
staðar? sagði ég.
- Það mun okkar
maður í yfirkjör-
stjórn.. .fyrirgefðu for-
maður yfirkjörstjómar
aldrei samþykkja, sagði
talsmaðurinn ákafur.
- En segjum að þetta
gerðist?
- Jaaa.. .þá yrðum við
að skipta um nafn, það
er alveg ljóst. Við sjálf-
stæðismenn höfum alltaf
verið því fylgjandi að
leikreglum sé fylgt og
munum ekki hika við að
leiðrétta okkar eigin
mistök ef þau verða
túlkuð svo af yfirvöld-
um, sagði talsmaðurinn
hátíðlega og rétti úr bak-
inu.
- Hvað mynduð þið
þá kalla flokkinn?
spurði ég.
- Ég er ekki reiðubú-
inn að svara þeirri
spurningu á þessari
stundu, svaraði talsmað-
urinn.
- Hvað með Þursa-
flokkinn? spurði ég sak-
leysislega.
Talsmaðurinn svaraði
með því að snúast á hæli
og skundaði á brott.