Alþýðublaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 8
8 (a) ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MÞVIIIIKIMIIB
Fimmtudagur 5. maf 1994
„VIÐ VONUMST til
að geta opnað Sjávar-
dýrasafn Hafnarfjarðar
á sjómannadaginn, 5.
júní. Sjávardýrasafnið í
Vestmannaeyjum hefur
um langa tíð verið rekið
við góðan orðstír og er
okkur góð fyrirmynd.
Safn af þessu tagi fyrir-
finnst hvergi á höfuð-
borgarsvæðinu og er
löngu tímabært að
koma því af stað. Stað-
setning sjávardýrasafns
miðsvæðis í Hafnarfirði
er tilvalin þar sem mik-
ill fjöldi fer þarna um
dag hvern. Sjávardýra-
safnið verður staðsett í
húsnæði þar sem Bæj-
arútgerð Hafnarfjarðar
var. Við ætlum að halda
stofnkostnaði og rekstr-
arkostnaði í lágmarki
ásamt því sem ekki
verður farið af stað fyrr
en gengið hefur verið
frá öllum lausum end-
um. Við ætlum að láta
þetta ganga upp,“ sagði
Jón Eggert Guðmunds-
son líffræðinemi í stuttu
spjalli við Alþýðublaðið
í gær.
Jón Eggert og tveir fé-
lagar hans, þeir Vigfús
Eyjólfsson viðskipta-
fræðinemi og Hörður
Sverrisson verkfræðing-
ur, eru nú á fullri fart við
að undirbúa opnun Sjáv-
ardýrasafns Hafnarljarðar
og hafa til að mynda boð-
ið tólf traustum fyrirtækj-
um með markvissa stefnu
í umhverfismálum að
íjármagna stofnkostnað
eins búrs eða fleiri með
því að leggja fram 100
þúsund krónur. Til að fyr-
irtækin fái sitt fyrir stuðn-
inginn verða útbúnir
plattar með nöfnum
þeirra sem settir verða á
hliðar búranna. Á plattan-
um mun koma fram hver
umhverfisstefna viðkom-
andi fyriitækis er og ætti
þannig að vera góð kynn-
ing.
„Hafnarfjarðarbær hef-
ur nú þegar sýnt málefn-
inu mikinn áhuga og var
til að mynda samþykkt á
fundi bæjarstjórnar að
styðja safnið um 100 þús-
und krónur. Á morgun (í
dag) ætlum við síðan að
Þau eru á okkar vegum.
Styðjum við bakið á þeim.
► Munið
gíróseðlana
9BB Rauöi kross Islands
Rauöarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími 91-626722
ATHAFNASKÁLD í Hafnar-
firöi (taliö frá hœgri); Jón Egg-
erí Guðmundsson líffrœðinemi,
Vigfús Eyjólfsson viðskipta-
frœðinemi og Hörður Sverrísson
verkfrœðingttr. Fyrir aftan þá
má sjá vamtanlegt húsnœði
safnsins að Vesturgötu 13 í
Hafnarfirði. A milli sín lialda
þeir á uppdrœtti framkvœmd-
inni.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
fara á fund forráðamanna
bæjarins og leita eftir
frekari stuðningi. Helst
vomrn við að vona að þeir
gætu ef til vill hjálpað
okkur með leiguna á hús-
næðinu að einhveiju
leyti,“ sagði Jón Eggert.
Að sögn hans verður
byrjað á því að tiyggja
stofnfjármagn áður en
farið verður út í fram-
kvæmdir og em góðar lík-
ur á að það takist, með að-
stoð vilviljaðra aðila ein-
sog Hafnarfjarðarbæjar
og umhverfissinnaðra
fyrirtækja.
Aðgangseyrir mun
verða stærsta tekjulind
safnsins að sögn Jóns
Eggerts og einnig er
hugsanleg leiga á aðstöðu
til rannsókna og verk-
efnavinnslu nema við Há-
skóla íslands. Stærsti
gestahópurinn verður
böm og unglingar sem
væntanlega munu koma
allsstaðar að af höfuð-
borgarsvæðinu. Sam-
vinna við aðila í ferða-
þjónustu og annarskonar
fyrirtæki sýnist einnig
vænlegur kostur fyrir safn
af þessu tagi.
„Það hafa margir hlegið
að okkur fyrir bjartsýnina
og kallað okkur ofurhuga
en við emm hvergi
bangnir og emm sann-
færðir um að rekstrar-
gmndvöllur er fyrir safni
sem þessu. Aðilar tengdir
Hafnarfjarðarhöfn, Há-
skóli íslands útgerðarfyr-
irtæki og sjómenn hafa
verið mjög hjálpfús við
undirbúninginn og eins
höfum við verið í sam-
bandi við Hafrannsókna-
stofnun sem hefur sýnt
þessu verkefni áhuga.
Þetta á að geta gengið upp
ef allir þessir aðilar leggj-
ast á eitt með okkur og
skynsemin er höfð í fyrir-
rúmi,“ sagði Jón Eggert
Guðmundsson að lokum.
Baldur Valgeirsson, framkvœmdastjóri lðnþróunarféiags Norðuríands vestra, Ingólfur Margeirs-
son úr Þjóðhútíðarnefnd, og Svanhildur Guðjónsdóttir, framkvœmdastjóri Saumastofunnar Hof-
sósi. Alþýðublaðsmynd /Einar Ólason
Ungir og kraftmiklir athafnamenn:
Stefiia að opnun Sjávardýrasafns
Hafnarfjarðar á sjómannadaginn
Bandaríska myndlistarkonan
Dana Roes sem opnar sýningu
í Listamiðstöðinni Straumi
næstkomandi laugardag:
Mun eyða
hálfri
ærinniá
/
Islandi
„Ég varð einfaldlega að fara til Islands. Ég
hafði kynnt mér land og þjóð lítillega í Banda-
ríkjunum og því meiri þekkingu sem ég öðlast á
landinu og sögu þess, því heillaðri varð ég. Ég
var viss um að landið myndi hafa mikil áhrif á
listsköpun mína, „ segir bandaríski listmálarinn
Dana Roes við Alþýðublaðið.
Dana hefur dvalist á íslandi í boði Fullbright-
stofnunarinnar frá því í september á síðasta ári en
hverfur aftur til Bandaríkjanna í sumar. íslending-
um gefst kostur á að kynnast listaverkum hennar og
þeim áhrifum sem Island hefur haft á list hennar.
Dana opnar sýningu á málverkum sínum í Lista-
miðstöðinni Straumi í Hafnarfirði næstkomandi
laugardag.
„Ég veit þó ekki hvort íslendingar sjái bein áhrif
af Iandinu beint í verkum mínum,“ segir Dana, „en
undiraldan er til staðar.“
Dana segir að umhverfi Islands, myndrænt lands-
lagið og hinar opnu víðáttur hafa haft miklu meiri
áhrif á sig en sig grunaði. Þannig hafi ísland ekki
aðeins staðið undir eftirvæntingum hennar heldur
víkkað sjónarsvið hennar og skilning á myndrænni
tjáningu.
„Ég hef ferðast þrisvar sinnum í kringum landið
og vel það í öllum veðmm, og orðið fyrir miklum
áhrifum á náttúm þess og fegurð. Það sem einna
mest hefur snortið mig em hinar flæðandi línur
himins og hafs, lands og veðurs. Hér em mörk nátt-
úrannar svo hreyfanleg og myndræn.“
Dana segist ekki hafa skilið við íslands þótt hún
haldi aftur til Bandankjanna þar sem hún mun sýna
íslandsmyndir sínar í Atlanta síðar á árinu.
„Ég er ástfangin af Islandi og Islendingum. Ég
hef ákveðið að eyða ævinni sem eftir er að hálfu í
Bandaríkjunum og að hálfu á íslandi. Líklegast
verð ég sex mánuði á ári á Islandi óg sex mánuði í
Bandaríkjunum,“ segir hinn geðuga myndlistar-
kona að skilnaði við Alþýðublaðið.
Sýning Dönu stendur til 22. maí og er opin dag-
lega frá klukkan 14.00 til 18.00. Sýningin opnar
laugardaginn 7. maí næstkomandi.
Saumastofan Hofcósi 20 ára á 50 ára aíhiæli lýðveldisins:
/
Islenskur fáni
- íslensk fiamleiðsla
íslenski fáninn er að-
eins framleiddur á einum
stað á íslandi - á Hofsósi.
Saumastofan á Hofsósi er
ekki stór vinnustaður, að-
eins þrjár konur en hefur
starfað óslitið í 20 ár eða
allt frá 1974 er íslenska
þjóðin hélt upp á þúsund
ára afmæli Islandsbyggð-
ar. Saumastofan Hofsós á
í mikilli samkeppni við
innflutta íslcnska fána.
Og á Þjóðhátíðarári þeg-
ar íslenska lýðveldið verð-
ur 50 ára er full ástæða til
að spyrja landsmcnn:
Hvort viljið þið kaupa ís-
lenskan fána sem fram-
leiddur er hérlendis eða
þann scm er framleiddur í
útlöndum?
Svanhildur Guðjónsdótt-
ir, framkvæmdastjóri
Saumastofunnar Hofsósi,
og Baldur Valgeirsson,
framkvæmdastjóri Iðnþró-
unarfélags Norðurlands
vestra, efndu til frétta-
mannafundar f Dillonshúsi í
Árbæjarsafni af þessu til-
efni og kynntu fánafram-
leiðsluna á Saumastofunni
Hofsósi.
Fundinn sóttu einnig
Ámi Sigfússon borgarstjóri,
Haraldur Sumarliðason,
fyrir hönd Samtaka iðnað-
arins og Ingólfur Margeirs-
son frá Þjóðhátíðamefnd.
Var þremenningunum af-
hentur íslenskur fáni og
þökkuðu fyrir sig með
ávarpi. Skilaboðin vom
skýr: Flöggum á 50 ára lýð-
veldisárinu með íslenskum
fána saumuðum á Islandi!