Alþýðublaðið - 26.05.1994, Side 1
I
Glæsilegur viðburður á vegum Reykjavíkurlistans:
Hátíð í regnbogans litum
RÖKSTÓLAR Alþýðublaðsins í dag:
„Svekktir sjálfstœðismenn
kjósa Reykjavíkurlistann“
B-blað Alþýðublaðsins í dag er
GLÆSILEG útihátíð Reykja-
víkurlistans verður haidin í
dag. Gengið verður með iúðra-
blæstri og bumbuslætti um göt-
ur miðborgarinnar og út á Ing-
ólfstorg þar sem hátiðahöldin
fara fram. Reykjavíkurkórinn
mun syngja og þjóðþekktir
listamenn flytja glæsilega
skemmtidagskrá. Aðalræðu-
maður dagsins verður borgar-
stjóraefni Reykjavíkurlistans.
Reykjavík í regnbogans litum
er yfirskriftin á glæsilegri útihátíð
Reykjavíkurlistans á Ingólfstorgi í
dag. Safnast verður saman í
Hljómskálagarðinum klukkan
17:00 og þaðan verður gengið
með lúðrablæstri og bumbuslætti
út á Ingólfstorg.
í Lækjargötu syngur Reykja-
vfkurkórinn, sem samanstendur af
félögum úr Háskólakómum,
Karlakór Reykjavíkur, Fóst-
bræðrum og Kvennakór Reykja-
víkur. A sama tíma mun ganga
unga fólksins koma niður Lauga-
veginn.
A Ingólfstorgi mun glæsileg
skemmtun fara ffam þar sem
ijöldi þjóðkunnra listamanna mun
koma fram. Meðal annars spila
félagar úr Lúðrasveit Reykjavík-
ur, Ríó-tríó flytja nokkur lög,
Flosi Ólafsson leikari flytur
ávarp, Nýdönsk spilar, Kuran
Swing tekur léttklassíska sveiflu,
Vigdís Gunnarsdóttir og Stein-
unn Óh'na Þorsteinsdóttir
syngja, Þokkabót spilar nokkur
lög og Ólafía Hrönn Jónsdóttir
kemur fram í gervi Fjólu. Kynnar
verða Edda Heiðrún Bachman
og Pétur Óskarsson. Sem íyrr
sagði verður aðalræðumaður
dagsins borgarstjóraefni Reykja-
vikurlistans, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
C-blað Alþýðublaðsins í dag er
MOSFELLSBÆR
R-listinn fyrír íþróttir
Helena Ólafsdóttir knattspyrnukona,
Magnús Orri Schram knattspyrnumaður,
Ólafur Ari jónsson knattspyrnumaöur,
Ceirlaug Ceirlaugsdóttir frjálsíþróttakona,
Óskar Þorvaldsson knattspyrnumabur,
Bryndís Ernstdóttir frjálsíþróttakona,
Þórhallur Víkingsson knattspyrnumabur,
Torfi Magnússon þjálfari
körfuknattleikslandsliðsins,
Einar Kristjánsson frjálsíþróttamabur,
Elsa Nielsen badmintonkona,
Árni Þór Hallgrímsson badmintonmaöur,
Svanhildur Kristjánsdóttir frjálsíþróttakona,
Jónína Olesen karatekona,
Sigurbjörg Haraldsdóttir knattspyrnukona,
Björn Einarsson knattspyrnumaður,
Pétur Þ. Óskarsson knattspyrnumaður,
Vilhjálmur Vilhjálmsson knattspyrnumabur,
Orri Hlöðversson knattspyrnumaður.