Alþýðublaðið - 26.05.1994, Síða 3
Fimmtudagur 26. maí 1994
FLOKKSSTARF
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 (a)
>
Hólaskóli, Hólum íHjaltadal
Á Hólum er stundað lifandi starfs-
nám á fögrum og f riðsælum stað!
Brautarskipt bunaðarnám:
Búfjárrækt - hrossarækt - reiðmennska -
tamningar - sauðfjárrækt - fiskeldi -
fiskrækt- umhverfisfræði - ferðamálafræði
Mýbyggð kennslufjárhús fyrir 300 fjár!
Miðstöð bleikjurannsókna og kynbóta!
Reiðskemma, 1.000 m2!
Hesthús fyrir 90 hross!
Fullkomið tölvuver!
Inntökuskilyrði:
Viðkomandi þarf að hafa lokið 65 einingum
úr framhaldsskóla, eins árs starfsreynslu og
vera a.m.k. 18 ára.
Eða vera a.m.k. 25 ára með starfsreynslu.
Námstfmi er 1 ár.
Umsóknarfrestur er til 10. júní.
Möguleíki er á að Ijúka stúdentsprófi við
skólann!
Námið er lánshæft samkvæmt reglum LÍN!
Nám á hrossaræktarbraut getur veitt rétt til
inngöngu í Félag tamningamanna!
Nám á fiskeldisbraut veitir námsheitið:
Fiskeldisfræðingur!
Hólaskóli, Hólum íHjaltadal,
551 Sauðárkrókur,
sími 95-35962, símbréf95-36672.
'
Iðnskólinn í Reykjavík
SUMARSTARFSNAM 1394
Nú í sumar verður starfræktur sumarskóli í
Iðnskólanum í Reykjavík. Skólinn verður
starfræktur frá 13. júní til 12. ágúst og fer
skráning fram í Iðnskólanum og Hinu Húsinu frá
24. - 31. maí næstkomandi. Skilyrði fyrir
þátttöku er að umsækjandi sé á atvinnuleysisskrá
og á aldrinum 16-25 ára. Nemendur fá
greiddar 30.000 kr. á mánuði fyrir þátttöku í
verkefninu.
E-FiTll RiT'flUD flRMH AM SBRAUiTll R
®3D 1 aimfe
TlRPIÐNfl'ÐU.R
Fífl'T'fll Q.U flÐU R
B.O.K'fi 10.11 fl Ð.U.R
B:l L'G.R E:l IJflR
STIiYiRlTll IÐ.HflÐ.U.R
iTlO.Lfll.U.NflM
» UÉMMIKMlíl
iCTnoD^aiyíifiiiTTníiiTiii
• [MFma!33II3
Auk ofantalinna iðngreina verður boðið upp á
fjölbreytt námskeið sem tengjast skólagöngu,
þátttöku á vinnumarkaði, daglegu lífi fólks og
félagslífi. Allar nánari upplýsingar eru veittar í
Iðnskólanum í síma 26240 og í Hinu Húsinu
síma 624320.
Innritun fer fram eins og áður sagði 24. - 31. maí
frá kl. 10 -16 í Iðnskólanum og Hinu Húsinu.
Reykjavíkurborg
62-92-44
PALLBORÐIÐ: Sævar Stefánsson skrifar
Sundmcnn
erulang-
þreyttir
ásviknum
loforðum um
50 metra
innisundlaug
Opið bréf til bæjar- og
sveitarstjórnarmanna í
Reykjavík og nágrenni
Nú líður að kosningum og allir keppast við að gefa loforð um
hvað þeir muni nú gera haldi þeir völdum eða komist þeir til
valda. Það á að byggja, bæta og breyta öllu sem þeim finnst
ábótavant. Og viti menn, einn og einn talar um að það þurfi 50
metra yfirbyggða keppnislaug fyrir sundíþróttafólk, og er það
góðs viti. En sundmenn hafa svo oft heyrt gefin loforð um slíkt
að þeir eru orðnir langþreyttir á slíku tali.
Gífurlegt skilningsleysi
Það virðist ríkja gífurlegt skilningsleysi á því hvers vegna
sundíþróttin þurfi 50 metra innilaug, en það virðast allir skilja að
það sé nauðsyn að fá þak yfir knattspymuvöll, skautasvell, tenni-
svelli, verslunargötur og Guð veit hvað. Það er alltaf sama sagan
þegar sundmenn tala um að fá 50 metra innilaug: Hvað er þetta,
það em laugar um allt, þið þurfið nú ekki fleiri laugar. Og svo er
bætt við: En þetta em að vísu allt útilaugar því aimenningur vill
það.
Þama komum við að meginmálinu, það hefur ekkert gerst síð-
an að Sundhallimar í Reykjavík og í Hafnarfirði vom byggðar,
að vísu með einni undantekningu sem er Sundhöllin í Vest-
mannaeyjum en hana gáfú Norðurlandaþjóðimar eftir gos og er
það eina nothæfa keppnislaugin sem til er.
Þolinmæðin er á þrotum
Nú er svo komið að þolinmæði sundfólksins er að þrotum
komin, framundan er einn stærsti íþróttaviðburður í sundi sem
haldinn hefúr verið hér á landi, það er að segja í maí árið 1997,
verða haldnir hér Smáþjóðaleikar. Ólympíunefnd íslands hefur
farið ffam á það við Sundsamband íslands að það sjái um sund-
keppnina, það er að segja undirbúning og skipulagningu.
Sundsambandinu er það ljúft að taka að sér þetta verkefni svo
framarlega sem það finnst einhver laug sem hægt er að nota á
Stór-Reykjavíkursvæðinu, en þar stendur hnffurinn í kúnni að
mati Sundsambandsins. Það er ekkert mannvirki sem er boðlegt
eða hreinlega hægt að nota í keppni sem þessa.
Áætlaður kostnaður 200 milljónir
Það er skemmst að minnast þess þegar haldið var hér Norður-
landameistaramót í sundi. Þátttakendur í því móti hlæja enn þeg-
ar minnst er á mótið á Islandi vegna þeirra sundaðstöðu sem boð-
ið var upp á.
Sundsambandið ætlar ekki að verða aðhlátursefni Smáþjóð-
anna sem sækja þetta mót heim og hrópar því í örvæntingu til
sveitarstjórnarmanna um aðstoð við uppbyggingu á 50 metra
innilaug. Áætlaður kostnaður er um 200 milljónir með því að
samtengja þetta við sundstað eða íþróttahús sem er í notkun.
Eftirsóknarvert verkefni
Það bæjar- eða sveitarfélag sem ræðst í jjessa ffamkvæmd
mun tryggja séröll stærstu sundmót næstu ára, innlend og erlend,
það er að segja Smáþjóðaleika, Norðurlandameistaramót, Evr-
ópumeistaramót og önnur þau stórmót sem hægt væri að fá til
landsins.
Ef bæjar- og sveitarstjómarmönnum vex þessi kostnaður í
augum þá er til vara ein lausn. Hún er sú, að sveitarfélögin sam-
einist um verkið, að byggja og reka 50 metra innilaug í samein-
ingu.
Með sundkveðju.
Höfundur er varaformaður Sundsambands islands.
Fyrirsögn og millifyrirsagnir: Alþýðublaðið.
Sveitíirstjómarkosiiingar 1994:
Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra
verður á ferð um landið
fram að kosningum
Fimmtudagur 26. maí
SIGLUFJÖRÐUR: Viðtalstími á
bæjarskrifstofunum
klukkan 09.00 til 10.00.
SAUÐÁRKRÓKUR:
Klukkan 12 til 15.
Fundur með flokksfólki
klukkan 12.00 til 13.30.
Viðtalstími á bæjarskrifstofum
klukkan 14.00 til 15.00.
HÚSAVÍK: Klukkan 20.30.
Stjómmálafundur.
Föstudagur 27. maí
HÚSAVÍK: Viðtalstími á bæjar-
skrifstofum klukkan 09.00 til 10.00.
AKUREYRI: Klukkan 13 til 18.
Viðtalstími á bæjarskrifstofum
klukkan 13.00 til 14.00. Kratarós
dreift með frambjóðendum
síðdegis.
Bókun viðtala og nánari
upplýsingar em gefnar á
skrifstofum viðkomandi
bæjar- og sveitarstjóra og á
kosningaskrifstofum
jafnaðarmanna. Á öllum stöðunum
heimsækir Jóhanna vinnustaði og
stofnanir, ræðir við
sveitarstjómarfólk og hittir jafnað-
armenn á kosningaskrifstofunum.
Alþýðuflokkurinn - Jaj'naðannannaflokkur íslands.