Alþýðublaðið - 28.06.1994, Page 3
Þriðjudagur 28. júní 1994
TIÐINDI
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Rofar heldur til í byggingaframkvæmdum, segir Þjóðhagsstofiiun:
Uppsveiflan er mest í
Kópavogi og Hafnarfirði
Eftir nokkur mögur ár
virðist loks að rofa til í
byggingastarfsemi á ís-
landi, segir Þjóðhagsstofnun.
Rúmmetrum í samþykktum ný-
byggingum íbúða í Reykjavík
hefur fjölgað um 70% fyrstu
fimm mánuði þessa árs, þegar
miðað er við sama tíma á síðasta
ári. Hinsvegar hefur verið upp-
sveifla í byggingastarfsemi í
Kópavogi og í Hafnarfirði und-
anfarin ár.
Fram kemur í Hagvísum
Þjóðhagsstofnunar að í fyrra
voru um 450 íbúðir með um 170
þúsund rúmmetrum samþykktar
í Reykjavík. Árið 1989 fékkst
leyfi fyrir um það bil tvöfalt
fleiri íbúðum. En Þjóðhags-
stofnun slær vamagla:
„Ekki er gott að segja til um
hvort úr ijölda samþykktra ný-
bygginga á höfuðborgarsvæð-
inu dragi á síðari hluta ársins. I
ljósi óhagstæðra skilyrða í þjóð-
arbúskapnum er ólíklegt að eft-
irspum eftir íbúðarhúsnæði auk-
ist að einhvetju ráði á næstunni.
Þannig hafa færri óskað eftir
mati á greiðslugetu á þessu ári
en í fyrra. Fasteignamarkaður-
inn hefur tekið ömm breyting-
um í samdrætti síðustu ára.
Þannig hefur hlutur félagslegra
íbúða og þjónustuíbúða fyrir
aldraða aukist mjög. Auk þess
hefur færst í vöxt að verktakar
ráðist í framkvæmdir án þess að
hafa vísa kaupendur", segir
Þjóðhagsstofnun. Stofnunin
spáir 2% aukningu ljárfestingar
í íbúðarhúsnæði á þessu ári.
Sala á sementi er önnur vís-
bending um umsvif í bygginga-
starfsemi. Frá árinu 1988 hefur
dregið mjög úr sölu á sementi í
takt við minnkandi umsvif í
byggingastarfseminni. Þannig
var salan um 40% minni í fyrra
en þegar hún náði hámarki
1988. Á þessu ári hefur se-
mentssalan aftur á móti aukist
umtalsvert og er nú 15% meiri
en á sama tíma í fyrra.
Verð íbúðarhúsnæðis hefur
haldist stöðugt þrátt fyrir efna-
hagslægðina. Raunverð íbúða í
ljölbýlishúsum í Reykjavík hef-
ur því lítið breyst frá því 1988
samkvæmt upplýsingum frá
Fasteignamati ríkisins. Þó hef-
ur verð á einbýlishúsum og
stærri eignum lækkað nokkuð
að því er virðist, - og atvinnu-
húsnæði hefur fallið í verði.
Töílur:
Þjóðhagsstotnun
Óbundin innlán:
Verðtrygging
verður óheimil
eítir áramót
- stuðlað að því að tjármagnsniarkaður hér
líkist því sem þekkist meðal annarra þjóða
Seðlabankinn gaf út
fyrir stuttu nýjar reglur
urn verðtryggingu
sparifjár og lánsfjár. Megin-
breytingin frá fyrri reglum er
að frá næstu áramótum verð-
ur óheimilt að verðtryggja
óbundin innlán. Til þessa
hafa ýmsir óbundnir innláns-
reikningar getað notið verð-
tryggingar hafi innistæða
staðið óhreyfð í heilt ár.
Þrátt fyrir þessar nýju regl-
ur verður áfram heimilt að
verðtryggja innlánsreikninga
sem bundnir eru í að minnsta
kosti 12 mánuði í upphafi og
minnst sex mánuði í senn
eftir það. Nýju reglurnar fela
ennfremur í sér nokkrar
breytingar sem miða að því
að sem fyrst náist jöfnuður
milli verðtryggðra eigna og
skulda innlánsstofnana, segir
í tilkynningu frá Seðlabank-
anum. Afnám heimildar til
að verðtryggja óbundin inn-
lán var boðað fyrir réttu ári
er Seðlabankinn gaf síðast út
reglur um þetta efni. Þá var
því lýst að stefnt væri að nið-
urfellingu heimildar til verð-
tryggingar sparifjár á
óbundnum reikningum frá 1.
janúar 1995. Breytingin er
einnig í aðalatriðum í sam-
ræmi við tillögur nefndar
sem viðskiptaráðherra skip-
aði á síðasta ári til að fjalla
um vaxtamyndun á lánsfjái'-
markaði.
Ríkissjóður hefur smám
saman aukið útgáfu óverð-
tryggðra verðbréfa. Nú em í
boði ríkisvíxlar með allt að
tólf mánaða lánstíma og
óverðtryggð nkisbréf með
tveggja ára lánstíma. Seðla-
bankinn telur brýnt að áfram
verði unnið að því að auka
við útgáfu óverðtryggðra
skuldbindinga, til dæmis til
lengri tíma en hingað til hef-
ur boðið upp á. Þannig yrði
stuðlað að því að fjámtagns-
markaður hér líktist meir því
sem þekkist meðal annarra
þjóða.
Samþykktar nýbyggingar í Reykjavík
12 mán. %-br. rúmmetrafjölda, uppsafn. innan árs
1991 1992 1993 1994
Sementssala
Vísitala, 1980—100
1991 1992 1993 1994
Raunverð íbúða í fjölbýli
Vísitala, janúar 1984=100
Leigjendasamtökin:
Þakka
Jóhönnu
Astjómarfundi í Leigj-
endasamtökunum á
föstudaginn samþykkti
stjómin að þakka Jóhönnu Sig-
urðardóttur, fyrrverandi fé-
lagsmálaráðherra samstarfið á
liðnum ámm.
Stjómin lýsir yfir stuðningi
við Jóhönnu og baráttu hennar
fyrir félagslegu réttlæti
og jöfnuði í þjóðfélaginu.
„Stjómin hvetur hana til að
halda þessari baráttu áfram, því
alþýðuna í landinu vantar bar-
áttufólk sem starfar að málefn-
um hennar af heilum hug“, segir
í samþykkt stjómar Leigjenda-
samtakanna, en formaður þeirra
er Jón Kjartansson frá Pálm-
holti.
JTTFRETTIll
Þjarmaö aö SIGHVATI
M c t f j ö 1 d i
blaðamanna
sótti að Sig-
hvati Bjiirg-
vinssyni (iðn-
aðar-, við-
skipta-, heil-
brigðis- og
tryggingamála-
ráðherra...) að
loknum sögu-
legum ríkis-
síjómaríúndi í
síðustu viku.
Auk hins þaulsetna liðs íslenskra fréttamanna í stjómarráðshúsinu,
voru mættir tii leiks nokkrir norskir blaðamenn í leit að Svalbarða- og
Smugufréttum. Hérer Sighvatur bókstafiega kotninn inn í hom og að
honum þjarmað með spurningallóði...
Alþýðublaðsmynd/ Einar Ólason
LOÐNUvertíð framundan
Heimilt verður að hefja loðnuveiðar 1. júlí næstkomandi. Bráða-
birgðakvótinn er 950 þúsund lesúr, eða 2/3 af því ntagni sem ftsld-
fræðingar telja að verði endanlegur kvóti. Samkvæmt samningi ís-
lands, Noregs og Grœnlands um nýtingu loðnustofnsins koma 78%
af endanlegum kvóta f hlut íslands, en afgangurinn skipúst jafnt milli
Noregs og Grænlands. Verði endanlcgi kvóúnn 1.425 þúsund lestir,
er hlutur Islands 1. 111 þúsund lesúr, auk þess sem við fáum 30 þús-
und lestir frá Evrópusambandinu til að veiða í janúar til apríl á næsta
ári. Með samningi sem gerður var síðasta vor varð sú breyting að Nor-
egi og Grænlandi var úthlutað nokkiu stærri hlut úr bráðabirgðakvót-
anum, eða 16,5% hverju landi. Konia því 67% bráðabirgðakvótans í
hlut íslands. Hlutur okkar verður síðan leiðréttur við útgáfu endanlega
kvótans í nóvember. Bráðabirgðakvóú íslensku skipanna er því
636.500 lonn...
Afhenti SPÁNARKÓNGI
trúnaðarbréf
Sverrir Haukur Gunnlaugsson. sendiherra, afhenti í síðustu vil<u
Juan Carlos I., konungi Spánar, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra ís-
lands á Spáni...
58 LAXAR núna - 4 í fyrra
Norðurá opnaði glæsilega þann 1. júní, raunar er opnunardagurinn sá
glæsilegasti í sögunni, þá veiddust 35 laxar eða 4 löxum meira en
gamla metið á opnunardaginn, feitur og fallegur lax. Meðalvigtin á
fyrstu 58 löxunum sem opnunarhollið fékk er um 10 pund. I fyrra
veiddust aðeins 4 laxar á opnunardaginn, en engu að síður varð Norð-
urá toppáin það iaxveiðisumar...
Gjöf til Landgræðslunnar
Ixmdgrœðslu ríkisins var afhent í síðustu viku dánargjöf Guðrúnar
Guðvarðardóttur, sem lést 12. janúar á þessu ári, íbúð að Eskihlíð
14 í Reykjavfk. Guðrún var kunn fyrir störf að félagsmálum og öfluga
baráttu fyrir bættum kjöoun vericafólks. Hún var fædd í Súðavík 12.
apríl 1916. Maður hennar var Eyjólfúr Árnason, gullsmiður. og voru
þau bamlaus. í erfðaskrá sinni arfleiddi Guðrún Landgræðslunu að
skuldlausri íbúð sinni og skyIdi andvirði hennar varið úl landgræðslu-
verkefna á Norðausturlandi. „Þessi ráðstöfun Guðrúnar. sem ávallt
hefur borið hag alþýðunnar fyrir bijósti, ber vitni um þá sannfæringu
að aukin gróðursæld muni stuðla að því að auðga mannlíf á íslandi.
Hún var ræktunarkona í þess orðs fyllstu merkinu", sagði Sveinn
Runólfsson, landgræðslustjóri...
Aðeins fimm BÍLAR
þurftu aðstoð FÍB
Það er athyglisvert að í þeim aragrúa bfla, sem sóttu að Þingvöllum á
þjóðhátíðina, þurftu aðeins 5 áðstoðar við hjá Vegaþjónustu Félags
íslenskra bifreiðaeigcnda. Flestar beiðnir urn aðstoð voru vegna ein-
faldra og auðleystra bilana og aðeins fimm bfla þurfti að flytja með
krana- eða pallbíl til Reykjavikur að afloknum hátíðahöldunum...
Götukort af
REYKJAVÍK
og nágrenni
Bætt hefur verið út brýnni þörf fyrir
vandað götukort ai Reykjavík og ná-
grannabæjunum. Nú er komið út al-
mennilegt kort af höfuðborgarsvæð-
inu. Fyrir því framtaki standa upp-
lýsingafulltrúi horgarinnar og
borgarverkfrœðingur. Kortið mun
ekki aðeins koma í góðar þarfir hjá
feröafólki f borginni, heldur íbúum
borgatinnar almennt, því ekki þckkja
innvígðir allar götur borgarinnar.
Með kortinu fylgir ágætur upplýs-
ingabæklingur og götuskrá með úl-
vfsunum inn á kortið. Ennfrcmur sér-
koit af miðborginni, - og aftan á að-
alkortið _eru strætisvagnaleiðir
merktar. Ólaftir Jónsson, upplýs-
ingafulltrúi borgarinnar, á þakkir
skildar fyrir ágætt verk...
»3 ,. -j
R F
n L m Y K j A Y 1 r NÁ G R*E N N *
I STREET PUM ÖF RETKjAVtK 1 | Á«D SURRÖUNDIMG TOWNS §