Alþýðublaðið - 19.07.1994, Page 6
6 ALÞYÐUBLAÐIÐ
MENNING
Þriðjudagur 19. júlí 1994
Opna Flugleiða-
mótíð í golfi
s
- Ovenju glæsileg verðlaun
Opna Flugleiðamótið í
golfi var haldið á Hlíð-
arendavelli á Sauðár-
króki helgina 16. til 17. júlí.
Keppt var með og án forgjafar í
þremur flokkum; karla, kvenna
og unglinga.
Flugleiðir gáfu öll verðlaun
sem voru óvenju glæsileg og
vill Golfkliibbur Sauðárkróks
koma á framfæri kærum þökk-
um til fyrirtækisins fyrir stuðn-
inginn. Sigurvegarar í karla- og
kvennaflokkum án forgjafar
hlutu Evrópuferð að eigin vali á
einhverri flugleið Flugleiða og
aðrir verðlaunahafar hlutu flug-
ferð innanlands.
Úrslit í einstökum flokkum
urðu eftirí’arandi:
Karlar ÁNforgjafar: (1) Ein-
ar Bjarni Jónsson G.KJ. 156
Aðalfundur
Alþýðubrauðgerðarinnar hf.
Aðalfundur Alþýðubrauðgerðarinnar hf. verður haldinn
mánudaginn 25. júlí næstkomandi, klukkan 16:00, að
Hverfisgötu 8-10 í Reykjavík.
Dagskrá:
1. Lagabreytingar.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
NESJAVALLAVIRKJUN
högg. (2) Eiríkur Haraldsson
G.A. 157 högg. (3) Guðjón B.
Gunnarsson G.S.S. 162högg.
Karlar MEÐ forgjöf: (1) Ei-
ríkur Haraidsson G.A. 139
högg. (2) Kristján Guðjónsson
G.H. 142 högg. (3) Einar Örn
Jónsson G.ÓS. 144 högg.
Konur ÁN forgjafar: (1) Ar-
ný Lilja Árnadóttir G.S.S. 169
högg. (2) Andrea Ásgríms-
dóttir G.A. 171 högg. (3) Sól-
veig Skúladóttir G.H. 200
högg.
Konur MEÐ forgjöf: (1) Ár-
ný Lilja Árnadóttir G.S.S. 145
högg. (2) Halla B. Erlends-
dóttir G.S.S. 147 högg. (3)
Andrea Ásgrímsdóttir G.A.
149 högg.
Unglingar ÁN forgjafar: (1)
Örvar Jónsson G.S.S. 156
högg. (2) Gunnlaugur Er-
lendsson G.S.S. 160 högg.
Kári Emilsson G.KJ. 164
högg.
Unglingar MEÐ forgjöf: (1)
Davíð Már Jónsson G.KJ. 128
högg. (2) Eggert Jóhannsson
G.A. 128 högg. (3) Örvar
Jónsson G.S.S. 134högg.
KVIKMYNDIR
Tonleikar t kvold t Listasafm
SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR:
Sónötur fyrir fiðlu og píanó
Atónleikum í Lista-
safni Sigurjóns Ól-
afssonar í kvöld
koma fram Hlíf Sigurjóns-
dóttir fiðluleikari og David
Tutt píanóleikari.
Þau flytja sónötur fyrir
fiðlu og píanó eftir Sergei
Prokofieff og Richard
Strauss. Tónleikamir hefjast
klukkan 20.30.
Hlíf Sigurjónsdóttir lauk
einleikaraprófi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík undir
htmdleiðslu Björns Ólafs-
sonar konsertmeistara. Hún
stundaði framhaldsnám við
háskólann í Indiana í Banda-
ríkjunum, við háskólann í
Toronto og Listaháskólann í
Banff í Kanada. Hlíf starfaði
síðan í kammerhljómsveitum
í Þýskalandi og Sviss uns hún
snéri heim til Islands. Hlíf
hefur kennt við Tónlistarskól-
ann á Isafirði og við Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssson-
ar auk þess sem hún hefur
tekið þátt í margs konar tón-
listarflutningi og haldið sjálf-
stæða tónleika.
David T utt er fæddur í Kan-
ada. Hann stundaði píanónám
í heimalandi sínu og við há-
skólann í Indiana í Bandaríkj-
DAVltí TUTTog HLÍF SIGURJÓNSDÓTTIR leika íUsta-
safni Sigurjóns í kvöld.
unurn. David hefur komið
víða fram sem einleikaii hér-
lendis og beggja vegna Atl-
antshafsins, meðal annars
með sinfómuhljómsveit ung-
verska útvarpsins í Búdapest
og sinfóníuhljómsveitum í
Calgary, Edmonton og Tor-
onto. David kennir nú við Al-
berta College Conservatory
of Music í Edmonton, Kan-
ada.
Samstarf Hlífar og David
hófst í Listaháskólanum í
Banff, þar sem þau dvöldust
bæði sem styrkþegar á árun-
um 1979 til 1981. Þau hafa
haldið fjölda tónleika og léku
síðast saman á ísiandi sumar-
ið 1991.
Nesjavallavirkjun er opin til skoðunar alla daga
frá klukkan 10:00 til 12:00 og 13:00 til 17:00 fram
til 1. september. Tímapantanir fyrir hópa í síma
98-22604 og 985-41473. Vetrartími auglýstur
síðar.
Hitaveita Reykjavíkur.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
UTBOÐ
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í
gerð bílastæða við Holtaveg í Reykjavík og frágang umhverf-
is þau.
Verkið skal vinnast í sumar og vera lokið 1. október 1994.
Helstu magntölur eru: Jarðvegsskipti 1.400 m2
Malbikslag 1.100 m2
Kantsteinn 230 m
Steypt gangstétt 300 m2
Grasþökur 860 m2
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykja-
vík, frá og með þriðjudeginum 19. júlí 1994, gegn kr. 10.000,-
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 27. júlí 1994, kl.
11:00.
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Óskum eftir að ráða leikskólakennara eða annað upp-
eldismenntað starfsfólk í störf við neðangreinda leik-
skóla:
Hálsaborg v/Hálsasel, s. 78360
Sólborg v/Vesturhlíð, s. 15380
Ægisborg v/Ægissíðu, s. 14810
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
tyehUenkílm'tooðíkðá..,
Lögguskólinn
í Moskvu
Sagabíó: Leyniför til Moskvu
(Police Academy - Mission
To Moscow)
Aðalhlutverk: George Gagn-
es, Michael Winslow
Stjörnugjöf: *1/2
Að kalda stríðinu loknu og
niðurfelldum kommúnískum
stjómarháttum, losnaði um
viðjar margs austur í Rússlandi.
Aukins svigrúms njóta svo
glæpastarfsemi ýmis konar, að
yfirvöld í Moskvu leita ásjár
Lögregluskólans í New York,
sem er sjónvarpsáhorfendum
að góðu kunnur. Á vettvang
sendir skólinn flokk lögreglu-
manna og nýliða til atlögu við
rússnesku mafíuna. Þótt hún
hafi allar klær úti, þarf ekki að
spyrja að leikslokum.
Brotajárn
Háskólabíó: Græðgi (Greed)
Aðalhlutverk: Kirk Douglas,
MichaelJ. Fox
Stjörnugjöf: ★ ★ 1/2
Gamla kempan Kirk Dou-
glas birtist nú á hvíta tjaldinu
eftir nokkurt hlé, en allur annar
en áður var, þótt enn sé hann
sjálfum sér líkur um margt. Nú
er hann afdankaður braskari
með brotajám, sem nýtur upp-
safnaðs auðs í bústað sínum
með ungum einkaritara og
þjóni. Samningu erfðaskrár læt-
ur hann þó bíða. Neyta ættingj-
ar hans (þar á meðal Michael
J. Fox) hvers tækifæris til að
koma sér í mjúkinn hjá honum.
En sá gamli kann leið til að
prófa einlægni þeirra og hug til
sín. Enginn viðvaningsbragur
er á þessari glómlausu gaman-
mynd.
Utan bandarískra
stórborga fyrr og nú
Bíóhöllin: Þrumu-Jack
(Lightning Jack)
Aðalhlutverk: Paul Hogan,
Cuba Gooding jr.
Stjörnugjöf: ★ 1/2
Frá bankaráni kemst Jack
einn af í skjóli svarts gísls, síð-
ar lagsmanns hans í ránum.
Jack (leikinn af Paul Hogan)
hreykist af ódæðum sínum.
Bregst hann hinn versti við, ef í
blaðafréttum er lítið gert úr rán-
um hans og áræði. Að honum
er þannig skopast og stiga-
mönnum villta vestursins. Hér
er sem sagt á ferðinni grínmynd
ffá villta vestrinu, kúrekum og
indíánum.
Mannleg reisn
Bíóhöllin: Hvað angrar
Gilbert Grape? (What’s
Eating Gilbert Grape?)
Aðalhlutverk: Johnny Depp,
Juliette Lewis
Stjörnugjöf: ★ ★ ★
Að söguefni er haft daglegt
líf tjölskyldu í smábæ í Banda-
ríkjunum, móður sem haldin er
offitu og fjögurra bama hennar,
- uppkomins sonar, annars
yngri þroskahefts, og tveggja
dætra á táningsaldri. Uppkomni
sonurinn er afgreiðslumaður í
matvömbúð, en sá þroskahefti
hleypur út undan sér. Samskipti
fjölskyldunnar við aðra bæjar-
búa eru ýmist ánægjuleg,
skondin eða erfið. Af þeim
hlýtur myndin þó smám saman
reisn.
Bændalýður í
Beverly-
hæðum
Saga-bíó: Bændur í Beverly
Hills (The Beverly Hillbillies)
Aðalhlutverk: Lily Tomlin,
Jim Varney
Stjörnugjöf: ★ ★
Bóndi, ekkjumaður, kemst
skyndilega í álnir, bregður búi
og flyst með fjölskyldu sinni til
Hollywöod, í fínasta hverfi
borgarinnar. Þar heldur fjöl-
skyldan þó fyrri lífsháttum, ek-
ur jafnvel um á gömlum mjólk-
urbíl. Um koll keyrir loks er sá
gamli fer að svipast eftir konu-
efni og leitar til hjúskaparmiðl-
unar. Minnir þessi græskulausa
gamanmynd lítið eitt á sænska
kvikmynd, sem lukku gerði í
Regnboganum í fyrra.
Strákur verður
fjármálamaður
í viku
Bíóhöllin: Tómur tékki (Blank
Check)
Aðalhlutverk: Karen Duffy
Stjörnugjöf: ★ ★ 1/2
Litlum snáða finnst hann
vera útundan heima hjá sér.
Pabbi hans lætur eldri bræður
hans tvo ganga fyrir og hann er
ekki talinn hafa vit á neinu. Og
þegar hann ætlar að opna
bankareikning, hrekkur sparifé
hans ekki til þess. Utan bank-
ans ekur bófi á hjól stráksa, og
áður en hann nær að fylla út
tékka til að bæta tjónið, sér
hann til ferða lögreglumanna
og forðar sér.
Eftir stendur strákur með undir-
ritaðan, óútfylltan tékka. En
strákurinn er tölvufíkill og læt-
ur tölvuna útfylla tékkann upp
á eina milljón dollara. Hefur
strákur þá umsvif fjármála-
manns, en undir dulnefni,
og að viku liðinni er
milljónin uppurin.
Bráðskemmtileg og geðfelld
bama- og unglingamynd frá
Disney-kvikmyndafélaginu.