Alþýðublaðið - 20.07.1994, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 20.07.1994, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 20. júlf 1994 TIÐINDI FLUGLEIÐIR vilja endurskoðun vinnulöggjafarinnar. Telja að hún standi í vegi fyrir framtíðaruppbyggingu og hagræðingu í ferðaþjónustu landsmanna: félög að semja - þar af geta 10 félaganna stöðvað millilandaflugið, oft á tíðum fámennir hópar starfsmanna. Samningar geta staðið misserum saman FLUGLEIÐIR: Tíu stéttarfélög eru íþeirri aðstöðu að geta stöðvað eða valdið alvar- legri röskun á millilandaflugi fyrirtœkisins. Flugleiðir eru bundnar kjarasamning- um við 28 stéttarfélög á Islandi. „Vinnudeilur við hvert og eittþessara félaga geta raskað ferðum þúsunda viðskiptavina, stefnt hagsmunum fyrirtœkisins, starfs- manna þess og hluthafa ífullkomna tvísýnu,“ segir stjórn fyrirtœkisins. Alþýöublaðsmynd / Elnar Ólason Tíu stéttarfélög eru í þeirri aðstöðu að geta stöðvað eða valdið alvarlegri röskun á millilandaflugi Flug- leiða. Flugleiðir em bundnar kjarasamningum við 28 stéttar- félög á Islandi. „Vinnudeilur við hvert og eitt þessara félaga geta raskað ferð- um þúsunda viðskiptavina, stefnt hagsmunum fyrirtækis- ins, starfsmanna þess og hlut- hafa í fullkomna tvísýnu og valdið hundruðum annarra fyr- irtækja víðsvegar um land og þúsundum starfsmanna þeirra tilfmnanlegu tjóni“, segir stjóm Flugleiða í greinargerð með til- mælum til Vinnuveitendasam- bands íslands. í tilmælunum er VSÍ beðið um að beita sér fyrir samstarfi við stjómvöld og verkalýðs- hreyfinguna um endurskoðun vinnulöggjafarinnar, þannig að hún taki mið af þörfum nútíma- atvinnulífs og þjóðfélagshátta. „Tryggja þarf einstaklings- bundin réttindi starfsmanna og réttindi fyrirtækja, stuðla að stöðugleika á vinnumarkaði og því að samningar verði gerðir samtímis í sömu atvinnugrein. Jafnframt verður að takmarka heimild smáhópa til að hindra vinnu margfalt stærri starfs- hóps“, segir í tilmælum Flug- leiðatil VSÍ. „Gildandi lög um stéttarfélög og vinnudeilur em 8 ámm eldri en áætlunarflug til útlanda og voru sett hémmbil aldarfjórð- ungi áður en íslensk ferðaþjón- usta sleit bamsskónum. Nýjar samskiptareglur á vinnumark- aði verða meðal annars að taka mið af þróun nýrra og við- kvæmra atvinnugreina á borð við ferðaþjónustu til að tryggja vöxt og viðgang greinarinnar og sameiginlega heildarhagsmuni starfsfólks og fyrirtækja. Stjóm Flugleiða áréttar að langtíma- sókn í atvinnumálum verði best tryggð með því að aðilar vinnu- markaðarins sameinist um nú- tímalegri samskiptareglur sem stuðli að öryggi og ábyrgð í þeirra eigin samskiptum“, segir stjóm Flugleiða hf. í greinaigerð segir að frétt um boðun vinnustöðvunar beini ferðamönnum samstundis ann- að. Tjón af völdum vinnudeilna verði fljótt víðtækt og mikið og bitni ekki aðeins á viðkomandi flugfélagi, heldur og þeim þús- undum sem að ferðaþjónustu starfa. Flugleiðastjómin kvartar yfir að samningar mismunandi hópa geti staðið misserum saman og valdi öryggisleysi í ferðaþjón- ustunni. Þá geti lög og samn- ingsbundin einokun einstakra stétta staðið í vegi fyrir nýjung- um í rekstri og hindrað félagið í að auka hagkvæmni og lækka flutningskostnað á hliðstæðan hátt og samkeppnisaðilar. Stjómin tekur fram að stéttar- félög starfsmanna hafi í vaxandi mæli sýnt þörfum félagsins skilning og í mörgu mætt þeim nýju aðstæðum sem leitt hafa af harðnandi samkeppni. Þrátt fyr- ir það telji stjómin að laga- rammi um samskiptin sé nauð- synlegur. Þær aðstæður sem nú séu fyrir hendi séu eitt af því sem helst ógnar framtíðarupp- byggingu ferðaþjónustu hér á landi. ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 10 KÍLÓMETRA bókahillur Innlendur innréttingaiðnað- ur lítur Þjóðarbókhlöðuna (- sjá meðfylgjandi mynd) hýrurn augum. Þat- em fram- undan stór og mikil verk- efni. Innréttingar hússins eru hiutaðar niður í 5 útboðs- þælti. Fyrstu tvö útboðin eru frágengin, en í þeim vom boðin út skrifborð og bókahillur. íslenskir framleiðendur urðu sigur- sælir í þeitn útboðum. Meðal þess sent smíða þarf em 10 kíló- metrar af bókahillum, hreint ekki lítið verkefni það. Þjóðar- bókhlaðan á að taka til starfa í nýja húsnæðinu á Melunum 1. desember næstkomandi. Útilistaverk á DALVÍK Dóntnefnd hefur valið tvö listaverk til útfærslu og uppsetn- ingar í miðbæjarkjama Dalvíkur. Dómnefndin valdi tjóra listamenn til að taka þátt í lokaðri samkeppni um verkin. Það voru þau Jóhanna Þórðardóttir, Rórí, Sigurður Guð- mundsson og Sólveig Eggertsdóttir. Verkin Alda og Sjó- fuglar hlulu náð fyrir augum dómneliidiir sem bestu verkin. Höfundamir reyndust vera þau Jóhanna og Sigurður Guð- mundsson. Sýning stendur nú yfirá tillögum listamannanna í Ráðhúsinu á Dalvík. Verkin eiga að verða sýnileg bæjarbú- um og gestum þeirra strax í haust. Margt líkt með MEXÍKÓ og ÍSLANDI r A laugardaginn opnar ung #"\mexikönsk listakona, Beatriz Ezban (- sjá með- fylgjandi mynd) sýningu á málverkum frá Islandi í Portinu, Strandgötu 50 í Hafnarfirði. Sýninguna kallarhún Undir áhrifúm ís- lenskrar náttúru. Sýningin er opin daglega frá 14 til 18 nerna þriðjudaga og lýkur henni 7. ágúst. Sverrir Ólafsson, mynd- höggvari, segir myndir Ezban „virðast vera óendanlega sin- fóníu ljóss, skugga, fólks, sögu. landslags, dulúðar og töfra“. Hann segir að í sínum huga sé margt líkt nteð óskyldum, Mexíkó og íslandi. þegar grairnt sé skoðað, báðar búi þjóðim- ar við þá óvenjulegu tilvem að eiga hina raunvemlegu, ósnoitnu töfra. Meirihluti með SVALBARÐAVEIÐUM II eira en 6 af hvetjum 10 íslendingum telur það í góðu IVl lagi að íslendingar stundi veiðar á Svalbarðasvœðinu. Þetta kemur í ljós í skoðanakönnun Hagvangs hf. sem gerð var4. júlí. Andvígir slíkum veiðum voru 14,7% aðspurðra, en 24,7% sögðust ekki vita svarið. Ekki reyndist marktækur munur á afstöðu fólks eftir búsetu. Hinsvegar vekur athygli að yngra fólkið í könnuninni var mun hlynntara Svalbarðaveið- um en þeir sem eldri em. Þá vekur athygli hversu margir tóku ekki afstöðu. Nýtt DÝRAVERNDARRÁÐ skipaö Umhverfisráðuneytið hefur skipað nýtt dýraverndarráð. Hlutverk þess er að vera ráðherra til ráðgjafar við urtísjón þeirra mála sem snerta dýravemd. í ráðinu sitja nú: Árni M. Mathiesen. alþingismaður og dýralæknir, sem er lbmiaður ráðsins; Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri; Óiafur Jónsson, dýralæknir; Sigríður Ásgeirsdóttir, héraðsdómslögmaður; og Sigurður H. Richter, líffræðingur. Sigrún Helgadóttir. líffræðingur er varaformaður. ÍSLAND - Ijósmyndabók Það er sagt að glöggt sé gests augað. Það kemur fram á ljós- myndabók Klaus D. Francke, sem Mál og menning hef- ur sent lrá sér. í bókinni er að finna úrval af landslagsmyndum sem Francke hefur tekið úr lofti. Veita þær nýja og óvænta sýn á ósnortna og stórbrotna náltúru landsins, liti hcnnar og form. Klaus D. Francke er Þjóðverji og ferðaðist inikið um ís- land og hefur hlotið ýmsar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir íslandsmyndir sínar. Thor Vilhjálmsson og Ari Trausti Guðmundsson leggja ljósmyndaranum lið í bókinni með texta. GRÁSLEPPUVEIÐI lengd Sjóivarútvegsráðuneytið hefur fitmúengt veiðitíma til grá- Isleppuveiða í allt að einn mánuð. Samkvæmt heimild ráðuneytisins má stunda veiðamar fyrir Vesturlandi, í Breiðajvði og fyrir Vestjjörðum til 20. ágúst og fyrir Suður- landi til 1. ágúst. Ákvörðun þessi var tekin að beiðni Lands- sambands smábátaeigenda og að fenginni untsögn Hafrann- sóknastofnunar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.