Alþýðublaðið - 20.07.1994, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 20.07.1994, Blaðsíða 8
Munið Flateyjardagana 12. til 14. ágúst! !f ALLA DAGA Munið Flateyjardagana 12. tii 14. ágúst! Miðvikudagur 20. júlí 1994 108. TOLUBLAÐ - 75. ARGANGUR REYKJAVÍKURBORG og handboltínn: Bjóða hálfa íþróttahöll - vilji ríkið eða aðrir aðilar koma á mótí með samsvarandi framlag Greinargerð íþrótta- og tóm- stundaráðs Reykjavíkur- borgar og byggingardeildar borgarverkfræðings ásamt viðauka um íjölnota íþrótta- og sýningarhús í Laugardal var lögð fram á fundi borgarráðs í gærdag. Borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, lagði fram tillögu í borgarráði þar sem ráðið lýsir sig reiðubúið að verja allt að 270 millj- ónum króna til byggingar íjölnota íþróttahúss austan Laugardalshall- ar. Húsið á að vera tilbúið fyrir HM í handknattleik á næsta ári. Áætlað er að húsið kosti fullbúið 520 til 540 milljónir króna. Tilboð Reykjavíkurborgar er háð því skilyrði að Handknattleikssam- band Islands geti tryggt þátttöku nkisvaldsins og annarra aðila vegna byggingarinnar með sam- svarandi fjárframlagi. Tillaga borgarstjóra var sam- þykkt af borgarráði. HSI og fjár- málaráðherra eiga næsta leik. Kaupfélag SKAGIIRÐINGA í Varmahlíð: Glæsilegur viðkomustaður - sem ferðamenn kunna að meta Okkar takmark er að veita sem besta þjónustu og þar sem þeim fjölgar stöðugt sem kjósa að hafa hér viðkomu er greinilegt að fólk kann að meta það sem við höfum upp á að bjóða,“ sagði Helgi Gunnarsson verslun- arstjóri í útibúi Kaupfélags Skag- fírðinga í Varmahlíð í samtali við blaðið. Glæsilegt útibú Kaupfélagsins í Varmahlíð vekur athygli allra sem þar hafa viðkomu. Þar er rekin stór og rúmgóð verslun ásamt veitinga- sölu í nýju og glæsilegri byggingu. Auk þess er þama bensínstöð með tilheyrandi þjónustu. „Fólk kann að meta þá aðstöðu sem hér er og við kappkostum að þjóna því sem best. Hér er til dæm- is mjög góð hreinlætisaðstaða sem rúmar fleiri en tvo í einu. Við eig- um enn nokkuð eftir við að laga umhverfið hér í kring en það verður gert á næstunni. Hér hefur tekist að gera verslun og veitingasölu svo vel úr garði að fólk hefur á orði að þetta sé með glæsilegustu við- komustöðum við hringveginn,” sagði Helgi Gunnarsson. Góður gróði hjá ÞORMÓÐIRAMMA HF. á Siglufirði: Hagnaður 32 milljóiiir fvrstu fimm mánuðina Um 250 manns starfa hjá fyrirtækinu yfir sumarmánuðina (íbúar á Siglufirði eru um 1.800) en að jafhaði voru starfsmenn um 200 í fyrra ■ ekstur Þormóðs ramma hf. á Siglufirði hefur gengið vel XX.það sem af er þessu ári. Hagnaður fyrstu fimm mánuðina nam 32,6 milljónum króna og var veltan á tímabilinu 602 milljónir króna. Þetta eru svipaðar tölur og á sama tímabili í fyrra þegar hagnað- ur var 37,9 milljónir króna og velt- an 577 milljónir. Þormóður rammi hefur bmgðist við kvótaskerðingu undanfarin ár með því að auka veiðar skipa sinna fyrir utan 200 mflna Jandhelgina. Fyrirtækið gerir nú út tvö skip til rækjuveiða á Flæmingjagrunni við Nýfundnaland, Arnarnes og Sunnu. Auk fyrmefndra skipa gerir Þor- móður rammi út Sigluvík og Stál- vík sem stunda rækjuveiðar við landið. Þá rekur fyrirtækið frysti- hús, rækjuverksmiðju, saltfiskverk- un og reykhús. Um 250 manns starfa hjá fyrir- tækinu yfir sumarmánuðina en að jafnaði vom starfsmenn um 200 í fyrra. Verulegar endurbætur hafa verið gerðar á rækjuvinnslu Þor- móðs ramma. Rýmingarsala Vegna breytingar á verslun. Mikill afsláttur af öllum vörum. DTfDarion Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 651147 á fifatU Sýningunni „ALÞINGI Á LÝÐVELDISTÍMA“ sem staðið hefur í AL- ÞINGISHÚSINUfrá 18. júní lýkur senn og er jostudagurinn 29. júlí síðasti sýningardagurinn. Aðsókn að sýningunni hefur verið mikil og hafa um 8 þúsund manns heimsótt Alþingishúsið afþessu tilefni. Markmiðið með sýn- ingunni er að gefa fólki kost á að koma í þinghúsið og kynnast störfum þingsins. í þingflokksherbergjum á fyrstu hœð hafa verið sett upp vegg- spjöld og á þeim fjallað um aðdraganda lýðveldisstofnunarinnar og starf- semi ALÞINGIS í máli og myndum. Einnig eru sýnd brot úr lýðveldishátíð- arkvikmynd. A annarri hœð hússins hafa verið settar upp myndir aföllum þingmönnum á lýðveldistímanum (- sjá meðfylgjandi mynd). I sal efri deild- ar eru til sýnis gjafir og ávörp sem þinginu bárust árið 1930 og í ár í tilefni af 50 ára lýðveldisafmœlinu. A lestrarsal eru síðan verkefni þingsins og störf þingmanna kynntá veggspjöldum. Ýmis prentaðurfróðleikur liggurframmi fyrir sýningargesti. Kaffistofa þingsins hefur verið opin almenningi á opn- unartíma sýningarinnar og þar er hœgt að setjast niður og fá sér kaffi og meðlceti. Sýningin er opin alla daga nema laugardaga frá klukkan 13:30 til 16:30. Alþýðublaðsmynd/EinarÓlason Hinir árlegu HAFNARDAGAR við Gömlu höfnina í Reykjavík 22 - 24 júlí Föstudag - Laugardag og Sunnudag Dagskrárliðir m.a.: > Fisk- og grænmetismarkaður > Útileikhús > Götuleikhús > Skemmtisigling um sundin > Siglingakeppni > Harmonikkuball á hafnarbakkanum > Flugeldasýning REYKJAVÍKURHÖFN MÞYBUBUW

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.