Alþýðublaðið - 20.07.1994, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MENNING
Miðvikudagur 20. júli 1994
Listasafti Reykjavíkur að
KJARVALSSTÖÐIM:
Aíar f]ölbre\tfleg
menningarmiðstöð
fyrir alla aldurshópa
að þurfa að vera fyrir
hendi greinargóðar upp-
lýsingar um listasöfn
borgarinnar til að vekja athygli
aimennings og ferðafólks á því
sem söfnin hafa uppá að bjóða.
Ég útbjó upplýsingar á íslensku
og ensku um Listasafn Reykja-
víkur sem hefur verið dreift til
aðila ferðaþjónustunnar í borg-
inni. Við bjóðum safnaleiðsögn
á mörgum tungumálum og við
þurfum að átta okkur á því að ís-
lensk menning er áhugaverð í
augum erlendra ferðamanna,"
sagði Anna Margrét Bjarna-
dóttir hjá Listasafni Reykja-
víkur að Kjarvalsstöðum í sam-
tali við Alþýðublaðið.
Anna Margrét hefur búið í
Frakklandi og á Spáni að und-
anfömu en starfað við Listasafn
Reykjavíkur að Kjarvalsstöðum
síðan hún kom heim í vor. Hún
hefur brennandi áhuga á að
vekja meiri athygli á listaverk-
um safnsins og þýðingu safns-
ins í menningarlífi þjóðarinnar.
Anna Margrét segist hafa mik-
inn áhuga á því að okkur takist
að gera Reykjavík að Menning-
arborg Evrópu árið 2000 eins
og rætt hefur verið um. En það
er Listasafn Reykjavíkur að
Kjarvalsstöðum sem er á dag-
skrá hjá okkur að þessu sinni, en
Anna Margrét hefur greinar-
góðar upplýsingar um það á tak-
teinum. Hún bendir réttilega á
að það eru margir sem ekki átta
sig á því að á Kjarvalsstöðum
eru í raun fjögur söfn: Kjarvals-
safn, Errósafn, Byggingar-
listasafn og Bókasafn Lista-
safns Reykjavíkur. Þar að auki
er Asmundarsafn einnig hluti
af Listasafni Reykjavíkur. Hérá
eftir eru nánari upplýsingar um
starfsemi safnsins.
Sýningar sumarsins
Nú er síðasta sýningarvika á
íslenskri samtímalist sem er
hluti af dagskrár Listahátíðar
1994.
Sýning Kristins Hrafnsson-
ar í Ásmundarsafni var opnuð í
maí og stendur hún í óákveðinn
tíma. Stjóm Ásmundarsafns
ákvað á síðasta ári að taka upp
þá nýbreytni að gefa starfandi
myndhöggvara tækifæri til að
sýna verk sín innan um verk Ás-
mundar Sveinssonar í safninu,
sem fyrst og fremst er ætlað að
geyma verk hans sjálfs. Kristinn
Hrafnsson myndhöggvari varð
fyrstur fyrir valinu og verður
verkum hans komið fyrir í hluta
safnsins. Tilgangurinn með ný-
breytninni er tvíþættur. I fyrsta
lagi á hún að gefa gestum tæki-
færi til að sjá verk beggja lista-
mannanna í víðara samhengi og
í öðm lagi að skynja tengslin á
milli þeirra, þótt ekki séu þau
augljós.
Sýning á verkum Kjarvals
verður í Austursal 6. ágúst til
11. september. I Vesturforsal
verður ljóðasýning, unnin í
samvinnu við Rás 1, á verkum
Egils Skallagrímssonar. í
Miðsal verður sýning á verkum
Kristins G. Harðarsonar.
Hann hefur markað sér per-
sónulegt svið með listsköpun
sinni, sem umfram allt felst í því
að taka þekkta hluti - oftast
venjulega og ómerkilega hluti -
úr sínu uppmnalegu umhverfi
og gefa þeim nýja og óvænta
merkingu. Þótt verk hans séu oft
fátækleg að efni og gerð búa
þau ávallt yfír furðulegri Ijóð-
rænu.
✓
Sigurður Arni og
Magnús Pálsson
í Vestursal verður Sigurður
Árni Sigurðsson með sýningu.
Sigurður Ámi er ungur mynd-
listarmaður sem vinnur með
hefðbundin efni og notar hefð-
bundnar aðferðir: olíulitir á
striga. í fyrstu vann Sigurður
Ámi út frá hugmyndum súrreal-
ismans og lék sér með mynd-
hvörf hlutanna. En á síðastliðn-
um ámm hefur hann fyrst og
fremst sett á svið ljóðrænar
myndsenur og uppstillingar sem
hann endurtekur í sífellu á stór-
um myndfletinum.
Frímerkjasýning verður að
Kjarvalsstöðum 13. til 20. sept-
ember. Frá 24. september til 23.
október verður sýning á verkum
Magnúsar Pálssonar. Hann
var einn aðalþátttakandinn í
þeim umbreytingum í íslensku
listalífi á 7. áratugnum þegar
framsæknir listamenn settu til
hliðar hefðbundin efni og að-
ferðir við listsköpunina og tóku
að vinna út frá listhugmyndum
tengdum fluxushreyfingunni,
arte Povera og conceptlistinni.
Allar götur síðan hefur Magnús
Pálsson kunnað að þróa á per-
sónulegan hátt hugmyndalega
listsköpun jafnframt því sem
hann hefur lagt stóran skerf til
kennslu íslenskra myndlistar-
manna á síðastliðnum áratug.
Frá 5. nóvember til 4. desem-
ber verður Erró sýning á verk-
um sem hann gaf hingað. Þá er
ógetið sýningar á vegum safns-
ins utan Reykjavíkur, bæði úti á
landi og í útlöndum. Nokkrir
fyrirlestrar eru ennfremur fluttir
í safninu.
Sýningarskrár eru gerðar fyrir
allar þessar sýningar.
Safnaleiðbeinendur
Að Kjarvalsstöðum fer fram
mikilvægt uppfræðslu- og upp-
lýsingastarf. I safninu eru starf-
andi safnaleiðbeinendur sem
fara með fólk um safnið og að-
stoða við að skilja betur sýning-
amar á mörgum tungumálum,
uppfræða fólk um listamennina
sem halda sýningamar og svara
spurningum. Það er langt frá því
að safnaleiðsögn sé aðeins fyrir
fullorðna. Safnaleiðbeinendum-
ir hafa ákaflega gaman af að
taka á móti bömum. Þeir leggja
áherslu á að aðlagast hverjum
hópi fyrir sig og ná góðu sam-
bandi við þá.
Á vetuma er mjög algengt að
tekið sé á móti skólabömum.
Eftir heimsókn þeirra sér safnið
um að þau fái verkefni með sér
til baka í skólann um safnaferð-
ina. Ymis leikjanámskeið sækja
lfka oft safnið heim. Á sumrin
er tekið á móti leikskóla- og
dagheimilisbömum og er þá
glatt á hjalla. Safnið er skoðað
og síðan er spjallað og sungið
en á eftir geta bömin borðað
nestið sitt og leikið sér í leik-
tækjum á Miklatúni. Þá þykir
bömunum ekki síður gaman að
koma í Ásmundarsafn.
Safnaleiðsögnina verður allt-
af að panta fyrirfram. Þó er allt-
af þar að auki safnaleiðsögn á
sunnudögum fyrir almenning
klukkan 16.00.
Endurbætt kaffistofa
Kaffistofa Kjarvalsstaða er
alltaf opin þegar safnið er opið.
Hún var nýlega gerð upp og er
nú orðin reglulega hugguleg.
Þar kennir ýmissa grasa, allt frá
gómsætum tertum og pönnu-
kökum upp í heilnæm salöt.
Kaffi og te er innifalið með
smáréttum og tertum, en annars
kostar kaffið aðeins 100 krónur.
Verðið er ávallt í algjöm lág-
marki og girnileg tilboð em allt-
af í gangi.
Á sumrin er hægt að sitja úti á
stétt og njóta veitinganna. Stétt-
in snýr ákaflega vel á móti sól
og þar er mjög skjólsælt og
einnig má fara í sólbað í skjól-
sælum lautum Miklatúns. Á
túninu em þar að auki ýmis leik-
tæki íyrir börn og stendur til að
fjölga þeim. Á vetmm er mikið
um skíðafólk á Miklatúni og
kemur það gjaman inn að hlýja
sér á heitu kakói.
Mögulegt er að fá safnið til
leigu fyrir ýmiskonar manna-
mót og þar að auki getur safnið
annast veitingar fyrir hópa. Á
safninu er góð aðstaða fyrir
hverskyns móttökur og prýðileg
fyrirlestraraðstaða. Starfsfólk
hefur mikla reynslu af að taka á
móti stómm hópum sem hefur
líkað vel og þótt þetta skemmti-
leg tilbreyting.
Bókasafn Listasafnsins
Nýlega var tekið í notkun að
Kjarvalsstöðum Bókasafn
Listasafns Reykjavíkur. Uppi-
staðan í safninu em einkabóka-
söfn Kjarvals, Ásmundar
ANNA MARGRÉT BJARNADÓTTIR stendur hér við hluta af listaverkinu „Gildi“ efiir RÚRÍ. Þessi
hluti nefnist 42 metrar. Listaverk Rúríar er á sýningunni SKÚLPTÚRJSKÚLPTÚR/SKÚLPTÚR að
Kjarvalsstöðum sem lýkur um nœstu helgi. Þar eru sýnd verk eftir 29 íslenska myndlistarmenn sem
fram hafa komið á eftir hinni svonefndu SÚM-kynslóð og hafa endurnýjað hugmyndir um skúlptúr-
listina.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Sveinssonar og Errós, en safn-
inu hafa líka borist veglegar
gjafir svo sem stór bókagjöf frá
franska ríkinu.
Aðaláherslan hefur verið lögð
á myndlist 20. aldar en einnig
em í safninu bækur um hin
ýmsu tímabil listasögunnar,
uppsláttarrit um listamenn, efni
og aðferðir og ýmis fræðileg
efni tengd myndlist.
Kjarvalsstaðir, sem er stærsti
útgefandi listaverkabóka á land-
inu, er í bókaskiptum við öll
stærstu söfn erlendis, það er út-
gáfur Kjarvalsstaða em sendar í
skiptum fyrir útgáfur hinna
ýmsu safna tvisvar til þrisvar á
ári. Með þessu móti fær safnið
mjög fljótt allar nýjustu upplýs-
ingar um sýningar og útgáfur
erlendra safna. Bækumar í safn-
inu em ekki til útláns, enda er
safnið byggt upp til að geta
þjónað listamönnum, listanem-
um, nemum í listasögu og öðr-
um aðilum sem gagnasafn. Að-
staða er til lesturs á safninu og
einnig er hægt að ljósrita úr
bókum og blöðum. Á safninu er
einnig skráð bréfasöfn Kjarvals
og Errós auk ýmissa annarra
heimilda. Verið er að vinna skrá
um íslenska listamenn.
Safnið stækkar sífellt
Nú þegar telur bókasafnið um
2.600 skráð eintök fyrir utan
einkasafn Jóhannesar Kjarvals
sem telur um 550 eintök. Safnið
er stöðugt að stækka og þróast.
Má nefna að á næstunni er
væntanleg stór bókasending, en
kaup á henni em styrkt af
Menningarstofnun Bandaríkj-
annna, frá hinum ýmsu banda-
rísku útgáfum. Með tilkomu
hins nýstofnaða Byggingar-
safns Reykjavíkur, innan Lista-
safns Reykjavíkur, verður lögð
aukin áhersla á að hafa til taks
bækur um byggingalistasögu
arkitekta og fleira. Bókasafnið
er opið í samráði við bókavörð.
Að Kjarvalsstöðum er einnig
bóksala við söluborð í anddyri.
Þar er hægt að kaupa nýjar sem
gamlar sýningarskrár, þær fjöl-
mörgu listaverkabækur sem
safnið gefur út auk annarra
bóka, gifsafsteypur af verkum
Ásmundar Sveinssonar, plaköt,
kort og fleira. Til Kjarvalsstaða
em keypt ljölmörg erlend lista-
tímarit svo sem Art, Artfomm,
Art Press, Art in America, Art
News, Beaux Arts, Flash Art,
Galleries Magazine, Parkett,
SIKSI og fleiri. Nýjustu hefti
þessara tímarita liggja alltaf
frammi í leskrók safnsins, en
eldri eintök em geymd í bóka-
safninu. Jafnframt em til á safn-
inu íslensk tímarit sem tengjast
menningu og listum, svo sem
Arkitektúr og skipulag, Tímarit
Máls og menningar, Skímir og
fleira. I leskróknum er svo hægt
að lesa íslensku dagblöðin svo
og sunnudagsútgáfur erlendra
stórblaða.
Byggingarlistasafn
Byggingarlistasafn er ný sér-
deild innan Listasafns Reykja-
víkur sem tók til starfa haustið
1993. Hlutverk deildarinnar er í
gmndvallaratriðum tvíþætt;
annars vegar gagna- og heim-
ildarsöfnun um íslenska bygg-
ingarlist með sérstaka áherslu á
20. öldina og verk íslenskra
arkitekta, hins vegar almenn
upplýsingamiðlun um bygging-
arlist með sýningarhaldi, út-
gáfustarfsemi, fyrirlestmm og
kynnisferðum. Áformað er að
halda tvær sýningar á ári á veg-
um deildarinnar (frá og með
sýningarárinu 1995) og verða
þær hluti af hinni almennu sýn-
ingarstarfsemi Kjarvalsstaða.
Hugmyndin er að Byggingar-
listasafnið megi í framtíðinni
verða miðstöð sérhæfðra rann-
sókna og upplýsingamiðlunar á
sviði íslenskrar buggingarlistar.
Skrifstofa safnsins er að Kjar-
valsstöðum og allar nánari upp-
lýsingar um starfsemina veitir
Pétur H. Ámiannsson safnvörð-
ur.
21 ár frá opnun
í ár em liðin 21 ffá því að
Listasafn Reykjavíkur að Kjar-
valsstöðum var opnað. Að Kjar-
valsstöðum eru fjögur söfn:
Kjarvalssafn, Errósafn, Bygg-
ingarlistarsafn og Bókasafn
Listasafns Reykjavíkur og em
öll þessi söfn hluti af Listasafni
Reykjavíkur. Þar að auki er Ás-
mundarsafn einnig hluti af
Listasafni Reykjavíkur.
Að Kjarvalsstöðum eru
haldnar íslenskar og erlendar
listsýningar á vegum Listasafns
Reykjavíkur, tónleikar, fyrir-
lestrar og málfundir. Kjarvals-
staðir standa þar að auki fyrir
sýningum víða um land og víða
um heim. Kjarvalsstaðir hýsa
Kjarvalssafn sem hefur að
geyma málverk og teikningar
eftir Jóhannes Sveinsson Kjar-
val (1885-1972) auk bréfa hans
og persónulegra muna. Að
Kjarvalsstöðum er jafnframt
varðveitt umfangsmikið safn
verka og gagna sem listamaður-
inn Erró gaf Reykjavíkurborg
árið 1989.
í Ásmundarsafni við Sigtún
em 370 höggmyndir og urn
2000 teikningar, sem Ásmund-
ur Sveinsson ánafnaði Reykja-
víkurborg eftir sinn dag. Miklar
endurbætur hafa farið fram á
safninu, sem var áður heimili
listamannsins og vinnustofa, og
er það nú orðið eitt glæsilegasta
höggmyndasafn landsins.
Menningarmiðstöð
„Við leggjum áherslu á að
Kjarvalsstaðir séu lifandi, fjöl-
skylduvænt safn, áhugavert og
skemmtilegt fyrir alla aldurs-
hópa. Þetta er sannkölluð menn-
ingarmiðstöð,“ sagði Anna
Margrét Bjarnadóttir.
Böm fá frítt inn til 16 ára ald-
urs svo og ellilífeyrisþegar. í
safninu er bamahom þar sem
böm geta dundað sér við að
púsla, teikna, lesa bækur, lita
eða raða kubbum á meðan for-
eldramir skoða sýningar. Einnig
er hægt að fara í ljölskyldurat-
leiki og fjölskyldupúsluspil.
Margir merkir listviðburðir
og aðrir viðburðir hafa átt sér
stað á Kjarvalsstöðum og marg-
ir frægir listamenn og þjóðhöfð-
ingjar hafa sótt safnið heim.