Alþýðublaðið - 11.08.1994, Qupperneq 1
Hákarlabijósk frá Kraft-
lýsi hf. er nú til skoðun-
ar hjá Bandarísku
krabbameinsstofnuninni. Það er
doktor Patrick QuiUin, sem
stjómar þeirri rannsókn, - en
hann er einn fimm ræðumanna
á fundi Bœndasamtakanna og
Náttúrulœkningafélags Is-
lands á almennum, opnum
fundi í Súlnasal Hótel Sögu
klukkan 20.30 í kvöld. Þar
verður fjallað um áhrif mata-
ræðis á heilsufar og vellíðan
fólks. Frummælendumir fimm
em virtir bandarískir læknar,
næringarfræðingur og sálíf æð-
ingur, sem hér hafa ferðast og
kynnt sér meðal annars starf
Náttúrulækningafélagsins í
Hveragerði, íslenskt heilsufæði,
lífræna ræktun, notkun hvera-
vatns og leirbaða svo eitthvað
sé nefnt.
Ætlunin er að bandaríska
krabbameinsstofnunin, Cancer
Treatment Centers of America,
kaupi hákarlabijóskið beint frá
framleiðanda og noti það í efdr-
meðferð krabbameinssjúklinga.
Er hákarlabijósk þekkt vara á
bandarískum heilsuvömmark-
aði. í fyrrgreindri rannsókn er
meðal annars gerður saman-
burður á bijóski hákarla frá ís-
landi og ffá Costa Rica.
Doktor Quillin hefur auk
þess áhuga á að kynna sér ís-
lenska heilbrigðisþjónustu með
það fyrir augum að senda sjúk-
linga hingað til lands í eftir-
meðferð. Stofnun hans leggur
mikla áherslu á holla fæðu í eft-
irmeðferð og þá einkum lífrænt
fæði, en það er einmitt slíkt
fæði sem nú er á boðstólum hjá
Heilsustofnun Náttúmlækn-
ingafélags Islands í Hveragerði.
Dr. Quillin heldur í kvöld er-
indi sem hann nefnir: Rétt
matarœði gegn krabbameini.
Einn þeiira sem heldur erindi
á fundinum í kvöld er A. Gord-
on Reynolds, lækningaforstjóri
við La Costa Spa, eina virtustu
og dýmstu meðferðarstofnun
Bandaríkjanna. Hann hefur
mikinn áhuga á að skoða
möguleika sem hann telur að
séu í nýtingu hitaveituvatnsins
og leirsins hér á landi. Erindi
Reynolds í kvöld fjallar um
raunverulegt heilbrigði með
hollu lífemi og réttum lífsstíl.
Doktor Jonelle Reynolds,
sálfræðingur við La Costa Spa,
mun fjalla um einbeitingu og
hlutverk hugans til að ná yfir-
höndinni í baráttunni gegn
sjúkdómum. Hún er þekkt á
sínu sérsviði, sem íjallar um
hlutverk sjúklingsins sjálfs í
endurhæfmgu, hlutverk hugar-
aflsins við að ná tökum á og
vinna gegn sjúkdómum strax í
upphafi. Doktor Reynolds er
þekkt fyrir ráðgjöf sína og hjálp
við þá sem hjálparþurfi em
vegna sjúkdóma eins og
krabbameins. Hún er eftirsótt í
sjónvarpsþáttum vestra sem
fjalla um endurhæfingu og
sjálfshjálp.
Erindi doktor James Logan
frá Telemedicine North Amer-
ica, fjallar um hátækni, fjar-
skipti og læknishjálp. Dr. Log-
an starfaði um árabil sem einn
af læknum geimfara NASA,
geimferðastofnunar Bandaríkj-
anna. Telemedicine einbeitir
sér að því að nýta aðgerðir
geimferðatækninnar í nútíma
heilbrigðisþjónustu, bæði hvað
varðar kostnað og aðferða-
fræði. Fyrirlestrar hans um það
hvemig nýta megi þekkingu úr
geimferðum til að bæta sam-
skipti lækna á alþjóðavettvangi
eru kunnir í Bandaríkjunum og
víðar.
Loks er að geta erindis dokt-
or Shari Lieberman, en hún
hefúr doktorsgráðu í næringar-
fræðum og líkamsæfingum
sjúkra. Erindið í kvöld fjallar
um hlutverk næringar og fæðu-
vals í meðferð hjartasjúkra,
gigtveikra og alnæmissjúkra.
Lieberman er vel þekkt í
heimalandinu fyrir bækur sínar,
sjónvarpsframkomu og skrif í
tímarit eins og Ladies Home
Joumal og Mademoiselle og
fleiri.
FUOJVINNSLA um bord I vdðydpum:
Þorsteinn frestar 60% reglunni
Þorsteinn Pálsson sjávar-
útvegsráðherra hefur
ákveðið að fresta um eitt
ár gildistöku ákvæðis reglu-
gerðar um 60% nýtingu þorsks,
ýsu og ufsa hjá eldri full-
vinnsluskipum meðan endur-
skoðun laga um þetta efni fer
fram. í maímánuði 1992 vom á
Alþingi samþykkt lög um full-
vinnslu botnfiskafla um borð í
veiðiskipum, sem tóku gildi 22.
júní sama ár. I þessum lögum
var mörkuð sú meginstefna, að
öll skip, sem fullvinna botnfisk
um borð, skyldu koma með all-
an afla að landi, þar með talið
slóg og fiskúrgang, sem til félli
við vinnsluna. Þeim skipum
sem höfðu hafið vinnslu fyrir
gildistöku laganna eða smíði
var hafin á fyrir 22. júní 1992,
var veittur ffestur til 1. septem-
ber 1996 til að fullnægja þessu
ákvæði. Nýjum skipum var
ekki veittur neinn frestur í
þessu efni. Jafnhliða þessu vom
gerðar auknar kröfur til eldri
fullvinnsluskipa um nýtingu
aukaafla og fiskúrgangs og var
meðal annars ákveðið í reglu-
gerð, að fyrir fiskveiðiár það
sem hæfist 1. september 1994
bæri þeim að hafa náð 60%
meðalnýtingu á þorski, ýsu og
ufsa. Nokkrar umræður hafa
orðið um stefnu þá sem mörk-
uð er í lögunum gagnvart eldri
fullvinnsluskipunum og hefur
sjávarútvegsráðuneytið ákveðið
að láta endurskoða ákvæði lag-
anna sem að þeim snúa. Jafn-
framt hefur ráðuneytið ákveðið
að fresta um eitt ár gildistöku
ákvæðis reglugerðarinnar um
60% nýtingu þorsks, ýsu og
ufsa hjá eldri fullvinnsluskipum
meðan endurskoðun fer fram.
ÁHRIF MATARÆÐIS á heilsufar og vellíðan í umfjöllun
fímm bandarískra sérfræðinga á almennum frmdi í kvöld:
Hakarlabrjósk
héðan á amerískan
heilsumarkað?
Jahnsan
UTANBORÐSMÓTORAR
Abyraiurriei
i nrh
PJOrillSEL:
UMBOÐSSALAN HF.
Seljavegi 2 • 101 Reykjavík • Sími: 91-26488
SELJUM EINNIG:
• Sjóskíði
• Hnébretti
• Vatnablöðrur
• Kajaka
• Kanóa
• Seglbretti