Alþýðublaðið - 12.08.1994, Síða 5
Föstudagur 12. ágúst 1994
MOLAR
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
au stórmerkilegu og góðu tíðindi hafa bor-
ist ferðaglöðum ökumönnum, að um næstu
mánaðarmót verði akstursleiðin milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur öll með bundnu slitlagi.
Að sögn Vegagerðar ríkisins er þama um tvo
áfanga að ræða sem klárast um mánaðarmótin
og unnið hefur verið við í allt sumar. Þessir
kaflar eru hin varasama Öxnadalsheiði og nýi
vegurinn við Bólstaðarhlíðarbrekku (SJA
MYND). í þeirri bröttu brekku verður um
gjörbyltingu að ræða þar sem nýi vegurinn
mun liggja beint upp frá Húnaveri og losna
ökumenn þá við stóran og hættulegan hlykk
sem er á gamla veginum.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Tómasson, sendiherra og ffáfarandi fastafull-
trúi fslands hjá Sameinuðu þjóðunum, hafi
umsjón með málefnum Ráðstefnu um öryggi
og samvinnu í Evrópu (RÖSE) innan alþjóða-
ski'ifstofu ráðuneytisins ffá og með 15. sept-
ember næstkomandi. Ennfremur hefur verið
ákveðið að Helgi Agústsson, fráfarandi sendi-
herra íslands í London, taki við hafréttarmál-
um og málefnum Asíuríkja innan sömu skrif-
stofu frá og með 1. janúar næstkomandi.
Þessa helgi verður hefðbundin dagskrá í
Viðey. A laugardag klukkan 14:15 verður
gengið af Viðeyjarhlaði á Austureyna. Þetta er
hálfs annars tíma ganga og menn þurfa góða
gönguskó. Byijað verður á að skoða ljós-
myndasýninguna í Viðeyjarskóla en síðan
verður gengið um Sundbakkann og með suð-
urströndinni um Kvennagönguhóla heim að
Stofu aftur. Þama ber margt fyrir augu og gott
að njóta leiðsagnar kunnugra. A sunnudag
verður messa klukkan 14 og séra Hjalti Guð-
mundsson messar, en Dómkórinn syngur og
Marteinn H. Friðriksson verður við orgelið.
Sérstök bátsferð með kirkjugesti verður farin
klukkan 13:30. Eftir messu klukkan 15:15
verður svo staðarskoðun. Þá er þremur stund-
arfjórðungum varið til að skoða kirkjuna, fom-
leifauppgröftinn og annað í næsta nágrenni
Viðeyjarstofu. Til þess þarf engan sérstakan
útbúnað og þetta mun vera öllum auðvelt. Að
sjálfsögðu em veitingar á boðstólum í Viðeyj-
arstofu alla daga og hestaleigan opin. Ljós-
myndasýningin er opin þessa daga ffá klukkan
13:20 til 17:00. Bátsferðir em á heila tímanum
í land. Síðasta eftirmiðdagsferðin í land er
klukkan 17:30 og kvöldferðir heljast svo
klukkan 19:00.
Tórrmog
Helgi fœra
sig
Samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu hefur verið ákveðið að Tómas Á.
Verslunarráð íslands heldur morgunverð-
arfund í dag, föstudaginn 12. ágúst, þar
sem fjallað verður um stöðu Islands í heimi sí-
vaxandi samstarfs og samskipta þjóða á fjöl-
mörgum sviðum. Fundurinn er haldinn undir
yfirskriftinni: Hvað á ísland heima? Fmm-
mælandi er Jónas H. Haralz, fyrrverandi
bankastjóri, sem hefur víðtæka reynslu og
þekkingu á þessum málum og hefur búið í
Bandaríkjunum um nokkurt skeið. Þeir
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðs-
ins, og Þórarinn Viðar Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasambands ís-
lands, munu gefa álit sitt á ræðu Jónasar og
taka þátt í pallborðsumræðum. Fundurinn
verður haldinn í Skálanum á Hótel Sögu og
hefst klukkan 08:00 og lýkur klukkan 10:30.
Fundurinn er öllum opinn en þátttöku þarf áð
tilkynna til Verslunarráðs, í síma 886 666.
Sameiginlegt umferðarátak lögreglunnar í
Grindavík, Kejlavík, Hafnarfirði, Kópa-
vogi, Selfossi og Reykjavík verður dagana 15.,
16. og 17. ágúst næstkomandi. Athyglinni
verður beint sérstaklega að ljósanotkun og
ljósabúnaði ökutækja svo og ökuhraða stórra
fólks- og vömflutningabifreiða. Nánari upp-
lýsingar veitir Sævar Gunnarsson, aðalvarð-
stjóri hjá lögreglunni í Reykjavík.
SnyrtUegur
Garðabœr
Bœjarstjórn Garðabœjar hefur ákveðið að
fenginni tillögu umhverfismálanefndar
bæjarins að fimm aðilar í Garðabæ hljóti við-
urkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi á árinu
1994.1 fyrsta lagi fengu þrír aðilar viðurkenn-
ingu fyrir lóðir íbúðarhúsnæðis: (a) Eigendur
Hœðarbyggðar 11 fyrir smekklega hannaða
lóð þar sem hæðarmismunur er nýttur mjög
hugvitsamlega jafnt í framgarði sem bakgarði.
Til dæmis heyrist lækjamiður út frá lóðinni, en
þar hefur verið útbúinn lækur með smá fossi.
Blómategundir em einnig afar fjölbreyttar í
garðinum. (b) Eigendur Goðatúns 12 hlutu
viðurkenningu fyrir framúrskarandi endur-
gerðan garð í elsta hverfi bæjarins. Garðurinn
hefur verið opnaður út á götunni og er þar að
finna mikið blómaskrúð. (c) Eigendur Hegra-
ness 31 hlutu viðurkenningu fyrir heildarsvip
lóðar. Lóðin fellur vel saman í eina heild þrátt
fyrir að hún sé mjög stór. Á lóðinni er smekk-
legur tijá- og blómagróður. í öðm lagi hlaut
Lyfhf að Garðaflöt 16-18 viðurkenningu fyrir
lóð atvinnuhúsnæðis. Unnið hefur verið að
endurgerð lóðarinnar að hluta. I þriðja og síð-
asta lagi var Faxatún valin snyrtilegasta gatan
í Garðabæ árið 1994.
laus og fer yfir öll mörk í samskiptum sínum
við annað fólk. Nicholas Pierce er bandarískur
rithöfundur, bóhem, blaðamaður og stjúpfaðir
Ramons. Nicholas er fæddur flagari og fyllir
inn í það kynlífstómarúm sem skapast hefur
hjá Kiku vegna ástandsins sem Ramon er
stöðugt í. Ramon veit að sjálfsögðu ekkert um
þetta gmnsamlega samband stjúpföður síns og
ástkonu; ekki frekar en Kika veit um brostið
samband Ramons og Andreu. Juana er þema
Kiku og Ramons, hún er ástfangin af húsfrú
sinni. Þegar bróðir Juönu, klámmyndaleikar-
inn og glæpamaðurinn Pablo, strýkur úr fang-
elsi kemur hann heim til Kiku og nauðgar
henni. Þetta er hinsvegar ekki það versta sem
kemur fyrir Kiku því Andrea Örfés á eftir að
sjónvarpa atburðinum. Farsinn breytist í hrylli-
legt drama sem sjónvarpið sér um að skemmta
ljöldanum með. Greinilega dæmigerð Almo-
dóvar mynd; ófullkomið óreiðumeistaraverk
og leikstjórinn spyr áhorfendur hvenær sé nóg
komið.
/
Háskólabíó fmmsýnir í dag, föstudaginn
12. ágúst, kvikmyndina KIKA eftir
spænska leikstjórann Pedro Almodóvar
(„Konur á barmi taugaáfalls“, „Bittu mig“ og
„Háir hælar“). KIKA er klassísk Almodóvar
mynd; litrík, erótísk, ögrandi, írónísk, örvænt-
ingarfull og bjartsýn, full af andstæðum,
þmngin orðræðu og tónlist, dramatísk, fyndin
og óreiðukennd. Sem sagt: Ófullkomið meist-
araverk! í KIKA hefur Almodóvar kallað til
starfa marga gamla samstarfsmenn til að festa
hendur á bóhemalífi hinnar nútímalegu Madr-
ídborgar, en í aðalhlutverkum em Victoria
Abril, Veronica Forquet og Peter Coyote.
Söguþráður myndarinnar hljómar eitthvað á
þessa leið: Kika er förðunardama sem býr með
Ramon, einrænum ljósmyndara sem sérhæfir
Vernharður Linnet, djassgeggjarinn góð-
kunni, flytur fyrirlestur um djass fyrir og
framyfir stríðsárin í Kornhúsinu á Árbæjar-
safni næstkomandi sunnudag, 14. ágúst. Fyrir-
lesturinn hefst klukkan 15:30 og að honum
loknum mun tríó Tómasar R. Einarssonar
leika djass frá klukkan 16:00 til 17:30. Um
helgina verður annars að vanda mikið um að
vera í Árbæjarsafni. I hinum ýmsu húsum
safnsins verður fengist við skógerð, lummu-
bakstur og tóvinnu, auk þess sem danski eld-
smiðurinn Thomas Nprgaard verður við
störf í smiðjunni í Árbæ. Einnig mun sjó-
maður riða net við Nýiendu og Karl Jónat-
ansson mun leika á harmónikku. Einsog alltaf
verða lúffengar veitingar á boðstólum hjá
kvenskörungunum í Dillonshúsi.
Alþýðublaðsmynd / Einar Óiason
sig í að mynda nærfatnað
kvenna. Þau em ákaflega
ástfangin en skilja í raun-
inni ekki hvort annað.
Sjálfsmorð föður Ramons
hefur haft gífurleg áhrif á
hann og því talar Ramon
næstum ekkert neitt en tjá-
ir sig í staðinn í gegnum
myndir sínar. Andrea Ör-
fés, erkióvinur Kiku, er
kynnir í sjónvarpsþáttum
sem heita „Martröð dags-
ins“ og byggjast á smekk-
lausri umfjöllun um hrylli-
legustu atburði dagsins.
Andrea er gjörsamlega sið-
Ltn«
Vinningstölur --------------
miövikudaginn: 10. ágúst 1994
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPH/EÐ Á HVERN VINNING
EK — 5 22.702.000
5 af 6 LÆ+bónus 1 1.853.842
pcl 5 af 6 6 79.261
0 4af6 437 1.731
OSj 3 a f 6 t*Jn+honns 1.451 223
Aðaltölur:
@®@
BÓNUSTÖLUR
Heildarupphæð þessa viku:
116.919.428]
á Isl.:
3.409.428
UPPLYSINGAR, SÍMSVARI 91> 6815 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
~mmm............... —---------------------------------
Stm Uinningur 1 í r Noregs (1), Svíþjóðar (2) og Danmerkur >(2)