Alþýðublaðið - 19.08.1994, Síða 7
Föstudagur 19. ágúst 1994
VILLT
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
S
\síðasta sumri hrelldi
það helst veiðimenn
hversu hryssingsleg
tíðin var meira og minna allt
fram á haustið. Var jafnvel
um það talað, að sumarið
hefði bókstaflega aldrei látið
sjá sig á Norðurlandinu. Þar
var hitastigið oft niður undir
frostmarki jafnvel yftr heit-
ustu mánuðina.
Nú í sumar eru hitabrækjan
og stillumar hins vegar að
gera út af við veiðimenn.
Stafalogn og 20 stiga hiti
með tilheyrandi vatnsleysi
hafa verið algengar aðstæður
veiðimanna víða á landinu.
Og er svo sem ekki til að
hjálpa uppá sakimar þegar
íiskamir em í þokkabót fáir
til að eiga við.
Hvers vegna léleg
veiði?
Það veldur stangaveiði-
mönnum eðlilega bæði
tihyggjum og heilabrotum
hvers vegna veiðin er svo af-
spymu léleg í mörgum ánum
og þá sérstaklega á vestan-
verðu Norðurlandi og austur
um.
í niðursveiflunni miklu á
árabilinu 1981 til 1984 lögð-
ust nienn í sömu rökræðum-
ar. Þá vom áhyggjur rnanna
miklar af úthafsveiðum á laxi
ásamt netavciði með strönd-
um fram. Þá var að auki hið
óhemju kalda vor 1979 dreg-
ið inn í þá umræðu.
Hið gífurlega starf sem
unnið hefur verið á því sviði
að stöðvar veiðar á laxi í sjó
gerir að verkum að vart er
þeim utn að kenna hversu
veiðin er treg.
Hið kalda sumar í fyrra er
því sterklega gmnað um að
vera aðal sökudólgurinn í
tnálinu.
Seiðin sem áttu að skila sér
á þessu suntari scm cins árs
lax í sjó hafi hugsanlega
meira og minna misfarist í
kuldunum. Þannig sé úti æv-
intýri sumarið 1994.
Dauft í Aðaldalnum
lutxá í Aðaldal ásamt þeim
ám sem í hana renna, Reykja-
dalxá og Mýrarkvísl hafa
verið daufari en til mjög
langs u'rna.
Einn gamalgróinn Laxár-
veiðimaður fullyrðir að við
Laxá sé ástandið lakara en
hann muni eftir í 30 ár. Þá
hafa hinir miklu hitar gert
það að verkum að þcssí
mesta slýverksmiðja norðan
AlpttJjalÍa hefur framleitt
meira á köflum í sumar af
slýi en oftast áður.
Jtifnvel staðföstustu menn
hafa verið við það að „gebb-
ast“ þegar ekki hefur náðst
hreint kast svo klukkudmum
skiptir. Þá hendir það að auki
að þegar svo fiskur slasast á
öngul hleðsl þessi ófögnuður
umsvifalaust á línuna og hef-
ur fiskana jafnvel af lang-
þreyttum veiðimönnum.
En kannski er öll þessi
framleiðsla á slýinu aðferð
náttúrunnar til að vemda þá
fáu fiska sem eru á sveimi
þessa dagana!
Laxá hefúr nú gefið milli
800 og 900 laxa. Eitthvað
hefur verið að reytast inn af
smálaxi og svo hefur einn og
einn stór gefið sig í bland.
Þannig vciddist til dæmis 21
punda fiskur á Mjósundinu á
sunnudaginn var.
Þeir laxar sem vigta yfir 20
pundin eru trúlega komnir á
þriðja tuginn, en það hefur
ekki gerst í nokkur ár í Aðal-
dalnum. Til gamans má geta
þess, að sumarið 1974 veidd-
ust á svæðum Laxárfélagsins
61 lax, 20 pund og þyngri og
þar af einn 20 pundttri.
Svo farið sé í tölfræðina,
þá veiddist einnig 30 pundari
árið 1984, í Harðeyrarstreng
í Víðidaká og var það stærsti
laxinn það sumarið.
„Stórmeistarar“ og
„meistarar“
Hér áður fyrr var mönnum
sem voru við veiðar í Aðal-
dalnum gelhir titlar eftir
stærð þcina fiskar sem þeir
drógu á land. Þannig var
þeim gefinn titillinn „stór-
meistari" veiddu þeir 30
pundára eða þyngri, en
„meistari" veiddu þeir 25 til
30 pundara.
Stónneistaratitlamir em
orðnir ærið sjaldgæfir hin
síðari ár, en á þessu sumri
hafa þó tveir Laxárveiðimenn
krækt sér í meistaratitla, með
25 og 26 punda fiskum.
Rangárnar að skáka
þeim frægustu
Enginn vafi er á að Rang-
árnar koma mest á óvart
allra áa í suniar. Veiðin er nú
komin í um 1200 laxa sem er
nú þegar næst hæsta tala sem
þær hafa gefið.
Allt fram til ársins 1990
veiddust þar aðeins á bilinu
10 til 98 laxar, en það árið
dúndraðist veiðin alla leið
upp í 1622 laxa, í kjölfar
óhemju ræktunar og slepp-
inga. Árið 1990 skákuðu þær
öllum frægu ánum aflur fyrir
sig og urðu í fyrsta sæti í lok
veiðitímabilsins.
Mikill lax er sagður á án-
um og vegna þess að opnað
var seinna en venjulega gætu
þær sem hægast endurtekið
lcikinn þetta sumarið. Það er
athyglivert, án þess að sú
ályktun sé dregin að sam-
hengi sé þar á milli, að sumr-
in 1990 og 1994 eiga það
sameiginlcgt, að á sama tíma
og Rangámar gefa svo góða
veiði eru flestar ámar í Húna-
vatnssýslunum og fyrir norð-
an langt fyrir neðan meðal-
veiði frá 1974.
Suður- og
Suðvesturland
halda sínu betur
Þess hefur verið áður gefið
hér í þættinum að ámar á
Suðvesturhorninu haldi bet-
ur sínu þegar niðursveilla
kemur í veiðina.
Þannig hefur til að mynda
Laxá í Leirársveit gefið vel
og er komin í um það bil 700
laxa. Hún mun því að öllum
líkindum náyfir mcðaltal sitt,
eða yfir 1000 laxar yfir ver-
tíðina. Þar er fiskur að ganga
og töluveit sést af honum í
ánni.
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON umhverfisráðherra
læturtil síntaka:
Ný reglugerð um
villidýraveiöar
• •
ssur Skarphéðinsson
umhverfisráðherra hef-
ur gefið út reglugerð
vegna nýsamþykktra villidýra-
laga. í reglugerðinni kemur
meðal annars fram að veiðar
em aðeins heimilar í þeim til-
gangi að nýta verðmæti í kjöti
og öðmm afurðum eða til að
veijast tjóni. Afiétt er tíma-
bundið friðun á einstökum
fuglategundum.
Samkvæmt reglugerðinni er
öllum íslenskum ríkisborgumm
sem og erlendum ríkisborgur-
um með lögheimili hér á landi
heimilar fuglaveiðar í almenn-
ingum, á afréttum utan landar-
eigna lögbýla og utan netlagna
landareigna.
I 8. grein reglugerðarinnar
segir að allir fuglar, þar með
taldir þeir sem koma reglulega
UMHVERFISRÁÐHERRA.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
eða flækjast til landsins, séu
friðaðir nema annað sé tekið
fram í reglugerðinni. Síðan seg-
ir að friðun sé aflétt á eftirtöld-
um tegundum fugla: Allt árið:
Svartbakur, sílamáfur, silfur-
máfur, hrafn. Frá 20. ágúst til
15. mars: Grágæs, heiðagæs.
Frá 1. septembertil 15. mars:
Fýll, dflaskarfur, toppskarfur,
blesgæs, helsingi, stokkönd, ur-
tönd, rauðhöfðaönd, duggönd,
skúfönd, hávella, toppönd,
hvítmáfur, hettumáfur, rita. Frá
1. september til 10. maí: Álka,
langvía, stuttneíja, teista, lundi.
Frá 15. apríl til M.júní:
Heimilt er að veiða kjóa í og
við friðlýst æðarvarp á tímabil-
inu. Ákvörðun um veiðitíma
rjúpu verður birt síðar.
Samkvæmt reglugerðinni
getur umhverfisráðherra nú
heimilað mynda- og kvik-
myndatöku af ömum, fálkum,
snæuglum og haftyrðlum við
hreiður og er þá jafnframt fellt
úr gildi bann við myndatökur
af þessum fuglum.
Tíðindi úr
MYNDUSTAR-
HEIMI íslands
og Hollands:
Nýlista-
menní
Haag
Laugardaginn 6. ágúst
opnaði sýning á verkum
þriggja íslenskra mynd-
listarmanna, þeirra Ragnheiðar
Ragnarsdóttur, Lindar Vö-
lundardóttur og Hannesar
Lárussonar í Quartair Galerie
í hollensku borginni Haag. Sýn-
ing þessi er liður í samstarfi Ný-
listasafnsins í Reykjavík og
umrædds gallerís. Fyrir
skömmu sýndu þrír hollenskir
myndlistarmenn í húsakynnum
Nýlistasalhsins.
Töluverður Ijöldi úr ýmsum
lögum hollenska myndlistar-
heimsins var viðstaddur opnun
sýningar Islendinganna þann 6.
ágúst og gæddu sér á grilluðum
fiski í margvíslegri mynd og ís-
lenskum drykkjarfongum.
Nokkur íslensk útflutningsfyrir-
tæki styrktu sýninguna með
þessum hætti. Auk þess styrktu
ffamkvæmdina Menntamála-
ráðuneytið og Menningarmála-
nefnd Reykjavíkur.
Sýningin í Quartair Galerie
stendur fram til 27. ágúst og
telja kunnugir að þama sé ein-
ungis um fyrsta skrefið að ræða
í átt að mun víðtækara samstarfi
íslenskra og hollenskra mynd-
listarmanna og safna.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Húsnæði óskast
Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra í Reykjavík leitar
eftir kaupum á 450-500 fermetra iðnaðar- eða verslun-
arhúsnæði í Reykjavík.
Nauðsynlegt er að húsnæðið sé á jarðhæð og allt að-
gengi í góðu lagi með tilliti til fatlaðra.
Tilboð, er tilgreini staðsetningu, stærð, byggingarár og -
efni, brunabóta- og fasteignamat, afhendingartíma og
söluverð, sendist eignadeild fjármálaráðuneytisins, Arn-
arhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 1. september 1994.
Fjármálaráðuneytið,
18. ágúst 1994.
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Starfsmenntastyrkir
félagsmálaráöuneytisins
Félagsmálaráðuneytið auglýsir hér með eftir umsóknum
um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög
nr. 19/1992.
Styrkir eru veittir til aðila, sem standa fyrir starfsmenntun
í atvinnulífinu. Miðað er við að styrkir séu veittir vegna
viðfangsefna á árinu 1994.
Umsóknir berist Vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðu-
neytisins á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og skal
þeim skilað þangað eigi síðar en 15. september 1994.
Félagsmálaráðuneytið,
10. ágúst 1994.