Alþýðublaðið - 23.08.1994, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 23. ágúst 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
Um 300 eriendir gestir sem selja ferðir til Islands, Grænlands og Færeyja
koma til landsins 14. september næstkomandi og sækja hér ferðakaupstefnu
VESTNORDEN sem haldin verður í Hafnarfirði:
Heildarvelta feröaiðnaðar
á íslancS er 25 milliarðar
íunda ferðakaupstefna
Vestnorden verður
haldin í íþróttahúsinu í
Kaplakrika í Hafnarfirði dag-
ana 14. til 17. september. Um
erlendir 300 gestir víðs vegar
að úr heiminum munu sækja
kaupstefnuna, ekki síst fulltrúar
fyrirtækja í ferðaþjónustu er-
lendis sem lagt hafa áherslu á
sölu ferða til Islands, Græn-
lands og Færeyja.
Að kaupstefnunni stendur
Ferðamálaráð Vestnorden,
sem er samstarf Islands, Græn-
lands og Færeyja á sviði ferða-
rnála. Ferðakaupstefnan er
þannig uppbyggð að þar verða
Íiðlega 240 fulltrúar rúmlega
100 ferðaskrifstofa og ferða-
heildsala, sem selja erlendum
ferðamönnum ferðir til íslands,
Grænlands og Færeyja. Þeir
munu hitta yfir 200 manns úr
ferðaþjónustu í löndunum
þremur. Margir kaupendanna,
ferðaskrifstofur og einstakling-
ar í ferðaþjónustu, eru að taka
þátt í Vestnorden kaupstefn-
unni í fyrsta sinn og leggja nú
vaxandi áherslu á sölu ferða til
þessara landa.
Daginn fyrir kaupstefnuna,
miðvikudaginn 14. september,
verður haldin ráðstefna um
uppbyggingu ferðaþjónustu í
Grænlandi, Færeyjum og ís-
landi og móttöku ferðamanna í
löndunum þremur. Tvo næstu
daga verður ferðakaupstefnan
einungis opin skráðum þátttak-
endum en laugardaginn 17.
september verður sýningar-
svæðið opið almenningi og
verður þá boðið upp á margvís-
lega skemmtun og kynningu á
ferðatilboðum í Vestnorden-
löndunum. Hátt í 15 erlendum
blaðamönnum frá fagtímaritum
og ferðamálablöðum hefur ver-
ið boðið til kaupstefnunnar.
Vaxandi
atvinnugrein
Ferðaþjónusta er vaxandi at-
vinnugrein í öllum löndunum
og hefur Vestnorden samstarfið
aukið mjög á ferðamanna-
straum milli landanna þriggja.
Hér á landi er talið að heildar-
velta í greininni sé 23 til 25
milljarðar króna, þar af 16
milljarðar vegna erlendra ferða-
manna, sem svai'ar til 11% af
heildargjaldeyristekjum þjóðar-
innar. Er áætlað að liðlega 6%
vinnuaflsins í landinu hafi við-
urværi sitt af beinni þjónustu
við ferðamenn.
I Grænlandi er nú unnið mik-
ið starf að uppbyggingu ferða-
þjónustunnar. Aætlað er að
verja um 700 milljónum ís-
lenskra króna til þess verkefnis
á árunum 1993 til 1995 og er
markmiðið að gera ferðaþjón-
ustu að raunverulegri atvinnu-
grein í landinu. Mikil aukning
hefur orðið á ferðamönnum til
Grænlands á síðustu misserum,
ekki síst frá íslandi og megin-
landi Evrópu. I Færeyjum er
ferðaþjónustan vaxandi auka-
búgrein sem menn líta til í
auknum mæli sem nýrrar at-
vinnugreinar.
FERÐAIÐNAÐUR á Islandi er vaxandi atvinnugrein. Hér á landi er talið að heildarvelta ígrein
inni sé 23 til 25 milljarðar króna, þar af 16 milljarðar vegna erlendra ferðamaitna, sem svarar til
11% af heildargjaldeyristekjum þjóðarinnar. Er áœtlað að liðlega 6% vinnuaflsins í landinu hafi
viðurvœri sitt af beinni þjónustu við ferðamenn. Alþýðublaðsmynd/Einar Ólason
Kjarval og Asmundur
í Danaveldi -1 ►
Opnuð hefur verið sam-
sýning á verkum Jó-
hannesar Sveinssonar
Kjarvals og Ásmundar
Sveinssonar í Johannes Lar-
sen safninu í Kerteminde í
Danmörku. Megininntak sýn-
ingarinnar er sýn meistaranna á
íslenskri náttúru sem báðir
listamennimir hrifust mjög að
og unnu út frá henni.
Sýningin er tilkomin vegna
áhuga forstöðumanns Johannes
Larsen safnsins, Erland Por-
smose, á að halda með verðug-
um hætti upp á 50 ára lýðveldi-
safmæli Islendinga.
Johannes Larsen safnið var
opnað árið 1986 og hefur síðan
þróast í að verða glæsilegt lista-
safn með norrænum sérein-
kennum. Safnið er í nýju húsi
sem var byggt við heimili og
vinnustofur listamannsins Jo-
hannesar Larsen (fæddur
1867, dáinn 1961) í Kertem-
inde, litlum bæ skammt frá Óð-
insvéum á Fjóni.
Það er engin tilviljun að Jo-
hannes Larsen safnið ákvað að
heiðra lýðveldisafmælið með
þessum hætti. Johannes Larsen
var mikill áhugamaður um ís-
lenska náttúru og íslenska
myndlist.
Kynntist
Kjarval
Árið 1926 ákváðu þeir Jó-
hannes V. Jensen og Gunnar
Gunnarsson að gefa út hátíð-
arbindi af íslendingasögunum í
tilefni af þúsund ára afmæli Al-
þingis. Fengu þeir Johannes
Larsen til að myndskreyta bók-
ina. Á innilegan hátt tókst hon-
um að nota náttúruna sem
dramatískan bakgrunn fyrir ör-
lagaþátt sagnanna og komst
þannig hjá því að nota sverð,
brynjur og ofsafengin bardaga-
atriði í myndgerð sinni.
Sumrin 1927 og 1930 ferð-
aðist hinn danski málari víða
um landið og gerði yfir 500
teikningar og vatnslitamyndir
af náttúru landsins, listaverk
sem hafa mikla þýðingu bæði
fyrir listasögu Dana og Islend-
inga. Það var einmitt í tengsl-
um við útgáfu þessarar bókar
sem Johannes Larsen kynntist
Jóhannesi Sveinssyni Kjarval.
Hann sérstaklega hrifinn af list
hans og er haft eftir honum eft-
irfarandi: „Eftirþað sem að ég
hefkynnst afíslenskri málara-
list, þá finnst mér að hann sem
listmálarí gnœfi yfir alla aðra. “
Myndimar á sýningunni em
allar í eigu Listasafns Reykja-
víkur og er sýningin unnin í
samvinnu safnsins og Johannes
Larsen safnsins í Kerteminde.
Sýningarstjóri er Kristín
Guðnadóttir, safnvörður
Listasafns Reykjavíkur. Það
var Guðrún Jónsdóttir, for-
maður menningarmálanefndar
Reykjavíkur sem opnaði sýn-
inguna síðastliðinn föstudag og
stendur sýningin yfir til októ-
berloka.
íl l'HI 111! lílll II
^ihei
tpnekata!
KJARVAL og ÁSMUNDUR. Opnuð hefur verið samsýning á
verkum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals og Asmundar Sveins-
sonar í Johannes Larsen safninu í Kerteminde íDanmörku. Sýn-
iitgin er tilkomin vegna áhuga forstöðumanns safnsins á að halda
með verðugum hœtti upp á 50 ára lýðveldisafmœli Islendinga.
Alþýðublaðsmyndir