Alþýðublaðið - 22.09.1994, Page 1
;■ :
Yfirbyggð verslunarsamstæða í miðbæ HAFNARFJARÐAR opnar í nóvember og Hafnfirðingar
munu án efa gera jólainnkaupin í nýju, glæsilegu og umdeildu húsnæði:
Allt húsið er að komast í not
- segir VIÐAR HALLDÓRSSON, framkvæmdastjóri Miðbæjar Hafnarfjarðar hf.
Hafnfirðingar eignast
fyrstu alvöru verslunar-
miðstöðina í nóvember
og munu án efa gera jólainn-
kaup sín í nýju og glæsilegu
molli, sem enn sem komið er
hefur ekki fengið nafn. Þá mun
fyrirtækið Miðbœr Hafnar-
fjarðar hf. opna verslunarhluta
hinna umdeildu miðbæjarfram-
kvæmda, en þar munu fjöl-
margar verslanir og þjónustu-
fyrirtæki starfa í framtíðinni.
„Það hefur gengið alveg
bærilega að selja og leigja hús-
næði í verslunarhlutanum. Við
erum langt komnir að koma
öllu húsnæðinu í not. Fyrsta
hæðin er fullskipuð, ef samn-
ingar við ÁTVR takast, sem
við vonum að verði“, sagði
Nýja verslunarmiðstöðin ímiðbœ HAFNARFJARÐAR er enn
nafnlaus, en þó er áœtlað að opna hana í nóvember - í tœka tíð
fyrir jólainnkaupin. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Viðar Halldórsson, fram- arfjarðár hf., en hann er einn af
kvæmdastjóri Miðbæjar Hafn- fimm eigendum þess fyrirtækis.
Viðar sagði að það áraði
frernur illa í verslun, þetta væri
engin gósentíð. Margir væru
spenntir fyrir að komast inn í
húsið með rekstur sinn, en
vildu bíða átekta og sjá hver
framvindan yrði.
Byrjað var á framkvæmdun-
um í mars 1993 og um þessar
mundir er þeim nánast að ljúka.
Um er að ræða 11.600 fermetra
undir þaki, auk bílageymslu-
kjallara. Hafnfirðingar fylgja
því kalli tímans í kaupmennsku
og eignast yfirbyggðar verslan-
ir við innanhúss göngugötur, en
sú þróun á sér nú stað víða um
heim í svokölluðum vetrar-
borgum, þar sem veður og
vindar leika útikaupmenn
oft grátt. Það þekkja þeir
við Laugarveginn.
Verslunarsamstæðan, eða
mollið eins og slíkt er oft kall-
að, er á tveim hæðum. Á þeirri
neðri verða 8 verslanir og þjón-
ustufyrirtæki - og ÁTVR vænt-
anlega að auki. Á efri hæð eru
7 einingar af 14 gengnar út og
sagði Viðar að hann væri von-
góður um að allt gengi upp áð-
ur en opnað verður.
Meðal fyrirtækja sem þarna
munu setjast að má nefna mat-
vörumarkað 10/11, Apótek
Hafnaríjarðar, og Búnaðar-
bankann, sem nú haslar sér völl
í Hafnarfirði. Viðar sagði ljóst
að innan veggja nýju verslunar-
miðstöðvarinnar yrði boðið upp
á góða blöndu af hvers konar
sérvöruverslunum.
SIGURJÓN PÁLSSON húsgagnahönnuður gerði það gott á Norrænu húsgagnasýningunni í Bella Center fyrr í haust:
SIGURJÓN PÁLSSON húsgagnahönnuður ásamt stólnum
sem hann seldi ífjöldaframleiðslu ífyrra. Alþýðublaðsmynd/Einarólason
Samdi
Nýhönnuð sófasena, stóll
og sófi sem bæta má við
einingum eftir þörfum,
sem Sigurjón Pálsson, hús-
gagnahönnuður, sýndi á Bella
Center í Kaupmannahöfn í
haust, fékk prýðis góðar við-
tökur framleiðenda, sem skoð-
uðu Scandinavian Fumiture
Fair. Sigurjón má vera ánægð-
ur með árangurinn, því hann
fékk samning við stórt þýskt
fyrirtæki um ijöldaframleiðslu
um sófaseríu
á sófasettinu. Hér er um að
ræða sófasett sem nýtist einna
best á biðstofum og flugstöðv-
um og öðrum þeim stöðum þar
sem almenningur kemur saman
og bjóða þarf góð hægindi. I
sófanum er stálgrind, og hægt
að bæta við sófann eftir þörf-
um, og getur hann orðið allt að
6 sæti.
Fyrirtækið Brune Möbelfa-
brik GmbH keypti framleiðslu-
réttinn, en fyriitækið rekur
þrjár verksmiðjur í Þýskalandi
og eina í Suður-Ameríku. Þetta
sama fyrirtæki keypti hönnun
Sigurjóns á seríutengdum stól í
fyrra. Fjöldaframleiðsla hans er
einmitt að hefjast um þessar
mundir.
Brune mun sýna hina frum-
hönnun Sigurjóns á sófasettinu
á Kölnarmessunni svonefndu á
næstu dögum og vill hefja
framleiðslu ekki síðar en um
næstu áramót.
Framhalds-
stofnfundur
Regnbogans,
samtaka um
Reykjavíkur-
listann
Framhaldsstofnfundur
Regnbogans - samtaka
um Reykjavíkurlistann -
verður haldinn í kvöld
klukkan 20:30 á Komhlöðu-
loftinu við Bankastræti. Á
fundinum verða borin upp
drög að lögum fyrir félagið
ásamt því að stjómarkjör fer
fram. Rætt verður um starfið
framundan, stofnun hverfa-
félaga, skipulag málefna-
hópa og tengsl félagsins við
borgarfulltrúa Reykjavíkur-
listans.
Að loknum almennum
stofnfundarstörfum talar Sig-
rún Magnúsdóttir um
fyrstu mánuði Reykjavíkurl-
istans við stjómtaumana í
borginni. Að erindi Sigrúnar
loknu verða almennar um-
ræður. Borgarstjórinn í
Reykjavík, Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, verður að
sjálfsögðu á fúndinum ásamt
flestum borgatíulltrúum og
varaborgarfulltrúum Reykj-
avíkurlistans. Þau munu taka
þátt í umræðum og svara
fyrirspumum ef óskað er.
Allir stuðningsmenn
Reykjavíkurlistans eru vel-
komnir á fundinn. Þeir sem
ekki hafa gerst stofnfélagar
geta gert það á fúndinum.
Einnig er hægt að skrá sig á
skrifstofu Reykjavíkurlistans
í síma 16800 alla virka daga
fráklukkan 13:00 til 16:00.
Á fundinum í kvöld verður
ennfremur mögulegt að skrá
sig í málefnahópa sem ráð-
gert er að hefji störf á næst-
unni.
INGI- SIGRÚN
BJÖRG MAGNÚS-
SÓLRÚN. DÓTTIR.