Alþýðublaðið - 22.09.1994, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 22.09.1994, Qupperneq 4
VIÐTA.LIÐ JÓN BALDVIN HANNIBALSSON, utanríkisráðherra og formaður Jafnaðanvannaflokks íslands, áttimjög vinsamlegan og gagnlegan einkafund með ANDREJ KOZYREV, utanríkisráðherra Rússlands, á fundi Barentsráðsins í Tromsö. Jón Baidvin segirað föðutland Kozyrevsé nú að feta sig fram til lýðræðislegra stjómarhátta: „Samskipti okkar [Kozyrev] á fundinum voru alveg sérstaklega vinsamleg. Ég geri mérþví vonir um að af hans hálfu sé skilningur á því að það geti verið gagnkvæmur hagur Rússa og íslendinga að byggja upp samstarfog þá ekki síst ísjávarútvegi...Það er dálítið merkilegt og raunar alveg nýtt fyrir Vesturlandamenn að uppgötva það, að við erum nú að eiga samskipti við nýtt Rússland sem er að feta sig fram til lýðræðislegra stjórnarhátta. “ gangsefnum í hafið. Mengunar- vandinn er hrikalegur.“ - Hver var ástæða þess að Barentsráðið varstofn- að? „Það var þáverandi utanríkis- ráðherra Norðmanna, Thor- vald Stoltenberg, sem er höf- undur þeirrar hugmyndar að stofna til þessa svæðissam- starfs. Þó að samstarfið sé ekki orðið tveggja ára gamalt þá held ég að það sé komið á dag- inn að þetta var mjög framsýnt af Stoltenberg. Hann gerði þetta í framhaldi af því að Eystrarsaltslöndin voru búin að mynda Eystrarsaltsráðið. Að því stóðu Svíþjóð, Finnland, Pétursborgarsvæðið í Rúss- landi, Eystrarsaltsríkin þijú, Pólland, Þýskaland og Dan- mörk. íslendingar sóttu um að- ild en var hafnað á landfræði- legri forsendu. Thorvald Stol- tenberg beitti sér þá sérstaklega fyrir því þegar hann efndi til Barentshafssamstarfsins, að ís- lendingum var boðið að vera með á þeirri forsendu að sem Atlantshafsríki og fiskveiðiþjóð ættu þeir erindi í slíkt norður- slóðasamstarf. Það var sérkennileg og skemmtileg lífsreynsla að sitja svona dagsfundi þar sem við borðið sitja sendinefndir frá rússneskum héraðsstjómum inni í norrænu samstarfi. Það var auðfúndið að þeir héraðs- stjómarmenn rússneskir meta þetta samstarf mikið og eiga miklar væntingar um það.“ - Hvaða mál eru helst á döfinni innan ráðsins? „Formlega séð er þetta þann- ig að það er lítil miðstjóm fyrir þetta samstarf í Kirkenes sem er nyrsti bærinn í Noregi. For- mennska skiptist milli landa. Norðmenn vom að skila af sér núna og Finnar að taka við. Samstarfið er að verða nokkuð skipulagt. Utanríkisráðherrar hittast einu sinni á ári og þar að Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason auki hafa þegar verið haldnir innan þessa samstarfsramma ráðherrafundir á sérsviðum. Umhverfisráðherramir hafa að sjálfsögðu hist og sett upp áætl- un um aðgerðir gegn mengun. Þá hafa samgönguráðherramir hist, fjarskiptaráðherrar hafa hist og menningarmálaráðherr- ar hafa hist. Samgönguáætlun miðar að því að byggja upp samgöngu- net, sem var áður Rússlands- megin norður-suður alla leið til Moskvu en nú er ætlunin að byggja samgöngunet í vest- ur-austur. Það em uppi áform um meiriháttar hafnargerð Rússlandsmegin. Þá hafa verið myndaðir sjóðir með umtals- verðum framlögum og má nefna sem dæmi, að Norðmenn leggja fram 40 milljónir norskra króna til umhverfis- mála á ijárlögum þessa árs gegn mótframlögum frá öðmm. Ef Norðurlöndin þrjú ganga inn í Evrópusambandið verður orðin söguleg breyting. Evr- ópusambandið á þá landamæri að Rússlandi og Evrópusam- bandið hefur gefið fyrirheit um mótffamlög og meira að segja Bandaríkin líka, að því er varð- ar kjamorkuúrganginn og um- hverfísspjöllin. Norðurlöndin sjá fram á að ef þau gerast aðil- ar að Evrópusambandinu fá þau veruleg framlög úr þróun- arsjóðum til uppbyggingar á þessu svæði.“ - En er eitthvað annað sem tengir þessi svæði annað en landfræðiieg lega? „Það er sagan. Fyrir daga kommúnisma, kalda stríðsins og hinnar rússnesku byltingar þá vom landamæri þama mjög óljós og samskipti mikil. Hammerfest var á sextándu og sautjándu öld mikilsverð hafn- arborg fyrir viðskipti á þessu svæði sem var fyrst og ffemst svæði veiðimanna Samgöngur vom fxjálsar um landamæri. Samar vom þá eig- inlega bara ein þjóð þvert á öll lándamæri, norsk, fmnst og rússnesk. Við emm því að upp- lifa það að sagan er að endur- taka sig og við emm að hverfa aftur til hinna gömlu góðu daga undir nafni framfara og breyt- inga. Svæðissamstarf í Evrópu er partur af sammmaferlinum og er farið að setja mjög svip á þessa spumingu um Norður- lönd í Evrópu. Við höfum Bar- entsráðssamstarfið, við höfum Eystrarsaltsráðið, við höfum sex landasamstarfið í Austur Evrópu, við höfum samstarf Alpaþjóðanna og síðan er svæðasamstarf þjóða Suður Dagana 14. til 15. september var haldinn í Tromsö annar ráðsfundur Barentsráðsins með þátttöku utanríkisráðherra íslands, Finnlands, Noregs, Svíþjóðar og Rússlands auk fulltrúa Danmerkur og Evrópu- sambandsins. Fulltrúar Banda- ríkjanna, Kanada, Bretlands, Frakklands, Hollands, Pól- lands, Þýskalands og Japan sátu einnig fundinn sem áheymarfulltrúar. Alþýðublað- ið ræddi í gær við Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra um þennan fund, en koma Jóns Baldvins til Tromsö vakti mikla athygli sökum Smugudeilunnar sem brennur hvað heitast á mönnum í Norð- ur-Noregi. Einnig ræðir Jón Baldvin í viðtalinu um vinsam- legan og gagnlegan einkafund sem hann átti með Andrej Kozyrev, utanríkisráðherra Rússlands. - Fyrst var utanríkis- ráðherra spurður um Barentsráðið og tilgang þess: „Þetta er samstarf þriggja nyrstu héraða Noregs, nyrsta héraðsins í Svíþjóð, nyrsta hér- aðsins í Finnlandi og þriggja héraða í Rússlandi. Þar eru það Murmansk, Karelian og Ar- changelsk Oblast. Þetta lands- svæði er tvisvar sinnum stærri en Frakkland og auðlinda- grunnurinn er gríðarlegur. Þama er nánast allt nema gull og demantar. Það er olía, gas, málmar, skógar og einhver auðugustu fiskimið í heimi. Jafnframt er þama austan meg- in lýsandi dæmi um hvers kon- ar umhverfisslys kommúnism- inn var. Fyrir austan norsku landamæri er til dæmis mikil nikkelfabrikka sem er skelfilegt umhverfisslys. A Kólaskaga, Novaya Zemlya, er eitt mesta víghreiður Rússa og þama hafa þeir fleygt geislavirkum úr-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.