Alþýðublaðið - 30.09.1994, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 30.09.1994, Blaðsíða 7
Föstudagur 30. september 1994 POLITIK ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 STJÓRNMÁLAÁLYKTUN aðalfundar kjördæmisráðs Alþýðuf lokksins - Jafnaðarmannaflokks fslands - á Vestuiiandi. Aðalfundurinn var haldinn í Snæfellsbæ 24. september siðastliðinn: Bjanan tio jafnaðarmanna Alþýðuflokkurinn - Jafn- aðarmannaflokkur ís- lands - hefur átt aðild að ríkisstjóm landsins frá árinu 1987. íslenskt efnahagslíf hefur gengið í gegnum lengsta stöðn- unarskeið síðastliðinna áratuga þessi sömu ár, meðal annars vegna lítils þorskkvóta, minnk- andi útflutnings og verri við- skiptakjara á mörkuðum okkar. Hefur það sett mark á þær að- gerðir sem orðið hefur að grípa til af þeim sökum. Landsfram- leiðsla hefur dregist saman, kaupmáttur rýmað, atvinnu- leysi aukist, erlendar skuldir hækkað og ríkissjóður glímt við viðvarandi hallarekslur. Bjartari tíð og frumkvæði Alþýðuflokksins Nú virðist vera að rofa til. Afkoma ríkissjóðs hefur batnað og er betri en búist var við, við- skiptajöfnuður er hagstæður og þjóðin loks farin að greiða nið- ur erlendar skuldir. Ymislegt bendir til að atvinnuleysi hafi minnkað. Arangur hefur náðst í lækkun vaxta, verðbólga er með því lægsta sem gerist í Evrópu. Brýnt er að lækka fjár- magnskostnað enn frekar. Af- koma fyrirtækja í flestum greinum hefur batnað og at- vinnurekendur eiga í fyrsta sinn fmmkvæði að því að bjóða launahækkanir vegna næstu kjarasamninga. Þessar nýju að- stæður hafa skapað sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki og launa- fólk sem mikilvægt er að nýta. Þennan árangur má ekki síst rekja til ábyrgrar afstöðu Al- þýðuflokksins til ríkisfjármála, forgöngu hans um lækkun vaxta, fmmkvæði hans til að bæta almennt viðskiptaum- hverfi fyrirtækja, forgöngu um samninga um Evrópska efna- hagssvæðið og GATT, svo nokkuð sé nefnt. Ánægja með umbætur í velferðarkerfi Kjördæmisráð fagnar þeim árangri sem náðst hefur í jöfn- un húshitunarkostnaðar, en leggur áherslu á að áfram verði haldið þar til viðunandi árangri hefur verið náð. Ávallt hefur verið órofa samstaða innan Al- þýðuflokksins um að bæta kjör og lífsaðstæður þeiiTa sem eiga undir högg að sækja með öfl- ugu velferðar- og heilbrigðis- kerfi. Framlög til þeirra mála í heild hafa ekki minnkað þrátt fyrir niðurskurð í ríkisíjármál- um. Böndum hefur verið kom- ið á sjálfvirka innbyggða þenslu og margháttuðum um- bótum í velferðarkerfinu verið hrint í framkvæmd. Hömlulaust brask með kvóta í sameign landsmanna Minnkandi þorskafli og lækkandi verð sjávarafurða er meginástæða samdráttar í ís- lensku efnahagslífi frá árinu 1987. Við þær aðstæður hefur óréttlæti núverandi fiskveiði- stjómunarkerfis orðið æ aug- ljósara. Hömlulaust brask með kvóta og flutningur fisks frá einu landsvæði til annars, vegna kerfisins, gerir það að verkum að aðlægir landshlutar góðra fiskimiða fá ekki að njóta þeirra nema í takmörkuðum mæli. Alþýðuflokkurinn beitti sér fyrir því í núverandi lögum um fiskveiðistjómun að fiskistofn- arnir, mikilvægasta auðlind landsins, væm sameign lands- manna. Á gmndvelli þess ákvæðis vill Alþýðuflokkurinn að tekið verði upp veiðileyfa- gjald í áföngum. Fyrir for- göngu Alþýðuflokksins náðist fram úrbót á veiðiréttindum krókabáta. En jafnframt telur kjördæmisráðið að nauðsynlegt sé að jafna rétt smærri afla- marksbáta og krókaleyfisbáta þar sem sýnt er að minni afla- marksbátar em að hverfa úr flóm skipastólsins. Kjördæmisráðinu em ljósir eiTiðleikar ijölmargra kvóta- bátaeigenda sem hafa lent í nið- urskurði um allt að 70% þannig að rekstrargmndvelli hefur al- gjörlega verið kippt undan fót- um þeirra. Það er skilyrðislaus krafa að réttur þeirra sem ekki hafa selt frá sér kvóta eða stundað brask að þeim verði tryggður rekstrargmndvöllur fyrir báta sem háðir em sjósókn á gmnnslóð og búa við tak- markanir íslensks veðurfars. Þá hlýtur það að vera krafa að stuðlað verði að flutningi afla milli svæða þegar þannig er ástatt að ekki er unnt að vinna afla í löndunarhöfn. Slfk krafa er sett fram fyrir hönd fisk- vinnslufólks sem misst hefur atvinnuna, meðal annar vegna flutnings aflaheimilda sem eyk- ur hættu á byggðaröskun. Aðstoð við sauðfjárhéröðin nauðsynleg Kjördæmisráð lýsir þungum áhyggjum af stöðu bænda. Af ýmsum ástæðum, meðal annars breyttum neysluvenjum íslend- inga, miklum fjárfestingum í tæknibúnaði og samdrætti, em margir bændur komnir í þá stöðu, sem raun ber vitni, að þeir eiga ekki lengur afkomu- möguleika á því búmarki sem þeim er úthlutað. Samdrátmr vegna minnkandi kindakjöts- framleiðslu kemur óvíða harðar niður en í Dalasýslu þar sem bæði þéttbýli og dreifbýli em að mestu háð sauðfjárrækt. Það er nauðsyn að landsvæði, sem em svo algjörlega háð sauðíjár- rækt, líkt og einstök svæði á Vesturlandi, fái sérstaka aðstoð ríkisvaldsins vegna þeinar stöðu sem þau em komin í vegna breyttra aðstæðna. Kjördæmisráð bindur vonir við að aðgerðir til sölu á lífrænt ræktuðum afurðum á erlendum mörkuðum skili sér og treysti byggð á Vesturlandi á komandi árum, en á meðan sú þróun á sér stað verður að grípa til sér- tækra ráðstafana til að koma í veg fyrir hrun sem blasir við at- vinnufyrirtækjum og fólki sem lifir af sauðfjárrækt. Framsýni í sameiningu sveitarfélaga Sameining sveitarfélaga á Vesturlandi varð meiri en í nokkmm öðmm landshluta á íslandi. Kjördæmisráð fagnar þeirri framsýni Vestlendinga og heitir á forsætisráðherra að staðið verði við gefin fyrirheit um að verkefni og fjármunir með þeim fylgi til sveitarfélag- anna í samræmi við þau verk- efni sem þau takast á hendur í kjölfar sameiningar. Kjördæm- isráðið bendir á að sérstaklega þarf að auka fjármagn til sam- göngumála. Samgöngur em brýnt hags- munamál Vestlendinga. Margt hefur áunnist og með bættum samgöngum skapast ný tæki- færi til samstarfs og sameining- ar sveitarfélaga og fyrirtækja á Vesturlandi. Kjördæmisráð lýs- ir yfir smðningi við tillögur samgöngunefndar Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi, sem beinist að því að áhersla verði lögð á að bundnu slitlagi verið komið á aðalsamgöngu- leiðir, innan hverrar byggðar á Vesturlandi og milli þeirra, í samræmi við fyrirliggjandi til- lögur. Úttektar á ástandi atvinnumála beðið Mörg fyrirtæki á Vesturlandi hafa varið halloka í þeim sam- drætti sem orðið hefur í sjávar- útvegi, og tjón einstaklinga vemlegt með gjaldþrotum og rekstrarstöðvunum þeirra. Það er krafa kjördæmisráðsfundar- ins að nú þegar verði Byggða- stofnun falið að skila úttekt sem lofað var að gera á ástandi atvinnumála á Vesturlandi. Öll fmmgögn em til staðar; þau em í formi skýrslna atvinnumála- fulltrúa og upplýsinga sveitar- félaga á Vesturlandi, sem að- eins þarf að samræma og meta, og ætti það að geta legið fyrir á skömmum tíma. Samdráttur bitnaði illa á Vestlendingum Kjördæmisráðsfundur Al- þýðuflokksins á Vesturlandi telur að margháttaður árangur hafí náðst í tíð núverandi ríkis- stjómar og því ber að fagna. Fundurinn leggur áherslu á að tillit verði tekið til þess að sam- dráttur liðinna ára hefur bitnað illa á Vestlendingum sem sjá má af afkomu sveitarfélaganna og atvinnuleysistölum sem em í einstökum sveitarfélögum á Vesturlandi þær hæstu á öllu landinu. Alþýðuflokksfólk á Vestur- landi mun standa dyggan vörð um styrkingu byggða á Vestur- landi með eflingu atvinnulífs. Sérstaða í atvinnulífi á Vest- urlandi byggist á gmnnatvinnu- vegum þjóðarinnar, landbúnaði og sjávarútvegi. Kjördæmisráðsfundur styður þessa sérstöðu og mun, án þess að vinna gegn eðlilegri byggða- þróun, standa vörð um hana. Vesturland á mikla möguleika á sviðum ferðaþjónustu, iðnað- ar og aukinnar nýtingar sjávar- fangs við strendur landsins, til dæmis kræklingsvinnslu. Mið- stöð menntunar á ýmsum svið- um á gullin tækifæri á Vestur- landi. Til þess að svo geti orðið verður að tryggja stöðu núver- andi atvinnufyrirtækja svo að hér haldist blómlegt byggð og menningarsköpun sem hefur ávallt átt sterkar rætur á Vestur- landi. Harma úrsögn Jóhönnu Kjördæmisráð harmar þann meintan ágreining sem hefur verið að sögn Jóhönnu Sigurð- ardóttir milli hennar og forystu- liðs Alþýðuflokksins og hefur nú lyktað með úrsögn hennar. Millifyrirsagnir: Alþýðublaðið Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason i-----------------------------1 ! Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfirði: FUNDUR MED GUDMUNDIÁRNA Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfírði heldur fund miðvikudaginn 5. október klukkan 20:30 í Alþýðuhúsinu við Strandgötu í Hafnarfírði. Dagskrá: - Gestur fundarins er Guðmundur Árni Stefánsson félagsmálaráðherra. - Tískusýning. - Önnur mál. Takið með ykkur gesti! - Stjómin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.