Alþýðublaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Vitsmunir eða aflsmunir
„íslenskir jafnaðarmenn hafa
hins vegar sex sinnum á þess-
ari öld goldið þess að príma-
donnur hafa oftar en ekki met-
ið meira eigið ágæti en trúnað-
inn við fjöregg hreyfingarinnar
- eininguna. Þess vegna hafa
íslenskir jafnaðarmenn orðið
að reiða sig meir á vitsmuni en
aflsmuni við að byggja upp veÞ
ferðarkerfið á íslandi."
„ Við vorum kosin til að útrýma at-
vinnuleysinu og tryggja velferðina.
Hvernig útrýmum við atvinnuleys-
inu ? Með því að iækka skatta áfyrir-
tœki og hvetja þau til nýfjárfestinga
með skattaívilnunum. Það mun
skapa ný störf og auknar tekjur til að
standa undir velferðinni. Dugar
þetta til að standa undir velferðinni
að öðru óbreyttu? Nei, við þurfum
að ganga í Evrópusambandið til
þess að skapa okkttr ný sóknarfœri.
En til þess að geta nýtt þau verðwn
við að vera samkeppnishœftr. Til
þess þurfum við að lœkka tilkostnað-
inn, lœkka skatta og launatengd
gjöld af átvinnulífinu. Aðeins þannig
getum við til langs ti'ma tryggt nœga
verðmœtasköpun til að standa undir
velferðinni. Við getum ekki slegið
endalaust lán tii að standa undir vel-
ferðinni. Við verðum að vinna fyrir
velferðinni.“
Hvað er nú þetta? Er þetta einhver
gömul ræða eftir Jón Baldvin? Nei.
Þetta er alveg splunkuný ræða - eftir
Ingvar Carlsson, formann sænska
jafnaðarmannaflokksins. Þetta er út-
dráttur úr því sem hann segir við eitt
flokksmálgagnið um kjamann í
stefnu hinnar nýju ríkisstjómar jafn-
aðarmanna í Svíþjóð.
Svikabrigsl
Hann notar auðvitað tækifærið í
leiðinni og úthúðar forvera sínum,
formanni Ihaldsflokksins sænska,
fyrir að hafa ekki tekið á vandanum í
tæka tíð. Fyrir að sitja uppi með
næstmesta hallarekstur á opinbera
geiranum í gervallri Evrópu - fyrir
utan Italíu. Og fyrir að hafa fleytt rík-
isstjóm sinni áfram á sláttumennsku
og skuldasöfnun - í trausti þess að
jafnaðarmenn leystu vandann.
Mér varð hugsað til þess hvað hún
Jóhanna mín hefði sagt við þessum
boðskap sænska jafnaðarmannaleið-
togans - hefði hún mátt mæla í Rík-
isdeginum. Hefði hún ekki talað um
„hægri slagsíðu"? Hefði hún ekki
talað um svik við jafnaðarstefnuna?
Hefði henni ekki þótt einsýnt að nú
væri tími til kominn að kljúfa sænska
jafnaðarmannaflokkinn - og leggjast
út með uppgjafakommum?
Væntanlega. Því að ekki vænum
við Jóhönnu um að skipta litum eftir
umhverfí, þótt Ólafur Ragnar geri
það.
Pallborðið
Jón Baldvin
Hannibalsson
1 H* skrifar
__
Það hefur verið gæfa sænskra
jafnaðarmanna að þar hefur ekki
hvarflað að neinum málsmetandi
manni að hlaupast undan nterkjum -
þótt á móti blási. Þess vegna hafa
sænskir jafnaðarmenn jafnan haft afl
til að knýja fram það sem gera skal.
Islenskir jafnaðarmenn hafa hins
vegar sex sinnum á þessari öld gold-
ið þess að prímadonnur hafa oftar en
ekki meúð meira eigið ágæti en trún-
aðinn við fjöregg hreyfingarinnar -
eininguna. Þess vegna hafa íslenskir
jafnaðarmenn orðið að reiða sig meir
á vitsmuni en aflsmuni við að byggja
upp velferðarkerfið á Islandi.
Sænskir kratar hafa í meir en hálfa
öld getað neytt aflsmunar við and-
stæðinga sína. En sá sterki gleymir
því stundum að meira vinnur vit en
strit.
Sænskir jafnaðarmenn sáu ekki að
sér í tæka tíð - fyrr en þeir voru
komnir yfir strikið. Yfir 60% þjóðar-
ffamleiðslunnar var komið í fjár-
hirslur ríkis og sveitarfélaga. Og það
dugði ekki til, því að útþensla kerfis-
ins lýtur eigin lögmálum. Hallinn á
opinbera geiranum er að nálgast það
að vera tífaldur á við það sem hann
er á Islandi. Velferðarkerfinu var
haldið á floti með gúmtékkum. Sví-
þjóð var hætt að vera samkeppnis-
hæf. Fyrirtækin voru farin að flýja
land. Atvinnuleysið var komið upp í
13%.
Sænska lexían
Nú vita allir að veislunni er lokið.
Gömlu úrræðin duga ekki lengur.
Ingvar og Móna verða ekki bara að
bretta upp ermamar og sýna að þau
hafi krafta í kögglum. Þau verða að
hugsa dæmið upp á nýtt. Og það
hvarflar ekki að Mónu að fleygja
svuntunni og burstanum - áður en
komið er að uppvaskinu.
Og nú eru nýju ræðumar hans Ing-
vars famar að hljóma eins og gömlu
ræðumar hans Jóns Baldvins. Hvers
vegna urðum við Jóhanna að létta
sköttum af fyrirtækjum? Til þess að
koma í veg fyrir uppsagnir starfs-
fólks og fjöldaatvinnuleysi. Meðal
annars þess vegna var atvinnuleysið
á íslandi í september 3,2% en 13% í
Svíþjóð. Þess vegna urðum við að
spara, líka í heilbrigðisráðuneytinu.
Meðal annars þess vegna er hallinn á
íslenska ríkisapparatinu 1,5% af
þjóðarframleiðslu - en 12% í Sví-
þjóð.
Þess vegna em íslensk fyrirtæki
samkeppnishæfari nú en þau hafa
verið í áratugi. Þess vegna fer af-
koma þeirra batnandi. Þess vegna fer
störfum Ijölgandi á ný. Þess vegna
fer atvinnuleysið minnkandi. Þess
vegna fara vextir lækkandi. Þess
vegna fer hagur skuldugra heimila
og fyrirtækja ögn batnandi.
Já, en launin em of lág og launa-
munurinn of mikill. Já - en hvort
tveggja hefði farið á verri veg ef
verðbólgan hefði losnað úr læðingi.
Já, en það er ekkert réttlæti í því að
hinir ríku sleppi við íjármagnstekju-
skatt. Það er rétt. En þar skortir okk-
ur aflsmuni við íhaldið. Og þar geta
sænskir jafnaðarmenn kennt okkur
lexíu.
Höfundur er utanríkisráðherra og for-
maður Alþýðuflokksins - Jafnaðar-
mannaflokks islands.
Vesturbæingar þóttust
fá nokkra uppreisn
æm þegar KR varð bikar-
meistari í sumar, en verð-
laun hafa látið á sér standa
áþeim
síðustu
áratugi
einsog al-
þjóð veit.
Guðjóni
Þórðar-
syni
þjálfara
er að
sjálfsögðu þakkað, en
margir urðu fyrir von-
brigðum yflr slöku gengi í
deildakeppninni - KR varð
j fimmta sæti en var spáð
Islandsmeistaratitli. Við
heymm, eftir áreiðanlegum
heimildum, að nú sé farið
að volgna vemlega undir
Guðjóni, og að hann verði
jafnvel látinn hætta.
Óánægjan hefur ekkert
með fótbolta að gera, held-
ur þykir ýmsum virðuleg-
um KR-ingum að þjálfar-
inn gangi full rösklega unt
gleðinnar dyr...
Hjón á Siglufirði þurftu
að flytjast búferlum
og selja hús sitt. Gallinn
við söluna var hinsvegar sá
að húsið, sem þau kalla
Hús andanna í auglýsingu í
bæjarblaðinu Hellunni, er
talið heimkynni ýmissa
anda. Hjónin segja í aug-
lýsingunni að öllum „álög-
um“ hafí verið aflétt af
húsinu, - og að allar verð-
hugmyndir miðist við hæð
yfir sjávarmáli...
Korpúlfsstaðir eiga sér
mikla sögu, einsog
flestir vita, allar götur síð-
an Thor Jensen hóf þar
kúabúskap og til þess að
Davíð Oddsson gerði mis-
heppnaða tilraun til að
breyta þeim í listasafn yfir
Erró vin sinn. Nú hefur
Birgir Sigurðsson rithöf-
undur skrifað sögu mann-
lífs á Korpúlfsstöðum; að
sögn skemmtilega og lit-
ríka bók með fjölda gam-
aila og áður óbirtra ljós-
mynda. Korpúlfsstaðaritið
kemur út hjá Forlaginu á
næstunni...
Asatrúarmenn eru víðar
til en á íslandi. Á síð-
asta sumri var Jörmundi
Inga, allsheijargoða, boðið
á heimsþing ásatrúar-
manna, sem haldið var í
Póllandi. Islenski söfnuð-
urinn er reyndar talinn einn
sá fámennasti í heiminunt,
en talinn mikilvægur af
skiljanlegum ástæðum. í
Bandaríkj-
um gefa
Ásatrúar-
menn út
blað sem
heitir því
kunnuglega
nafni, Vor
trú, og er
gefið út af The Asatrú
Alliance of Independent
Kindreds. Á forsíðu nýlega
var Sveinbjörn Beinteins-
son heitinn, og blaðið að
miklu leyti helgað ntinn-
ingu hans. Þar var og að
flnna frásögn af Björk
Guðmundsdóttur og vel-
gengni hennar og bent á að
á forsíðu timarits eins bæri
hún húðflúr með fjötrarún-
um...
Hinumegin
Látum okkur sjá... Kannski ég reyni mammútinn.
Topp 10
símanúmer
dagsins
Árni Johnsen blaöamaöur (73333) komst
ekki inn á Topp tíu listann yfir símanúm-
er dagsins. Ekki heldur Finnur Ingólfsson
viöskiptafræöingur (675726) eöa Kristín
Ástgeirsdóttir sagnfræöingur (23687).
Matthías Á. Mathiesen fyrrverandi utan-
ríkisráðherra (650276) hefði hinsvegar
átt þaö skilið, því hann heföi fengið álíka
mikiö „kikk" út úr því og þegar hann flett-
ir upp á nafninu sínu í upphafi hvers
vinnudags. Hér kemur Topp tíu listinn
yfir símanúmer dagsins:
1. Davíð Oddsson
borgarstjóri, 23856
2. Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra, 641509
3. Halldór Ásgrímsson
ráðherra, 75548
4. Jón Helgason
ráðherra, 27917
5. Matthías Bjarnason
ráðherra, 42362
6. Ragnhiidur Helgadóttir
alþingismaður, 35330
7. Eyjólfur Konráð Jónsson
r'rtstjóri, 36672
8. Þorsteinn Pálsson
blaðamaður, 681808
9. Eiður S. Guðnason
fréttamaður, 32933
10. Ingi Björn Albertsson
fulltrúi, 79098
Fimm á förnum vegi Gætirðu hugsað þér að vera alþingismaður?
Viti menn
Þegar styrkjakerfí listamanna
er skoðað er margt sem vekur
athygli. Hjá úthlutunarnefnd
launasjóðs rithöfunda virðist
til dæmis gengið út frá þeirri
meginreglu að styrkja sömu
rithöfundana ár eftir ár.
Gunnar Smári Egilsson ritstjóri, leiðari
Morgunpóstsins í gær.
Ýmislegt bendir til þess að
þeim fari fjölgandi sem velja
líkbrennslu í stað kistugreftr-
unar... Egfagna þeirri þróun
og hvet þá sem hugsanlega
hafa einhverjar spurningar í
sambandi við þessi mál að
hafa samband við mig eð aðra
starfsmenn Kirkjugarðanna
til að leita svara við spurning-
um sínum.
Ásbjörn Björnsson forstjóri Kirkjugarða
Reykjavíkur, aðsend grein i Mogganum
i gær.
Ég furða mig á því að í ís-
lensku skólakerfí og undir lok
20. aldar skuli vera í gildi
svipaðar aðferðir og við lesum
um í 19. aldar skáldsögum
þjóðfélagsgagnrýnandans
Charles Dickens.
Kolbrún Bergþórsdóttir,
Morgunpósturinn í gær.
Það kostar íslenskan embætt-
ismann þrjá ferðadaga að
sækja klukkustundar fimd, en
þarf ekki að kosta hann nema
tvær stundir, ef hann fer bara
í myndver ríkisins. Hann get-
ur notað afganginn af tíman-
um til að vinna við hefð-
bundnar og eðlilegar aðstæður
í ráðuneyti sínu.
Jónas Kristjánsson, leiðari DV i gær.
Elfa Björk Gunnarsdóttir
framkvæmdastjóri Ríkisút-
varpsins er bókasafnsfræðing-
ur. Kannski þessvegna sem
ekki má tala of hátt í
útvarpið?
Hallgrímur Helgason,
Morgunpósturinn í gær.
“Ég er hætt að taka slátur,“
sagði hagsýn húsmóðir uppúr
þurru, þegar fréttum var lokið
í sjónvarpinu... Við nánari
eftirgrennslan kom í Ijós að
smekkmennirnir á fréttastof-
um sjónvarpa eru búnir að ala
á slíku ógeði á sauðfjárafurð-
um með nærgöngulum mynd-
um af slátrun að fólk, sem
ekki er alið upp á blóðvelli,
bregst við með þeim hætti að
fyllast andstyggð á þeim mat-
vælum sem fara gegnum
svona framleiðslustig fyrir
allra augum.
Oddur Ólafsson, Timinn í gær.
Mér fínnst líka skrýtið að
segja fólki upp þegar leikárið
er nýhafíð. Til
dæmis er nýbú-
ið að ráða til
leikhússins tvær
nýútskrifaðar
leikkonur. Þær
eru varla fyrr
búnar að frumsýna í sínum
fyrstu leikritum þegar þær fá
uppsagnarbréf.
Andri Stanley Sigurðsson,
nemi í Flataskóla í Garðabæ;
Ég veit það ekki. Alveg eins. Þetta er
ábyggilega skemmtileg vinna.
Sigurður Þorvaldsson, starfs-
maður í íslandsbanka: Nei. Ég
hef engan áhuga á stjórnmálum yfir-
höfuð.
Guðrún Kristófersdóttir, þjónn
á veitingastaðnum Caruso: Nei.
Ég hata stjómmál. Ég bara skil þau
ekki.
Guðmundur Þ. Sigurðsson,
nemi í Háskóla íslands: Já, alveg
eins. Það er örugglega gaman að
vera við völd.
Ólafur Hannibalsson, sjálf-
stætt starfandi blaðamaður: Já.
Til að hafa áhrif.
Edda Þórarinsdóttir formaður Félags ís-
lenskra leikara um uppsagnirnar í
Borgarleikhúsinu, Tíminn i gær.