Alþýðublaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 8
Föstudagur 21. október 1994
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk
ALÞYDVBIIIIID
160.tölublað - 75. árgangur
Háskólahátíð á morgun:
186 kandfdatar hlýða á rektor
186 kandídatar verða brautskráðir
frá Háskóla íslands á Háskólahátíð á
morgun, laugardag. Þetta er menn-
ingarstofnun og þvf hefst hátíðin
með söng Bjarkar Jónsdóttur sópr-
ans, undirleik annast Svana Víkings-
dóttir píanóleikari. Að því loknu
mun Sveinbjörn Bjömsson háskóla-
rektor halda ræðu í lengri kantinum
þar sem hann hyggst fjalla um
menntakerfi og þróun háskóla, nýtt
Rannsóknaráð, rannsóknastyrki Evr-
ópusambandsins og rannsóknanám,
nýtt Landsbókasafn og bækur þess
og að lokum um upplýsingatækni
sem atvinnuveg og útflutningsgrein.
Undir þessum fyrirlestri Svein-
björns munu sitja 3 kandídatar frá
Guðfræðideild, 13 frá Læknadeild, 4
frá Lagadeild, Viðskipta- og hag-
fræðideild er með 33 fulltrúa, Heim-
spekideild 39, Raunvísindadeild 27,
frá Verkfræðideild eru 11, og Fé-
lagsvísindadeild gnæfir yfir alla með
56 kandídata.
Gunnlaugur Stefánsson vill jafna
þann verðmun sem ríkir á vöru-
verði á milli þéttbýlis og dreifbýlis.
Öjjmundur Jónasson:
Oeðlilegan
launamun
má ekki
festa í sessi
„Persónulega er ég mjög fylgj-
andi því að Svíar gangi í Evrópu-
sambandið“, sagði Par Kettis,
sendiherra Svíþjóðar á Islandi í
samtali við Alþýðublaðið í gær,
eftir að hann greiddi atkvæði sitt í
þjóðaratkvæðagreiðslu Svía um
Evrópusainbandsaðild. „Eg var
þessarar skoðunar strax sem ung-
ur maður fyrir meira en þrjátíu
árum síðan. A áttunda áratugn-
um, á dögum kalda stríðsins, höfn-
uðu Svíar aðild, um svipað leyti og
Danir gengu í Evrópubandalagið,
sem hefur orðið þeim mjög til
góðs“, sagði sendiherrann.
Sendiherrann sagði að í kosn-
ingu utan kjörstaðar í Reykjavík í
september síðastliðnum hefðu um
hundrað Svíar neytt kosningarétt-
ar síns í sendiráðinu. Núna mætti
búast við allt að 200 Svíum, sem
annað hvort búa hér á landi, eða
dvelja hér á iandi um stundarsak-
ir og notfæra sér að kjósa utan
kjörstaðar.
Kosið er virka daga frá klukkan
10 til 12 í sænska sendiráðinu í
Lágmúla 7; mánudaginn 7. nóv-
ember er kjörstaðurinn opinn frá
klukkan 17 til 20 og verður þá lok-
að, en kjörgögn send daginn eftir
til Svíþjóðar með pósti. Kosning-
arnar í Svíþjóð verða 13. nóvem-
ber.
Par Kettis mun halda fyrirlest-
ur um þjóðaratkvæðagreiðslu
Svía í Norræna húsinu á sunnu-
daginn klukkan 16. Mun hann
svara fyrirspurnum gesta að fyrir-
lestrinum loknum.
umadild
á íslandi
Niðurgreiðir
landsbyggð-
in vöruverð á
höfuðborgar-
svæðinu?
„Það hljóta allir að sjá sem vilja
jöfnuð í þjóðfélaginu hvernig fjár-
málaráðuneytið bregst gegn háskóla-
stéttunum. Þær fá launahækkanir,
rneðan varla er rætt við aðra hópa.
Fólk sættir sig ekki við að óeðlilegur
launamunur verði festur í sessi í hinu
opinbera launakerfi'". segir Ög-
mundur Jónasson, formaður BSRB.
Hann segir það staðreynd að ntikl-
ar hækkanir hafi orðið í hópum há-
skólafólks að undanförnu, og vissu-
lega hefðu sumir verið vel að sínum
hækkunum komnir. Annað orkaði
tvimælis, til dæmis þegar dómarar
nánast ákváðu sér 100 þúsund króna
launahækkun á mánuði. Þá var haft
eftir forsætisráðherranum að menn
deildu ekki við dómarann.
„Það sem meginmáli skiptir er að
um það bil helmingur félaganna inn-
an BSRB er í dag með um 70 þúsund
krónur í mánaðarlaun fyrir dagvinn-
una. Ef allar greiðslur til félaga okk-
ar eru skoðaðar eru mánaðarlaunin
110 þúsund krónur á mánuði, eða
svipað og kemur út hjá ASÍ“, sagði
Ögmundur.
Framundan hjá BSRB eru kjara-
samningar. A þingi sambandsins
sem hefst á mánudagsmorguninn
munu kjaramálin án efa verða lil um-
Ijöllunar. Gestafyrirlesarar á þinginu
verða þeir Steingrímur Hermanns-
son, Seðlabankastjóri og Skúli Egg-
eil Þórðarson, skattrannsóknastjóri
ríkisins. Þingið stendur fram á
fimmtudag.
Ögmundur: Staðreynd að miklar
launahækkanir hafa orðið í hópum
háskólafólks.
Kosið
- um 200 Svíar
gætu kosið hér á
landi í utankjör-
staðaratkvæða-
greiðslu í sendi-
ráði Svíþjóðar.
ÉG SEGIJÁ: Pár Kettis, sendiherra Sviþjóðar, greiddi atkvæði sitt i sendiráðinu í gærdag. Búist er við að 200 Sví-
ar greiði atkvæði sitt hér á landi. A-mynd: E.ÓI.
Tveir þingmenn Alþýðuflokksins,
þeir Gunnlaugur Stefánsson og Gísli
Einarsson, hafa lagt fram tillögu til
þingsályktunar á Alþingi þess efnis
að gerð verði úttekt á vöruverði lífs-
nauðsynja og verðmun er rikir milli
þéttbýlis og dreifbýlis.
I tillögunni erþess krafist að kann-
að verði sérstaklega hvaða ástæður
valda þeim verðmun sem ríkir milli
landsbyggðarinnar og höfuðborgar-
svæðisins. Þá er ríkisstjóminni falið
að grípa til ráðstafana í ljósi úttektar-
innar er miði að jöfnun verðlags á
lífsnauðsynjum í landinu. Og þá með
því að vöruverð á landsbyggðinni
megi lækka til samræmis við það
sem almennt gerist á höfuðborgar-
svæðinu.
í greinargerð með tillögunni segir
meðal annars: „Nú hlýlur það að
vera kappsmál að neytendur megi
njóta hagstæðs vöruverðs og sannar-
lega er það fagnaðarefni þegar versl-
uninni tekst að bjóða neytendum
lækkun á vöruverðinu, hvort sem
það verður vegna aukinnar sam-
keppni, hagræðingar eða bættra við-
skiptakjara. En sú spurning hlýtur að
vakna hvort verslunin í landinu sitji
við sama borð hvað viðskiptakjör
snertir, flutningskostnað og skatt-
lagningu. Mikilvægt er að kannað
verði rækilega hvort sú er raunin að
landsbyggðarfólk niðurgreiði vöm-
verð á höfuðborgarsvæðinu vegna
lakari viðskiptakjara er landsbyggð-
arverslunin býr við.“
AÐALTOLUR
7 23 26
Fjöldí vinninga Upphœi á hvern vinning
2 24.180.000
0 1.440.181
4 63.677
204 1.986 á ísiandi 2.273.279
841 206
BONUSTOLUR
8 19 21
Heildarupphæ& þessa viku
50.633.279
Fjaðrafok á Alþingi út af
amerískum kjúklingum
[ gær fóru fram á Alþingi umræð-
ur utan dagskrár að kröfu Egils
bónda Jónssonar á Seljavöllum, al-
þingismanns Sjálfstæðisflokksins á
Austurlandi, vegna verðkönnunar
fréttastofu Sjónvarps á íslenskum og
bandarískum landbúnaðarvörum.
Egill véfengdi mjög að matvörur
væru miklu dýrari á íslandi en í
Bandaríkjunum og kynnti jafnframt
niðurstöður eigin verðkönnunar:
Með því að skipta út kjúklingi fyrir
lambakjöt komst hann að því að
sáralítill verðmunur er á milli land-
anna.
Niðurstaða könnunar fréttastofu
Sjónvarps á tíu algengum neysluteg-
undum leiddi í ljós 150% mun á
verðlagi, einsog sjá má á meðfylgj-
andi töfiu. í níu tilvikum af tfu
reyndist varan dýrari á íslandi, en
mestu munaði þó um kjúklinginn.
Egill benti á, að Islendingar borði
miklu meira af lambakjöti en kjúk-
lingi og fannst þessvegna mun nær-
tækara að nota það til viðmiðunar.
Með því að skella lambakótilettum í
innkaupakörfuna tókst honum að
lækka íslensku körfuna um 500
krónur og hækka þá bandarísku um
tólfhundruð krónur, enda er lamba-
kjöt dýrt vestra. En með þessu tókst
Agli semsagt að jafna verðmun land-
anna tveggja í einni svipan.
Nokkrirþingmenn fóru í ræðustól,
og tóku sumir fram að þeim væri
ekki alveg ljós tilgangur umræðunn-
ar. Guðni Agústsson gerði mikinn
verðmun milli landanna á eggjum að
umtalsefni, og komst að þeirri niður-
stöðu að Egill Jónsson þyrfti að
borða 20 kfió af eggjum á dag. ís-
lenskur landbúnaður væri hinsvegar
löngu hættur að kippa sér upp við
Könnun Sjónvarpsins sem olli fjaðrafokinu á Alþingi
Bandaríkin ísland
1 lítri appelsinusafi 95,20 89
500 grömm kaffi 291,70 347
1 heilhveitibrauð 67,30 110
1 bakki egg 49,60 227
2 lítrar mjólk 74,80 130
Kellogg's Cornflákes 222,40 275
1 kíló nautahakk 246,20 783
1 stykki kjúklíngur 165,20 1224
4 epli 76,20 98
1 kíló kartöflur 135,30 159
Samtals 1.423,90 3442
neikvæða umræðu, hann færi að lík-
tog hermaðurinn ungi - að ganga feti
framar. Steingrímur J. Sigfússon
fagnaði umræðu um matarverð, en
tók fram að hann
vissi ekki hvert
Egill væri að fara
með því að biðja
um umræðu á Al-
þingi vegna verð-
könnunar í Sjón-
varpi.
Gunnlaugur
Stefánsson spurði
sömuleiðis hvað
vekti fyrir máls-
heíjanda, en sagði
að nær væri að tala
um aðferðir til
þess jafna mikinn
verðmun á mat-
vælum milli lands-
byggðar og höfuðborgarsvæðis:
„Við þurfum ekki að fara til útlanda
til að finna mismun á verði.“