Alþýðublaðið - 08.11.1994, Blaðsíða 1
Sterkur vilji innan miðstjórnar Alþýðubandalagsins fyrir samstarfi við Jóhönnu og Kvennalista
Leyniviðræður við
Ögmund og Jóhönnu
Reynt að fá þau til að mynda samfylkingu með flokknum við framboð og bæta Kvennalistanum við.
„í viðræðum okkar við Ögmund
kom fram að hann er tilbúinn að taka
þátt í samfylkingu og Jóhanna lokar
engum leiðum. Hún er tilbúin til að
skoða ýmsa möguleika. A fundinum
kont fram greinilegur vilji miðstjórn-
ar til að skoða samfylkingu af einu
eða öðru tagi og fyrstu skrefm hafa
verið stigin. Það var aðeins Hjörleif-
ur Guttormsson sem lalaði á móti
þessu á miðstjórnarfundinum," sagði
Arthur Morthens varaformaður kjör-
dæmisráðs Alþýðubandalagsins í
Reykjavík í samtali við blaðið.
Hann hefur ásamt formanni ráðs-
ins, Arna Þór Sigurðssyni, verið í
viðræðum við Ógmund Jónasson
formann BSRB og Jóhönnu Sigurð-
ardóttur um að þau taki þátt í mynd-
un samfylkingar með Alþýðubanda-
laginu við framboð fyrir næstu al-
Pólitísk trúlofun? Jóhanna fundar með alþýðubandalagsmönnum um
hugsanlegt samstarf. A-myndir: E.ÓI.
þingiskosningar. Þetta mál var rætt á
l'undi miðstjórnar Alþýðubandalags-
ins sem haldin var í Keflavík um
helgina og var miðstjóm hlynnt því
að þessum viðræðum verði haldið
áfram.
„Ég held að menn verði að fara
eitthvert millistig áður en til eigin-
legs samruna komi. Nú erurn við að
tala um hvort Jóhanna, óflokks-
bundnir og Alþýðubandalagsfólk nái
saman. Ögmundur Jónasson lagði
áherslu á að hann myndi koma inn í
svona fylkingu sem óflokksbundinn.
Jóhanna stefnir á að búa til bandalag
eða flokk uppúr miðjum þessum
mánuði.
Það er líka rætt um Kvennalistann
í þessu sambandi og ég held ég geti
fullyrt það að bæði Ögmundur og Jó-
hanna leggja mikið uppúr því að
Kvennalistinn verði með. Það verður
að láta á það reyna og eflaust verður
þetta rætt á landsfundi Kvennalistans
um næstu helgi. Hins vegar er staðan
þannig að Framsóknarflokkurinn
nánast hafnar þátttöku því Halldór er
Ögmundur: Hann er tilbúinn til
þátttöku.
ekki tilbúinn að skoða þennan mögu-
leika nú,“ sagði Arthur.
Hann sagðist reikna með að menn
færu og töluðu við Jóhönnu eftir
þennan miðstjórnarfund og síðan
héldi kjördæmisráð Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík fund um næstu
helgi þar sem þessi mál yrðu til um-
ræðu.
Ögmundur Jónasson staðfesti að
rætt hefði verið við sig á þeim nótum
að Alþýðubandalagið leitaði eftir að
opna sig í átt til óflokksbundins fé-
lagshyggjufólks á vinstri vængnum,
en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
málið að sinni.
Sighvatur Björg-
vinsson í ítarlegu
viðtali við Alþýðu-
blaðið:
Vona að
af sam-
fylkingu
vinstri
manna
verði
„Ég vonast til að samfylking á
vinstri vængnum og myndun stórs og
sterks jafnaðarmannaflokks verði
möguleiki í nánustu framtíð. Sérstak-
lega vegna þess, að það er svo margt
sem áður fyrr stóð í vegi fyrir slíkri
sameiningu sem nú er farið,“ sagði
Sighvatur Björgvinsson í samtali við
Alþýðublaðið, aðspurður um samfylk-
ingu vinstri rnanna j nánustu framtfð.
,J5g er hlynntur samfylkingarhug-
myndum en ég vil hinsvegar benda á,
að menn mega ekki fara í samfylkingu
samfylkingarinnar vegna heldur á
grundvelli málefna. Samfylking geng-
ur ekki upp ef einhver hluti manna sem
telja sig vera íslenska jafnaðarmenn
ætla ganga þvert á lífskjarastefnu
framtíðarinnar með því að
einangra landið frá um-
heiminum. Slík einangmn
mun einfaldlega þýða, að
það verður héðan fólks-
flótti; sérstaklega á meðal
ungs fólks sem mun ekki
fmna hér atvinnu við sitt
hæfi. Þeir sem eftir sitja
verða sætta sig við lakari
lífshætti heldur menn búa
við í nágrannalöndunum.
Ég get ekki einu sinni fallist
á það þeir menn sem em
fylgjandi slíkri einangmn-
arstefnu kalli sig félags-
hyggjumenn. Þeir vilja
helst setja ísland einsog það
leggur sig á einhverskonar
Árbæjarsafn."
- Sjá viðtal, blaðsíðu 4.
Meistari Megas skrifar um Axlar-Björn Magnús
Þór Jónsson, alias meistari Megas, er höfundur skáldsögu sem Mál og
menning gefur út og áreiðanlega mun sæta tíðindum. Sagan heitir Björn
og Sveinn; söguhetjurnar eru reistar á tveimur löngu dauðum fúlmenn-
um. Sá fyrrnefndi er betur þekktur í islandssögunni sem Axlar-Björn: og
var raðmorðingi á 16. öld. Sveinn sonur hans hafði viðurnefnið skotti og
var um síðir hengdur á fjörðum vestur. Megas lætur þá feðga flakka vítt
og breitt í tíma og rúmi, allt til vorra daga. Sjá viðtal blaðsíðu 5. Síma-
mynd: E.ÓI.
Eggert Haukdal:
Eg er enn í Sjálf-
stæðisflokknum
Ólíklegt verður að teljast að Egg-
ert Haukdai, þriðji þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á Suðurlandi, setjist
sem aðalmaður tlokksins á næsta
þing Alþingis. Eggert
missti þriðja sætið í
hendur Drífu Hjartar-
dóttir í prófkjöri flokks-
ins á Suðurlandi um
helgina. Urslit efstu
manna urðu þessi: (1)
Þorsteinn Pálsson 2.265
atkvæði í fyrsta sæti; (2)
Árni Johnsen 1.683 at-
kvæði í annað sæti; (3)
Drífa Hjartardóttir 1.463
atkvæði f íjórða sæti; (4) Eggert
Haukdal 1.313 atkvæði í fjórða sæti.
Eggert Haukdal hefur látið hafa það
eftir sér í fjölmiðlum að blokk hafi
unnið gegn sér í prófkjörinu; Þeir
Þorsteinn og Árni hafi unnið gegn
sér og stutt Drffu í þriðja sætið. AI-
þýðublaðið heyrði hljóðið í Eggerti í
gær:
Hvað segirðu um þessi úrslit í
prófkjörinu, Eggert?
„Ég er hress og kátur. Það skiptast
auðvitað á skin og skúrir í þessu lífi.“
Var unnið markvisst gegn þér?
, Já, þetta var mikil vél - mikil ma-
skína - sem vann gegn mér.“
Hefur fólkið valið?
„Ja, fólkið hefur valið - vélin hef-
ur valið. Það er hinsvegar margt af
ágætu flokksfólki í þessu héraði. Ég
vil ekkert segja um þessi
mál að sinni."
Telurðu þig skuld-
bundinn til að styðja rik-
, isstjómina eftir að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur
hafnað þér í prófkjöri?
„Úrslitin liggja fyrir.
Ég varð náttúrlega fyrir
vonbrigðum, en ég er
ennþá í Sjálfstæðis-
flokknum. Ég mun
hugsa mitt ráð næstu daga.“
Muntu halda áfram viðræðum við
aðila á Suðurlandi um sérframboð
þitt?
„Hvaða viðræðum?"
Blaðið hefur heimildir fyrir því að
þú hafir verið í viðræðunt í sumar
við aðila í kjördæminu um sérfram-
boð.
Jahá. Eigum við ekki að geyma
alla þessa urnræðu í nokkra daga. Ég
hugsa mitt ráð. Maður varð náttúr-
lega fyrir vonbrígðum með þessi úr-
slit en það er best að vera hvorki
vondur né sár í orðum eða athöfn-
Nýr formaður: Ætlum ekki að láta
átökin í Alþýðuflokknum eyði-
leggja starfið.
SUJ
Jón Þór
Sturluson
formaður
Jón Þór Sturluson var kjörinn nýr
formaður Sainbands ungra jafnaðar-
inanna á þingi samtakanna sem hald-
ið var í Hveragerði uin helgina. „Það
ríkti mikil samstaða meðal fólks og sá
andi, að menn ætluðu ekki að láta
átök í Alþýðuflokknum eyðileggja
hið góða starf ungra jafnaðar-
manna,“ sagði Jón Þór í samtali við
Alþýðublaðið í gær. Nánar verður
sagt frá þinginu í blaðinu á morgun.
Hverjar ætla í framboð
fyrir Kvennalistann?
Tvær fyrrum
þingkonur ekki í
framboð aftur
Kvennalistakonur leita með log-
andi ljósi nú að konum til að fara í
efstu sætin á framboðslistum til Al-
þingiskosninga í stað þeirra íjögun a
þingkvenna af fimm sem nú hverfa
að öllum líkindum af þingi; en þær
eru Anna Ólafsdóttir Bjömsson,
Kristín Einarsdóttir, Guðrún Hall-
dórsdóttir og Jóna Valgerður Krist-
jánsdóttir, en ótrúlegt þykir að sú
síðastnefnda nái kjöri á Vestfjörðum
á nýjan leik. Tvær þeirra kvenna sem
einna mest hafa verið í umræðunni
eru fyrrum þingmenn Kvennalistans;
þær Kristín Halldórsdóttir og Guð-
rún Agnarsdóttir. Alþýðublaðið
spurði Kristfnu og Guðrún hvort þær
ætluðu í framboð:
Kristín: „Já, það hefur verið rætt
við mig um þingmennsku og ég er
ein af þeim sem stungið var uppá í
forvali Kvennalistans. Hef ég hug-
leitt málið? Já, drottinn minn dýri,
það hef ég gert. Ég hef enn ekki tek-
ið endanlega ákvörðun um hvað ég
geri, en hef vikuna til þess. Ég hins-
vegar býst ekki við því að gefa kost á
mér.“
Guðrún: „Mér finnst ólíklegt að
ég gefi kost á mér til framboðs fyrir
kosningarnar í vor. Ég ætla hinsveg-
ar að tilkynna Kvennalistanum end-
anlega ákvörðun mína áður en ég
tala við aðra. En einsog ég segi, ég
reikna ekki með að vera með.“
iiwilllinuinniniiinnnmimmmiinmnnniiiimiiiiiiniii
fiimmimimniimiunmmimmuuunmimiiiiuimiiim
Högum ukstri eftir aðstæðum.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík