Alþýðublaðið - 08.11.1994, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1994
HÞYHURUDID
20818. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
Siguröur Tómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Pyrrhus sigrar
í tveimur
kjördæmum
Það dró til pólitískra stórtíðinda um helgina þegar sjálfstæðis-
menn á Suðurlandi og Reykjanesi höfnuðu með afgerandi hætti
tveimur af reyndustu þingmönnum flokksins. Drífa Hjartar-
dóttir, bóndi á Keldum, felldi Eggert Haukdal úr þriðja sæti list-
ans á Suðurlandi, og naut við það fulltingis Þorsteins Pálssonar
og Áma Johnsens.
Úrslitin eru ekki mjög óvænt, enda margir mánuðir síðan frétt-
ir tóku að berast af því, að Eggert undirbyggi sérframboð í kjör-
dæminu ef hann næði ekki viðunandi árangri í prófkjörinu.
Eggert hefur áður staðið í stórræðum upp á eigin spýtur: Árið
1979 efndi hann til sérframboðs og náði þingsæti. Nú eru aðrir
tímar, og nánast óhugsandi að Eggert fái í vor brautargengi
Sunnlendinga sem tryggi honum þingsæti. Á hinn bóginn er
líklegt að væringar sjálfstæðismanna á Suðurlandi, auk óvin-
sælda ríkisstjórnarinnar, valdi því að flokkurinn tapi einu af
þremur þingsætum. Aðför flokksforystu sjálfstæðismanna að
Eggert heppnaðist - en kann að verða kostnaðarsöm þegar tal-
ið verður uppúr kjörkössum.
Úrslitin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi
eru hálfu sögulegri. Það er í hæsta mála dapurlegur endir á pól-
itískum ferli Salome Þorkelsdóttur, forseta Alþingis, að hafna í
neðsta sæti. Útreið hennar sýnir hinsvegar að þingmenn geta
aldrei iitið svo á, að þeir séu áskrifendur að þingsæti út á eina
sama reynsluna. Sterkar raddir í röðum sjálfstæðismanna í kjör-
dæminu höfðu krafist endumýjunar í þingliðinu. Salome lét
þessar raddir sem vind um eyru þjóta, og því fór sem fór.
Staða Olafs G. Einarssonar er þó sýnu verri en Salome, þrátt
fyrir að hann hafi haldið efsta sætinu. Engu munaði að Áma
Mathiesen tækist að fella hann úr sessi. Olafur hlaut aðeins
þriðjungsfylgi og því fela úrslitin í sér afdráttarlaust vantraust á
störf hans og oddvitahlutverk. Ámi Mathiesen og Sigríður
Anna Þórðardóttir em nú ráðherrakandidatar flokksins í kjör-
dæminu; svo mikið er að minnsta kosti víst að Ólafur G. Einars-
son verður ekki ráðherra aftur.
Davíð Oddsson lýsti því yfir, að listi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjanesi væri nú sterkari en áður. Það er mikið álitamál.
Vissulega hefur yngra fólk sótt í sig veðrið. Á hinn bóginn er
óhugsandi annað en að niðurlæging þingforsetans sitji í mönn-
um, og oddviti listans kemur ósannfærandi og laskaður til leiks
í kosningabaráttunni. Þá er hlutur kvenna mjög fyrir borð bor-
inn: Við síðustu kosningar vom þrjár konur í sex efstu sætum -
nú er Sigríður Anna hinsvegar eina konan í sjö efstu sætunum.
Ámi Mathiesen er hinn mikli sigurvegari í prófkjörinu. Sigur-
inn kann hinsvegar að reynast honum dýrkeyptur þegar upp
verður staðið. Ámi er vitaskuld maðurinn sem er ábyrgur fyrir
ömurlegum endalokum á pólitískum ferli Salome. Og seint
mun gróa um heilt millum Áma og Ólafs G. Einarssonar. Hinn
raunvemlegi slagur um oddvitahlutverkið á Reykjanesi fer ekki
fram fyrren eftir fjögur ár. Þá mun Ámi ekki etja kappi við
stjórmálamenn eins og Ólaf og Salome, sem vom tekin að
mæðast talsvert, heldur ungt og metnaðarfullt fólk. Sigur hans
um helgina var sannkallaður Pyrrhusarsigur.
Rökstólar
as. Matthías á sömuleiðis tvo syni.
Annar hefur þegar náð þeim merka
áfanga að vera felldur af eigin
flokksmönnum úr bæjarstjóm niður í
sæti varabæjarfulltrúa, meðan hinn
siglir hraðbyri á toppinn í landsmál-
unum. Synir George eru hvorugir
þekktir fyrir að reiða vitið í þverpok-
um. Litlu Matthiesenarnir hafa að
Kosningabarátta þeirra er meira
að segja undarlega keimlík, - að
minnsta kosti að einu leyti. Bush
klúðraði forsetaembættinu og synir
hans báðir varast að ota honum fram
í baráttunni. Gamli Matthiesen
klúðraði þjóðhátíðinni, og í kosn-
ingabaráttu Árna var honum líka
haldið til hlés.
Og Árni, sem er menntaður í hrossalækn-
ingum, svaraði án þess að hugsa sig um:
„Eg held að menntun mín muni nýtast svo
vel í þingflokki Sjálfstæðismanna.“
Spádómsgáfan sönnud
Skyggnigáfa Rökstóla í tengslum
við úrslit í prófkjörum Sjálfstæðis-
flokksins hefur reynst með þeim
ólíkindum, að Sálarrannsóknafélag-
ið hefur nú til alvarlegrar umræðu að
sækja um aukaaðild að Alþýðu-
flokknum. Sömuleiðis er það ekki
leyndarmál, að Þjóðhagsstofnun hef-
ur óskað eftir afnotum af kristalskúlu
Rökstóla, enda öllum ljóst, að spá-
dómar okkar hafa reynst snöggtum
áreiðanlegri en það sem stofnunin
birtir árvisst undir heitinu „Þjóð-
hagsspá".
Einsog hinir fjölmörgu lesendur
blaðsins muna settu Rökstólar frarn
þá spá, að Markús borgarstjóri yrði
fallkandídat ársins. Við spáðum því
líka að gullnáman úr Mosfellsbæ,
Salome Þorkelsdóttir, myndi innan
skamms hverfa til fyrri starfa við yl-
rækt í Kjósarsýslu. Hitt ber þó að
viðurkenna, að jafnvel þau tengsl
sem Rökstólar hafa við huliðsheima
dugðu ekki til að sjá fyrir það
grimmlyndi íhaldsmanna að fella
garðyrkjukonuna úr Mosó niður í
neðsta sæti prófkjörsins.
Við sáum hinsvegar fyrir að stór-
tennti dýralæknirinn úr Hafnarfirði
myndi næstum því velta hinum syfj-
aða menntamálaráðherra, sem kunn-
ugir segja að hafi ekki einu sinni
vaknað meðan stóð á prófkjörinu.
Stoltastir eru þó Rökstólar yfir þeim
árangri, að hafa verið eini dálkurinn í
samanlögðum fjölmiðlum Vestur-
landa sem spáði því, að Sunnlend-
ingar myndu lýsa yfir stuðningi við
formann Alþýðuflokksins og Evr-
ópusambandið með því að velta
Eggert Haukdal úr sessi.
Álþýðublaðið óskar Sunnlending-
um til hamingju, um leið og það vott-
ar þeim innilega samúð með að sitja
ennþá uppi með Áma Johnsen.
Stórsigur Davíds
Fréttnæmast úr viðburðum helgar-
innar voru þó yfirlýsingar hins hug-
myndaríka forsætisráðherra. Nær-
gætni hans og ástríki gagnvart sam-
starfsmönnum sínum birtust ljóslif-
andi í þeim hughreystingarorðum
sem hann sendi Salome vinkonu
sinni. En þegar fyrir lá að hún var
hmnin í neðsta sæti lýsti hann því yf-
ir, að úrslitin í Reykjanesi væru í
rauninni stórsigur fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn.
Ef Ólafur G. Einarsson hefði
fylgt forseta Alþingis eftir í fallinu
hefði Davíð Oddssyni væntanlega
þótt sigurinn svo stór, að hann hefði
fagnað upp á gamla móðinn með
léttri Bermúdaskál.
Matthiesen og Bush
Að ýmsu leyti minnir klan Matt-
hiesenanna úr Hafnarfirði á fjöl-
skyldu George Bush, fyrrum forseta
Bandaríkjanna. En bæði Matthías og
George em fallnir stjómmálamenn
sem fáir muna eftir, - nema vegna
sonanna.
George á tvo, Jeb og George, sem
em á góðri leið með að verða ríkis-
stjórar, annar í Flórída og hinn í Tex-
vísu ekki verið greindarprófaðir, en
em sagðir í góðu meðallagi, að
minnsta kosti miðað við Hafnfirð-
inga.
Um alla strákana gildir hinsvegar,
að brautargengi þeirra í stjórnmálum
helgast fyrsta og fremst af nafni og
pólitískum tengslum föðurins. Þeir
eru synir voldugs pabba, og það dug-
ar langt, - bæði í Bandaríkjunum og
á Islandi.
Hræsnisverdlaun
Árni kont inn á þing fyrir nokkr-
um árum. Þá varð hann frægur urn
stund fyrir barnalega einlægt svar í
Pressunni sálugu, sem spurði hann
hvers vegna hann teldi sig eiga erindi
á þing. Og Árni, sem er menntaður í
hrossalækningum, svaraði án þess að
hugsa sig um: „Eg held að menntun
mín muni nýtast svo vel í þingflokki
Sjálfstæðismanna."
Síðan hefur ekki til hans spurst.
Það man enginn eftir neinu sem hann
hefur gert á Alþingi. En nú er sem-
sagt komið í ljós, að Ámi Matthiesen
er klókari en hann lítur út fyrir. Öll
þessi ár hefur hann notað til að grafa
undan Ólafi G. Einarssyni, sem
mókti í menntamálaráðuneytinu og
uggði ekki að sér. Til þess hafði Ámi
drjúgan stuðning pabba gamla, sent
á Ólafi grátt að gjalda síðan við
stjómarmyndunina 1987, þegar Ól-
afi tókst næstum því að ýta honum út
úr ríkisstjóminni. Það var ættfaðirinn
sem beitti öllum sínum samböndum
til að sjá til þess, að þriðjungur sjálf-
stæðismanna í kjördæminu kaus
ekki menntamálaráðherrann í eitt
einasta sæti á listanum.
En kannski er Árni Matthiesen á
rangri hillu. Hann hefði kannski átt
að verða leikari. Það datt að minnsta
kosti mörgum í hug, þegar hann kom
á skjáinn eftir að hafa stjómað falli
Salome, og næstum því gengið frá
Ólafi G. Einarssyni, og sagði með
hryggðarsvip: „Það eina sem skygg-
ir á gleði mína er útleið Salome, og
hvað menntamálaráðherra fékk veik-
an stuðning í fyrsta sælið."
Ámi Mathiesen er hér nteð út-
nefndur til hræsnisverðlauna ársins.
Besta svarid
Það eru hinsvegar Ólafur G. og
Salome sem keppa um verðlaunin
fyrir besta svarið að prófkjörinu
loknu. Ólafur, eins og allir vita, er
frægur fyrir það að ekki einn einasti
maður getur náð sambandi við hann í
ráðuneytinu. Gott dæmi um það er
ónefndur flokksbroddur úr Garðabæ,
sem studdi hann með ráðum og dáð í
prófkjörinu 1990, þegar Ólafur náði í
fyrsta skipti efsta sæti listans. Ráð-
herra þakkaði honum kærlega fyrir
óeigingjamt sjálfboðastarl' í sína
þágu, og bað hann endilega að hafa
samband í ráðuneytið. Það hefur
maðurinn síðan reynt í Ijögur ár - án
árangurs!,
Allt kjörtímabilið hefur Ólafur
ekki heldur sést í kjördæminu, og
margir héldu að hann væri annað
hvort fiuttur eða sestur í helgan stein.
Eitthvað hefur samviskan nagað ráð-
herrann, því þegar sjónvarpið spurði
hann hversvegna hann hefði hlotið
svona slæma útreið, svaraði hann
efnislega: ,Ja, ég gleymdi víst kjör-
dæminu!"
Helsta baráttumál Salome f próf-
kjörinu vom stóraukin útlát ríkisins
til húsakaupa undir alþingismenn.
Ymsir töldu, að hrakfarir hennar í
prókjörinu mætti rekja til þess að
greindarstig Reyknesinga er með
þeim hætti, að þeim gekk erfiðlega
að skilja þá mikiu hagsmuni sem í
þessu fólust fyrir kjördæmið. Sal-
ome var hinsvegar á öðm máli, þeg-
ar hún fékk sömu spumingu og Ólaf-
ur í sjónvarpinu. Eftir nokkurt hik
kom þetta gullvæga svar: „Ég er svo
óheppin að vera kona."
Skyldi eiginmaður hennar vera á
sömu skoðun?
Dagatal 8. nóvember
Atburdir dagsins
1674 Enska stórskáldið John Milton,
höfundur Paradísarmissis, safnast til
feðra sinna. 1793 Franska byltingar-
stjómin veitir alþýðunni í fyrsta
skipti leyfi til að skoða hið konung-
lega listaverkasafn í Louvre. 1939
Sjö týna lífi og 60 slasast í sprengju-
tilræði í Múnchen sem er stefnt gegn
Hitler; hann var hinsvegar nýfarinn
af vettvangi. 1988 George Bush
kjörinn Bandaríkjaforseti, valtrar yf-
ir demókratann Michael Dukakis.
Afmælisbörn dagsins
Edmond Halley enskur stjörnu-
fræðingur og stærðfræðingur, kunn-
astur fyrir rannsóknir á halastjörn-
unni sem við hann er kennd, 1656.
Christian Barnard suður- afrískur
skurðiæknir, brautryðjandi á sviði
hjartaígræðslna, 1922. Margaret
Mitcheli höfundur bókarinnar Á
hverfanda liveli, sem reyndar var
eina bók hennar.
Annálsbrot dagsins
Kom bjarndýr eitt mikið, rauðkinn-
ungur, á land á Skaga í Skagafirði
við Ásbúðatanga, og sá hvergi til íss
af sléttlendi, en þó af háfjöllum. Það
dýr var soltið mjög, mannskætt og
grimmt; það deyddi 8 manneskjur,
sem voru fátækar konur með böm-
um, er um fóm og ekki vissu dýrsins
von.
Skarðsannáll, 1518.
Lofgjörd dagsins
Það er skoðun mín að vér íslendíng-
ar höfum aldrei útl skdld betra en
Jónas Hallgrímsson.
Halldór Kiljan Laxness, Alþýðubókin.
Lokaord dagsins
Lútið ekki veslings Nelly svelta.
Dánarorð Karls II Englandskonungs
(1630-85). Nelly þessi var frilla kóngsa.
Málsháttur dagsins
Það munar ekki um einn blóðmörs-
kepp í sláturtíðinni.
Ord dagsins
Eins mun búiið brenna mig
þó beðið sé afklerkum.
Allir dœma sjúlfa sig
með sínum eigin verkum.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Skák dagsins
I dag lítum við á endalok viðureign-
ar tveggja meistara sem ekki eru sér-
lega hátt skrifaðir á ELO-listanum
en kunna mannganginn og rúmlega
það. Tzoumbas hefur svart og á leik
gegn Tihonov. Svartur hrókur er í
uppnámi en Tzoumbas finnur lag-
lega leið til að gera útum taflið:
1.... Dc2!! 2. Dd4 Drottningin er
friðhelg: ella skiptir svartur uppá
hrókum og skákar svo hvítu drottn-
inguna af með gaffli á Re2. 2. ...
Hxfl+ 3. Hxfl De2 Létt og laggott:
Hvítur gafst upp.