Alþýðublaðið - 08.11.1994, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 08.11.1994, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Menning Frumsýning Jörfagleði í Borgar- leikhúsi í Hamsleysi: Lára Stefánsdóttir og Hany Hadaya dansa í Jörfagleði - eina skipti ársins sem alþýðan gat sleppt fram af sér beislinu. Geirlaugur: þrisvar sinnum þrettán. Ný bók frá Geirlaugi Ný ijóðabók kom úl a dögunum hjá Máli og menningu eftir Geir- laug skáld Magnússon; sannarlega ánægjuleg stórtíðindi fyrir Ijóðvini. Geirlaugur hefur hin síðari ár fest sig í sessi sem eitt allrabesta skáld landsins. Nýja bókin heitir þrisvar sinnum þrettán og Alþýðublaðið fékk leyfi til þess að birta eitt Ijóð. Frá Örlygsstöðum streyma yfir vaðið liðsmenn ótta þíns þegar einn fellur við verður undrun hans að herópi þannig verða ófarir manna þeim að brautargengi fjarri þeim er hafði allra ráð utan eigin í sinni hendi Svöluleikhúsið frumsýnir hið rammíslenska verk Jörfagleði í kvöld á stóra sviði Borgarleikhúss- ins. Sýningin byggir á sögulegum grunni, en þar segir af fólki sem fer sér til skemmtunar að bænunt Jörfa í Haukadal en þar var venja að gleði væri haldin árlega fyrir alla Dala- sveitina. Til gleðinnar mætti fjöldi ungmenna af báðum kynjunt, og var vfst einatt efnt til skyndibrullaupa í útihúsum. Þá var stiginn dans, kveð- in ástarkvæði og leiknir ýmsir leikir; og margháttuð skríþalæti og lausung höfð í frammi. Gleði þessi var mjög vinsæl meðal alþýðunnar, og er sagt að hjú hafi á stundum ráðið sig með því eina skilyrði að þeirn væri heint- ilt að fara til gleðinnar að Jörfa. Þar sleppti fólk af sér öllum hömlunt, en yfir hversdagslegu lífi þeirra vofði óvægið dómskerfi með hegningu í formi axar. hýðingar eða drekkingar. Sýningin er spennandi samspil dansa, söngva, leiks og lifandi tón- listar, og er unnin í samvinnu við Is- lenska dansflokkinn. Höfundar Jörfagleði eru Hákon Leifsson og Auður Bjarnadóttir, og Auður er jafnframt höfundur dansa. Tónlist er eftir Hákon Leifsson, Sigurjón Jó- hannsson hannaði leikmynd og bún- inga og lýsing er í höndum Lárusar Björnssonar. Fjölmargir listamenn koma frarn í sýningunni: 11 dansarar og fimm leikarar, hreyfilistamaður, 18 rnanna kór og átta manna hljóm- sveit. Glæður um skólamál Glæður, tímarit um uppeldis- og skólamál, er nýkomið út. Tímaritið er gefið út af Félagi íslenskra sér- kennara og kemur út tvisvar á ári, að vori og hausti. I tímaritinu er að finna margvíslegar fræðilegar greinar um uppeldis- og skólamál á öllum skólastigum. I þessu tölu- blaði er einkanlega fjallað um tvennt: sérkennslu í Ijósi heiltæku skólastefnunnar og börn sem greind hafa verið með félags- og til- finningalega örðugleika. I Glæðum er að íinna grein unna upp úr útvarpsþætti Bjargar Arnadóttur um ofvirk börn. Norski uppeldisfræðingurinn Terje Ogden, sem hélt nýverið er- indi hér á landi um börn með fé- lags- og tilfinningalega örðugleika, skrifar grein sem hann nefnir „Góður skóli - líka fyrir erfiða nemendur“. Jóhanna G. Krist- jánsdóttir spvr í ítarlegri grein sinni um áhrif heiltæku skólastefn- unnar á sérkcnnslu: Getur sér- kennsla verið skaðleg? Auður Hrólfsdóttir skrifar um sérkennslu á unglingastigi í grein sem hún nefnir: „Almennur grunnskóli fyr- ir alla?“ „Blöndun - deyjandi hug- myndafræði?“ er yfirskrift greinar eftir Gunnar Salvarsson, og Þór- unn Halla Guðlaugsdóttir skrifar um lestur og lestrarörðugleika með vísan í kcnningar danska pró- fessorsins Carsten Elbro. Að auki er í Glæðum sagt frá ráðstefnu norrænu sérkennarafélaganna, sem lialdin var í Kaupmannahöfn síðastliðið sumar, í grein Asgerðar Ólafsdóttur. „Gæði framar öllu.“ Þá er í tímaritinu viðtal Magna Hjálmarssonar við Kristján Sig- urðsson, fyrsta forstöðumann Unglingaheimilis ríkisins, undir fyrirsögninni „Ég hef aldrei haft tíma til að leika mér“. Glæður hafa komið út frá árinu 1990. Tímaritið er að þessu sinni 72 bls. að stærð. Ritstjóri er Gunn- ar Salvarsson. Oskin slær í gegn A fimmtudaginn verður Oskin eft- ir Jóhann Sigurjónsson sýnd á Litla sviði Borgarleikhússins í 40. sinn. Tveir mánuðir eru liðnir frá frum- sýningu verksins á Litlasviðinu og hefur aðsókn að sýningunni verið mikil og viðtökur áhorfenda góðar. Leikritið Óskin eða Galdra-Loftur var frumsýnt f Iðnó 26. desember 1914 og því eru nú áttatíu ár liðin frá frumfiutningi leiksins. I kjölfarið var leikrilið flutt víða um Evrópu og síð- ar vestanhafs og víðar. Var verkið talið annað höfuðverk Jóhanns og hefur sfðan verið eitt fán'a sígildra verka íslenskra leikbókmennta. Hef- ur Galdra Loftur verið leikinn regiu- lega um allt land og hver kynslóð túlkað örlög leikpersónanna á ný eft- ir sínu höfði. í sýningu Leikfélagsins nú hefur leikurinn verið styttur verulega og persónum fækkað. Efni leiksins er þannig samþjappaðra og cr vcrkið því nefnt að nýju sínu upprunalegu heiti. Það er Páll Baldvin Baldvins- son leikstjóri sem hefur sniðið verk- ið að þörfum Litla sviðsins og sex manna leikhópi og gerir hann jafn- framt búninga fyrir sýninguna. Stíg- ur Steinþórsson hannar leikmynd og hafa þeir báðir hlotið lofsyrði fyrir verk sín. Hilmar Örn Hilmarsson semur tónmynd fyrir sýninguna en Láms Björnsson hannar lýsingu. I hlutverki Steinunnar vinnukonu er Sigrún Edda Björnsdóttir en Loft leikur Benedikt Erlingsson. Dísa biskupsdóttir er Ieikin af Margréti Vilhjálmsdóttur, en ráðsmanninn á Hólunt leikur Theodór Júlíusson. Ellert A. Ingimundarson leikur Ólaf vinnumann, en biindan ölmusumann leikur Arni Pétur Guðjónsson. Leiktexti sýningarinnar hefur ver- ið gefinn út auk veglegrar leikskrár með áður óbirtum myndum frá ferli skáldsins. Vera komin út: Kvennahreyfing, kvenna- hreyfing hvar ert þú? Nýtt tölublað tímaritsins Veru er komið út og er þetta fimmta tölublað ársins tileinkað íslensku kvennahreyfingunni. Að vanda er Vera efnismikil: Ragn- hiidur Vigfúsdóttir ritstýra skrifar um þroskasögu femínista; Steinunn Valdís Óskarsdóttir kvennalistakona og Elsa Valsdóttir sjálfstæðiskona eiga tal saman um hin eina rétta tón kvennahreyfingarinnar; fjallað er um hreyf- ingu kvenna í Kvennakirkjunni, Kvenréttindafélagi Islands, Háskólanum og Samtökum kvenna í ungliðahreyfingunum; stjórnmálafræðingarnir Þórunn Sveinbjarnardóttir og Anna Kristín Ólafsdóttir ræða kvennapólitíkina; Kol- finna Baldvinsdóttir fjallar um jafnréttislögin; hvað var Þröstur Ólafsson að gera á mannfjöldaráðstefnunni í Kaíró?; kvennabókmcnntir; kvennarann- sóknir; Auður Ilaralds rithöfundur; Claire Ann Sinearntan lögfræðingur; karlar; plúsar; mínusar; mataræði og margt lleira er að finna í þessu fróð- lega tímariti sem fæst á fiestum blaðsölustöðum. Megas: Orðrómur um gróft orðbragð í bókinni. Skáldsagan Björn og Sveinn eftir Megas: Á súper nútíma reykvísku „Þessi saga gerist á þremurdögum í nútíðinni með stöðugri tilvísun til fortíðarinnar. Annars vegar til þess tíma fyir á öldum þegar Axlar-Björn og Sveinn voru uppi og hins vegar þegar þeir koma til Reykjavíkur í Bretagullið. Fortíðin og lýðveldið eru í bakgrunni sögunnar," sagði Megas í samtali við blaðið um nýja skáldsögu sem hann hefur samið. Sagan er væntanleg í útgáfu Máls og menningar. Hún nefnist einfald- lega Bjöm og Sveinn og Megas seg- ir vart hægt að hugsa sér fábrotnara bókarheiti. Nafnið sem slíkt gefi ekki tilefni til uppsláttar. Þeir feðgar Axlar-Björn og Sveinn skotli voru uppi á 16. öld á Snæfellsnesi. Sagnir herma að Bjöm hafi drepið 18 menn en ekki játað á sig nema níu morð. Megas sagði sagnir af þeim feðg- um ákaflega gloppóttar og þar væri enginn raunvemlegur söguþráður, en það mætti lesa á milli línanna hvers konar karakterar þetta hefðu verið. I skáldsögunni birtust þessar persónur í anda þjóðsögunnar. Sá orðrómur er á kreiki að orð- bragðið í bókinni sé ekki parfallegt? „Eg veit ekki hvaðan þú hefur það. Þú hefur ekki lesið bókina því það em bara þrír sem hafa lesið handritið. Eg hef heyrt þennan orð- róm en veit ekki hvaðan hann kemur. Er það hlutverk ykkar blaðamanna að birta slúður og halda lífi í gróu- sögum? Það er röng fullyrðing að segja að orðbragðið sé ljótt og slík fullyrðing brenglar vemleikann. í bókinni tala menn ögn öðmvísi en yngri menn gera í dag. Annað hvort væri nú með menn sem voru uppi fyrir nokkmm öldum. En bókin er allt frá þvf að vera fín íslenska til þessa að vera á svo súper nútíma reykvísku að fimmtugur maður skil- ur ekki bofs.“ Svo það er ekki verið að skafa ut- an afþví í textanum? „Eg veit ekki hvað þú átt við. Ef þú ert að tala um að þama sé notað gróft orðbragð þá er það nú svo að lífið er oft harkalegt og málfarið tek- ur mið af nauðsyn frásagnarinnar. En ég hef lagt mikla vinnu í þessa bók. Byrjaði að lesa mér til fyrir þremur ámm og var búinn að byggja upp söguþráð og skrifa hluta bókarinnar í ársbyrjun 1993. Þá nöppuðu þeir mig hjá Máli og Menningu og fengu að lesa nokkuð af þvf sem ég var bú- inn að skrifa. Þeir vildu fá söguna til útgáfu í fyrra en ég vildi fá meiri tfma til að Ijúka verkinu. Ég hef þann vana að spara ekki tímann þegar ég vinn mín verk,“ sagði Megas. t Móðursystir mín, Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Bergstaðastræti 40, Reykjavík, lést á Landspítaianum aðfaranótt 7. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. - Gunnar Valdimarsson.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.