Alþýðublaðið - 08.11.1994, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 08.11.1994, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Erlend hringekja Litríkasti viðskiptajöfur Svíþjóðar og „maður ársins“ þar í landi um miðjan níunda áratuginn, Egyptinn Refaat El-Sayed, hefur eignast stórfyrirtækið Fermenta á ný: Falsdoktorinn snýr aftur eftir að hafa afplánað þyngsta hvítflibbadóm í Svíþjóð Einn litríkasti viðskiptajöfur Evr- ópu er kominn aftur á stjá. A skömmum tíma komst hann á eigin dugnaði og útsjónarsemi á toppinn í sænsku viðskiptalífi, en hraðinn í fallinu varð jafnvel enn meiri. Þessi snjalli atvinnurekandi átti eftir að upplifa það að vera kjörinn ntaður ársins í Svíþjóð og lenda skömmu síðar allslaus í fangelsi. Maðurinn sem hér er lýst heitir Refaat El-Say- ed og kom sem innflytjandi frá Eg- yptalandi á áttunda áratugnum, en var fljótur að aðlagast sænskum þjóðfélagsháttum og þá sérstaklega atvinnulífinu. A toppinn El-Sayed var ótrúlega fljótur að koma undir sig fótunum. Hann var vel menntaður - með doktorspróf í efnafræði upp á vasann. Með dugn- aðinn og meðfætt viðskiptavit að vopni stofnaði hann lítið lytjafyrir- tæki, Fermenta. Fyrirtækið var ekki stórt í sniðum til að byrja með. en við upphaf níunda áratugarins fóru spek- úlantarnir að taka eftir vexti þess og þá var leiðin greið inn á sænska hlutabréfamarkaðinn. Það þótti að sjálfsögðu saga til næsta bæjar að nýbúa skyldi vegna svona vel, enda var dugnaður Egypt- ans langt umfram það sem meðal- Svenson sænska velferðarþjóðfé- lagsins átti að venjast. Fyrir vikið fékk El-Sayed óskipta athygli tjöl- miðla og fljótlega var hann farinn að flytja lærða fyrirlestra um rekstur fyrirtækja í efnaiðnaði. Velgengni Fermenta leiddi til þess að hlutabréf í fyrirtækinu hækkuðu verulega á hlutabréfamarkaðnum í Stokkhólmi. Fjárfesting í spútnikfyr- RAÐAUGLYSiNGAR IIMNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Útboð F.h. gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum vegna innkaupa á salti til hálkueyðingar: Útboðið nefnist: Götusalt efniskaup. Áætlað magn er um 6.000 tonn. Afhendingu skal að fullu lokið fyrir 15. mars 1995. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 1.000,-skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 17. nóv- ember 1994, kl. 11.00 fh. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkírkjuvegi 3 - Sími 25800 í samvinnu við Hönnunarstöðina auglýsir byggingadeild borgarverkfræðings eftir hönnuðum til að hanna innrétt- ingar fyrir félagslegar íbúðir Reykavíkurborgar. Valdir verða fimm hönnuðir eða hönnunarhópar til að taka þátt í launaðri tillögugerð, þar sem einn hönnuður eða hópur verður ráðinn í allt að átta mánuði til að fullhanna og móta hugmyndir sínartil útboðs á innréttingum. Umsóknum, þar sem hönnuðir leggja fram þær upplýsing- ar um sjálfa sig, sem þeir telja að gagni megi koma, skal skilað fyrir 21. nóvember til: Byggingadeildar borgarverkfrædings, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík. Merkt: Innréttingar 94. FELAGSMALARAÐUNEYTIÐ Húsaleigubætur Eftirtalin sveitarfélög hafa tilkynnt félagsmálaráðuneytinu þá ákvörðun sína að greiða húsaieigubætur á árinu 1996 skv. ákvæðum laga um húsaleigubætur nr. 100/1994. Aðaldælahreppur, Arnarneshreppur, Dalvíkurbær, Eyrar- bakki, Fellahreppur, Hafnarfjörður, Hofshreppur, Garða- bær, Grindavík, Mosfellsbær, Neskaupstaður, Reyðarfjarð- arhreppur, Reykholtsdalshreppur, Reykjavík, Sauðárkróks- kaupstaður, Selfoss, Seltjarnarnes, Stokkseyri, Súðavíkur- hreppur, Sveinsstaðahreppur, Tálknafjarðarhreppur, Torfalækjarhreppur, Vopnafjörður, Þingeyrarhreppur, Öx- arfjarðarhreppur. Félagsmálaráðuneytið, 7. nóvember 1994. Jafnaðarmenn í Reykjavík: Sighvatur í Kratakaffi Sighvatur Björgvinsson ráðherra verður gestur Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkur í Kratakaffi, miðvikudagskvöldið 9. nóvember klukkan 20:30. Jafnaðarmenn í Reykjavík: Fjölmennum og tökum með okkur gesti. - Stjórn Alþýduflokksfélags Reykjavíkur. Jafnadarmenn á Suðurnesjum: Hádegisverðar- fundur Hádegisverðarfundur verður haldinn laugardaginn 12. nóvember næstkomandi á Glóðinni, efri sal, klukkan 12:00 til 14:00. í boði er léttur hádegisverður á vægu verði. Gestir fundarins verða Össur Skarphéðinsson umhverfis- ráðherra og Rannveig Guðmundsdóttir alþingismaður. Fundarstjóri er Bergþóra Jóhannsdóttir. - Nefndin. Landsfundur SA framundan 25. til 26. nóvember næstkomandi verður haldinn 12. Landsfundur Sambands Alþýðuflokkskvenna á Hótel Loft- leiðum. Fundurinn verður settur klukkan 20:00 á föstudeg- inum. Þingstörf verða á laugardeginum frá klukkan 09:30 til 18:00. Málefnahópar hafa verið að störfum undanfarnar fjórar vikur og fjallað hefur verið um eftirfarandi málaflokka: Evrópumál, atvinnumál, fjölskyldumál og jafnréttismál. Allar nánari upplýsingar um þingið og undirbúning vegna þess gefur Esther Steinsson sem hefur verið ráð- in starfsmaður SAfram að landsfundi. Hún hefurfastan viðtalstíma á skrifstofum Alþýðuflokksins í Alþýðuhús- inu í Reykjavík, sími 15020, fax 629155. Refaat El-Sayed: Innsæi hans á fjármálamarkaðnum og dugnaðurinn við að byggja upp stórfyrirtækið Fermenta fór fyrir lítið þegar upp komst að doktorsnafnbót hans varfölsuð. Nú hefur Egyptinn afplánað sinn dóm og kemur sterkur til leiks. irtæki El-Sayed þótti skynsamleg og á tímabili voru skráðir hluthafar nærri 140 þúsund talsins. Margir af helstu viðskiptajöfrum landsins voru tilbúnir að setja fé inn í fyrirtækið og El-Sayed sat til borðs með sjálfum Per Gyllenhammar. þáverandi for- stjóra Volvo. Hátindinum var náð þegar El-Sayed var kjörinn maður ársins í Svíþjóð fyrir frábæran árang- ur á fjármálasviðinu. I tugthúsid En Adam var ekki lengi í paradís. Forvitnir rannsóknablaðamenn höfðu fengið áhuga á þessum nýríka innflytjenda sem slegið hafði sænsk- um kaupahéðnum ref fyrir rass. Þeg- ar farið var að grennslast fyrir um fortíð Refaat El- Sayed kom í ljós að ýmislegt var athugavert við hina háu menntun hans. Hann var alls ekki doktor í efnafræði, heldur var nánast ómenntaður. Það sem verra var hann hafði látið falsa fyrir sig prófskírteini og ýmis fylgiskjöl. Þessar fregnir komu sem reiðars- lag yfir sænska hlutabréfamarkaðinn og voru áfellisdómur ytir stjómend- um stórfyrirtækja sem höfðu fengið mikla trú á Egyptanum. Hlutabréfin í Fermenta hríðféllu á örskammri stundu. Saklausir sparifjáreigendur jafnt sem stórgrósserar töpuðu stór- um upphæðum á öllu sarnan. Almenningi í Svíþjóð þótti það ekki neinn stórglæpur að inntlytjandi væri gripinn með falsað prófskírteini frá háskóla í þriðja heiminum. En reiði forstjóraklíkunnar var mikil og engum skyldi detta í hug að endur- taka þennan leik. I réttarhöldunum yftr El-Sayed tókst sækjandanum að sýna fram á að hin upplogna mennt- un Egyptans hefði ráðið miklu unt það að hlutafjárkaupendur hefðu ákveðið að fjárfesta í fyrirtæki hans. Þegar fölsunin hefði hins vegar kom- ið í ljós hafi hlutabréfin fallið í verði og saklausir hluthafar tapað eignum sínum. El-Sayed tapaði öllum sínum eignum og var dæmdur í sex ára fangelsi. Þessi þunga refsing hefur af mörgum verið talin þyngsti hvít- tlibbadómur í Svíþjóð á síðari ámm. Hann lauk þessari afplánun á sfðasta Endurkoman En þrátt fyrir falsdoktorsnafnbót- ina og fangelsisvistina hafa ekki allir misst trúna á El-Sayed. Hann er byrj- aður aftur og hefur meðal annars stofnað fyrirtækið Hebi Intressenter með tveimur tjársterkum Banda- ríkjamönnum. Sjálfur er hann for- stjóri fyrirtækisins og neitar því stað- fastlega að hann sé hluthafi. El-Say- ed segir einfaldlega: Eg á enga pen- inga í dag. Eftir erfiðleika og vafasama við- skiptahætti þeirra eigenda er tóku við Fermenta eftir að El-Sayed fór í fangelsi hefur nýja fyrirtækið hans Hebi Intressenter nú keypt 9 prósent hlutafjár í Fermenta og nægir það til þess að El-Sayed fer nú með 49 pró- sent atkvæða í sínu gamla sköpunar- verki. Hann segist einfaldlega hafa trú á þessu umtalaða lytjafyrirtæki og neitar því ekki að þangað liggi líka sterkar taugar. En svo er það bara spumingin hvort spekúlantamir á hlutabréfa- markaðnum fá aftur trú á þessum Iit- ríka Egypta, eftir það sem á undan er gengið. Ef til vill verður Refaat El- Sayed að setjast á skólabekk í Svf- þjóð til þess að ná raunverulegri doktorsgráðu. En reynslan sýnir að það varekki menntunin sem hjálpaði El-Sayed að gera Fermenta að stór- veldi, heldur heilbrigð skynsemi. Þetta er kanski sá áhrifaþáttur sem fjárfestar ættu að meta meira í fram- tíðinni? ?•: FORKÖNNUN i i 1 1 I I 1 1 Rafmagnsveitur ríkisins og Rafmagnsveita Reykjavíkur hafa í samstarfí unnið að undirbúningi á endurnýjun viðskiptakerfa sinna. Um er að ræða hugbúnað sem notaður er til að halda utan um upplýsingar sem varða viðskiptamenn og orkusölu til þeirra. Þar á meðal er meðhöndlun upplýsinga varðandi gerð orkureikninga, mælabúnað og mælaálestur, heimtaugar, innheimtu og fleira sem snertir samskiptin við viðskiptavini orkuveitna. Aðilum, sem bjóða slíkan hugbúnað, er bent á að nálgast niá gögn um málið á skrifstofu Rafmagnsvcitna ríkisins, Laugavcgi 118 Reykjavík, og hjá Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík, til 16. nóvember n.k. | 1 1 I I 1 I UMFERÐAR Iráð RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS LAUGAVEGI 118 • 105 REYKJAVlK SÍMI 91-605500 • BRÉFSlMI 91-17891 1 I 1 1 I 1 jjgaasssisitaMgiis^^nnnnnnniiin'wnymiiicDiitiiiiiininitciiiTjriniiii'íintirtinrBMamiitiwfflffliwwww^stMSigKgswwaatsisiiaastisssssaaisasgg^

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.