Alþýðublaðið - 08.11.1994, Blaðsíða 8
MÞYDIIBIIDIB
Þriðjudagur 8. nóvember 1994
169.tölublað - 75. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Bókhald Listahátíðar í Hafnarfirði hf. sent til skattrannsóknar:
Stjómarmenn bera ábyrgö
á meðferð fjármála
-skráningu gagna og bókhaldi við framkvæmd listahátíðar, segja lögmaður og endurskoðandi Hafnarfjarðarbæjar.
Bæjarlögmaður Hafnarfjarðar
hefur rökstuddan grun unt að stjórn-
armenn hlutafélagsins Listahátíð í
Hafnarfirði hafi gerst brotlegir við
skattalög og að því tengist önnur brot
á lögum. Grunsemdir um fjárdrátt
eru ekki sýnilegar. Bæjarlögmaður
og bæjarendurskoðandi segja að
Listahátíð í Hafnarfirði hf. beri
ábyrgð á peningalegri meðferð há-
tíðarinnar, skráningu og bókhaldi.
Arnór Benónýsson fagnar þessari
niðurstöðu en Magnús Jón Amason
bæjarstjóri segist standa við þau orð
sín að meðferð á peningum skatt-
Prófkjör Fram-
sóknarflokksins:
Mér var
sparkað
- segir Karen Erla sem
hafnaði í 7. sæti á
Austurlandi. Halldór
Ásgrímsson fékk 159
atkvæði af 161 í fyrsta
sætið.
„Ég var í tjórða sætinu síöast en nú
var mér sparkað með skipulögðum
aðgerðum. Þrír karlmenn cru lengi
búnir að skipa þrjú efstu sæti flokks-
ins og það er greinilegt að svoleiðis
verður það áfram þar til einhver
þeirra ákveður að hætta. Þaö er raun-
ar óþarfi að hafa prófkjör við þessar
aðstæður," sagði Karen Iírla Erlings-
dóttir á Egilsstöðum í samtali við
blaðið.
Karen Erla stefndi á 2. sætið á lista
Framsóknarflokksins á Austurlandi.
A kjiirdæmisþingi flokksins um helg-
ina fór fram kjör um rnö á listann og
hafnaði Karen Erla þar í sjöunda
sæti. Halldór Asgrímsson hlaut stali-
níska kosningu í I. sæti eða 159 at-
kvæði af 161. Jón Kristjánsson al-
þingismaður lilaut örugga kosningu í
2. sætið eins og áður og Jónas Hall-
grímsson í 3. sætið. Röð efstu manna
er því óbreytt. I fjórða sæti var Kristj-
ana Bcrgsdóttir. Karen Erla sagði að
niikið hefði vantaö á að hún næði því
sæti sem hún slefndi á og það sýndi að
skipulega hefði verið unnið gegn sér.
„Þeir Halldór og Jón hafa þó ekki
stundað þau vinnubrögð sem aðrir
gerðu til að bola mér frá. Ég er ung og
menntuð kona sem vildi fara fram til
að hafa áhrif. Mínum kröftum var
vísað á bug og nú ætla ég að draga mig
úr fremstu víglínu og hugsa málið,“
sagði Karen Erla, sem hefur verið for-
maður kjördæmisráðs Framsóknar-
flokksins á Austurlandi.
Örn Óskarsson stjórnarmaður í
Listahátíð hf. Skýrsla embættis-
manna Hafnarfjarðarbæjar er
þungur áfellisdómur yfir stjórninni.
borgarana við framkvæmd listahá-
tíðar hafi verið glæpsamleg.
A fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í
gær var lögð fram skýrsla bæjarlög-
manns og bæjarendurskoðanda
vegna listahátíðar í Hafnarftrði sem
unnin var vegna samþykktar bæjar-
stjórnar frá 25. október. Þá var sam-
þykkt að óska eftir skýrslu þessara
embættismanna í framhaldi af
skýrslu fyrirtækisins Endurskoðunar
og reikningsskila hf. um Listahátíð f
Hafnarfirði 1993. I upphafi skýrslu
sinnar segja bæjarlögmaður og bæj-
arendurskoðandi:
„Þar sem samþykkt bæjarstjómar
byggir á greindri endurskoðunar-
skýrslu komust við ekki hjá því að
gera athugasemdir við villur í skýrsl-
unni. Fyrst er að nefna að skýrslu-
höfundar, sem jafnframt em endur-
skoðendur Listahátíðar í Hafnarfirði
hf. lögðu til í bréfi dags. 6. sept. s.l.
að stjóm félagsins afhenti öll gögn
tengdri umræddri listahátíð lil bæjar-
yfirvalda í Hafnarfirði til frekari
ákvörðunar um framhaldið, þar sem
Listahátíð í Hafnarfirði var ekki að
Gunnar Gunnarsson stjórnarmað-
ur í Listahátíð hf. Enginn ársreikn-
ingur, launaframtölum áfátt - og
málið sent í skattrannsókn.
þeirra áliti, falin ábyrgð á peninga-
legri meðferð hátíðarinnar, skrán-
ingu gagna né bókhaldi. Þetta álit
þeirra er rangt. Bendum við einfald-
lega á heiti félagsins svo og á 3ju gr.
samþykkta þess, þar sem segir að tii-
gangur félagsins sé að sjá um og reka
listahátíð í Hafnarftrði."
Einnig er vísað til þess að stjómar-
menn félagsins undirrituðu lang-
flesta samninga sem gerðir vom, þar
með taldar fjárskuldbindingar og
komu að öðru leyti fram sem fram-
kvæmdaaðilar hátíðarinnar.
Bæjarlögmaður og bæjarendur-
skoðendur segja ennfremur að um-
mæli skýrsluhöfunda Endurskoðun-
ar og reikningsskila hf. um eftirlits-
lausar úttektir Arnórs Benónýssonar
af hlaupareikningi bæjarsjóðs sé
röng. I öllum tilvikum hafi verið haft
samráð við yfirmenn.
I skýrslu embættismannanna sem
var lögð fyrir bæjamáð í gær kemur
fram að stjóm Listahátíðar í Hafnar-
firði hf. gerði fjárhagsáætlun fyrir
umrædda listahátíð. Þær áætlanir
hafi verið verulega vanáætlaðar og
þar sé að finna gmnnástæðuna fyrir
viðbótarframlagi bæjarsjóðs. Bæjar-
sjóður Hafnarfjarðar gerði verktaka-
samning við Arnór Benónýsson í
febrúar 1993 þar sem honum bar
meðal annars að hafa umsjón með
fjármálum. Með samningi bæjarins
við nýstofnað félag Listahátíð í
Hafnarfírði hf. í mars breyttist staða
Amórs á þann hátt að hann varð
starfsmaður félagsins. Hann stóð
hins vegar ekki við samningsbundn-
ar skyldur sínar og sama gildir um
Listahátíð Hafnarfjarðar hf.
I lok skýrslunnar kemur fram að
það vanti ársreikning fyrir félagið
Listaháíð Hafnartjarðar hf. fyrir liðið
starfsár. Launaframtölum Listahá-
tíðar Hafnarfjarðar hf. sé áfátt.
Stjómarmenn félagsins em Gunnar
Gunnarsson, Sverrir Olafsson og
Örn Óskarsson og þeir ákváðu sér
laun. Síðastliðinn laugardag hafði
Sverrir Ólafsson símasamband við
skýrsluhöfunda og kvaðst hafa greitt
550 þúsund krónur úr eigin vasa til
kúbverskra listamanna og af þeim
sökum lækkað framtaldar tekjur til
skatts sem því nemur. Hins vegar er
ekki að sjá að Sverrir geri neina
krötú um endurgreiðslu á þessari
fjárhæð. Arnór Benónýsson hafi gef-
ið sínar skýringar á þeim óútskýrða
mismun sem fram komi í endurskoð-
unarskýrslunni.
Arnór sagði í samtali við blaðið í
gær að hann fagnaði því að skýrsla
embættismanna bæjarins staðfestu
sín orð varðandi þetta mál og hann
lægi ekki undir gmn um misferli.
A fundi bæjarráðs Hafnartjarðar í
gær var samþykkt með þremur at-
kvæðunt meirihlutans að senda
skattstjóra Reykjaness fyrirliggjandi
bókhaldsgögn fyrirtækisins Listahá-
tíðar Hafnarfjarðar hf. til frekari
meðferðar vegna rökstudds gmns
um skattlagabrot, skjalafals og ótví-
ræða bókhaldsóreiðu.
A fundinum lögðu fulltrúar Al-
þýðuflokksins í bæjarráði fram bók-
un þar sem bæjarstjóri er talinn hafa
brugðist trausti bæjarráðs og bæjar-
stjómar og látið frá sér fara ummæli
sent eru ekki stöðu hans sæmandi.
Hann hafi verið með aðdróttanir og
fullyrðingar um að hinir og þessir
sent unnu að listahátíð séu glæpa-
menn og þjófar.
„Eg fæ í sjálfu sér ekki séð að
þessi skýrsla embættismannanna
breyti miklu. En hvar hef ég sagt
þjófur? Hvergi. En nú erum við búin
að fá tvær skýrslur um Listahátíðar-
málið. Mér finnst hvorug skýrslan
skýra það til hlítar þannig að það sé
hægt að segja að málinu sé lokið. En
ég fer þá leið sem bæjarlögmaður
velur því hann er löglærður maður.
Sem almennur borgari hefði ég kos-
ið að fará aðra leið. Eg stend við það
sem ég sagt áður að mér finnst hafa
verið farið með peninga skattborgar-
ana á glæpsamlegan hátt,“ sagði
Magnús Jón Amason bæjarstjóri í
samtali við blaðið.
Arnór: Hreinsaður af öllum áburði
um ólöglegt athæfi. „Fagna því að
skýrsla embættismannanna stað-
festi orð mín."
C
&
ZZi
t*.
Stjórn Listahátíðar skammtaði sér
laun: Ákveðið var að Sverrir Ólafs-
son fengi 150 þúsund krónur á
mánuði i 13 mánuði en síðan var
sú greiðsla hækkuð í 175 þúsund á
mánuði. Auk þess sinnti hann list-
rænni ráðgjöf eins og fram kemur
á þessum reikningi.
Athugasemd:
Svanfríður
var að hræra
í blóðinu
Alþýðublaðið birti um daginn um-
sögn mína um það þegar Ólafur
Ragnar slátraði Svanfríði Jónasdótt-
ur í varaformannssæti til þess að
gulltryggja sjálfan sig. Blaðið hafði
réttilega eftir að Ólafur Ragnar hcfði
selt hana á fæti. Aðstoðarráðherrann
Margrét S. Björnsdóttir gerir síðan í
Alþýðublaðinu einhvcrjar athuga-
semdir um formleghcit - hvernig
þetta hafi átt sér stað.
Ekki ætla ég að fara að standa í
ritdeilum við Margréti S. Björnsdótt-
ur um okkar gamla flokk. Hitt vil ég
aðcins segja, að það rifjaðist upp fyr-
ir mér gamalt atvik. Ég hitti stúlku
úti á landi og spurði:
- Hvað hefur þú verið að gera í
haust?
Ég var að vinna í sláturhúsi.
- Æi, er það ekki ægilega and-
styggilegt, þar sem verið er að drepa
fallegu lömbin sem koma af fjalli?
Nei, nci. Það var allt í lagi hjá mér.
Ég var að liræra í blóðinu.
Þegar á þessari sláturtíð stóð í Al-
þýðubandalaginu var Svanfríður að
hræra í blóðinu.
- Guðmundur J. Guðmundsson
Átökin í Bosníu að magnast:
Hætta á að stríðid breiðist út
- rætt við Björn Bjarnason formann utanríkisnefndar Alþingis og Jón Orm Halldórsson doktor í stjórnmálafræði.
Nú er allt útlit fyrir að átökin í Bo-
sníu séu að magnast á ný. Stjómar-
her Bosníu hefur hafið stórsókn í Bi-
hac héraði og gengur vel. Bosníu-
serbar kveinka sér yfir því, að hið al-
þjóðlega samfélag sé ekki að hlaupa
upp til handa og fóta til að stöðva
þessa sókn og það staðfesti, að gert
Vinningstölur
laugardaginn:
5. nóv. 1994
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
n 2 2.329.583
a+4afS 1 480.829
3 4af5 140 5.924
03315 4.064 476
Aðaltölur:
@@@
BÓNUSTALA:
38
Heildarupphaeð þessa viku:
kr. 7.903.819
UPPLÝSINGAR. SÍMSVARI 91- 66 15 11
LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
sé upp á milli strfðandi aðila í þessu
langhijáða landi. Alþýðublaðið hafði
tal af tveimur Islendingum sem
þekkja vel tii mála á þessum slóðum.
Björn Bjarnason er formaður
utanríkisnefndar Alþingis. Hann
sagði að svo virtist sem tilraunir þær
sem gerðar hafa verið að undan-
förnu til að koma á friði í Bosníu
haii mistekist. Sameinuðu þjóð-
irnar og Atlantshafsbandalagið
standi ráðþrota gagnvart vanda-
málinu og allt stefni nú í aukin
átök og aukna hörku. Björn
sagðist jafnframt ekki hafa sam-
úð með Serbum í þessu stríði og
ef aflétta ætti vopnasölubanninu
ætti að gæta þess að þeir sem
högnuðust á því væru múslim-
arnir. Björn sagði ennfrenrur að
mesta hættan væri sú að stríðið
breiddist út til Kosovo, Albaníu
og Makedóníu og að höfuðatrið-
ið væri að koma í veg fyrir slíkt.
Jón Ormur Halldórsson, dokt-
or í stjómmálafræði, treysti sér
ekki til að spá um framvindu
mála á næstu vikum. Hann sagði
Björn: Hefur ekki samúð með Serb-
um í þessu stríði og ef vopnasölu-
banni verður að gæta þess að þeir
sem hagnist á því verði múslim-
arnir. Mesta hættan er sú að stríð-
ið breiðist út.
að nú væru greinilega að verða kafla-
skipti; Sameinuðu þjóðirnar hefðu
verið tvístígandi í heilt ár og þær
þyrftu að fara að taka ákvarðanir um
áframhaldandi veru sína í Bosníu
fljótlega. Að mati Jóns Orms er
Jón Ormur: Þeirri skoðun vex fylgi
á Vesturlöndum að Vesturlönd
geti ekki leyst deilur í lýðveldum
fyrrum Júgóslavíu og eigi því ekki
að blanda sér í átök á svæðinu.
helsta hættan nú sem áður útbreiðsla
átakanna, annars vegar til norðurs,
með þeim hætti að Króatía dragist
inn í stríðið á ný og svo til suðurs til
Kosovo og Makedónfu. Hann sagði
ennfremur að ef Sameinuðu þjóðirn-
ar drægju sig út og vopnasölubanni
yrði aflétt, yrði að öllum líkindum
vopnað uppgjör í fyrrum Júgóslavfu.
Ef Sameinuðu þjóðimar héldu hins
vegar sínu striki myndi ástandið að
Iíkindum haldast á þvístigi sem kalla
mætti „low intensity conflict", það er
að segja svæðisbundin átök víðsveg-
ar um Balkanskagann. Jón Ormur
sagði Sameinuðu þjóðirnar gegna
því hlutverki helstu, að sjá unr að
birgðaflutningar haldist um landið.
Ef að þær drægju sig út mætti vænta
mikillar neyðar sveltandi fólks í Bo-
sníu. Aðspurður unr hvort að hann
teldi að aflétta ætti vopnasölubann-
inu sagðist Jón Ormur hallast að
skoðun Breta, sem raunar væri vax-
andi fylgi við meðal Bosníumanna
sjálfra að halda bæri banninu áfram.
Það hefði átt að aflétta banninu fyrir
l til 2 árum. Jón Ormur sagði enn-
fremur að þeirri skoðun yxi sífellt
fylgi á Vesturlöndunr að Vesturlönd
gætu ekki lcyst þessa rniklu og
flóknu deilu og ættu þvi' að blanda
sér sem minnst í átök á svæðinu. Jón
Omrur vildi ekki gefa það upp hvort
hann væri sjálfúr þeirrar skoðunar.