Alþýðublaðið - 11.11.1994, Side 2
2
JAFNAÐARMAÐURINN
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994
jónustuauglýsingar
Árni Emanúelsson
Sendibílstjóri s. 985-24675
Sparisjóður
••
Onundarfjarðar
Sporthúsið
Akureyri
Sandgerðisbær
Neskaupstaður
Miðbær
Hafnarfjarðar hf.
Kópavogskaupstaður
Kjarnafæði sf.
Hilmar Hafsteinsson
verktaki
Hegat-iðnfyrirtæki
Grindavíkurbær
Góa-Linda
Fjarðarmót hf.
BSJ-Steinsteypusögun
og kjarnaborun
Hvað var að gerast á 41. þii
Sidferdi stjórnmálamanna
- Þess er krafist að starfsemi
stjórnmálaflokka fari fram fyrir
opnum tjöldum, þar með talin
fjármál þeirra. Ungir jafnaðar-
menn telja að umræðan um sið-
bót í íslenskum stjórnmálum hafi
verið cinsleit og ómarktæk þar
sem kastljós fjölmiðla hafi nær
eingöngu beinst að Alþýðuflokkn-
um og einstökum ráðherrum
hans. Það sé út af fyrir sig þungur
áfellisdómur að setja þurfi starfs-
lög fyrir stjórnmálamenn á Is-
landi.
Húsaleigubótum fagnad
- Ungir jafnaðarmenn fagna því
að komið hafi verið á húsaleigu-
bótum. Þeir harma jafnframt þá
ákvörðun þeirra sveitarfélaga
sem hafa hafnað því að gefa íbú-
um sínum kost á þessum greiðsl-
um til tekjujöfnunar.
Aðskiinadur ríkis
og kirkju
- Ungir jafnaðarmenn krefjast
þess að ríki og kirkja verði þegar
aðskilin.
Landid eitt kjördæmi
-Ungir jafnaðarmenn lýsa stuðn-
ingi sínum við það að gera landið
allt að einu kjördæmi. Allar aðrar
leiðir eru málamiðlun, og misjafnt
atkvæðavægi er ekki rétt leið til
að jafna aðstöðumun mismunandi
landshluta.
Réttindi samkynhneigðra
til hjónabands
- Ungir jafnaðarmenn árétta fyrri
ályktun um stuðning við þau
mannréttindi samkynhneigðra, að
fá að ganga í hjónaband, og njóta
þar með Iögverndaðs erfðaréttar.
Hertari dóma yfir kyn-
ferðisglæpa-mönnum
- Ungir jafnaðarmenn lýsa furðu
sinni á dómum sem kveðnir eru
upp yfir kynferðisglæpamönnum
hér á landi. Heimildir fyrir lengri
dómum á að nýta svo sakborning-
ar fái dóma í samræmi við alvöru
þeirra glæpa sem þeir fremja.
Grunnskólinn verði bættur
- Ungir jafnaðarmenn telja undir-
stöðu velmegunar og hagvaxtar
vera góða menntun þegnanna.
Menntun grunnskólabarna hefur
farið síversnandi og þarf að snúa
þessari þróun við þegar í stað.
Stríðshrjáð svæði
- Þingið ályktaði meðal annars
um að vopnasölubanni á múslima
í Bosníu verði aflétt án tafar.
Málefni fjölskyldunnar
- Ungir jafnaðarmenn hvetja til
stóraukinnar áherslu á forvarnar-
starf og málefni fjölskyldunnar.
Nýting persónuafsláttar
- Ungir jafnaðarmenn ítreka sam-
þykkt sína frá 39. þingi SUJ um
nauðsyn þess að einstæðir for-
eldrar geti nýtt sér persónuafslátt
barna sinna á framhaldsskóla-
aldri.
Skattfrjáls menningar-
framlög
- Ungir jafnaðarmenn vilja að
framlög fyrirtækja og stofnana til
menningar og lista verði frádrátt-
arbær til skatts. Sérstaklega er
vert að benda á framlög til kvik-
myndagerðar í þessu sambandi.
Áskorun til
verkalýðsfélaga
-10% fjölskyldna í landinu eru
með tekjur undir þeim viðmiðun-
armörkum sem félagsmálastofn-
un miðar við þegar fjárhagsað-
stoð er úthiutað. Þetta er óásætt-
anlegt og ungir jafnaðarmenn
skora á verkalýðsfélög að semja
ekki um lægri laun en þau sem
hægt er að lifa á.
Fjárhagsvandræði
Háskóla íslands
- Ungir jafnaðarmenn mótmæla
kröftuglega því fyrirhyggjuleysi
sem felst í fyrirliggjandi fjárlaga-
frumvarpi, þar sem enn er þrengt
að Háskóla Islands.
Stuðningsyfirlýsing
við bændur
- Samband ungra jafnaðarmanna
Iýsir yfir fullum stuðningi við ís-
lenska bændur og landbúnað og
hvetur bændur til að brjótast
undan oki ríkjandi miðstýringar
kerfisins.
Sumarmisseri við
Háskóla íslands
- Ungir jafnaðarmenn styðja þær
tillögur sem nú liggja fyrir Al-
þingi um sumarmisseri við Há-
skóia Islands.
Opnunartími veitinga-
og skemmtistaða
- Ungir jafnaðarmenn mótmæla
forsjárhyggju íslenskra stjórn-
valda hvað varðar afskipti hins
opinbera af opnunartíma veit-
inga- og skemmtistaða. Að mati
SUJ er afmarkaður tími skemmt-
anahalds ekki lausn á þeim vanda
sem honum er ætlað að leysa, og
færi betur að gefa hann frjálsan.
Efling sjávarútvegsins
- Þingið telur að stærsti gallinn
við núverandi fiskveiðistjórnar-
kerfi, kvótakerfið, sé óheft fram-
sal veiðiheimiida. Það er með öllu
óþolandi að auðlindir hafsins, sem
eru sameign allrar þjóðarinnar,
skuli með lögum vera sett í hend-
ur örfárra einstaklinga. Gera þarf
breytingar á núverandi kerfi þar
sem tryggt sé að 1. grein laga um
stjórn fiskveiða sé virt. Ungir
jafnaðarmenn álíta að leyfa beri
fjárfestingar erlendra aðila í fisk-
vinnslu á Islandi.
Sameining jafnaðarmanna
- Ungir jafnaðarmenn hvetja til
aukins samstarfs ungliðahreyf-
inga þeirra fiokka sem kenna sig
við félagshyggju, á grundvelli
jafnaðarstefnunnar.
Upplýsingar
um SUJ
- Auk þess liggja fyrir skýrslur og
álitsgerðir málefnahópa sem
störfuðu fyrir og á þinginu um:
(a) Siðbót í íslenskum stjórnmál-
um. (b) Kjördæmamál og flokka-
kerfið. (c) Innri mál og framtíðar-
mótun SUJ. Allar samþykktir og
ályktanir Sambands ungra jafn-
aðarmanna er hægt að nálgast á
skrifstofum SUJ á II. hæð Al-
þýðuhússins í Reykjavík, Hverfis-
götu 8-10. Síminn er 91-29244 og
faxið 91-629155. Framkvæmda-
stjóri Sambands ungra jafnaðar-
manna er Baldur Stefánsson.
Framkvæmdastjórn SUJ skipa:
Jón Þór Sturluson formaður,
Gestur G. Gestsson 1. varafor-
maður, Aðalheiður Sigursveins-
dóttir 2. varaformaður, Friðrik
Kristján Jónsson ritari, fna Björk
Hannesdóttir gjaldkeri, Steinn Ei-
ríksson meðstjórnandi og Jenný
Magnúsdóttir meðstjórnandi.
Forsetar málstofa SUJ eru: Eirík-
ur Bergmann Einarsson utanrík-
ismál, Jón Eggert Guðmundsson
umhverfismál, Gunnar Alexander
Olafsson atvinnu- og efnahags-
mál, Héðinn Skjaldarson velferð-
armál og Gestur Páll Reynisson
menningar- og menntamál.
Vegna harðrar gagnrýni Suðurlandsbúa á Evrópustefnu SUJ þótti lög-
reglugæsla viturleg. Alvara...
Gestur G. Gestsson, 1. varaformaður SU J, ræðir um frábæra fundarstjórn
Bolla R.V. Ekki...