Alþýðublaðið - 30.11.1994, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 30.11.1994, Qupperneq 7
MIÐViKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Ef þetta er þeirra réttlæti, hvert er þá þeirra óréttlæti? Oft hefur verið sagt, að helgasti réttur hvers manns sé kosningarétt- urinn. Sagan segir okkur frá ára- langri baráttu hins almenna borgara fyrir þessum rétti og enn er þeirri baráttu hvergi nærri lokið. Vfða um heim er þessi réttur einungis nafnið eitt og á ekkert skylt við þann kosn- ingarétt sem þekkist hér á Vestur- löndum. Hér á íslandi hefur kosningarétt- urinn, það er að mega kjósa, verið nokkuð almennur meginjrorra þess- arar aldar og hefur aldur þeirra sem mega kjósa stöðugt farið lækkandi. Það er eins og menn hafi staðnæmst við þann þátt, en hins vegar gleymt að láta vægi_______________________ atkvæðanna Pallborðið 1 Guðmundur í sT^ ^ Oddsson fe^.k skrifar vera nokk- urt atriði í málinu. A 19. öld var talað um „drauga- bæi“ á Eng- landi, en það voru bæir úti á landsbyggðinni sem fólkið hafði yftrgeftð, en þeir héldu þó sínum þingmönnum. Þetta hefur líka gerst hér á landi og alveg eins og á Eng- landi hefur þingmannafjöldinn haldist úti á landsbyggðinni, þó íbú- arnir hafi flutt sig um set. Breyting á vitlausu kerfi Sú kjördæmaskipan sem við ís- lendingar búum við er aldeilis kol- vitlaus. Hér er það bundið í lögum að íbúum skuli mismunað eftir bú- setu. Það hlýtur hins vegar að brjóta í bága við stjómarskrá lýðveldisins, en þar er gert ráð fyrir að allir lands- menn hafi sama rétt án tillits til bú- setu, þjóðfélagsstöðu og efnahags. Það er því nteð ólíkindum að ekki skuli vera búið að breyta þessu fyr- irkomulagi fyrir löngu síðan. Alltaf þegar nálgast kosningar til Alþingis kemur þessi sama umræða upp: Að nauðsynlegt sé að jafna at- kvæðavægið með því að leyfa þeim sem brotið hefur verið á í áratugi að fá einhver aukin réttindi. Lengra nær þessi umræða aldrei. Hvers vegna? Vilji forystu Framsóknar- og Sjálfstædisflokks Það er auðvitað út í hött, að ákveðnir stjórnmálaflokkar skuli hafa það á sinni stefnuskrá að landsmönnum sé mismunað. Hvers vegna í ósköpunum þurf- í um við í lok 20. aldar, að deila um það hvort landsmenn eigi að hafa sama rétt hvar sem þeir búa á landinu? Þjónar það virkilega ’ einhverjum landsbyggðarbúum I að við sem búum hér á höfuð- j borgarsvæðinu skulum hafa I margfalt minna atkvæðavægi \ heldur en þeir? Ég trúi því ekki. Hitt sýnist mér miklu líklegra, að þessi skipan þjóni fyrst og fremst hagsmunum Framsókn- ar- og Sjálfstæðisflokks. Að minnsta kosti eru það einungis _________ taismenn þessara flokka sem berjast L _ fyrir því að þessu „ Pjónar það virkilega einhverjum lands- 'ð.SVAimeniungurldí byggðarbúum að við sem búum hér á höfuð- 'ega'enganUáhugfá borgarsvæðinu skulum hafa margfalt minna að mismuna fóiki. atkvæðavægi heldur en þeir? Ég trúi því ekki. Ad réttiæta Hitt sýnist mér miklu líklegra, að þessi skipan óréttlæti . . „ . . . , , Fyrir skömmu þjom fyrst og fremst hagsmunum Framsokn- “alrsk“ ,“,r fandS ar- og Sjálfstæðisflokks." um þessi mál. Mér fannst þessi fundur vera býsna fróðlegur og sem betur fer, þá var sjónvarpað frá hon- um svo margir hafa getað fylgst með umræðum forystumanna flokkanna sem þarna sátu fyrir svör- um. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins og Friðrik Sophusson, váraformaður Sjálf- stæðisflokksins, höfðu nokkra sér- stöðu á þessum fundi. Þeirra mál- flutningur snerist um að réttlæta óréttlætið en báðir viðurkenndu þéir að eitthvað þyrfti að gera. Það hvarflaði ekki að þessum forystu- mönnum tveggja stærstu stjórn- málaflokkanna að sjálfsagt og eðli- legt væri að allir landsmenn hefðu sömu réttindi. Nei, aldeilis ekki. Friðrik Sophusson, annar þing- maður Reykjavíkur, taldi það með öllu út í hött, að Reykvíkingar hefðu sama atkvæðisrétt og til dæmis Vestfirðingar. Hefur þessi þing- maður Reykvíkinga ekki meira traust á sínum kjósendum en það, að honum finnist bara sjálfsagt að þeirra atkvæði vegi einungis 1/5 af atkvæðum Vestfirðinga? Um hverja er Friðrik Sophusson að hugsa? Þarna ná þeir saman, Friðrik og Halldór Ásgrímsson. Er þetta þeirra réttlæti? Ef svo er, þá spyr ég, hvert er þeirra óréttlæti? Landid eitt kjördæmi, eina lausnin Ef menn í alvöru meina eitthvað með því að ná fram jöfnun atkvæð- isréttar, þá er ekki um neina eina lausn að ræða, en það er að gera landið að einu kjördæmi. Þetta sjá allir, en einungis Alþýðuflokkurinn hefur barist fyrir þessari lausn og haft hana í sinni stefnuskrá árum saman. Allir aðrir flokkar hafa verið að leita eftir mismiklu óréttlæti af klárum þrælsótta eða einhverju mis- skildu dekri við landsbyggðina. Það er ömurlegt að lesa hugmyndir Dav- íðs Oddssonar forsætisráðherra að lausn þessa máls. Hans réttlæti nær á svipaðar slóðir og þeirra Friðriks og Halldórs, það er að viðhalda óréttlætinu en draga heldur úr því. Davíð hefur sett fram það markmið að hæfilegt sé að atkvæði Reykvík- inga sé „bara 2,5 sinnum gildism- inna heldur en atkvæði Vestfirð- inga.“ Þannig er mat formanns Sjálfstæðisflokksins og fyrsta þing- manns Reykjavíkur hvað séu hæft- leg mannréttindi Reykvíkinga. Alþýduflokkurinn med sér- stödu Svo aftur sé vitnað til þessa fund- ar með ungu fólki þá kom sérstaða Alþýðuflokksins afar vel til skila á fundinum. Jón Baldvin flutti málið af miklum skörungsskap og rök- studdi að eina leiðin til að útrýma þvf óréttlæti sem við gengist, væri að gera landið að einu kjördæmi. Þá gætu flokkarnir raðað á Iistana eins og þeim sýndist eða þá að leyfa kjósend- um að raða upp listanum eftir eigin geðþótta. Sá málflutning- ur sem Jón Baldvin var með féll afar vel að hugmyndum unga fólksins á þessurn fundi, og því eigum við Alþýðuflokksmenn að gera kjördæmamálið að einu aðalmáli komandi kosninga, og láta þannig á það reyna hve mikið er að marka yfirlýsingar manna um fullt réttlæti í þessum málum Höfundur er bæjarfulltrúi í Kópavogi og formaður framkvæmdastjórnar Alþýðuflokksins. Menningarmolar Kvennakórínn í Hallgrímskirkju Kvennakór Reykjavíkur heldur aðventutónleika í Hallgrímskirkju dag- ana 30. nóvember og 2. desember og hefjast þeir klukkan 20:30 bæði kvöldin. Auk kórfélaga sem em nímlega eitthundrað koma fram smæni hópar; félagar úr Karlakómum Fóstbræðrum, sönghópurinn Vox Feminae ásamt einsöngvumm, þeim Björk Jónsdóttur sópran og Þorgeiri Andrés- syni tenór- Svana Víkingsdóttir leikur undir á orgel. Einnig leikur Ásgeir Sverrisson á trompet. Stjómandi kórsins er Margrét J. Pálmadóttir. Á efn- isskránni verður íslensk jóla- og aðventutónlist frá ýmsum timum. Tónleik- amir bera yfirskriftina „Ó, helga nótt“. Sigurdur A. hjá Samtökunum '78 A fimmtudagskvöldið klukkan 21:00 mun Sigurður A. Magnússon rit- höfundur lesa uppúr nýútkominni þýðingu sinni á „Söngnum um sjálfan mig“ eftir bandaríska ljóðskáldið Walt Whitman á bókasafni Samtakanna ’78 að Lindargötu 49. Húsið opnar klukkan 20:00 og aðgangur er ókeypis. Finnar gefa 140 þúsund til „Hlödunnar" I tilefni af vígslu nýju Þjóðarbókhlöðunnar mun Esko Háki yfirbóka- vörður afhenda peningagjöf frá Finnlandi að upphæð 140 þúsund krónur. Gjöfin er ætluð til bókakaupa í Finnlandi að eigin vali. Með gjöfinni vill finnska menntamálaráðuneytið og Háskólabókasafnið í Helsingfors (lands- bókasafn Finnlands) óska þessu nýja og sameinaða tslenska bókasafni gæfu og gengis á þessum tímamótum. Þetta kemur fram í ávarpi Tom Sö- derman, sendiherra Finnlands á Islandi sem fylgir gjöfinni. Barrokkflautur í Norræna húsinu Barrokkflautuleikaramir Martial Nardeau og Guðrún Birgisdóttir korna fram á Háskólatónleikum í dag, miðvikudag, klukkan 12:30, í Norræna húsinu. Martial og Guðrún hófu að leika saman sem flautudúett árið 1981 og hafa haldið fjölmarga tónleika á þessum tíma; meðal annars leikið tví- leikskonsert með Kammersveit Reykjavíkur. Á síðastliðnum ámm hafa þau verið að auka þekkingu sína á barrokktónlist með því að spila 17. og 18. aldar tónlist á uppntnalegar tréflautur. Á tónleikunum í Norræna húsinu leika þau tvfleiksverk Georg Philipp Telemann. Jacques Hotteteire og Wil- helm Friedmann Bach. Aðgangseyrir er 300 krónur, en að vanda er ókeyp- is inn fyrir handhafa stúdentaskírteinis. Eitt framfaraskref er betra en ekkert Pallborðið Bolli Runólfur Valgarðsson skrifar Loksins hefur verið ákveðið, á síð- ustu mánuðum kjörtímabilsins, að leggja fram á Alþingi frumvarp um breytingu Búnaðarbankans í hlutafé- lag. Það er eftir öðru að það lenti á Sighvati Björgvinssyni viðskiptaráð- heira, að koma því í verk - enda er hann einn fárra ráðherra f þessari rík- isstjóm sem lætur hendur standa fram úr ermum svo einhveiju nemi. Frum- varpið er í samræmi við samþy kkt flokksþings A 1 þ ý ð u - flokksins - Jafnaðar- m a n n a - flokks ís- lands, um þetta efni, en þar var að vísu kveðið á um breytingu beggja ríkisbankanna f hlutafélög. Fyrrverandi viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson. var langt kominn með undirbúning málsins en ntálið strand- aði skyndilega í hans eigin flokki, á Össuri Skarphéðinssyni, Guðmundi Áma Stefánssyni, Jóhönnu Sigurðar- dóttur og Gunnlaugi Stefánssyni. í Ijósi síðustu frétta hlýtur maður að álykta að viðskiptaráðherra hafi loks tekist að tryggja sér stuðning þing- flokksins við málið, en Össur og Guð- mundur Ámi, lýstu því yfir á fyrsta borgarafundinum sem haldinn var með þeint á Sólon Islandus skömmu eftir að þeir urðu ráðherrar, að þeir myndu ekki styðja málið. Breyting annars bankans sýnir að náðst hefur málamiðlun í þingflokknum sem vel má við una enda er eitt stigið fram- faraskref betra en ekkert. Flokksþing samþykkti Á flokksþingi í Hafnarfirði í júní 1992 kom fram sú afstaða þingfull- trúa að skynsamlegt sé, að stærstur hluti atvinnu- rekstrarins f landinu lúti sömu leikreglum og sömu lögum og búi þannig við jöfn starfsskilyrði. Þetta eigi ekki síður við ýniis fyriitæki og stofnanir í eigu ífkissjóðs en almenn hlutafélög í einu einstak- ---------- linga. Og Samband ungra jafnaðarmanna (SUJ) hefur fyrir löngu ályktað um þetta sarna. Með því tók SUJ afstöðu til formbreytingar- innar sem slíkrar en ekki einkavæð- ingar enda er þar mikill munur á. Ég er raunar þeirrar skoðunar að ekki sé tímabætt að einkavæða bankana en vil frekar sjá þá sameinaða í einum stórum hlutafélagsbanka í eigu ríkis- ins. Þó virðist sem einkavæðing Lyljaverslunar fslands muni takast vel og að þar séu skynsamleg vinnu- brögð viðhöfð, ólík þeim sem notuð vom við sölu SR-mjöls. Sala Lylja- verslunarinnar sýnir að hægt er að einkavæða á skynsamlegan hátt en við hana fjölgaði hluthöfum úr einum í 800 á örfáum klukkustundum. Um hvad snýst frumvarpid? I sem stystu máli er í núverandi frumvarpi viðskiptaráðherra lagt til að breyta Búnaðarbanka íslands í Bún- aðarbanka Islands hf. Við stofnunina verður ríkissjóður einn eigandi að öllu hlutafé og er kveðið á um að leita verði heimildar Alþingis síðar þegar og ef ákveðið verður að selja það. Það verður ekki á valdi ráöhena banka- niála eins. Allt starfsfólk bankanna á rétt á sambærilegu staifi og það gegn- ir nú hjá nýja hlutafélagsbankanum. Engin breyting verður á ábyrgð ríkis- sjóðs á skuldbindingum bankans sem stofnað var til áður en rekstur hans er yfirtekinn af hlutafélaginu né heldur næstu tvö ár frá yfirtökunni. Þetta er meðal annars gert til að auðvelda að- lögun að breyttu rekstrarumhverfi. Ekki er gert ráð fyrir að grundvallar- breyting verði á starfseminni vegna breytirigaiinnar umfram það sem al- ntenn lög um viðskiptabanka og stefnumótun stjómenda þeiira á hverj- um tíma kunna að leiða til. Ástæður breytingarinnar Markmið ríkisstjómarinnar hefur verið og er að færa innlendan fjár- magnsmarkað í svipað horf og tíðkast í nálægum löndum. Hlutafélagsform- ið er ríkjandi rekstrarform í atvinnulíf- inu og því er eðlilegt að öll fyrir- tæki starfi eftir sams konai' lög- um. Þess vegna hefði verið eðli- legast að breyta Landsbankanum einnig í hlutafélag, eins og upp- haflega stóð til, þannig að bank- amir þrír gætu allir nýtt sér kosti hlutafélagsfonnsins, til dæmis aukið hlutafé sitt með útboði, en ekki aðeins íslandsbanki og nú Búnaðarbanki, ef frumvarpið nær fram að ganga. Eins og málum er nú háttað er eigið fé ífkisbank- anna aukið með skattpeningum landsmanna. I nálægum löndum, þar sem ríkið starfrækir banka, eru þeir reknir sem hlutafélög. Þrátt fyrir gjaldþrot sumra þeirra hafa þær raddir ekki komið upp í þessum löndum að þjóðnýta eigi bankana. Við stöðuveitingar inn- an ríkisbankanna og jafnvel ákvarðanir um fyrirgreiðslur hef- ur oft gætt pólitískra áhrifa eins og allir vita. Við breytingu Bún- aðarbankans í hlutafélagsbanka er ætlunin að stíga nauðsynlegt skref til að skilja betur á milli verkefna löggjafans og fram- kvæmdavaldsins þar á bæ. Eftir er þó Landsbankinn, stærsti og öfl- ugasti (og sumir segja spilltasti) banki landsmanna. Höfundur er íslenskufræðing- ur og situr í flokksstjórn Alþýðuflokksins. □ Nytsamar' Dömuhanskar m/prjónafóðri i | | Kr. 3.500.- Dömuhanskar m/kanínufóðri Kr. 3.900.- Herra-og dömuhanskar i gjafaumbúðum belti-seðlaveski regnhlífar □

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.