Alþýðublaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 8
MMUBIMfi Miðvikudagur 30. nóvember 1994 182.tölublað - 75. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk Norðmenn höfnuðu aðild að ESB í þjóðaratkvæðasreiðslu: Þurf um að semja um framnald EES í samfloti við IMorðmenn - segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og telur, að það hefði verið ein- faldara að semja án Norðmanna. „Að svo miklu leyti sem úrslitin í Noregi varða Island þá er fyrsta spurningin sú hvort það sé okkur í hag innan EES að vera þar spyrtir saman við nei-landið Noreg. Mitt mat á því er að það hefði verið ein- faldara fyrir okkur að semja beint í tvfhliðasamningum við Evrópusam- bandið um framhald EES- samn- ingsins heldur en að verða að gera það í samfloti við Noreg,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra í samtali við Alþýðublaðið í gærkvöldi. Urslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Noregi um aðild að Evrópusam- bandinu urðu þau, að aðild var hafn- að með liðlega 52% atkvæða gegn liðlega 47% sem vildu aðild. At- kvæðagreiðslan var ekki bindandi en Gro Harlem Brundtland forsætis- ráðherra hefur lýst því yfir að úrslit- in verði virt. „Við vorum síðast liðið sumar búnir að kynna Evrópusambandinu hugmyndir okkar um framhald EES. Þá svaraði ESB með þeim réttu rök- um að þeir gætu ekki farið í viðræð- ur fyrr en ljóst væri við hverja yrði að semja. Norskir stjórnmálamenn töluðu býsna óvarlega um EES- samninginn í kosningabaráttunni. Nei-hliðarmenn vegna þess að fram- sóknarmenn í Noregi voru á móti EES, já-hliðarmenn vegna þess að þeir gerðu lítið úr EES sem öðrum kosti. Sú hugmynd að ætla að fara að semja um breytingar á EES- samningum er stórvarasöm því það myndi kalla á staðfestingarferil í I5 þjóðríkjum og óvíst hvernig því lyki. Það má ekki breyta EES- samningum en við þurfum að koma okkur saman um praktíska pólitíska lausn að því er varðar eftirlit og dómstól," sagði Jón Baldvin. Hann sagði úrslitin í Noregi engu breyta þvf að Islendingar hlytu að taka afstöðu í þessu máli á eigin for- sendum. Við ættum að leggja raun- sætt mat á okkar eigin hagsmuni, vega og meta kosti og galla og leggja málið síðan fyrir íslensku þjóðina. Sú fullyrðing að fyrirfram sé vonlaust að semja við ESB um sjávarútvegsmál standist ekki. „Sjávarútvegurinn er aðalat- vinnuvegur Islands og heldur uppi þjóðfélaginu. Það er grundvallar- regla ESB að land eða jafnvel hérað sem á afkomu sína undir einni at- vinnugrein skuli halda óbreyttri stöðu. ESB hefur enga veiðireynslu í íslenskri lögsögu og hefur engin rök til að kreijast veiðiheimilda inn- an íslenskrar lögsögu því þau rök eru öll byggð á veiðireynslu. I EES- samningunum féll ESB frá öllum kröfum um einhliða veiðiheimildir innan okkar lögsögu. Við höfum fengið það staðfest skriflega og formlega frá Spánverjum að þeir tnuni ekki vekja upp á ný slíkar kröfur gagnvart Islendingum. Öfugt við Noreg er íslenska lögsagan al- gjörlega aðskilin frá lögsögu Evr- ópusambandsins og öfugt við Noreg höfum við enga sameiginlega fiski- stofna sem eru nýttir við ESB. Sér- staða íslensks sjávarútvegs er algjör- lega ótvíræð. Það er því engan vegin fyrirfram vonlaust að íslendingar geti náð samningum um sjávarútveg sem tryggir að þeir haldi forræði yfir efnahagslögsögu sinni sem hingað til. Ef það finnst lausn á þessu máli eru allir aðrir þættir sem varða spurninguna um aðild eða ekki aðild jákvæðir. Fullkominn tollfrjáls markaðsaðgangur á stærsta markaði okkar, bætt staða útflutnings- og samkeppnisgreina, veruleg lækkun verðlags á lífsnauðsynjum, ódýrari aðföng íslensks iðnaðar og greiðari leið fyrir erlent fjármagn til upp- byggingar atvinnuveganna," sagði Jón Baldvin Hannibalsson. Utanríkisráðherra sagði að Norð- menn hefðu ekki fundið á sjálfum sér nauðsyn þess að ganga í ESB af efnahagslegum ástæðum. Noregur væri á einstæðu blómaskeiði og ol- íuauðurinn hefði verið notaður kerf- isbundið til að byggja upp massívt styrkjakerfi í landbúnaði og sjávar- útvegi. Því væru lífskjör f Norður- Noregi mun betri en á Oslóarsvæð- Jón Baldvin: Ef við getum tryggt áframhaldandi yfirráð yfir efnahagslög sögu okkar eru allir aðrir þættir sem snúa að aðiid að ESB jákvæðir. A mynd: E.ÓI. inu. Norðurbúar hefðu því óttast að aðild að ESB mundi draga burst úr nefi þeirra. „Norðmenn munu smám saman uppgötva afleiðingar þess að hafna aðild að ESB, en kannski nægirolíu- auðurinn til að draga úr afleiðingun- um fyrst um sinn. En til dæmis munu þeir reka sig á það I. janúar að þeir eru orðnir utangarðs í norrænni samvinnu. Þeir munu reka sig á það að ytri tollar Evrópusambandsins hafa risið á ný eftir endilöngum sænsku landamærunum. Þeir munu reka sig á það að í staðinn fyrir frí- verslun með ftsk á EFTA-svæðinu standa þeir frammi fyrir nýjum toll- múrum og nú geta þeir ekki snúic sér til Svía eða vinveittra EFTA- þjóða til að semja um tollalækkanir Þeir verða að snúa sér til Brusse sem fer nú með ytri tolla og við- skiptastefnu Svíþjóðar, Finnlandt og Danmerkur. Og Norðmenn munt uppgötva það að fiskvinnslan í Nor- egi mun í vaxandi mæli leita til Dan merkur og þeim tekst ekki að brjót ast út úr þeirri stöðu að vera fyrst oj fremst hráefnisútflytjendur," sagð Jón Baldvin Hannibalsson að lok- um. Sinfónían spilar verk Jóns Leifs (slenskt tónmál: verk Jóns Leifs á sinfóníutónleikum á morgun. Sinfónfuhljómsveit Islands heldur tónleika í Háskólabíó á morgun, l. desember, klukkan 20:00. Með hljómsveitinni koma fram Kór Is- lensku óperunnar og Gradualekór Langholtskirkju. A efnisskránni eru fjögur verk; þrjú eftir Jón Leifs; Hinsta kveðja, Minni íslands og Þjóðhvöt, og tíunda sínfónía Gustavs Mahlers. Stjómandi er Petri Sakari. I fréttatilkynningu Sinfóníunnar segir meðal annars: Það er vel við hæfi að flytja verk Jóns Leifs á fullveldisdegi Islendinga því í hugum margra talar Jón Leifs íslenskara tónmál en flest- ir. Jón, sem var Húvetningur, var að- eins 17 ára þegar hann lagði land undir fót og fór til Leipzig í Þýska- landi hvar hann stundaði nám í pí- anóleik, tónsmíðum og hljómsveita- stjóm. Atvikin höguðu því þannig að Jón ílentist í Þýskalandi og bjó þar í 28 ár. Jón átti velgengni að fagna í Petri Sakari: hefur aukið hróður Sinfóníuhljómsveitar íslands á er- lendum vettvangi. Þýskalandi en f föðurlandi var verk- um hans tekið með fálæti og andúð oft og tíðum. Guðbergur víkur fyrir Jim Nú em fjórar sýningar eftir á leik- ritinu Sannar sögur af sálarlífi systra. Þetta er meinfyndið og raun- sætt verk um fjölskyldu í rammís- Iensku sjávarplássi og hefur verið sýnt við miklar vinsældir og ágæta aðsókn á Smíðaverkstæði Þjóðleik- hússins. Sannar sögur er leikgerð Viðars Eggertssonar á þremur skáldsögum Guðbergs Bergssonar, Hennann og Dídí, Það sefur í djúp- inu og Það rís úr djúpinu. Leikendur í Sönnum sögum af sálarh'fi systra em Guðrún S. Gísla- dóttir, Ingrid Jónsdóttir, Þóra Frið- riksdóttir, Steinunn Ólína Þorsteins- dóttir, Kristbjörg Kjeld, Margrét Guðmundsdóttir, Valdimar Om Flygenering, Herdís Þorvaldsdóttir, Björn Karlsson, Jón St. Kristjáns- son, Höskuldur Eiríksson og Sverrir Arnarsson. Leikmynd er í höndum Snorra Freys Hilmarssonar, Asa Hauks- dóttir sér um búninga, en lýsingu annast Asmundur Karlsson. ^ Aðstoðarleik- stjóri er Asdís Þórhalls- dóttir. Leikstjóri er Viðar Eggertsson. Sannar sögur víkur nú af Smíðaverkstæðinu fyrir gamanleik Jim Cartwright, Taktu, lagið Lóa í leik- stjórn Hávars Sigurjóns- sonar. Sannar sögur af sálarlífi systra: Guðrún S. Gísla- dóttir (Katrín) og Stein- unn Ólína Þorsteinsdóttir (Tóta) í hlutverkum sín- um. Framleiðendafélagið leitar réttar síns hjá Samkeppnisráði: RÚV kært fyrir brot á samkeppnislögum „Samkvæmt íslenskum lögum er kvikmyndagerð skilgreind sem samkeppnisiðnaður og við teljum að RUV stundi slíkan samkeppnis- iðnað. Samkeppnisaðstaða okkar á markaðnum er þar af Ieiðandi mjög skökk. Við framleiðendur erum bjartsýnir á að Samkeppnisráð taki erindið til umræðu og felli jákvæcð- an úrskurð," sagði Viðar Garðars- son, formaður Framleiðendafélags- ins á blaðamannafundi í gærdag. Félagið var stofnað í júní 1993 af tólf fyrirtækjum sem framleiða kvikmyndir af ýmsu tagi. Ójöfn adstada Félagið hefur kært RÚV til Sam- keppnisráðs þar sem framleiðslu- deildir RÚV sem framleiða innlent dagskrárefni fyrir Sjónvarpið séu í samkeppni við einkafyrirtæki á ójöfnum forsendum. Félagið segir að framleiðsludeildum RÚV sé ekki haldið bókhaldslega aðgreindum frá öðrum rekstri og raunkostnaður við einstök verk liggi þannig ekki fyrir. Félagið telur sig hafa af því veru- lega hagsmuni, að slfk aðgreining lægi fyrir, þar eð meðlimir þess segjast geta framleitt sambærilegt efni og RÚV framleiðir innanhúss fyrir mun Iægra verð en ríkisstofn- unin. Þetta keinur fram í kæru sem Val- borg Þ. Snævarr héraðsdómslög- maður hefur sent Samkeppnisráði fyrir hönd Framleiðendafélagsins. Kæran, sem var kynnt á blaða- mannafundinum í gærdag, er á hendur Ríkisútvarpinu - sjónvarpi fyrir meint brot á samkeppnislögum númer 8 frá árinu 1993. Hún er dag- sett 21. nóvember 1994. Betri nýting fjármagns „Þróunin allsstaðar í heiminum er að fara í þessa átt, að bjóða út inn- lenda dagskrárgerð á opnum mark- aði. Við getum til að ntynda horft á ríkisreknar sjónvarpsstöðvar á Norðurlöndunum og Bretlandi þar sem alltaf meira og meira efni er framleitt utan stofnananna. Við höf- um orðið var við ágætar undirtektir hjá mörgum yfirmönnum RÚV,“ sagði Jón Þór Hannesson, stjórnar- maður í félaginu. „Miðað við úrskurði Samkeppn- isráðs sem ég hef skoðað sýnist manni, að Samkeppnisráð sé agres- sívt og þeim sé full alvara að fylgja samkeppnislögunum eftir af mikilli hörku. Eg hef trú á að ráðið fjalli um málið af sanngirni," sagði Valborg Þ. Snævarr, lögfræðingur félagsins. „Skattgreiðendur eiga kröfu á því að fjármagni ríkisstofnunar sé eins vel varið og kostur er...Te!ja um- bjóðendur mínir fjárhagslega að- skilnað framleiðsludeildar frá RÚV geta leitt til betri nýtingu þess fjár- magns,“ segir í kæru hennar til ráðs- ins. „I stofnlögum Ríkissjónvarpsins segir, að það skuli styðja við og efla íslenska kvikmyndagerð. Eg tel að RÚV hafi að miklu leyti gleymt þessu yfirlýsta hlutverki sínu og einbeiti sér nú að framleiðslu innan- húss,“ sagði Guðmundur Kristjáns- son, stjórnarmaður í félaginu. Rangar forsendur I kæru Valborgar Þ. Snævarr sem hún sendi Samkeppnisráði fyrir hönd félagsins segir: „Rauntölur um framleiðslu einstakra þátta eða kvikmynda liggja ekki fyrir, f sama skilningi og aðrir framleiðendur verða að skila inn kostnaðaráætlun- um til sjónvarps þegar til verksamn- inga er stofnað um einstök verk. Oftlega gerist það að þegar sjálf- stæður framleiðandi leggur fram kostnaðaráætlun vegna cinstaks verks er verkinu hafnað á þeirri for- sendu að ódýrara sé fyrir stofnunina að framleiða verkið innanhúss, það er í framleiðsludeild stofnunarinnar. Er umbjóðendur mínir hafa óskað skýringa á því hvemig stofnunin telur sig geta unnið verkið með hag- kvæmari hætti verður fátt urn svör. Kemur þá í Ijós að forsvarsmenn framleiðsludeildar telja ekki til kostnaðarliða við framleiðslu verksins launakostnað starfsmanna, tækjakostnað, rekstrarkostnað, stofnkostnað, kostnað vegna um- sýslu, yfirstjórnar og þess háttar heldur eingöngu útlagðan kostnað vegna verksins.“ Nidurgreiddur rekstur Valborg Þ. Snævarr skrifar enn- fremur: „Þá skal og á það bent að RÚV er undanþegið greiðslu ým- issa opinberra gjalda sem ríkisfyrir- tæki en sjálfstæðir framleiðendur verða að reikna slík gjöld inn í áætl- anir sínar um kostnað við fram- leiðslu. Raunkostnaður við fram- leiðslu dagskrárefnis liggur því aldrei fyrir og er með þessum hætti beinlínis komið í veg fyrir sam- keppni við gerð dagskrárefnis fyrir sjónvarp. Samanburður á þessum grund- velli sýnir að samkeppnisrekstur er í þessu tilviki greiddur niður af verndaðri starfsemi RÚV.“ Baráttuglöð stjórn Framleiðendafélagsins, Jón Þór Hannesson, Guð mundur Kristjánsson og Viðar Garðarsson formaður: Samkeppnisað staða okkar á markaðnum er mjög skökk og við framleiðendur erun bjartsýnir á að Samkeppnisráð taki erindið til umræðu og felli jákvæðar úrskurð, segir formaðurinn. A-mynd: E.ÓI.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.