Alþýðublaðið - 08.12.1994, Side 1
Alþýðuflokkurinn í Reykjaneskjördæmi:
Hörkuspennandi prófkjör
Rannveig Guðmundsdóttir og Guðmundur Árni Stefánsson takast á um efsta sætið. Líklegt að Petrína
Baldursdóttir og Guðfinnur Sigurvinsson keppi um þriðja sæti.
Rannveig Guðmundsdóttir fé-
lagsmálaráðherra og Guðmundur
Arni Stefánsson alþingismaður
takast á um efsta sætið í opnu próf-
kjöri Alþýðuflokksins á Reykja-
nesi, sem haldið verður 21. og 22.
janúar um tjögur efstu sætin á
framboðslista. Rannveig hefur
Kópavog, Garðabæ og Mosfellsbæ
að mestu á sínu bandi, en á móti
kemur að Guðmundur Arni hefur
geysilega öflugan stuðning í Hafn-
arfirði. Ef að líkum lætur verða
það því Suðurnesjamenn sem úr-
slitum ráða um efsta sætið. Fylk-
ingar- frambjóðendanna þykja
nokkuð jafnar þar og erfitt að spá
um hvor hefur yfirhöndina.
Petrína Baldursdóttir alþingis-
maður sækir fast í þriðja sætið, en
þar gæti Guðfinnur Sigurvinsson -
ef hann gefur kost á sér einsog
sennilegt þykir - orðið henni afar
skeinuhættur. Guðfinnur er fyrr-
verandi bæjarstjóri í Keflavík.
Keppnin um þriðja sætið gæti því
orðið ekki síður spennandi en um
Rannveig: Ætlar að halda forystu-
hlutverkinu.
það fyrsta. Ýmsir hafa gert að því
skóna, að slagurinn á milli Rann-
veigar og Guðmundar Arna verði
svo tvísýnn, og atkvæði skiptist
þannig, að atkvæðahár frambjóð-
andi - væntanlega annaðhvort
Guðfinnur eða Petrína - geti
Guðmundur: Öflugur stuðningur í
Hafnarfirði.
Petrína: Sækist eftir 2. til 3. sæti. Guðfinnur: Framboð hans er ekki
ákveðið.
stungið sér upp á milli þeirra. Við-
mælendum blaðsins bar saman um
að óh'klegt sé, að þetta geti gerst -
en fáir treystu sér þó til að útiloka
slíkt enda fordæmi fyrir því úr
öðrum prófkjörum.
Framboðsfrestur er ekki runninn
út, og því óvíst hve margir gefa
kost á sér í prófkjörinu, en rúm-
lega tíu nöfn hafa verið nefnd.
Þessir hugsanlegu frambjóðendur
eru óskrifað blað að því leytinu til,
að erfitt er um stöðu þeirra að spá
og standa flestir nokkuð jafnir.
Ólíklegt þykir að nokkur þeirra
blandi sér svo heitið geti í topp-
slaginn - að minnsta kosti enn sem
komið er.
- Sjá nánari umfjöllun
á blaðsíðu 7.
Framsóknarflokkurinn á
Norðurlandi eystra:
Sótt ad Páli
Péturssyni
Framsóknarmenn í Norðurlands-
kjördæmi eystra efna til prófkjörs
um miðjan janúar. Samkvæmt heim-
ildum blaðsins verður sótt að Páli
Péturssyni sem hyggst skipa 1. sæti
listans áfram. Stefán Guðmundsson
vill þó ekki að svo stöddu staðfesta
að hann stefni á 1. sætið.
Formaður kjörnefndar, Þorsteinn
Asgrímsson á Varmalandi, sagði í
samtali við blaðið að prófkjörið yrði
opið fyrir flokksfólk og þá sem lýstu
yfir stuðningi við flokkinn. Þeir sem
gefa kost á sér eru Páll Pétursson á
Höllustöðum sem hefur skipað
fyrsta sætið í undanfömum kosning-
um, Stefán Guðmundsson á Sauðár-
króki sem hefur verið í 2. sæti, Elín
Líndal á Lækjamóti sem skipaði 3.
sæti, Sverrir Sveinsson á Siglufirði
sem var í 4. sæti og þau Gunnar
Bragi Sveinsson Sauðárkróki, Her-
dís Sæmundsdóttir Sauðárkróki,
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri á
Skagaströnd og Valur Gunnarsson
oddviti á Hvammstanga. Þorsteinn
sagðist ekki hafa orðið var við mikla
umræðu um prófkjörið ennþá, enda
nokkrar vikur til stefnu. En það ætti
eflaust eftir að lifna yfir fólki þegar
nær drægi prófkjörinu.
Samkvæmt heimildum blaðsins
vilja margir framsóknarmenn í kjör-
dæminu að Stefán Guðmundsson
færist upp í I. sæti í stað Páls. Áhrif
Páls Péturssonar eru sögð dvínandi á
sama tíma og vegur Stetáns hefur
farið vaxandi.
Blaðið spurði Stefán hvort hann
hyggðist stefna á I. sæti listans við
prófkjörið, en hann kvaðst enga
ákvörðun hafa tekið um það.
Kvennalistinn í Reykjavík:
Mjög leynileg
skoðanakönnun
Kvennalistinn í Reykjavík er með
skoðanakönnun í gangi meðal fé-
lagskvenna um hverjar skuli skipa
efstu sæti á framboðslista flokksins
við komandi kosningar. Það munu
vera 10 konur sem verið er að greiða
atkvæði um þessa dagana.
Fyrir skömmu lauk nokkurs konar
forvali hjá Kvennalistanum og 10
konur úr því voru valdar til áfram-
haldandi úrtaks við val á framboðs-
listann.
Kvennalistakonur eru nú að skila
inn seðlum með nöfnum þeirra
kvenna sem þær vilja á listann.
Kvennalistakonur vilja ekki flíka
því hvaða 10 konur það eru sem nú
er verið að greiða atkvæði um. Það
sé fyrst og fremst mál félagsins en
ekki neinna óviðkomandi, svo sem
kjósenda úti í bæ.
Á skrifstofu Kvennalistans feng-
ust aðeins þær upplýsingar í gær, að
spumingum varðandi skoðanakönn-
unina skuli beina til Guðrúnar Agn-
arsdóttur. Þegar til átti að taka kom
hins vegar í ljós að Guðrún er
erlendis.
Olnbogabarn íslenskrar tímaritaútgáfu „Loksins, loksins, syngja börnin. blómin, býflugurnar og
bændurnir. Gleði þeirra geta allir skilið og tekið þátt í. Tímaritið "O", hið mannlega, mikilvæga, merkilega og munaðarfulla
olnbogabarn íslenskrar tímaritaútgáfu er komið út í fjórða sinn, minna en nokkru sinni fyrr...Blaðið er með næsta hefðbundnu
sniði og endurspeglar það sem stendur okkur næst og ef til vill um leið hvað fjærst. Öllu nær opinberri sjálfsfróun er ekki hægt
að komast án þess að vera handtekinn," skrifa ritstjórarnir Katrín Ólafsdóttir og Vilhjálmur Vilhjálmsson í ritstjórnarpistli nýj-
asta tölublaðs "O" sem kom út fyrir skemmstu. Ljósmyndari Alþýðublaðsins greip þau skötuhjú glóðvolg úti skógi með kynn-
ingarplaköt hins stórmerkilega rits og smellti af filmukossi. A-mynd: E.ÓI.
Alþýðublaðið í dag
Alþingismenn og
gráglettni örlag-
anna
Rökstólar 2
Balkanskaginn: Er
lausn fundin?
Magnús Árni 3
Aðskilnaður ríkis
og kirkju
Leiðari 2
Guðrún Finnbogad.
Bók um Rússland 5
Bankabók Nóra
Örnólfur Árnason 8
Framsókn á
Vestfjörðum:
Tekur
Pétur
ekki 2.
sætið?
„Ég veit ekki hvort ég tek annað
sætið ef mér býðst það. Ég veit ekki
hvort það er sterkt að hafa mann í
baráttusæti sem hefur verið hafnað í
fyrsta sæti, en ég mun ræða við mína
stuðningsmenn," sagði Pétur Bjama-
son í samtali við blaðið.
Pétur var varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins á Vestijörðum og
tók sæti Olafs Þórðarsonar á Alþingi
fyrir nokkrum vikum þegar Ólafur
veiktist. I prófkjöri framsóknar-
manna á Vestljörðum um síðustu
helgi urðu úrslit þau að Gunnlaugur
Sigmundsson framkvæmdastjóri í
Reykjavík fékk llest atkvæði í 1. sæti
listans en Pétur kom næstur. Anna
Jensdóttir á Patreksfirði lenti í þriðja
sæti.
Gunnlaugur hefur verið viðloð-
andi Framsóknartlokkinn lengi og
gegnt ýmsum störfum í kerfinu á
vegum flokksins. Hann er sérstakur
skjólstæðingur Steingríms Her-
mannssonar og Pétur var spurður
hvort hann teldi stuðning Steingríms
hafa ráðið úrslitum um sigur Gunn-
laugs í prófkjörinu.
„Það liggur Ijóst fyrir að það voru
Vestfirðingar sem kusu í prófkjörinu
og það eru þeina atkvæði sem ráða.
Ég hef heyrt þessar raddir um stuðn-
ing Steingríms en get ekken um það
borið. Ég get ekki lagt mat á hvað
réði þama úrslitum," sagði Pétur
Bjamason.