Alþýðublaðið - 14.12.1994, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 14.12.1994, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Fersk ásýnd forystusveitar Alþýðuflokksins á Norðurlandi eystra: Anna Karólína í öðru sæti og Aðalheiður í þriðja - Sismörn Gunnarsson verður áfram í fvrsta sæti. Þetta er till tillaga uppstillingarnefndar flokksins, sem ætlar að vera búin að stilla upp í neðstu sjö sæti listans fyrir 10. janúar. „Við munum gera þá tillögu, að í fyrsta sæti verði Sigbjörn Gunnars- son alþingismaður, í öðru sæti Anna Karólína Vilhjálmsdóttir íþrótta- kennari og í þriðja sæti Aðalheiður Sigursveinsdóttir formaður FUJ á Akureyri. Uppstillingamefndin ætl- ar að koma á fund kjördæmisráðsins ekki síðar en 10. janúar og tilkynna um röðun í næstu sjö sæti. Við erum enga stund að þessu, helst vildum við gera þetta á milli jóla og nýárs, en sjáum hvað setur. Það em ýmsar þreifingar í gangi með sætin sem eftir eru,“ sagði Húsvíkingurinn Gunnar B. Salomonsson, formaður kjördæmisráðs Alþýðuflokksins á Norðurlandi eystra, í samtali við Al- þýðublaðið í gær. „Eg tók svolítið langan tíma í að ákveða mig, en nú þegar ég hef tek- ið þessa ákvörðun um að taka annað sætið, þá leggst þetta vel í mig. Það er skemmtileg og mjög sérstök blanda sem skipar þama efstu þrjú sætin. Við, ungu konumar, í öðm og þriðja og Sigbjöm sem ég styð heils- hugar í fyrsta sæti. Ásýnd flokksins í kjördæminu verður ferskari fyrir vikið. Ég geri mér að sjálfsögðu fulla grein fyrir þvf hversu staða Al- þýðullokksins í dag er erfið, en ég segi það nú einsog svo oft áður að héðan getur leiðin aðeins legið uppávið," sagði Anna Karólína Vil- hjálmsdóttir íþróttakennari. „Þessi tillaga uppstillingamefnd- ar um að við þrjú skipum efstu sætin á framboðslista flokksins sýnir mik- inn kjark og nýja hugsun; ferskleika. Þetta er ung forystusveit á listanum - Sigbjörn er fæddur 1951, Anna Karólína 1959 og ég 1973 - og sýn- ir svo ekki verður um villst, að Al- þýðuflokkurinn tekur vel á móti ungu fólki og þeirra viðhorfum í stjómmálum. Ég lít á þetta sem einn áfangasigur í baráttu Sambands ungra jafnaðarmanna fyrir endur- nýjun á framboðslistum flokksins. Það er vonandi að önnur kjördæmi taki þetta fmmkvæði norðanmanna sér til fyrirmyndar. En ég hlakka semsagt mikið til að hella mér í slag- inn og er alls óhrædd. Við spyrjum að leikslokum," sagði Aðal- heiður Sig- ursveinsdótt- ir. Alþýðu- blaðið spurði Anna Karólína: Ungur Sigurð Eðvarð sætj Arnórsson, varaþingmann flokksins - sem á einn þingmann í kjördæminu, af- hverju hann væri ekki í umræðunni urn efstu sæti á framboðslistanum: „Eg átti fmmkvæðið að því. Þar liggja að baki persónulegar ástæður. íþróttakennari í öðru Aðalheiður: sæti. Ég hef meira en nóg að gera í þeim störfum sent ég gegni í dag; verð þar af leiðandi ákaflega upptekinn á næstu mánuðunt og er ekki tilbúinn til að fóma því starfi. Ég hef hins- vegar lýst því yfir, að ég muni vinna Tvítugur formaður FUJ í þriðja fyrir listann hvað það gagn sem ég get, hvemig sem hann verður skip- aður. Það stendur allsekki á mér að taka þátt í því slarfi," sagði Sigurður Eðvarð. Menning Við erum eins og Hobbitarnir í bókaútgáfu - Þorsteinn Thorarensen rithöfundur og bokaútgefandi. „Þetta em að verða 30 ár sem ég hef verið með bókaútgáfu, byrjaði árið 1966. Fjölvi er fremur lítil út- gáfa sem snýst fyrst og fremst um mín áhugasvið. Og ég er þeirrar gerðar að grauta í öllu. Stundum gengur þetta illa óg ntaður er á hausnum en samt er ég enn að,“ sagði Þorsteinn Thorarensen rithöf- undur og bókaútgefandi f stuttu spjalli við blaðið. Þorsteinn sagði að bækur Fjölva- útgáfunnar vildu oft gleymast þegar verið væri að greina frá nýjum bók- um á markaðinum. „Við emm eins og Hobbitamir. Þegar þeir fóru út í heim vissi enginn hvað em Hobbitar. Hvaða menn em það? Því miður vit- um við ekki hverjir þið eruð því við höfum aldrei heyrt ykkur nefnda. Svoleiðis er það með Fjölvaútgáf- una. Það veit aldrei neinn hverjir við erum.“ -Er þetta ekki fullmikið sagt? Þú liefur unnið margt stórvirki íbókaút- gáfu sem athygli hefúr vakið. „Ymislegt hefur svo sem komið út. Nú er að koma annað bindið af Hringadróttinssögu eftir Tolkien í þýðingu minni. Fyrsta bindið kom út í fyrra og fékk afbragðsgóða viðtök- ur. Rétt er það. En ef ég á að nefna eitthvað af því sem ég hef unnið að má nefna að fyrst var það Aldamóta- sagan. Því næst Hitlersbókin stóra en síðan fór ég í Veraldarsöguna og er kominn með átta hefti af tuttugu. Nú er ég hins vegar stopp í bili með Veraldarsöguna þangað til ég fæ eitt- hvað meira af peningum til að geta haldið áfram með þetta verk. Svo fór ég út í það að gefa út Listasögu í þremur bindum og Nútímalistasögu í einu rosastóm bindi. Þá get ég nefnt Undraveröld dýranna og Stóru skor- dýrabók Fjölva. Einnig skrifaði ég Tónagjöf um hin og þessi tónskáld og svo fór ég í Söngvagleði sem íjallar um ópemr. Það sést á þessu að ég hef víða komið við,“ sagði Þor- steinn. Eins og sjá má af þessari upptaln- ingu em áhugamál Þorsteins víð- feðm og hann hefur ekki alltaf farið troðnar slóðir í bókaútgáfu. Enda er Þorsteinn Thorarensen urn margt sérstæður persónuleiki. Lauk lög- fræðiprófi á sínum tíma en lagði auk þess stund á háskólanám í ensku, frönsku og íslenskum bókmenntum. Hann var blaðamaður á Morgun- blaðinu og síðar blaðamaður og rit- stjóri á Vísi. Eftir að hann hóf bóka- útgáfu skrifaði hann fasta pistla í Vísi og síðan Dagblaðið í allmörg ár. Hætti þeim skrifum snögglega eftir að hafa vitnað rangt í biblíuna, „mgl- aði svolítið saman Kristi og Pfiatusi, sneri þessu við,“ eins og hann segir sjálfur. Bækur af ýmsum toga Fjölvi gefur út allmargar bækur nú fyrir jólin og em þær af ýmsum toga. Áður er minnst á 2. bindi Hringa- dróttinssögu eftir Tolkien, sem heitir Tveggjatuma-tal. Þýðendur em Þor- steinn Thorarensen og Geir Krist- jánsson. Fár undir fjöllum eftir Kristin Helgason fjallar um Eyja- fjallamálið um síðustu aldamót og er hókin byggð á dómsskjölum og bréf- um. Eilífðan’élin er skáldsaga eftir Baldur Gunnarsson. Að baki mánans er heiti á nýrri Ijóðabók eftir Ágúst- ínu Jónsdóttur. Ekki er vafi á að allt áhugafólk um fluguhnýtingu fagnar Stóru flugulmýtingabókiimi eftir Jaqueline Wakeford. Friðjón Áma- son þýddi. Hundmð litmynda em í bókinni til skýringa á þessari list- grein. Undarlegt ferðalag eftir Jón Osk- ar hefur að geyma hugleiðingar um tilvemna, einskonar ákall um frið á jörðu. Kvikmyndin Listi Schindlers hefur hlotið gífurlega athygli og unn- ið til margra verðlauna. Nú gefur Fjölvi út bókina Listi Schindlers eftir Thomas Keneally sem fyllir upp í þá mynd sem kvikmyndin gaf. Hitlersbörnin eftir Gerald Posner hefur að geyma frásagnir bama frægra nasistaforingja. Þá er að nefna Kordúlubœkurnar, tvær Þorsteinn: Stundum gengur illa og maður er á hausnum. A- mynd: E.ÓI. barnabækur eftir Kordúlu Tollmien, sem heita Vertu vinur minn og Láttu þér batna. Margrétarbœkumar em þrjár bamabækur eftir Gilbert Dela- haye og Marcel Marlier, sem heita Margrét flýgur út í heim, Margrét kynnist tónlistinni og Margrét lœrir að matbúa. Létt og Ijúffengt í toppfonni heitir ný bók eftir bandan'ska næringar- fræðinginn Marilyn Diamond. Bók- in hefur að geyma 120 uppskriftir með hinu svokallaða nýja mataræði Toppformsins, sem á að miða að bættri líðan og líkamslögun. Móðuraflið - Kúndalini Yoga eft- ir Sri Chinmoy inniheldur lýsingu á orkustöðvum líkamans og þriðja auganu. Þá má nefna Góð ráð við gigt eftir Dan Dale Alexander og Amalgan eftir Barbro Jöberger sem fjallar um kvikasilfurseitmn út frá tannfyllingum. Loks er að nefna endurprentun á leiðsöguritum Jónasar Kristjánsson- ar um Amsterdam og París. Bubbi spilar og syngur Bubbi Morthens mun spila í Þjóðleikhúskjallarnum annað kvöld, fimmtu- dagskvöld, og em tónleikarnir í samvinnu við Listaklúbb Leikhúskjallarans. Á föstudagskvöld verða tónleikar á Ristorante Pavarottí á Akranesi og á laugardagskvöldið verður hann á Gjánni á Selfossi. Á tónleikunum blandar Bubbi saman nýju og gömlu efni. ALÞÝÐUFLO K K U RIN N Alþýöuflokkurinn í Reykjaneskjördæmi: Framboð í prófkjör Alþýðuflokkurinn í Reykjaneskjördæmi efnirtil prófkjörs um val í fjögur efstu sæti á framboðslista flokksins við næstu þingkosn- ingar. Prófkjörið fer fram dagana 21. og 22. janúar 1995. Prófkjörsstjórn skipa: -Sigþór Jóhannesson, Mávahrauni 5, Hafnarfirði, sími 52241 oddviti prófkj'örsstjórnar. -Bjarnþór Aðalsteinsson, Stórateigi 20, Mosfellsbæ, sími 91- 666428. -Guðmundur Finnsson, Norðurvöllum 2, Keflavík, símar 91-13258, 91-15779. -Halldór E. Sigurbjörnsson, Ásbraut 11, Kópavogi, sími 91-40146, 91-44700. -Magnús Andri Hjaltason, Staðarhrauni 21, Grindavík, sími 92- 68228, 91-641088. Framboðum skal skila til einhvers prófkjörsstjórnarmanna fyrir klukkan 24:00, föstudaginn 30. desember 1994. Framboði skal fylgja skriflegt samþykki framþjóðanda fyrir fram- boðinu ásamt meðmælum minnst 30 og mest 50 félaga í Alþýðu- flokknum með lögheimili í Reykjaneskjördæmi. Alþýöuflokkurinn í Reykjavík: Borgarfulltrúar í jóla-Kratakaffi Borgarfulltrúar jafnaðarmanna á Reykjavíkurlistan- um, þeir Pétur Jónsson og Gunn- ar Levy Gissurar- son, verða gestir í jóla- Kratakaffi mið- vikudaginn 14. des- ember. Að vanda er húsið opnað klukkan ,, 20:30 og á boðstól- Hress,r 1 bra£|ð,: Petur °9 Gunnar Levv um verða kökur, kaffi, kakó og aðrar veitingar. Jafnaðarmenn í stjórnum, nefndum og ráðum innan borgar- kerfisins eru sérstaklega hvattirtil að fjölmenna. - Stjórnin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.