Alþýðublaðið - 16.12.1994, Síða 1

Alþýðublaðið - 16.12.1994, Síða 1
Ný tillaga Gísla Braga Hjartarsonar, bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins á Akureyri, til bæjarstjórnar: Stofnuð verði framkvæmdanefnd Tilgangurinn er að koma skikkan á stjórnun, áætl- anagerð og ákvarðana- töku við verklegar fram- kvæmdir hjá Akureyrar- bæ. Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfulltrúi Al- þýðuflokksins á Akureyri, hefur lagt fram frumvarp fyrir bæjarstjóm Akureyrar um að stofnuð verði sérstök framkvæmdanefnd Ak- ureyrarbæjar. Að sögn Gísla er tilgangurinn með frumvarpinu sá að komið verði á betra skipulagi á stjómun, áætlanagerð og ákvarð- anatöku vegna verklegra framkvæmda hjá Akureyrarbæ. Gísli bendir á að fram til þessa hafi ýmislegt farið úrskeiðis varðandi framkvæmdir. Til dæmis sé algengt að kostnaður fari fram úr kostnaðaráætlun sem gerð sé við upphaf verks. „Þá hafa oft risið deilur milli tækni- manna, embættismanna, viðkomandi nefndar og bæjarráðs," að sögn Gísla Braga „þar sem hver aðili kennir öðmm um hvemig fór. Dæmi eru um að bæjarráð haft krafist niðurskurðar á upphaflegri kostnaðaráætlun verks og talið að um of dýra lausn haft verið að ræða. Að lok- inni byggingu hefur hins vegar komið i ljós að niðurskurðurinn reyndist ekki raunhæfur. Oft hefur komið í ljós að vinnuferli við hönnun var alltof skammt á undan verklegum fram- kvæmdum sem síðan olli auknum kostnaði og torveldaði að byggingaeftirlit væri nægjanlega markvisst." Gísli segir að togstreita haft oft á tíðum komið upp á milli hinna ólíku aðila sem ná- lægt framkvæmdum koma vegna ósættis um hvemig best skuli staðið að viðkomandi fram- kvæmd og eins vegna óljósrar skiptingu á hlutverkum. í ljósi þessa telur Gísli nauðsyn- legt að skilgreina þurfi með formlegum hætti vinnu og ákvarðanatökuferli við mannvirkja- gerð svo sem nýframkvæmdir, meiriháttar éndurbætur og viðhald þannig að hlutverk hvers og eins sem þátt tekur í verkefninu sé Ijóst frá upphafi. Þetta yrði eitt af hlutverkum framkvæmdanefndar. „Þannig gefst nauðsynlegur tími til frnrn- athugunar og áætlanagerðar svo ekki komi til þess að útboð og verklegar framkvæmdir tefj- ist og geti ekki farið fram á áætluðum tíma,“ segir Gísli. „Ennfremur er nauðsynlegt að nefndin komi með formlegum hætti á skil- virku og bættu skipulagi á verkferli bygginga- framkvæmda. Það má einmitt gera með ákveðnum skilgreiningum og verklagsreglum fyrir allt vinnuferlið, tæknilegan undirbúning, frumathugun, áætlanagerð, hönnun, verklega framkvæmd og skilamat. Loks er nauðsynlegt að nefndin setji ákveðnar reglur um samskipti sín við aðrar fagnefndir bæjarins og þær deild- ir sem henni er ætlað að þjóna.“ Gísli sagði að eðlilegt væri að stofna til framkvæmdanefndar sem tilraunaverkefnis $em stæði út núverandi kjörtímabil og kostir ög gallar þessa nýja fyrirkomulags yrðu svo metnir með formlegum hætti undir lok kjör- tímabilsins. Gísli leggur áherslu á að tengsl fram- kvæmdanefndar við bæjarráð verði tryggð með því að formaður nefndarinnar eigi jafn- i framt sæti í bæjarráði, þar sem gera megi ráð fyrir að flestir liðir í fundargerðum nefndar- innar þurfi að afgreiðast í bæjatráði áður en þær koma til afgreiðslu bæjarstiómar. _ Sjá bls 2b Efnisyfirlit Jón, fjármála- ráðherrann, j aðar skattur inn og kona Jóns, Gunna. Finnur Birgisson 7 Það sem skilur Akureyringa frá Reykvíkingum Viðar Eggersson 7 Ovænt heimsókn í leikhús Akureyringa Leikrit 5 Valkostir ✓ Islendinga Leiðari 2 Konur í efstu sætum Alþýðu- flokksins Spjall við Önnu Karólínu Vilhjálms- dóttur og Aðalheiður Sigursveinsdóttir fjallar um íslenskar konur Konur 5 Neyðin kennir naktri konu að spinna Sigbjörn Gunnarsson 7

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.