Alþýðublaðið - 23.12.1994, Blaðsíða 8
8
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FOSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994
+
,/teá&w)r- dö/c/cu,?
Sími 5 34 66
Hvaða bækur langar fólk til að hafa með sér uppí rúm
á aðfangadagskvöld? Hverjir höfundanna sem nú róa
lífróður á flóðbylgju jólabókamarkaðarins njóta náðar
íslenskra bókaorma? Magnús Árni Magnússon og
Stefán Hrafn Hagalfn hafa farið um víðan völl
undanfarna daga og rætt við 22 einstaklinga
um eftirlætis jólalesninguna í ár:
HaUgrímur
PÖSTUR OG SÍMI
Salómonsdómur 22 álits-
gjafa Alþýðublaðsins um
girnilegustu jólalesning-
una í ár féll á þann að
veg, að tvær bækur
standi nokkuð uppúr
flóðinu: Þetta er allt að
koma eftir Hallgrím
Helgason og Grandavegar
7 eftir Vigdísi Grímsdótt-
ur. Hallgrímur „reyndist
sprettharðastur kepp-
enda” og hlaut 11 tilnefn-
ingar, en Vigdís 9. A eftir
þeim koma Sjón (7), Pét-
ur Gunnarsson (6), Einar
Kárason (5) og Thor Vil-
hjálmsson (4). Islensku
skáldsögurnar virðast
þannig vera í náðinni
þetta árið sem fyrr. Þrjár
æviminninga- og viðtals-
bækur urðu jafnar með 3
tilnefningar hver: Aðal-
heiður Hólm Spans,
Gunnar Dal og Guð-
mundur Arni. Fjórar vin-
sælustu Ijóðabækurnar fá
hinsvegar ekki nema 2
tilnefningar hver. Sér-
staka athygli vekur
- miðað við árstímann -
að Kiblían á ekki upp á
pallborðið og fær jafn-
margar tilnefningar og
Kóraninn, 1. Af erlend-
um höfundum er Fjodor
Dostojevský í mestu
uppáhaldi.
Emilíana Torrini
hljómlistarkona
Bróðir minn
Ljónshjarta og
Kóraninn
„Eg ætla að lesa Bróður minn
Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren í
sjötta sinn og líka Ilminn eftir Patr-
ick Siiskind. Svo langar mig í Krír-
aninn í íslenskri þýðingu Helga
Hálfdánarsonar alþví ég er búin að
lesa hann á ensku og hef gaman af
öilum pælingum um trúmál. Augu
þín sáu mig eftir Sjón kemur og til
greina. Kannski Þetta er allt að
koma hans Hallgríms Helgasonar,
ég veit það ekki... Annars er ég
frekar lítið inní þessu jólabókaflóði.
Eg les ofboðslega niikið allt árið um
kring og fer mjög oft á bókasafnið
að krækja mér í gimilegar bækur.
Eg reikna með að gera það þessi jól-
in einsog fyrr.."
VIÐAR EGGERTSSON
leikhússtjóri
Er ákaflega
spenntur fyrir
Grandavegi 7
„Mig langar óskaplega til að lesa
Grandaveg 7 eftir Vigdísi Grfms-
dóttur; er ákaflega spenntur fyrir
þeirri bók. Síðan er ég náttúrlega
með leikritahandritabunka á nátt-
borðinu. Æi.Tannski ég taki mér
jólafrí frá leikritunum og lesi svolít-
ið af bókum. Þetta er allt að koma
eftir Hallgrifn Helgason langar mig
mikið til að lesa og eins Fríðu Á.
Sigurðardóttur og Ijóðabókina eftir
Nínu Björk Árnadóttur, Engill í
snjónum. Á dagskránni eru líka
Villtir Svanir eftir Jung Chang,
Guðbergur Bergsson með Ævinlega
og Veistu, ef vin þú átt sem Þorvald-
ur Kristinsson skrifaði um Aðal-
heiði Hólm Spans."
Þórey Sigþórsdóttir
leikkona
Hef verið að
glugga í verk
Jökuls
„Grandaveg 7 hennar Vigdísar
Grimsdóttur og Orðahók Lempriér-
es eftir Lawrence Norfolk langar
mig báðar til að lesa yfir jólin. Eg er
reyndar aðeins byrjuð á þessari síð-
arnefndu. Þetta er allt að koma eftir
Hallgrím Helgason og Aitgu þtn sáu
inig eftir Sjón em einnig gimilegar.
Svo hef ég verið að glugga í heildar-
útgáfu verka Jökuls Jakobssonar
sem er virkilega skemmtileg og
brýn lesning fyrir leikara."
Hjálmar H. Ragnarsson
tónskáld
Þetta er allt að
koma og Kvœði 94
„Það eru nokkuð margar bækur á
óskalistanum, má ég ekki nefna þær
helstu? Jamm. Grandavégur 7 eitir
Vigdísi Grímsdóttur, Kvœði 94 eftir
Kristján Karlsson, Tvílýsi eftir Thor
Vilhjálmsson, Þetta er allt að koma
eftir Hallgrím Helgason, ævisögur
Aðalheiðar Hólm Spans og
Jakobfnu Sigurðardóttur og
Villtir svanir em allt bækur
sem mig langar til að lesa
yfír jólahátfðina."
30. desember er síðasti dagur
fyrir breytingar í Símaskrá 1995.
Einstaklingar, félög og fyrirtæki. Eruð þið
ánægð með skráningar í Símaskránni 1994?
Ef ekki, gerið þá breytingar í tíma.
Athugið að skráður atvinnusími tryggir fyrirtækjum,
félögum og einstaklingum í atvinnurekstri aðgang
að atvinnuskránni - gula hefti Símaskrárinnar.
í nafnaskránni 1995 - bláa heftinu - verða eingöngu
skráð heimilissímanúmer.
Skráið ykkur rétt,
í síðasta lagi 30. desember.
Vilborg Dagbjartsdóttir
rithöfundur
Jekyll & Hyde
jólaleg lesning
„Ég les ævinlega margar
bækur í einu. Þær sem ég er
að lesa nú og ætla að lesa
yfir jólin eru Ævinlega eftir
Guðberg Bergsson, Veistu,
efþú vin átt eftir Þorvald
Kri stinsson, Höfuðskepitur
eftir Þórunni Valdimarsdótt-
ur. í gærkvöldi las ég Hið
undarlega mál Jekylls og
Hydes í einunt rykk. Það er
mjögjólaleg lesning."
Ólína Þorvarðardóttir
íslenskufræðingur
fes Guðmund
Arna upp á
sagnfrœðina
„Eg er að vona að ég fái
Vigdísi og Fríðu íjólagjöf.
Svo ætla ég út í bókabúð til
að kaupa Guðmund Árna,
því ég treysti því ekki að
neinn gefi mér hana. Maður
verður að lesa hann upp á
sagnfræðina. Ég er líka búin
að vera að lesa Glœp og
refsingu síðustu fintm mán-
uði og á von á því að Ijúka
henni um jólin.“
f Upplýsingar:
Sími: 563 6620
Fax: 563 6609
Gylfi Gröndal
rithöfundur
Les mest Ijóðabœk-
ur
„Ég les mest Ijóðabækur og yllr
jólin ætla ég að lesa Stokkseyri eftir
ísak Harðarson, Á bersvœði eftir
Jónas Þorbjarnarson, Andalúsíuljóð
arabískra skálda í þýðingu Daníels
Á Daníelssonar, Guð og mamma
hans eftir Jóhönnu Sveinsdóttur og
Ur ríki samviskunnar sem Sigurður
A. Magnússon ritstýröi fyrir Am-
nesty International. Ég hef safnað
Ijóðabókum síðan ég var unglingur
og enginn gefur mér neitt annað í
jólagjöf."
Þórarinn V.
Þórarinsson
fríjmkvæmdastjóri VSÍ
Olafur og Einar
efstir á óskalistan-
um
„Ég er að gera mér vonir um að
geta lesið þá Olaf Jóhann og Einar
Kára. Ég er ekki alveg vonlaus um
að fá þær í jólagjöf og þær eru efstar
á óskalistanum. Þetta em stutt jól,
þannig að ég býst ekki við því að
lesa mikið meira.“
Þessir fengu
tilnefningar
Hallgrímur Helgason 11, Vigdís
Grímsdóttir 9, Sjón 7, Pétur
Gunnarsson 6, Einar Kárason 5,
Thor Vilhjálmsson 4, Aðalheiður
Hólm Span & Þorvaldur Kristins-
son 3, Fjodor Dostojevský 3,
Fríða Á. Sigurðardóttir 3, Guð-
bergur Bergsson 3, Guðmundur
Árni Stefánsson & Kristján Þor-
valdsson 3, Gunnar Dal & Hans
Kristján Árnason 3, Ólafur Jó-
hann Ólafsson 3, Geirlaugur
Magnússon 2, Jung Chang 2,
Kristján Karlsson 2, Nietzsche 2,
Nína Björk Árnadóttir 2, Þorleifur
Hauksson & Þórir Óskarsson 2,
Þórunn Valdimarsdóttir 2, Alina
Reyes 1, Andalúsíukvæði 1, Astr-
id Lindgren 1, Biblían 1, Bruno
Schultz 1, Guðmundur Böðvars-
son & Silja Aðalsteinsdóttir 1,
Heimskringla 1, Hrafn Gunn-
laugsson & Árni Þórarinsson 1,
Jóhanna Sveinsdóttir 1, Jólablað
Alþýðublaðsins 1, Jón Hilmar
Jónsson 1, Jónas Þorbjarnarson
1, Jökull Jakobsson 1, Kóraninn
1, Lawrence Norfolk 1, Óskar
Halldórsson & Ásgeir Jakobsson
1, Patrick Súskind 1, Robert Louis
Stevenson 1, Sigurður A. Magn-
ússon 1, Sturlunga 1, Walt Whit-
man 1.
Alþýði tblaðið
Bestgeymda leyndarmálið
ogVigd