Alþýðublaðið - 23.12.1994, Side 9
FOSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
9
Linda Vilhjálmsdóttir
Ijóðskáid
Fœ vonandi Pétur
og Hallgrím
„Ég bíð eftir jólagjöfunum, en ég
er að vona að ég fái bækumar þeirra
Hallgríms Helgasonar og Péturs
Gunnarssonar. Svo langar mig í
ljóðabók Geirlaugs Magnússonar,
Þrisvar sinnum þrettán og Engil í
snjónum eftir Nínu Björk. Svo gæti
ég hugsað mér að lesa þýðingu Sig-
urðar A. Magnússonar á Walt Whit-
man.“
Guðlaugur Þór Þórðarson
formaður Sambands ungra
Sjálfstæðismanna
Dal, Krummi pg
Guðmundur Arni
„Mig langar að lesa bókina hans
Gunnars Dal, Krumma og Hreinar
línur Guðmundar Áma.“
Georg Guðni
myndlistarmaður
Nietzsche og
siðfrœði náttúru
„Það fer eftir því hvað ég fæ í
jólagjöf. Mig langar mest í Hallgrím
Helgason. Svo er að koma út bók
um siðfræði náttúmnnar, sem gæti
verið spennandi og Handan góðs og
ills eftir Nietzsche. Það er slatti af
fræðandi bókum að koma út núna.“
Magnús Jón Árnason
bæjarstjóri í Hafnarfirði
Hreinar línur —
áritaðar af
höfundi
„Mig langar að lesa eitthvað létt-
meti, svo og einhverja góða íslenska
skáldsögu, til dæmis Kvikasilfur eft-
ir Einar Kárason, Sniglaveisluna
hans Olafs Jóhanns og Efstu daga
Péturs. Einnig er öllum hollt að
glugga í Islenska stílfrœði og Orða-
stað. Ég bíð ennþá eftir að fá Hrein-
ar línur áritaða frá höfundi."
Sveinbjörn I. Baldvinsson
dpgskrárstjóri Sjónvarps
Isbenskur
skáldskapur og
Pulp Fiction
„Það er alltaf ákveðin óvissa í
gangi, skáldskapurinn heillar samt
mest. Mig langar að lesa Einar
Kára, Vigdísi Gríms, Sjón, Þómnni
Vald, Gunnar Dal, Hallgrím Helga,
já ég veit alveg að ég kemst ekki yf-
ir að lesa þetta allt. Svo langar mig
að sjá ljóðabókina hans Kristjáns
Karlssonar. Ég veit að ég mun Iesa
rit sem tengjast mínu starfi, svo sem
bók um Vínlandsferðir eftir norska
konu og handritið af Pulp Fiction
sem mér áskotnaðist. Einnig langar
mig að glugga í Sniglaveisluna."
Gunnar B. Kvaran
forstöðymaður Kjarvalsstaða
Les Islenska stíL-
frœði íflensunni
„Ég ligg nú í flensu þannig að ég
hef nægan tíma til að kynna mér ís-
lenska stílfrœði eftir þá Þorleif
Hauksson og Þóri Óskarsson. Ég
ætla ekki að lesa neitt annað, heldur
athuga hvemig við getum notað
hana í myndlistinni. Það er nægur
biti ylir þessi stuttu jól.“
ÖgmundurJónasson
formaður BSRB
Pétur, Vigdís og
Jakobína
„Ég ætla að lesa Pétur Gunnars-
son, mér finnst hann svo ágætur,
einnig Vigdísi Grímsdóttur og ann-
að sem til fellur. Hér á skrifstofunni
er lagt hart að mér að lesa íbam-
dómi eftir Jakobínu Sigurðardóttur
og ég ætla að verða við því.“
Atli Heimir Sveinsson
tónskáld
Thor er einsog
strengjakvartettar
Beethovens
Á mínum óskalista em Handan
góðs og ills eftir Nietzsche, Tvífar-
inn eftir Dostojevský og svo þarf ég
að lesa Tvílýsi eftir Thor Vilhjálms-
son aftur. Ég er búinn að renna yfir
hana á hundavaði, en það er með
Thor eins og strengjakvartetta Beet-
hovens, maður þarf að fara í gegn-
um þetta nokkmm sinnum."
Bryndís Schram
framkvæmdastjóri
Kvikmyndasjóðs
Hallgrímur frœndi
og náttúrlega
Gunnar Dal
„Ég ætlaði að stinga af með
manninum mínum í sumarbústað
milli jóla og nýárs, en svo er búið að
kalla saman þing, ★þannig að ég
verð sjálfsagt föst í eldamennsk-
unni, eins og venjulega. Mig langar
til að lesa Vigdísi, Hallgrím frænda,
Fríðu, Einar Kára, Thor, Sjón, Pétur
Gunn og svo náttúrulega Gunnar
Dal. Jón er búinn að fá hana og í
henni er mikil lífsspeki."
Geir Waage
sóknarprestur í Reykholti
Fylgir starfinu að
lesa Biblíuna
„Það fylgir starfinu að lesa mikið
í Biblíunni um jólin, þá em það nátt-
úmlega mest guðspjöllin, svo og
Jesaja-textar. Útvarpið spilar nú
venjulega Messías eftir Hándel um
jólin og hann er fullur af Jesaja-text-
um. Þeir em á ensku, þannig að það
er gaman að hlusta á textana og bera
þá saman við íslensku þýðinguna.
Annars, ef ég hef góðan tíma, þá
kiki ég venjulega í Sturlungu, eða
Heimskringlu. Af þessum bókum
sem em að koma út um jólin, þá hef
ég heyrt að bókin hennar Vigdísar
Grímsdóttur sé spennandi."
Hulda Hákon
myndlistarmaður
Hallgrímur
og Sjón heilla
, Jólablað Alþýðublaðsins les ég
um jólin - að sjálfsögðu. Nú, verð
ég að nefna bækur? Þá langar mig
að nefna tvær: Þetta er allt að koma
eftir Hallgrím Helgason og Augu
þín sáu mig eftir Sjón. Heyrðu jú,
svo var ég kannski að spá í Óskars
sögu Halldórssonar...“
Hilmar Oddsson
kvikmyndagerðarmaður
Þrjú vekja
mesta forvitni
„Mesta forvitni mína vekja bæk-
umar eftir Vigdísi Grímsdóttur,
Hallgrím Helgason og Sjón,
Grandavegur 7, Þetta er allt að
koma og Augu þín sáu mig. Þessi
þrjú em efst á lista. Síðan vona ég,
að færi gefist til að lesa bækur Guð-
bergs Bergssonar, Einars Kárasonar
og Péturs Gunnarssonar. Já, og ekki
má gleyma Tvílýsi eftir Thor Vil-
hjálmsson; vonandi kemst ég tæri
við hana.“
Sveinn Yngvi Egilsson
skáld og bókmenntafræðingur
Eyði jólanótt
með Silju
„Ég ætla að eyða jólanótt með
Silju Aðalsteinsdóttur - það er að
segja bók hennar um Guðntund
skáld Böðvarsson: Skáldið sem sólin
kyssti. Sjálfsagt les ég fleira yfir jól-
in, en þessa bók hef ég pantað sér-
staklega í jólagjöf.“
Sindri Freysson
skáld og blaðamaður
Dostojevský
og Vigdís
„Það sem maður les veltur mikið
á því sem maður fær í jólagjöf. En
þær skáldsögur sem ég reikna með
að lesa em Tvífarinn eftir Dostojev-
ský, Efstu dagar eftir Pétur Gunn-
arsson, Slátrarinn eflir Alinu Reyes
og síðan hef ég áhuga á að lesa
Grandaveg 7 eftir Vigdísi Gríms-
dóttur. Einnig langar mig til að lesa
bækur Hallgríms Helgasonar og
Siguijóns Birgis Sigurðssonar, Þetta
er allt að koma og Augu þín sáu
mig. Ein bók til viðbótar er Krókó-
dílastrcetið eftir Bmno Schultz. Af
Ijóðabókunum em það helst Stokks-
eyri eftir Isak Harðarson og Þrisvar
sinnum þrettán eftir Geirlaug Magn-
ússon sem freista.“
Jól í Bézhetsk
— ljóð eftir Onnu Akhmatovu
Þar eru hvítar kirkjur - og dunandi glampandi ís,
þar blómstra nú augu sonar míns litla
blá einsog komblóm.
Yfir borginni gömlu skína rússneskar nœtur
alsettar demöntum,
og mánasigðin á himninum er þar gulari
en nokkurt hunang.
Þar blása þurrir snjóbyljir utan afsléttunum
handan við ána,
og mennfagna þar jólunum - glaðir einsog englamir;
þá er allt prýtt í bestu stofunni,
kveikt á lömpunum hjá íkonunum
og Hin helga bók liggur opin á eikarborðinu.
Þar hefur hörkulegt minnið, svo naumt á allt nú,
opnað fyrir mér loftherbergi sín
með djúpri hneigingu;
en ég gekk ekki inn, ég skellti aftur
þessari hrœðilegu hurð;
og borgin ómaði öll afglöðum jólabjöllum.
Geir Kristjánsson íslenskaði
Skáldkonan Anna Akhmatova (1889-
1966) mátti þola miklar ofsóknir á
undirstjórn bolshévíka í Sovétríkj-
unum. Eiginmaður hennar, skáldið
Gúmiljov, var tekinn af lífi 1921.
Sonur hennar var lokaður inni í
fangelsi og sjálf varð hún fyrir of-
sóknum. Undir andlátið fór hún að
njóta almennrar viðurkenningar,
enda er hún í hópi mestu skálda ald-
arinnar.
Ljóðið Jól í Bézhetsk birtist í bókinni
Undir hælum dansara sem inniheld-
ur úrval Ijóðaþýðinga Geirs Krist-
jánssonar úr rússnesku.
Tjaldið fellur
— ljóð eftir Jón Thoroddsen
Það rignir rósum. Englarnir klappa og hrópa. Guð almáttugur
hneigir sig og brosir.
Ungur, óreyndur engill stenst ekki mátið. Hann veifar vœngjun-
um og œpir: Lengi lifi Guð almáttugur. Hann lifi.
Himinninn skelfur af húrrahrópum, en Guð almáttugur bítur
snöggvast á vörina. Hann er eilífur. Svo brosir hann og hneigir
sig.
Gabríel erkiengill hefur boð inni og heldur aðalrceðuna. Honum
mœlist vel að vanda.
Leikararnir hafa þvegið sér og haft fataskipti. Þeir eru sóttir, og
þeir strjúka hendinni um augun.
Guð almáttugur stígur niður úr hásæti sínu, og slœr kumpánlega
á öxl aðalleikarans:
Þú varst óborganlegur, segir hann, og lítillœkkar sjálfan sig.
Eg skil þetta ekki, segir leikarinn. Hér er glaumur og gleði, en
ég kem frá landi hörmunganna.
Já, þú varst ágœtur, segja englarnir.
Eg efast um, að aðrir hefðu leikið það betur, segir Gabríel erki-
engill, og hann ber gott skyn á slíka hluti.
Leikarinn setur hnykk á höfuðið og hlœr.
Það var leikur, segir lumn og blístrar. En segðu mér eitt, Guð
almáttugur. Afhverju vitum við ekki, að við erum að leika?
Þegarþið vitið það, leikið þið ekki. Þið setjist bak við tjöldin og
hoifið á.
Þetta sagði Guð almáttugur og veislunni var lialdið áfram.
Jón Thoroddsen fæddist 1898, sonur Skúla þingmanns og Theodóru
skáldkonu; tók stúdentspróf í Reykjavík 1918 og embættispróf í lögfræði
frá Háskóla íslands 1924. Um haustið fór hann til náms í Kaupmanna-
höfn en á jóladag varð hann fyrir sporvagni og lést tæpri viku síðar, á
gamlárskvöld 1924; aðeins 26 ára að aldri. Árið 1922 sendi Jón frá sér
Flugurfyrstu íslensku Ijóðabókina sem einvörðungu hafði að geyma
prósaljóð; þar birtist hið nýstárlega og frumlega Ijóð Tjaldið fellur. Jón
Thoroddsen var einn mestur efnismaður af sinni kynslóð, og mikils var
af honum vænst, bæði í skáldskap og stjórnmálum: hann var jafnaðar-
maður og foringjaefni Alþýðuflokksins. Tómas Guðmundsson, vinur
Jóns, orti eitt fegursta erfiljóð íslenskrar tungu í minningu Jóns Thor-
oddsens.