Alþýðublaðið - 03.01.1995, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3 . JANÚAR 1995
niMTnmíinm)
20846. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavik Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Birta
yfír stjórninni
íslenska þjóðin hefur sannarlega ástæðu til bjartsýni á nýju ári.
Eftir sjö ára skeið samfellds rökkurs í þjóðarbúskapnum er nú
loks tekið að bjarma af nýjum degi; öll teikn benda til þess að
árið 1995 hefjist nýtt vaxtarskeið í efnahagslífí íslendinga.
Rætur batans liggja í fleiri en einn stað. Verulegrar uppsveiflu
er tekið að gæta í heiminum, ekki síst í þeim löndum sem Is-
lendingar eiga mest viðskipti við. Svo er ríkisstjóminni fyrir að
þakka, að aldrei fyrr hafa landsmenn verið jafn virkir í alþjóð-
legum viðskiptum og um þessar mundir, og af þeim sökum
mun batinn erlendis skila sér mun fyrr en ella inn til landsins.
Þannig mun uppsveifla umheimsins innan tíðar gera vart við
sig í farvegum viðskiptalífsins og verða því langþráð súrefnis-
gjöf-
En styrk stjóm á fjármálum íslenska ríkisins í tíð núverandi rík-
isstjómar skiptir þó enn meiru, og verður efalítið stökkbretti
framfara í efnahagslífí þjóðarinnar. Frá upphafi lagði ríkis-
stjómin þyngsta áherslu á að ná góðum tökum á útgjöldum hins
opinbera. Umtalsverð - og varanleg - lækkun hefur orðið á út-
gjöldum ríkisins, án þess að samdrátturinn hafí bitnað á þeim
sem minnst mega sín. Samhliða hafa erlendar skuldir verið
greiddar niður þrjú ár í röð, og hafa á þeim tíma verið greiddar
niður um 30 milljarða að raungildi. Það er árangur, sem engin
ríkisstjóm á lýðveldistímanum getur státað af.
Aðhald stjómarinnar, og áræði á réttu augnabliki, leiddi jafn-
framt til þess að langþráð vaxtalækkun varð að veruleika, sem
var til þess að greiðslubyrði heimilanna og fyrirtækjanna í land-
inu minnkaði svo milljörðum skipti. Samhliða var verðbólg-
unni haldið í skeljum, og er nú í sögulegu lágmarki. Síðustu tólf
mánuði hefur verðlag raunar nær ekkert hækkað að meðaltali, -
sem í erfíðu árferði hefur reynst fjölskyldunum í landinu traust
vamarvirki. Raungengið, sem leikur lykilhlutverk um afkomu
undirstöðugreina atvinnulífsins, hefur aldrei verið jafn hagstætt
og núna, og það á ekki sístan þátt í batnandi afkomu fyrirtækj-
anna í landinu.
Rökstólar
Fagnadarerindi
Johönnu
I Morgunblaðinu á laugardaginn
birtist ítarlegt fagnaðarerindi heil-
agrar Jóhönnu þar sem hún útlistaði
hvemig hún ætlar að leiða þjóðina
gegnum táradal hvunndagsins inn í
paradís Þjóðvaka. Greinin var eink-
um kærkomin fyrir þá áhugamenn
um pólitík sem enn eru að klóra sér í
hausnum yfir brotthvarli Jóhönnu úr
Alþýðuflokknum, enda átti hún þá
farsælan sjö ára ráðherraferil að baki
og hafði af einurð og alkunnri festu
staðið að hverju einasta þjóðþrifa-
máli ríkisstjómarinnar - sem hún
notar nú hvert tækifæri til að bölsót-
ast út í.
Pólitískur geðklofi
Hið mikla pólitíska manífestó Jó-
hönnu í blaði allra landsntanna var
sérkennilegur samsetningur í augum
þeiiTa sem ekki skilja að stjómniál
eru list hins ómögulega. En Jóhönnu
tókst sem sagt að gera hvorttveggja í
senn: Lofa og prísa árangur ríkis-
stjómarinnar líkt og sanntrúuðum
stjómarliða ber, - og úthúða sömu
ríkisstjórn fyrir margháttaða glæpa-
mennsku í garð þjóðarinnar. Þannig
tíndi Jóhanna til ýmislegt jákvætt:
Lága verðbólgu, lækkandi vexti,
hagstæðan viðskiptajöfnuð og batn-
andi afkomu fyrirtækja. Heiður þeim
sem heiður ber: Vitaskuld er þetta
rós í hnappagat Jóhönnu eins og ann-
arra ráðherra síðustu árin, hugsuðu
lesendur. En svo fór að syrta í álinn,
og einhvern veginn eins og pólitísk-
urgeðklofi næði yfirhöndinni. Þegar
Jóhanna var búin að tíunda nokkur
afrek stjómarinnar sneri hún nefni-
lega við blaðinu, og skyndilega kom
mikill fúkyrðaflaumur um ódæðis-
verk sömu stjómar.
Afturgenginn Þjódvilji
Einhverjir lesendur hafa sjálfsagt
haldið, og lái þeim hver sem vill, að
eitthvað hafi brenglast á Morgun-
blaðinu við frágang greinarinnar, að
minnsta kosti breyttist fagnaðarer-
indi Jóhönnu mjög óforvarendis í
svartagallsraus sem hljómaði eins og
afturgenginn Þjóðvilji þegar hann
var upp á sitt besta: „Skattastefna
ríkisstjómarinnar sem endurspeglar
skattaparadís fyrirtækja og fjár-
magnseigenda skal áfram standa,
þrátt fyrir efnahagsbatann, en skatta-
klyíjamar áfram lagðar af fullum
þunga á þá sem síst skyldi."
Bravó! Um hvað er Hin Mikla
móðir (eins og hún var nefnd á stofn-
fundi Þjóðvaka) að tala? Hver kom
„skattaparadísinni" á laggirnar?
Hver er svona mikill vinur „íjár-
magnseigenda"? Hver hefur lagt
klyfjar á þá sem síst skyldi? Kannski
ætti Jóhanna Sigurðardóttir alþingis-
maður að beina þessum spurningum
til Jóhönnu Sigurðardóttur fyrrver-
andi ráðherra. Og þó. Jóhanna myndi
sjálfsagt ásaka Jóhönnu um dylgjur
og svívirðingar - og ekki gott að vita
hvemig það endaði.
En svona þar fyrir utan: Var ekki
þessi andskotans ríkisstjórn að enda
við að framlengja hátekjuskatt? Og
var ekki - loksins, loksins! - sam-
þykkt að koma á fjármagnstekju-
Hver kom „skattaparadísmni114 á laggirnar? Hver er svona
mikill vinur „fjármagnseigenda44? Hver hefur „lagl klyfjar á
þá sem síst skyldi44? Kannski ætti Jóhanna Sigurðardóttir al-
þingismaður að beina þessum spurningum til Jóhönnu Sig-
urðardóttur fyrrverandi ráðherra. Og þó. Jóhanna myndi
sjálfsagt ásaka Jóhönnu um dylgjur og svívirðingar - og ekki
gott að vita hvernig það endaði.
skatti? Það er barasta svolítið kald-
hæðnisleg pólitísk tilviljun að það
skyldi ekki takast fyrr en Jóhanna
hafði yfirgefið stjómarskútuna.
Loksins stefna í
sjávarútvegsmálum!
Jóhanna Sigurðardóttir þótti í ráð-
herratíð sinni talsvert upptekin af
ákveðnum málaflokkum (við nefn-
um engin nöfn), og hún fékkst helst
ekki til þess að tala um neitt annað.
En hún hefur sannarlega gengið í
margháttaða endurnýjun lífdaga við
að stofna hreyfingu fólksins utan um
sig. Það er þannig harla broslegt að
lesa í grein Jóhönnu hvemig hún
tiplar í kringum sjávarútvegsmálin.
Stefna Þjóðvaka í málum mikilvæg-
asta atvinnuvegs þjóðarinnar er
hvorki meira né minna en svohljóð-
andi: „Endurskoða þarf sjávarút-
vegsstefnuna og snúa við þeirri þró-
un, að forræði á þessari sameign
þjóðarinnar verði smám saman eign
fámenns hóps.“
Það var ekkert annað. Ætli þessi
samsuða sé verk Agústs Einarsson-
ar sægreifa og siðbótarfursta - eða
hinna harðsvíruðu veiðigjaldasinna
úr Birtingu? Eða sér kannski Asgeir
Hannes um sjávarútvegsmálin?
Saxast á limina
hans Björns
Jóhanna hefur eignast fleiri
áhugamál upp á síðkastið. Morgun-
blaðið spyr hana, hvort beri að koma
á jöfnum atkvæðisrétti landsmanna,
og hvað sé viðunandi niðurstaða í
viðræðum flokkanna um breytingar í
þeim efnum.
Það er kannski ekkert tiltökumál
þótt Jóhanna verji mcstum hluta
svars síns við þessari skýru spum-
ingu í að fjalla um nauðsyn þess að
draga úr afskiptum stjómmálamanna
í bankakerfinu og sjóðakerfinu!
Með öðmm orðum: Jóhanna svar-
ar hvomgum lið spumingar Morgun-
blaðsins, en ítrekar fyrri yfirlýsingar
um að „stjórnlagaþingi" verði falið
að fjalla um málið. Alþingismenn
em sem sagt ekki hæfir til þess að
fjalla um breytingar á stjómarskrá
lýðveldisins - ekki hæfir til þess að
setja lög.
Ja, ýmislegt mega nú þingmenn-
imir okkar þola í seinni tíð, og marg-
víslegar ávirðingar; en þetta er í
fyrsta skipti sem alþingismaður lýsir
þvf yfir að hann sé óhæfur til þess að
gegna þeirri einu skyldi sem hann er
kjörinn til - að setja lög. Og úr því
þingmennirnir mega ekki heldur
sukka og svamla í sjóðakerfmu, ja,
þá er nú heldur tekið að saxast á lim-
ina hans Bjöms míns, eins og kerl-
ingin sagði.
Srædi Hinnar
i móður
Það væri fróðlegt að fara ítarlega
ytir fagnaðarerindi heilagrar Jó-
hönnu. I stuttu ntáli sagt ætlar hún að
stórhækka laun allra nema hátekju-
pakksins; hún ætlar að snarlækka
skatta allra nenta hátekjupakksins;
hún ætlar að efla velferðarkerfið um
allan helming; hún ætlar að bæta
menntakerfið til muna; hún ætlar að
útrýma atvinnuleysinu; hún ætlar að
siðvæða pólitíkina; hún ætlar að efia
fjölskylduna; hún ætlar að auka ný-
sköpun í atvinnulífinu og renna fleiri
og styrkari stoðum undir það.
Þetta er nú allt og sumt. Og ef ein-
hverjir halda að Jóhanna viti ekki
hvernig hún ætlar að fjármagna her-
legheitin, þá er hún nteð svar við því
líka. Peningana ætlar hún að sækja í
djúpa vasa hátekjupakksins, og svo
ætlar Jóhanna líka að skera niður
dagpeningagreiðslur. Svo einfalt er
það nú. En við spyrjum eins og
skáldið; Hvað varstu að gera öll
þessi ár?
Saman hafa þessir þættir lagt grunn að auknum þrótti í innvið-
um athafnalífsins, og allt síðasta ár hafa ráðherrar stjómarinnar
lagt áherslu á að í vændum væri batnandi tíð.
Reynsla síðustu mánuða og spár færustu sérfræðinga sýna að
það hefur gengið eftir. Landsframleiðslan, sem menn töldu að
myndi ekki aukast á nýliðnu ári, jókst eigi að síður um 2 af
hundraði á milli áranna 1993 og 1994, og gert er ráð fyrir að sá
vöxtur haldist á næstu árum. Fjárfestingar eru að aukast, at-
vinnuleysi er að minnka, og æ fleiri nýjungar í framleiðslu
spegla aukið áræði og útsjónarsemi atvinnulífsins. Það er að
vora í þjóðlífinu, og stjómvöld hafa af einlægni og heilindum
reynt að spara hvorki áburð né aðra virkt til að hlúa að kímblöð-
um nýrra og betri tíma.
Ríkisstjóminni hefur um afar margt tekist vel til, þegar hún iít-
ur yfir feril sinn, og það er ástæða til að taka undir með orðum
forsætisráðherra á gamlársdag; „Það er birta yfir ríkisstjóm-
inni.“
Dagatal 3.janúar
Atburdir dagsins
1521 Leó X páfi bannfærir Martein
Lúter. 1653 Sjávarflóð, stundum
nefnt Háeyrarflóð, veldur miklu
tjóni á Suðurströndinni, einkum Eyr-
arbakka. 1899 Kristilegt félag ungra
manna stofnað í Reykjavík, að frum-
kvæði séra Friðriks Friðrikssonar.
1946 William Joyce, kunnur undir
heitinu Lord Haw-Haw, breskur
áróðursmaður nasista hengdur fyrir
landráð. 1959 Alaska verður 49. og
stærsta fylki Bandaríkjanna.
Afmælisbörn dagsins
Markús Tullíus Cicero rómverskur
stjómmálamaður, rithöfundur og
mælskumaður, 106 f.Kr. Clement
Attlee leiðtogi breska Verkamanna-
flokksins og forsætisráðherra 1945-
51,1883. J.R.R. Tolkien Suður-afr-
ískur rithöfundur, höfundur Hringa-
drottinssögu og Hobbit, 1892. Vic-
tor Borge danskur skemmtikraftur
og píanóleikari, 1909. Victoria
Principal bandarísk leikkona, kunn-
ust úr Dallasþáttunum.
Annálsbrot dagsins
Um veturinn, 5. Februarii, drekkti
stúlka sér í sjó í Fúlavík í Gull-
bringusýslu, Steinunn Jónsdóttir að
nafni.
Sjávarborgarannáll, 1726.
Bull dagsins
Mér þótti skáldskapur hans í fyrstu
hálfgert bull. En það eru merkir
menn sem hafa álit á skáldskapnum
hans, og þeir vita þetta betur en ég.
Etelríour Pálsdóttir, móðir Steins Steinarr, í
samtali við Matthías Johannessen.
Málsháttur dagsins
Svo er hver kvaddur sem hann er
klæddur.
Ord dagsins
Nú er sumar í Köldukinn,
kveð ég ú millum vita.
Fyr md nú vera faðir minn
en flugumar sprinei af hita.
Jónas Hallgrímsson.
Lokaord dagsins
Klukkan er fjögur. En skrýtið. Svo
klukkan er fjögur. Skrýtið. Nóg!
Hinstu orð landkönnuðarins
Sir Henrys Mortons (1841- 1904).
Skák dagsins
í tilefni nýs árs er kjörið að líta á
endatafl tveggja valinkunnra meist-
ara, Moskalenkos, sem hefur hvítt
og á leik, og Miljanic. Peð beggja
em albúin að rísa til mannvirðinga,
en hvítur er einu skrefi á undan.
Staðan er hinsvegar viðkvæm og
hvítur þarf að feta einstigið af mikilli
nákvæmni til að hafa sigur. Eini rétti
leikur hvíts liggur enganveginn í
augum uppi. Og því er spurt: Hvað
gerir hvítur?
1. Ke4! Moskalenko bregst ekki
bogalistin. 1.... Bf5+ 2. Ke5 Bh7 3.
Rh2+! Miljanic gafst upp: 3.... Kg3
4. Rfl+ Kf2 5. Kf4! og sigurinn er í
höfn.